Morgunblaðið - 29.06.1988, Page 22

Morgunblaðið - 29.06.1988, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29; JÚNÍ1988 Leikhópur barna og unglinga til Evrópu SJÖ félagar úr leikhópnum Gaman Leikhúsið, sem skipað er börnum og unglingum á aldrin- um 10—15 ára, halda á Ieiklistar- hátíðir í Evrópu 30. júní næst- komandi. Hátiðirnar sækir ungt fólk í svipuðum leikhópum og mun sá islenski sýna söngleikinn, „Kötturinn fer sínar eigin leiðir“. Fyrst er förinni heitið á leiklistar- hátíð í Almelo í Hollandi og að henni lokinni bætast þrír ungir leik- arar frá Hólmavík í hópinn. Þá verð- ur haldið á leiklistarhátíð í Vín í Austurríki. Gaman Leikhúsið var stofnað 29. ágúst 1985 og eru félagar 43 talsins. Krakkamir sjá um allt sjálf- ir, leika, leikstýra, útbúa leikmynd, búninga og fléira tilheyrandi. Söngleikurinn „Kötturinn fer sínar eigin leiðir" er byggður á gamalli sögu Rudyards Kipling en höfundur leikrits, laga og texta er Ólafur Haukur Símonarson. Gunnar I Þórðarson útsetti lögin en Magnús Geir Þórðarson er leikstjóri. Síðastliðið vor fóru félagar úr Gaman Leikhúsinu á leiklistarhátíð í Hollandi og sýndu þar leikritið „Brauðsteikin og tertan" við góðar undirtektir. Nokkur fyrirtæki hafa styrkt leikhópinn til fararinnar. Auk leik- aranna fara tveir fararstjórar, þær Soffía Vagnsdóttir og Vilborg Val- garðsdóttir. (Úr fréttatilkynningu) Ssytryggingar SJÓVÁ LOKSINS kominn aftur Vegna mikillar eftirspurnar um alla Evrópu _________ höfum við átt í erfið- leikum með að fá Neistarann til lands- ins. Okkur hefur þó loks tekist að ná í tak- markaðar birgðir. VIKU skilafrestur. 1. árs ábyrgð. NEISTARINN RAFMAGIMSMEÐFERÐ „Sjálfsmeðferð viðverkjum, þrautum, harðsperrum, krampa, sinadrætti, tognun, sinabólgu, taugabólgu, gigt, liðagigt, settaugabólgu (ískístaug), sliti, tauga- verk, höfuðverk o.fl. Á sviði húðsjúkdóma dregur úr áhrifum ýmissa kvilla, s.s. exemi og kláða.“ (Dr. D. Dervieux, sérfræðingur í gigtarsjúkdómum.) ÚTSÖLUSTAÐIR Kristín - Innflutningsverslun, Skólabraut 1, Seltjarnarnesi, póskröfusími: (91) 611659. Glóey hf., Ármúla 19. Heilsuhúsið, Skólavörðustíg 3. Heilsuhúsið, Kringlunni. Heilsubúðin, Reykjanes- vegi 62, Hafnarfirði. Verslun Jóns og Stefáns, Borgarbraut 57, Borgamesi. ísafjarðarapótek, Hafnarstræti 18, Isafirði. Ferska, Aðalgötu 1, Sauðárkróki. mk__/ Heilsuhomið, Skipagötu 6, Ákureyri. Egilsstaðaapótek, Lagarási 18, Egilsstöðum. Kreditkortaþjónusta 611659 Póstkröfur EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI: KRISTÍN, INNFLUTNINGSVERSLUN, SKÓLABRAUTÍ, SÍMI91-611659. BOX 127,172 SELTJARNARNESI. Úr söngleiknum „Kötturinn fer sínar eigin leiðir“. F.v. Sigurveig, Sigríður sem leikur köttinn, og Magnús. Yfírlýsing æskulýðsfull- trúa þjóðkirkjunnar TORFI K. Stefánsson Hjaltalín, æskulýðsfulltrúi þjoðkirkjunnar, hefur sent Morgunblaðinu eftir- farandi yfirlýsingu: „Yfirlýsing vegna fréttar í Morg- unblaðinu laugardaginn 25. júní 1988. í frásögn af Prestastefnu 1988 var haft viðtal við mig varðandi til- lögur fermingarstarfanefndar um „stóraukna fermingarfræðslu- skyldu“. f viðtalinu er haft eftir mér að sumir „fermingarfræðarar hafa allt að einum og hálfum árslaunum prests fyrir fermingarstörf". Ber að harma þetta því að þær upplýsingar eru ekki réttar. Sökin er þó mín en ekki blaðamannsins því mér voru gefnar villandi upplýs- ingar sem ég lét síðan hafa eftir mér að óathuguðu máli. Ennfremur er haft eftir mér að það sé spuming hvort ekki beri að „skikka" sóknarpresta sem hafa flest fermingarböm „að ráða sér aðstoðarfólk og láta um leið af hendi hluta launa sinna". Harma ég það hvemig blaðamaður setur þetta fram. Það sem ég upplýsti hann um var einungis það, að með tillögu fermingarstarfanefndar um að „hver fermingarfræðari hafí ekki fleiri en áttatíu böm“ á fermingartímabilinu, væri verið að binda hendur þeirra presta sem hafa fleiri fermingar- böm. Uppsetning fréttarinnar er mjög gott dæmi þess að nauðsynlegt er fyrir þann sem viðtal er tekið við, að