Morgunblaðið - 29.06.1988, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1988
Snæfellsness- og Hnappadalssýsla:
Sýslunefnd Rangárvallasýslu og ritari, frá vinstri: Þórður Tómas-
'son, Albert Jóhannsson, ritari, Ólafur Guðmundsson, Hermann Sigur-
jónsson, Þorsteinn Þórðarson, Eggert Haukdal, Friðjón Guðröðar-
son, sýslumaður, Bogi Thorarensen, Guðjón Ólafsson, Eyjólfur
Agústsson, Pálmi Eyjólfsson, Friðrik Magnússon og Oddgeir Guðjóns-
son.
Sýslunefnd Rangárvallasýslu:
Síðasti aðalfundur sýslunefndar
Stykkishólmi.
AÐALFUNDUR Sýslunefndar
Snæfellsness og Hnappadalssýslu
fyrir yfirstandandi ár var haldinn
í Stykkishólmi dagana 13. og 14.
júní sl.
Sýslumaður, Jóhannes Ámason,
setti fund og stjómaði honum. Bauð
nefndarmenn velkomna til fundar.
Hann sagði þetta vera seinasta aðal-
fund sýslunefndar Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu samkvæmt nýjum
sveitarstjómarlögum, en þar er kveð-
ið á að sýslunefndir sem stjómvöld
skuli hafa skilað af sér fyrir lok árs-
ins 1988. Þar með er lokið ferli þess-
arar nefndar sem í núverandi mynd
hóf störf 1872.
En vegna ýmissa mála ólokinna
var ákveðið að boða aukafund í sýslu-
nefnd í haust og þá ganga formlega
frá málunum. Jafnframt var ákveðið
að boða til fundar með fulltrúum
hreppanna í sýslunni og fulltrúum
Ólafsvíkurkaupstaðar og Stykkis-
hólmsbæjar til að ijalla um ráðsöfun
einstakra verkefna og eigna sýslunn-
ar, en fyrir liggur að sveitarfélögin
taki afstöðu til nýs fyrirkomulags
samkvæmt sveitarstjómarlögunum.
Ýmsar tillögur og beiðnir höfðu
borist sýslunefnd til ákvörðunar og
samþykktar, meðal annars frá Amt-
bókasafninu um flárþörf og fylgdi
ársskýrsla bókasafnsins, einnig bréf
dómsmálaráðuneytis um að leggja
niður manntalsþing. Þá barst fundar-
boð frá Ferðamálasamtökum Vestur-
lands.
Vegamál vom mjög til umræðu
og mættur var til viðræðu og upplýs-
inga Bjöm Jónsson héraðsstjóri
Vegagerðar ríkisins. í sambandi við
vegamál var samþykkt að lána af
sýsluvegafé 4 millj. til að undir-
byggja vegakaflann Núpá-Stórþúfa,
en féð endurgreiðist fyrri hluta næsta
millj. þar af framlag frá ríkissjóði
4.6 millj.
Miklar umræður urðu um Amts-
bókasafnið í Stykkishólmi og framtíð
þess og rekstur, einnig um Norska
húsið, sem nú er að opnast sem
byggðasafn.
Vom sýslunefndarmenn boðnir í
báðar þessar stofnanir til viðræðna
við stjómir þeirra. Norska húsið sem
byggt var 1828 og er nú 160 ára
hefir verið í endurbyggingu á vegum
sýslunefndar undanfarin ár og er nú
komið í það horf að vera til sýnis
þeim sem áhuga hafa að kynnast
byggðasafni. - Ámi
Dregiðí happ-
drætti Öldu-
túnskórsins
Vandi bænda og nei-
kvæð þróun í verslun
Síðasti aðalfundur sýslunefnd-
ar Rangárvallasýslu var haldinn
í Skógum undir Eyjafjöllum fyrir
nokkru, en samkvæmt nýjum
sveitastjómarlögum tekur hér-
aðsnefnd við verkefnum hennar.
