Morgunblaðið - 13.07.1988, Page 2

Morgunblaðið - 13.07.1988, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1988 Slæm staða sjávarútvegs: Halli á veiðum og vinnslu talinn 6% ÞJÓÐHAGSSTOFNUN áætlar að halli á botnfiskveiðum og vinnslu sé í heild um 6% af tekjum um þessar mundir. Vinnslan er talin rekin með 4’/2% halla, þar af sé frysting rekin með 8% halla en saltfiskverkun með 2% hagnaði. Útgerð botnfiskveiða er talin rekin með 3% halla, þar af sé hagnaður togara 1-2% en bátaútgerð sé rekin með 8'/2% halla. í endurskoðaðri þjóðhagsspá segir að þær áætlanir, sem Þjóð- hagsstofnun hafi gert og byggðar séu á vísbendingum úr ársreikn- ingum fyrirtækja fyrir 1987, bendi til þess að sjávarútvegur hafi ver- ið rekinn með hagnaði árið 1987, annað árið í röð. Ljóst sé að botn- fískveiðar og -vinnsla, sem sé um 2/3 hluti af framleiðslu sjávaraf- urða, hafí búið við góða afkomu þegar litið sé á árið 1987 í heild og botnfískvinnslan hafí verið rek- in með 2*/2% hagnaði. Hins vegar hafí farið að halla undan fæti á síðari hluta ársins 1987. arafli: aukist um 0,9% á föstu verðlagi. Þá er gert ráð fyrir met- sjávarafla árið 1988 eða alls 1,813 milljón tonna. Er þar spáð 1 millj- ón tonna loðnuafla eða 25% aukn- ingu frá síðasta ári. Þá er gert ráð fyrir meiri þorskafla en í fyrri spám, bæði vegna þess að komið hefur í ljós að ekki hefur dregið úr afla og eins hafa veiðiheimildir verið rýmkaðar. Sjá aðrar fréttir af endurskoð- aðri þjóðhagsspá á bls. 31. Morgunblaðið/Júllus Hvalkjötið komið frá Finnlandi Urriðafoss kom til Hafnarfjarðar síðdegis í gær. Um borð í skipinu var frosið hvalkjöt, sem sent var til baka frá Finnlandi að kröfu yfirvalda þar. í gærkvöldi var þegar hafist handa við að afferma skipið og myndin tekin þegar hvalkjötinu var komið fyrir í gámum á hafnarbakkanum og það flutt í geymslur. I þeim kafla þjóðhagsspár sem riAoHrvlflfÍncfvíííÍíí' fjallar um framvindu og horfur UUSUI yitKjabll 1U1U. árið 1988 er gert ráð fyrir að heild- Lævislegar söluaðferðir sem brjóta í bága við verðlagslög — segir GeorgÓlafsson verðlagsstjóri „ÞAÐ er mín skoðun að hér sé um lævíslegar söluaðferðir að ræða sem bijóti i bága við viss ákvæði verðlagslaga. Það er því tími til kominn að grípa í taumana," sagði Georg Ólafsson verðlags- stjóri er hann var inntur álits á þeim söluaðferðum sem ákveðnir gosdrykkjaframleiðendur hafa haft í frammi að undanförnu þar sem neytendum er umbunað með sérstökum verðlaunum beini þeir viðskiptum sínum að vissum gosdrykkjategundum. Georg sagði að farið yrði fram á við viðkomandi aðila að hætta þessum söluaðferðum, en leitað til dómsstóla ella, þar sem hér væri um lagabrot að ræða. g* CA-V/Oiu- ug giuuui vcinuaiojuiiai- miða. Alþjóðlegt skákmót: Margeir bar sigurúrbýtum MARGEIR Pétursson stórmeist- ari vann opið alþjóðlegt skákmót í Belfort í Frakklandi. Mótinu lauk sl. sunnudag og hlaut Mar- geir 8 vinninga af 9 mögulegum og var einn efstur en yfir 200 skákmenn frá 21 landi tóku þátt í mótinu. í öðru sæti varð sænski skákmað- urinn Hector með 7*/2 vinning. í 3.