lesa viðtalið yfir áður en það er birt. Að öðru leyti hef ég ekkert við fréttina að athuga en vil benda á að skv. greinargerð er fylgdi tillög- um fermingarstarfanefndar kom fram að með samþkkt þessarar til- lögu ykist „gífurlega álag á prestum í fjölmennari prestaköllunum" og því væri nauðsynlegt að kalla til aðstoð- arfólk til að taka á sig hluta ferming- arfræðslunnar. Ætti slíkt og að vera vilji þeirra presta sem mest álag er á. Tillögu fermingarstarfanefndar var alls ekki ætlað að rýra orðstír þessara manna né gefa í skyn að þeir sinntu ekki starfí sínu, heldur þvert á móti. Tillögunni var fyrst og fremst ætlað að kveikja umræður um hvemig mætti létta vinnubyrði þessara manna og samræma fræðsluskylduna. Því var í tillögunni sett fram ákvæði um bindandi námsskrá hvað varðar íjölda fermingarbama á hvem fræðara. Slíkt verður þó ekki gert nema til sé starfslið í söfnuðun- um sem getur tekið að sér slík störf. Ljóst er að það tekur tíma að þjálfa starfsfólk til þessa starfa. í viðtalinu í Morgunblaðinu kom og skýrt fram að tillagan var hugsuð til lengri tíma óg vert er að taka fram að hún var fyrst og fremst lögð fram sem um- , ræðugrundvöllur. En eftir stendur að nauðsynlegt er að létta vinnubyrði á prestum í fjölmennustu prestaköllunum. Skv. lögum skulu ekki vera fleiri en fjög- ur þúsund manns á hvem prest en reyndin er sú að nú hafa 15 prestar ' fleiri en 4.000 sóknarböm. Það gef- ur augaleið að vinnuálag þessara manna er gífurlegt og að rétt er að þeir fái greitt sérstaklega fyrir þá | miklu vinnu. En það er einnig ljóst að þeim er umhugað að vinnuálagi verði létt af þeim. Með það að mark- miði var tillagan meðal annars lögð frarn." Leiðrétting frá Biskupsstofu Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi frá Biskupsstofu: „í Morgunblaðinu 25. júní birtist viðtal við sr. Torfa Stefánsson Hjaltalín, formann fermingarstarfa- nefndar um störf Prestastefnunnar 1988. Þar koma fram atriði sem em byggð á nokkrum misskilningi og þarfnast leiðréttingar. í viðtalinu kemur sú fullyrðing fram að prestar kunni að vera með allt að hálfum öðmm árslaunum presta fyrir fermingarstörfín ein. Þessi_ fullyrðing er hvergi nærri sanni. í fjölmennustu prestaköllum landsins hafa prestar nokkrar auka- tekjur vegna fermingarstarfanna. Þær ná þó aðeins í örfáum tilvikum þriðjungi þeirrar upphæðar sem nefnd var. Benda má á að fyrir þær tekjur leggja prestar á sig gífurlega vinnu sem bætist við önnur störf. Þá kom fram í viðtalinu við sr. Torfa sá skilningur að fermingar- störfum væri verr sinnt þar sem prestar hafa marga hópa í ferming- arstörfum. Tillögur um að takmarka skuli ijölda fermingarbama hjá hveijum presti hlutu ekki samþykki Presta- stefnunnar enda illa framkvæman- legar. Biskupsstofa telur ekki ástæðu til að vefengja störf og upp- fræðslu þeirra presta sem fermt hafa flesta fermingarhópana. Hins vegar er öllum ljóst að brýn þörf er á auknu starfsliði í fjölmennari söfn- uðum landsins til fermingarstarfa sem annarra safnaðarstarfa. Þá skal þess getið að Prestastefn- an 1988 fól biskupi og nýstofnaðri fræðsludeild að vinna áfram að skipulagi fermingarstarfa kirkjunn- ar. Fermingarstarfanefnd starfar innan vébanda fræðsludeildar." Úrslit forsetakosninganna á laugardaginn Vigdís Sigrún Auð og ógild Á kjör skrá Kjörsókn Kjör- sókn’80 Reykjavik 45.650 92,3% 2.675 5,4% 1.131 2,2% 69.125 49.456 71,5% 89,9% Reylganes 27.246 92,5% 1.594 5,4% 506 2% 40.720 29.446 72,3% 91,1% Vesturiand 6.970 92,6% 395 5,2% 161 2,1% 10.102 7.526 74,5% 90,9% Vestfírðir 4.604 92,8% 262 5,3% 94 1,9% 6.772 4.960 73,3% 90,1% Norðuri.vestra 4.824 92,8% 316 6,1% 59 1,1% 7.268 5.199 71,5% 88,6% Norðuri.eystra 12.399 94,2% 569 4,3% 193 1,5% 18.069 13.161 72,8% 90,5% Austurland 6.193 93,4% 369 5,6% 65 1% 9.064 6.631 73,2% 91,5% Suðuriand 9.408 92,6% 532 5,2% 222 2,2% 13.612 10.162 74,6% 92,0% Landið 117.292 92,7% 6.712 5,3% 2.531 2% 174.732 126.535 72,4% 90,5%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.