Morgunblaðið - 29.06.1988, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 29.06.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988 29 Morgunblaðið/Júlíus Erlingnr Jóhannsson, íþróttafulltrúi Reykjavíkur, Jóhannes ÓIi Garð- arsson, vallarstjóri Laugardalsvallar og Júlíus Hafstein, borgarfull- trúi og formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur með plaköt- in sem gerð voru í tilefni íþróttadagsins. * Iþróttadagur Reykvíkinga: Fjölbreytt dagskrá við sundstaði borgarinnar ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Reykjavíkur heldur íþróttadag í Reykjavík laugardaginn 2. júlí. Reykjavíkurborg vill með þessu vekja athygli á íþrótta- og útivist- arsvæðum í borginni og verður m.a. mikið um að vera við sund- staðina. Leiðbeinendur i skokki og sundæfingum verða fólki inn- an handar auk þess sem efnt verð- ur til keppni og leikja við sundlau- garnar og í Laugardalnum. A Iþróttadegi Reykvíkinga sem íþrótta- ogtómstundaráð Reykjavík- ur heldur á laugardaginn verður boðið upp ýmsa möguleika til íþróttaiðkana við sundstaði borgar- innar og í Laugardalnum. Þá hefur einnig verið gefinn út bæklingur sem dreift verður þennan dag. I honum er að fínna ýmsar ráðleggingar um íþróttaæfingar og skokk. Dagskráin við sundlaugamar hefst kl. 9.30, en sundlaugamar opna tveimur tímum fýrr. Leiðbein- endur verða til staðar við laugamar til kl. 17.30 og leiðbeina fólki í al- mennu bringu-, bak- og skriðsundi og teygjuæfingum í vatni. Þá verður einnig keppt í sundknattleik og sundkörfuknattleik sem sundlaugar- gestir eru þátttakendur í. Æfinga- tæki verða tekin í notkun í Laugar- dalslaug og Vesturbæjarlaug og Minigolf í Vesturbæjar- og Breið- holtslaug. Skokkað verður frá laugunum á heila og hálfa tímanum og fólki leið- beint um hlaupaleiðir, útbúnað og fleira er lítur að skokki. Ólympíu- hlaupið á vegum Ólympíunefndar- innar og FRI verður einnig haldið 2. júlí. Lagt verður af stað frá Laug- ardalsvelli kl. 11.00 og hlaupnar 5 og 10 km vegalengdir. Tennisvellir verða opnaðir fyrir almenning vi Fellahelli og gervigras- völlinn í Laugardal og blakvellir norðan gervigrasvallarins. Fyrir bömin verður „mínítívolí" á ferð- inni, og er fólk auk þess hvatt til að koma með sundbolta og önnur smærri vatnsleiktæki með sér í laug- amar á laugardaginn. íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur heldur íþróttadaginn, en það var stofnað fyrir tveimur árum þegar íþróttaráð Reykjavíkur og Æskulýðsráð Reykjavíkur runnu saman í eitt. Hluti af starfi ráðsins er að sjá um kynningu á útivistar- svæðum og hvetja fólk til hollrar tómstundaiðju. Ifyrsta skrefið í þá átt var stigið með Bláfjalladeginum sl. vetur. Ætlunin er að halda íþróttadag í sama formi og á laugar- daginn á hveiju ári og auka með því áhuga almennings á skokki og hreyfingu og hvetja það til íþrótta- iðkanna. Ef vel tekst til er hugmynd- in að bæta aðstöðu fólks enn frekar og jafnvel að bæta við tækjum á fleiri stöðum í borginni en við sund- staðina, að sögn forráðamanna dagsins. Kjörorðið er „hreyfing er heilbrigið, heilbrigði er lengra líf“. Borgarráð: Mótmæli við fyrirhug’- aðri bifreiðageymslu FULLTRÚAR minnihlutans i borgarráði, bókuðu mótmæli gegn hugmynd að fyrirhugaðri bifreiðageymslu við Tjarnar- götu, á fundi ráðsins í gær. Davið Oddsson borgarstjóri segir að í greinargerð með Kvosarskipu- lagi, sé gert ráð fyrir bifreiða- geymslu á þessum stað við Tjarn- argötu. I bókun sem undirrituð er af Ingi- björgu Sólrúnu Gísladóttur, (Kvl.), Bjama P. Magnússyni, (A) og Sig- urjóni Péturssyni (Abl.), segir