-8, sæti með 7 vinninga urðu Fle- ar frá Bretlandi, Klaric og Paunovic frá Júgóslavíu, Gunawan frá Indó- nesíu, Lukez frá Svíþjóð og Brenn- inkmeijer frá Hollandi. Margeir hélt rakleiðis frá Belfort til Marseille en þar hófst á mánu- dag alþjóðlegt skákmót með þátt- töku 10 skákmanna. Þar á meðal eru Sovétmennimir Gurevítjs og Dolmatov, sem tefldu á síðasta Reykjavíkurskákmóti og er mótið í 10. sfyrkleikaflokki FIDE. Fyrsta umferðin var tefld á mánudag og tapaði Margeir fyrir franska al- þjóðameistaranum Andruet eftir slaka taflmennsku að eigin sögn, en Margeir eyddi nóttinni á undan í ferðalagið milli borganna. í ann- ari umferð gerði Margeir jafntefli við Todorcevic sem teflir fyrir Món- akó. Verðlagsstjóri sagði að með til- komu nýrra fjölmiðla hefðu ýmis atriði farið úr böndunum er lúta að þeim ákvæðum verðlagslaga sem fjalla um óréttmæta við- skiptahætti og neytendavemd og ýmsum brögðum beitt til að aug- lýsa upp ákveðnar vörutegundir eða hafa áhrif á neytendur með öðrum hætti. „Þetta er orðinn mikill frumskógur og við höfum haldið að okkur höndunum til þessa að öðru leyti en því, að við höfum sent viðkomandi fyrirtækj- um bréf þar sem bent er á þessi ákvæði laganna. En okkur finnst þetta gosdrykkjastríð vera komið úr böndunum og mál að linni.“ Upphaf þessa máls má rekja til jólaleiks Vífílfells, þar sem bömum gafst kostur á að safna jólasvein- um á kókflöskum og fengu í stað- inn ýmsa hluti. Verðlagsstjóri sagði að Verðlagsstofnun hefði þá bent forsvarsmönnum Vífílfells á að hér væri um óeðlilega viðskipta- hætti að ræða. Sanitas hefði síðan komið með nýja söluherferð ekki alls fyrir löngu, þar sem neytend- um er ætlað að safna flipum af dósum gegn gimilegum verðlaun- um og væri þar einkum höfðað til bama. Vífílfell hefði svarað aftur með örlítið jákvæðara yfírbragði „Við teljum þetta vera uppá- þrengjandi söluaðferðir. Þama er verið að selja mönnum vöru á röngum forsendum og þar af leið- andi óhæfí gagnvart neytendum og eins gagnvart þeim gosdiykkja- framleiðendum sem ekki nota svona aðferðir. Okkur fínnst því herra segist að svo stöddu ekki vilja taka afstöðu til hækkunar- beiðni olíufélaganna sem hafa óskað eftir 7-10% hækkun á olíu- verði. Hann segir þó að kanna þurfi vel tilefni hækkunarinnar, og þá sérstaklega álagningar- breytingar. Beiðnin verður tekin fyrir á fundi Verðlagsráðs í dag. Jón Sigurðsson sagði við Morg- unblaðið að þegar olíufélögin lögðu fram beiðni um hækkun hefði hann beðið um að álagningarhækkunar- beiðnin yrði könnuð sérstaklega, svo og beiðni um hækkun olíuverðs með tilliti til þess að markaðsverð væri að lækka. Sannleikurinn væri síðan sá að gengið hefði verið á innkaupsjöfnunarsjóð, vegna þess að innkaupsverðið hækkaði um sinn fyrr í sumar, auk þess sem bensín hefði verið að hækka í verði vegna árstíðarsveiflu. Kristjáns Ragnarsson fram- kvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna lét svo um- mælt í Morgunblaðinu sl. laugar- dag, vegna hækkunarbeiðnar olíu- félaganna, að spyma yrði við fótum svo þeir sem grætt hefðu á þjón- ustunni við sjávarútveginn gætu ekki endalaust yfírfært allar verð- hækkanir yfír á útvegsmenn. Undir þetta var tekið í forustugrein Morg- unblaðsins sl. sunnudag og sagt að tímabært væri að gefa olíuverslun fijálsa eins og önnur viðskipti. Þeg- ar þetta var borið undir viðskipta- ráðherra sagði hann að