Á fundinum vom samþykktar
ýmsar- ályktanir, svo sem um
skoðun og skráningu bifreiða,
mennta- og fræðslusetur að
Skógum, vanda bændastéttarinn-
ar, verslunarmál og samgöngu-
mál. Fundinn sátu allir aðalmenn
í nefndinni, ellefu að tölu, auk
^Friðjóns Guðröðarsonar sýslu-
manns, sem er oddviti nefndar-
innar.
Tekjur og gjöld sýslusjóðs árið
1988 nema rúmlega 6,5 milljónum
og eru helstu útgjaldaliðir rekstur-
og stofnkostnaður Fjölbrautarskóla
Suðurlands, 1,6 milljón, nýbygging
og tækjakaup Byggða- og skjala-
safns í Skógum, 1,5 milljón og fé-
lags- og menningarmál, 1,8 milljón.
Telqur sýsluvegasjóðs 1988 nema
alls um 16,5 milljónum. Til viðhalds
fara 11,5 milljónir, til nýbyggingar
4,2 og tæp 800 þúsund eru ófyrir-
séð_ útgjöld.
Á fundinum voru sem fyrr segir
*■»’ samþykktar nokkrar ályktanir.
Nefndin mótmælti eindregið nýjum
lögum frá Alþingi um skoðun og
skráningu bifreiða og skoraði á
þingið að taka aftur í gildi eldri lög
um þetta efni. Telur nefndin ljóst
að nýju lögunum fylgi stóraukinn
kostnaður og óhagræði fyrir bif-
reiðaeigendur í sveitum landsins.
Nefndin minnti á ályktun sína frá
1987 um nauðsyn þess að efla
mennta- og fræðasetur í Skógum
undir Eyjafjöllum. Kvaðst hún vilja
taka undir hugmyndir skólanefndar
Héraðskólans í Skógum um að
stofnuð verði ný námsbraut í þjóð-
háttafræði og safnfræði, enda slíkt
VERÐ á ferskum fiski í Bret-
landi var í gær mun hærra en í
síðustu viku. Verð á þorski var
þá um 87 krónur fyrir hvert kíló,
en þorskverð féll í siðustu viku
niður fyrir 50 krónur vegna of-
framboðs. Þorskverð hér hefur
verið óvenjuhátt og fór það hæst
i 49,50 á Faxamarkaði í gær, en
það er svipað og það var í upp-
hafi síðustu viku.
Huginn VE seldi 90 tonn, mest
ýsu og þorsk í Hull á gær. Heildar-
verð var 6,7 milljónir króna, meðal-
verð 74,82. Meðalverð á þorski og
ýsu var um 79 krónur. Hluti afla
Hugins var sendur áfram til Þýzka-
lands til sölu þar, en það var aðal-
nám nú hvergi í grunnskólum lands-
ins. Skorar nefndin á ráðherra
menntamála og landbúnaðar að
þeir beiti sér fyrir nýrri stöðu kenn-
ara og fræðimanns í Skógum er
sinnti þessu verkefni, ásamt því að
vinna með Þórði Tómassyni safn-
verði í Skógum að ritun verksins
„íslenskir búnaðarhættir".
Sýslunefnd minnti í ályktun á
vanda bændastéttarinnar og skor-
aði á stjórnvöld að koma til liðs við
þá, sem eiga við fjárhagsörðugleika
að stríða, sem úr gæti ræst, fengist
sanngjöm aðstoð og aðlögunartími.
Bent var á að jarðir víða um land
fari nú undir hamarinn og allstór
hópur fólks verði að flytja eigna-
laust á þéttbýlissvæðin. Benti sýsl-
unendf Rangárvallasýslu á að eðli-
legri lausn og mannúðlegri væri að
þetta fólk fengi tækifæri til að búa
áfram á jörðum sínum, gegn
greiðslu hóflegs leigugjalds.
Þá lýsti nefndin áhyggjum sínum
yfír neikvæðri þróun í verslunar-
málum Rangæinga og skoraði á
alla íbúa sýslunnar að standa ein-
huga að úrbótum. Það væri and-
stætt hagsmunum sýslubúa að
flytja stórar fjárhæðir gegnum við-
skipti til stórmarkaða í höfuðborg-
inni.