að: „Vegna svars borgarstjóra til fé- lagsmálaráðherra varðandi lausn á bflastæðamálum Kvosar viljum við koma á framfæri mótmælum okkar við þeirri hugmynd sem þar er sett fram. Hún hlýtur að teljast alger- lega á ábyrgð borgarstjóra enda hvorki hluti af deiliskipulagi Kvosar né heldur hefur hún hlotið nokkra formlega umQöllun í borgarkerfinu. Af lokaorðum borgarstjóra mætti ætla að borgarstjóm hafi þegar tekið ákvörðun um að byggja bíla- geymsluhúsið á næstu 3 ámm. Svo er alls ekki og mótmælum við því harðlega að borgarstjóri gefi slík fyrirheit án pess ao iynr nggi vuji borgarstjómar." Alfreð Þorsteinsson (F), lagði ennfremur fram svohljóðandi bók- un: „Ég fagna því, að meirihluti Sjálfstæðismanna skuli viðurkenna, að bregðast þurfi við bílastæðis- vanda Suðurkvosar, vegna fækkun- ar bílastæða í ráðhúskjallaranum. Hvort sú lausn, sem reifuð hefur verið í brefi borgarstjóra er sú heppilegasta, skal ósagt látið á þessu stigi." Þá lét Davíð Oddsson borgar- stjóri, bóka að: „í greinargerð með Kvosarskipulagi er það svæði, sem nú er rætt um sem framtíðarstað fyrir bflageymslu í Suðurkvos, sérs- taklega nefnt og þarf því ekki að koma neinum á óvart. Undirbúning- ur að næsta skrefi í þvi máli hlýtur að fara fram með þeim sama hætti, sem jafnan er, að embætti borgar- stjóra láti undirbúa tillögur, sem síðan fari til meðferðar nefnda og ráða borgarinnar til ákvörðunar. Borgarstjóri starfar og talar í um- boði og á ábyrgð meirihluta borgar- stjóra og því eðlilegt að hann geri grein fyrir þeim hugmyndum, sem í gangi eru, ef eftir því er leitað.“ AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JACKSON DIEHL Sósíalisminn o g kreppan í pólskum heilbrigðismálum Bieganskiego-sjúkrahúsið i borginni Lodz í Póllandi er ekki sérlega vistlegur staður. Gul og grómtekin málningin og jafnvel sjálf múr- húðin er að hrynja af veggjunum og sumir sjúklinganna verða að liggja á beddum á göngunum. Sjúklingafjöldinn er meiri en fá- mennt starfsliðið fær ráðið við og á rannsóknarstofunni líður dagur- inn við símhringingar og lyfjaleit. Læknana vantar allt til alls, gúmmíhanska og hitamæla jafnt sem fullkomnari tækjabúnað. Læknamir á Bieganskiego- sjúkrahúsinu og starfsbræður þeirra um allt Pólland eru nú að búa sig undir róttækar breytingar á heilbrigðisþjónustunni. í apríl, að loknum skyndifundi í stjómmála- ráðinu, skýrðu yfirvöld frá því, að ókeypis heilsugæsla fyrir alla landsmenn, einn af homsteinum sósíalismans, myndi brátt heyra sögunni til. Nú yrðu sjúklingamir sjálfir að fara að greiða fyrir lyfm og sjúkrahúsvistina. Gjaldþrota kerfi Læknamir í Lodz segjast efast um, að komist verði fyrir rætur meinsins með þessari nýju skipan en viðurkenna þó, að ástandið í pólskum heilbrigðismálum sé svo alvarlegt, að ekki sé um annað að ræða. „Það er skelfilegt að þurfa að segja fólki það eftir 40 ár, að sósíalisminn geti ekki lengur tryggt því ókeypis heilsugæslu," sagði Andrzej Kedziera, skurð- læknir og yfirmaður Bieganski- ego-sjúkrahússins og þriggja ann- arra sjúkrahúsa í Lodz. „Hjá því verður samt ekki komist. Ástand- ið batnar ekki nema tilkomi meira fé.