ef olíuversl- tími til kominn að þessu linni,“ sagði Georg. Aðspurður um aðgerðir af hálfu . Verðlagsstofnunar sagði hann að viðkomandi framleiðendur yrðu boðaðir á viðræðufund þar sem ítrekað yrði við þá að hér væri um lagabrot að ræða. Ef þeir hins vegar reyndust ekki reiðubúnir til að hætta þessum viðskiptaháttum yrði málið sent til viðeigandi með- ferðar hjá dómstólum. un væri fijáls hefði olíuverðið verið að hækka hér á landi undanfarið vegna hærra innkaupsverðs og hækkun bandaríkjadals því þá myndi olíuverðið alltaf fylgja inn- kaupsverðinu. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Vextir á ríkisvíxl- um hækka Fjármálaráðuneytið hefur hækkað forvexti af ríkisvíxlum í 34,3% úr 32,5% og jafngildir það 43,13% eftirá greiddum vöxt- um. Raunvextir á spariskirtein- um ríkissjóðs eru óbreyttir eða 8,5%. Að sögn Bjama Sigtryggssonar, upplýsingafulltrúa fjármálaráðu- neytisins, var hækkun á vöxtum ríkisvíxla ákveðin 6. júlf sl. Þá var ákveðið að fresta ákvörðun um breytingu á vöxtum spariskírteina til haustsins. Bjami sagði það mat fjármála- ráðuneytisins, miðað við þekktar forsendur, að verðbólga á þessu ári verði 27‘/2% miðað við síðasta ár og 22% frá upphafi til loka ársins. Kvikmynda náttúru ís- lands með nýrri tækni SJÖ manna hópur frá Japan og Kanada er nú staddur hér á landi við töku kvikmyndar um jörðina og náttúruöflin. Kvikmyndin, sem verður aðeins 15 mínútna löng, er tekin upp með nýrri tækni, svokallaðri Imax, og verður sýnd á risastóru 30x40 metra tjaldi á sýningu í tilefni 100 ára afmælis Yokohama-hafnar á næsta ári. Búist er við að 8 milljónir gesta sjái myndina þar, að sögn Arthurs Uyeyamas, sem hefur yfirumsjón með upptökum hér á landi. Hópurinn hefur verið við upp- tökur á Reykjanesi, í Kiýsuvík, á Þingvöllum og við Geysi. í gær lagði hópurinn síðan af stað aust- ur á bóginn með tvo íslenska að- stoðarmenn og er ætlunin að kvik- mynda við Breiðamerkurlón, á Aust§örðum og við Mývatn. Að sögn Uyeyamas verður einkum kvikmyndað úr lofti, en tilgangur- inn með myndatökunni hér á landi er að sýna náttúruöflin að verki. Hlutur íslands í myndinni er að- eins um 3 minútur, en einnig verð- ur kvikmyndað í Indónesíu, Ástr- alíu og Alberta-fylki í Kanada. Imax-kvikmyndir eru teknar upp á 70 mm filmu, sem er helm- ingi breiðari en venjuleg fílma, og er allur tækjabúnaður við tök- umar fyrirferðarmikill sem því nemur. Uyeyama sagði að stærð tjaldsins við Imax-sýningar gerði það að verkum að áhorfendum fyndust þeir vera staddir í miðri myndinni. Þessi tækni er kanadísk að uppruna og ný af nálinni, þann- ig að aðeins er hægt að framkalla filmurnar á þremur stöðum í ver- öldinni og enn sem komið er er ekki hægt að sýna Imax-myndir á mörgum stöðum. Uyeyama sagði hópinn hafa verið heppinn með veður, en hann hefði verið vondaufur eftir að hafa kannað aðstæður hér í sólar- leysinu í júní. Smáslys hefði orðið þegar upptökustjórinn brenndi sig á fótum á Geysissvæðinu, en hann gæti vonandi staðið í fætuma aft- ur innan skamms. Kanna þarf vel tilefni til beiðni um verðhækkun olíu -segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra JÓN Sigurðsson viðskiptaráð-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.