Loks samþykkti sýslunefndin
ályktun, þar sem minnt var á hvað
góðar samgöngur eru snar þáttur
í að viðhalda öflugri byggð um
landið. Taldi fundurinn mjög miður
að ekki skuli hafa tekist að fylgja
eftir áætlun Alþingis um að 2,4%
vergra þjóðartekna skuli varið til
samgöngubóta. Þá ítrekaði fundur-
inn fyrri ályktanir um að bygging
Markarfljótsbrúar verði hafin strax
og framkvæmdum lýkur við Ós-
eyrames, þ.e. á næsta ári. Krafðist
fundurinn þess, að fé til brúargerð-
ar við fljótið verði tekið af óskiptu
framkvæmdafé vegaáætlunar, áður
lega karfi og ufsi. Vigri RE seldi
235 tonn í Bremerhaven í gær og
fyrradag. Heildarverð var 15,8
milljónir króna, meðalverð 67,22.
Uppistaðan í aflanum var karfi.
Lítð var selt úr gámum héðan í
Bretlandi á mánudag, en 287 tonn
í gær. Meðalverð fyrir þorsk þá,
samtals 62 tonn, var 86,93 krónur,
fyrir ýsu, 183 tonn, 70,98 og kola,
20 tonn, 80,66.
Framboð héðan á brezka mark-
aðinn í þessari viku nær ekki helm-
ingi af því, sem það var í þeirri
síðustu, en heimabátar hafa aflað
vel. Svipaða sögu er að segja frá
Þýzkalandi, þar er framboði stillt í
hóf.
en skipt er upp til landshluta, svo
sem verið hafi með ýms stærri verk-
efni í samgöngumálum.
ÁRSFUNDUR Parísarsamnings-
ins um varnir gegn mengun sjáv-
ar frá landsstöðvum var haldinn
í Lissabon 15. - 17. júni sl. Á
fundinum voru tekin fyrir fjöldi
máia er varða mengun hafsins.
Samkomulag tókst um málefni
varðandi losun geislavirkra úr-
gangsefna í hafið og aðgerðir til
þess að draga úr losun næringar-
salta, köfnunarefnis og fosfórs í
sjó.
Á 10. ársfundi Parísarsamningsins
um vamir gegn mengun sjávar sátu
fulltrúar allra aðildarríkja samn-
ingsins, tólf alls, auk áheymarfull-
trúa Efnahagsbandalags Evrópu,
Finnlands og Samnings um vamir
gegn mengun Eystrarsaltsins.
Magnús Jóhannesson, _ siglinga-
málastjóri og Gunnar H. Ágústsson,
deildarstjóri mengunarsviðs Sigl-
ingamálastofnunar ríkisins voru
fulltrúar íslands á fundinum. Full-
trúar Landstjómarinnar í Færeyj-
um sátu ársfundinn í fyrsta sinn.
Samkomulag tókst um málefni
er varða losun geilsavirkra úr-
gangsefna í hafið og voru sam-
þykktar tvær ályktanir þar um. Þær
fjalla um endurvinnslustöðvar og
upprætingu geislavirkra úrgangs-
efna í sjó. Samþykkt var að aðilar
að samningnum skyldu ekki ekki
byggja nýjar endurvinnslustöðvar
fýrir brennsluefni eða auka veru-
lega framleiðslu núverandi stöðva
nema viðkomandi ríki geti sýnt
fram á áður að slík stöð hafí ekki
í för 'með sér mengun af völdum
geilsavirkra efna á hafssvæði París-
arsamþykktarinnar. Þeir voru einn-
ig sammála um að virða samþykkt-
ir annarra alþjóðlegra stofnana á
sviði geilsavama og beita bestu
tækni til þess að minnka sem mest
eða uppræta alveg mengun sjávar
vegna losunar geilsavirkra úr-
gangsefna frá öllum kjamorkuiðn-
aði, þar með töldum endurvinnslu-
stöðvum.
Miklar umræður spunnust um
losun næringarsalta og fjölgun eitr-
aðra þörunga í Skagerak, Kattge-
gat og hluta af Norskahafínu í vor
sem ollu umtalsverðri röskun á
lífríki sjávarins. Samþykkt var að
árs.