“ Rósin er bliknuð Einu sinni var sagt, að heilsu- gæslan ætti að vera rósin í hnappagati. pólsks sósíalisma en nú er kerfið komið að því að hrynja. Heilbrigðisstéttimar em í uppreisnarhug og þegar stáliðn- aðarmenn í Kraká fóm í níu daga verkfall fyrir skömmu var það ein meginkrafan, að heilsugæslan yrði bætt. Kommúnistastjómin, sem leggur nú alla áherslu á að hressa við iðnaðinn, hefur hins vegar neitað að auka framlög til heilbrigðismála. Ekki hefur enn verið tekin end- anleg ákvörðun um það hvenær verðið fyrir lyf og læknisþjónustu verður hækkað en stefna stjóm- valda birtist t.d. í því, að þeim fínnst ekki lengur neitt athuga- vert við einkaframtak lækna og annars hjúkmnarfólks. Raunar hafa pólskir læknar lengi unnið sín störf að hluta utan kerfisins en nú hefur læknum, hjúkmnar- fólki og sérfræðingum verið leyft að taka sig saman í eins konar einkafyrirtækjum. Auglýsa þessi fyrirtæki í blöðunum og taka að sér að skipuleggja ýmsa aðstoð við sjúklinga, greiða fyrir rönt- genmyndatökum og rannsóknum og sjá um að útvega pláss á sjúkrahúsum. Þjónustan er hins vegar ekki gefín: Að fá lækninn heim kostar yfir 1.500 ísl. kr. en það er um fimmtungur venjulegra mánaðarlauna. Þjóðfélagsleg þátttaka nauðsynleg Pólskir andófsmenn og félagar í Samstöðu hafa yfirleitt tekið fyrirhuguðum breytingum vel en margir læknar telja, að miklu meira verði að gera ef bjarga éigi heilbrigðiskerfinu. „Ríkið eitt er þess ekki umkom- ið, ástandið er orðið svo hroða- legt,“ sagði dr. Marek Edelman, hjartasérfræðingur í Lodz, einn þeirra tiltölulega fáu, sem lifðu af uppreisnina í gyðingahverfínu í Varsjá árið 1943. „Þjóðfélagið sjálft verður að taka miklu meiri þátt í heilbrigðisþjónustunni, ein- staklingar og sjálfstæð félaga- samtök. Nú er allt ómögulegt og því verður að breyta öllu.“ Aðeins 5% til félags- og heilbrigðismála Á þessum áratug hefur alvar- legum sjúkdómstilfellum fjölgað verulega í Póllandi og meðalaldur, einkum karlmanna, hefur lækkað. Aðeins 5% fjárlaganna er ráðstaf- að til félags- og heilbrigðismála og af Austantjaldsríkjunum eru sjúkrarúm tiltölulega fæst þar. Rúmlega 75% rúmanna eru í sjúkrahúsum, sem voru reist fyrir stríð, eða í byggingum, sem voru ekki reistar sem sjúkrahús. Þau eru svo yfirfull, að í borgunum verður fólk að bíða vikum eða mánuðum saman eftir plássi og gera sér þá að góðu að hírast á ganginum. Gróðrarstía fyrir sjúkdóma Þessar aðstæður og ófullkom- inn þrifnaður valda því, að pólskir spítalar eru ömurlegar, sóðalegar stofnanir þar sem mikil hætta er á að sýkjast af alls kyns sjúk- dómum. „Á gjörgæsludeildinni í einum spítalanum í Varsjá var gólfíð fordrullugt," sagði nýlega í dag- blaðinu Kurier Polski. „Glugga- kistumar og borðin voru grómtek- in af skít og ætli það sé ekki þannig með önnur sjúkrahús." Helmingnr lyfjaf ramleiðslunnar f luttur út Lyíjaskorturinn er kapítuli út af fyrir sig. Lyfjaverksmiðjumar, sem alltaf eiga í erfíðleikum með hráefni, eru skyldaðar til að flytja út helming framleiðslunnar til Sovétríkjanna og annarra Var- sjárbandalagsríkja og geta því aðeins sinnt þörfinni heima fyrir að litlu leyti. Lyfjainnflutningur er hins vegar lítill. Afleiðingin er sú, að pólskar heilsugæslustöðvar og sjúkrahús hafa árum saman orðið að reiða sig á gjafmildi Vest- urlandabúa, jafnvel hvað varðar algengustu lyf. Umræðan um heilbrigðismálin hefur vakið athygli á kjörum pólsku heilbrigðisstéttanna. Jafn- vel áerfræðingar í hópi lækna hafa tiltölulega lág laun og hjúk- runarfólk og aðstoðarfólk er næstum því á botni launastigans. Nefna má sem dæmi, að í borg- inni Bialystok í Austur-Póllandi hefur venjulegur læknir innan við 4.000 kr. ísl. í mánaðarlaun en verkamaður, sem vinnur við hol- ræsin, um 4.500 kr. Lögreglu- maðurinn hefur nokkuð á sjötta þúsund. (Heimild: International Her- ald Tribune) Heuter I verkföllum stáliðnaðarmanna í apríl sl. var það ein meginkrafa þeirra, að bætt yrði úr ástandinu í heilbrigðismálum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.