Þá benti sýslunefnd á að mjög
víða er ástand vega að opinberum
stofnunum í héraðinu ekki gott,
nefndi til veginn að Lýsuhóli og
Laugagerði.
Áætlun um tekjur og gjöld sýslu-
sjóðs yfirstandandi árs: Tekjur 4.930
millj. þar af sýslusjóðsgjald 3 millj.
Af útgjöldum er hæsti liður til
greiðslu skulda 1.619 millj. Áætlun
um tekjur og gjöld sýsluvegasjóðs
var lögð fram. Niðurstöður tekna 7.1
samningsríki skyldu undirbúa að-
gerðir þegar í stað til þess að draga
úr losun næringarsalta, köfnunar-
efnis og fosfórs í sjó eða um allt
að helming fyrir árið 1995. Sett
verður á laggimar nefnd til að sam-
hæfa og samræma aðgerðir til að
draga sem mest úr mengun þessara
efna þar sem losun þeirra er líkleg
til að valda mengun sjávar beint
eða óbeint. Helstu uppsprettur þess-
arar mengunar eru sorphreinsi-
stöðvar, landbúnaður, fiskeldis-
stöðvar, iðnaður, orkuver og farar-
Raufarhöfn.
MÖRG gömul hús eru að hverfa
af sjónarsviðinu víðs vegar um
landið og er húsið á meðfylgj-
andi mynd eitt af þeim. Norskir
bræður, Gustav og Olaf Evanger,
komu til Raufarhafnar eftir að
síldarbræðsla þeirra varð ónýt
eftir snjóflóð árið 1919 á Siglu-
firði og byggðu hér síldar-
bræðslu árið 1923,
Þetta hús reistu þeir á árabilinu
1927 til 1929 og var það þá notað
sem íbúðarhús og mötuneyti fyrir
starfsfólk verksmiðjunnar. Árið
1936 keyptu Síldarverksmiðjur
ríkisins eignir þeirra bræðra hér á
Raufarhöfn en þótt húsið skipti um
DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti kórs Öldutúnsskólans í
Hafnarfirði þar sem vinningar
voru málverk og ferðir.
Upp komu eftirtalin númer:
2895, 2499, 3051, 3907, 1257, 8,
99, 2436. Handhafar þessara núm-
era geta hringt í síma 622578,
54598 og 79916 og vitjað vinning-
anna.
(Birt án ábyrgðar úr fréttatil-
kynningu.)
tæki.
Fundurinn fór einnig yfir aðgerð-
ir sem einstök aðildarríki hafa fram-
kvæmt til að minnka mengun af
völdum kvikasilfurs, kadmíum og
PCB til samræmis við fyrri ályktan-
ir Parísamefndarinnar og lagðar
voru fram tillögur um aðgerðir til
þess að draga enn frekar úr losun
þessara efna í sjó. Ekki náðist sam-
staða um þessar tillögur nú en þær
munu verða til frekar athugunar
hjá samningsaðilum fyrir næsta
ársfund.
eigendur þjónaði það áfram sama
hlutverki.
Húsið gekk undir ýmsum nöfnum
svo sem Norðmannabragginn, svo
fékk það nafnið Tröð, en yfírleitt
gekk það undir nafninu Bragginn
eða mötuneyti SR á sfldarárunum.
Sennilega kannast margir af mekt-
armönnum þjóðarinnar við þetta
gamla hús en í því dvöldu margir
námsmenn á sfldarárunum þegar
þeir stunduðu sína sumarvinnu hér
á Raufarhöfn á þeim árum þegar
síldin var og hét. Og ef veggir þessa
gamla húss gætu talað hefðu þeir
frá ýmsu að segja.
- Helgi
Bretland:
Fiskverðið hækkar
Ársfundur Parísarsamningsins:
Samþykkir aðgerðir gegn
losun úrgangsefna í sjó
Hús Evanger-bræðra rifið á Raufarhöfn. Morgunbiaðið/Heigi óiafsson
Hús rifíð á Raufarhöfn