Morgunblaðið - 13.07.1988, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.07.1988, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1988 29 w^preay Noröursjór SKOTLAND J #f Dundee •/ Glasgow ENGLAND ÍRLAND^ Teikning af endurvinnslustöðinni, sem fyrirhuguð er í Dounreay. því, eins og nú stæðu sakir, að engin endurvinnslustöð yrði byggð í Dounreay. Og yrði hún byggð, myndi hún að líkindum verða minni en fyrirhugað var. Einkavæðing breytir dæminu OÐIN Marshall-tilraunastofunni í Dounreay þar sem gerðar eru tilraunir á úrvinnslu og aðskilnaði úrans og plútons úr úrgangi. En það eru fleiri ský, sem hafa dregið upp á framtíðarhimin þessar- ar stöðvar. Stjórnvöld í Bretlandi hafa ákveðið að selja raforkuver og dreifikerfi og verður frumvarp þess efnis að líkindum lagt fyrir þing næsta vetur. Þetta er hluti af því, sem nefnt hefur verið einka- væðing. Raforkufyrirtækin verða því hlutafélög eins og hver önnur og verða að skila hagnaði, eigi þau að lifa af samkeppnina. Það þýðir að líkindum, að kjarnorkuver munu eiga erfitt uppdráttar í samkeppni við stöðvar, sem brenna kolum. En stjórnvöld munu skylda dreififyrir- tækin til að kaupa hluta orkunnar frá kjarnorkuverum. Þau eiga því öruggan starfsgrundvöll. En það er mun h'klegra að fjárfest verði í kjarnakljúfum, sem nú þegar eru í notkun, gaskældum eða vatnskæld- um. Það er því fyrirsjáanlegt, að einkavæðingin muni gera starfsemi í Dounreay erfitt fyrir. sjávarbotni við Rockall. Hann kann- aðist ekki við það, sagði að sér þætti ekki ólíklegt að slík hugmynd væri komin frá einhveiju ráðgjafa- fyrirtæki í kjamorkuiðnaði. Það hefði komið fyrir áður að slíkar hugmyndir kæmu þaðan, fólk á Orkneyjum, í Skotlandi og víðar mótmælti, en þá kæmi í ljós að engar opinberar fyrirætlanir væru um það, sem verið væri að mót- mæla. En við dvöldum ekki lengi við þetta og bráðlega hófst skoðun- in, sem stóð allan daginn. Snemma mótmælt Það hefur verið gagnrýnt á Norð- urlöndum, í Orkneyjum og í Skot- MorgunblaM / AM að fá að byggja slíka stöð. Á þess- ari stundu er ómögulegt að segja, hvort leyfið fæst, þótt telja verði líklegt að svo verði með vissum skilyrðum á borð við þau að farið verði eftir strangari reglum t.d. um losun lággeislaúrgangs í umhverfið, en nú em í gildi. En það skiptir ekki minna máli að allar aðstæður hafa breyzt frá því að farið var fram á leyfið. Þá var talið að á næstu árum myndu rísa þrír eldiskjarnakljúfar í Evrópu, en þeir eru nefndir eldiskjarnakljúf- ar vegna þess að þeir framleiða eigin eldsneyti. Þær framkvæmdir hefðu knúið á að endurvinnslustöð af þeirri stærð, sem áætluð er í Dounreay, yrði byggð. En nú er talið ólíklegt, eftir því em ég kemst næst, að það rísi fleiri en einn slíkur kljúfur. Endurvinnslustöðin yrði því mun minni en áætlað var. Þeir starfsmenn, sem ég ræddi við, sögðu því allt eins miklar líkur á Brezk stjórnvöld hafa fjárfest um 100 milljónir punda (7,8 milljarðar ísl.kr.) á ári í þeim tilraunakljúf, sem nú er starfræktur í Dounreay, og þeirrí starfsemi, sem þar fer fram. Þriðjungur þessa fjár hefur komið frá hinni brezku landsvirkj- un, CEGB (Central Electricity Gen- erating Board). Hún hefur þegar lýst því yfir, að eftir söluna muni hún ekki hafa efni á að leggja fé til rannsókna í Dounreay. Yfirmenn stöðarinnar í Dounreay hafa brugðizt við með því að nýta ýmsa þá tæknikunnáttu, sem er til stað- ar, og selja hana. Þeir eru nýbyijað- ir á að hreinsa geislavirka bori af olíuborpöllum í Norðursjó, sem hef- ur verið hent fram að þessu. Þeir seldu raforku til rafveitunnar í Norður-Skotlandi á síðasta ári fyrir um 12 milljónir punda (930 millj. ísl.kr.). Þeir eru að fá einkaleyfi á aðferð að hreinsa plútón úr notuð- um brennslukjörnum. En þessar aðgerðir munu ekki halda stöðinni gangandi til langframa, ef yfirvöld ákveða að draga úr rannsóknum á brennsluofnum, sem nýta hraðar nifteindir. En það virtist mér þeir óttast mest, því að fyrirsjáanlegt er að vart verður þörf fyrir slíka kljúfa fyrr en á næstu öld, ef þróun- in verður í samræmi við spár. En það er vandinn við framtíðina, að hún lætur iðulega illa að stjórn og verst gegnir hún spám. Ef ég æki norður til Pentlands- fjarðar árið 2000 er alit eins víst að minna væri starfað þar en nú, tilrauna eldiskjarnakljúfurinn væri á Iokaskeiði sínu og enginn annar fyrirhugaður. landi að byggja eigi endurvinnslu- stöð fyrir kjarnorkuúrgang í Do- unreay. Mótmælin voru snemma á ferðinni. Það mál er ekki komið lengra en svo, að á þessu ári tekur Malcolm Rifkind, Skotlandsmála- ráðherra, ákvörðun um það, hvort byggingarleyfi verður veitt fyrir endurvinnslustöðinni. Ef leyfið fæst, en mjög ítarleg og opinber rannsókn hefur farið fram vegna þessa máls eiga þær íjórar þjóðir, utan Breta, sem hugðust standa að endurvinnslustöðinni, Vestur-Þjóð- veijar, Frakkar, ítalir og Belgar, eftir að taka ákvörðun um, hvort þær vilja standa að byggingunni yfirleitt og einnig hvort hún verður í Dounreay. Frakkar hafa sótt fast Heimildar- mynd um Blönduós Blönduósi. Sigursteinn -Guðmundsson yfirlæknir á Blönduósi og kona hans Brigitta Vilhelmsdóttir frumsýndu 2. júlí á Blönduósi kvikmynd sem þau hafa unnið að sl. fimmtán ár um fólk í leik og starfi á Blönduósi. Húsfyllir var á frumsýningunni og vegna fjölda óska hafa þau hjón ákveð- ið að endursýna myndina í haust. Sigursteinn Guðmundsson sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi mynd væri ekki fullgerð því eftir væri að hljóðsetja hana en að öðru leyti væri hún tilbúin til sýninga fyrir Blönduósinga. Sigursteinn sagði jafnframt að hann hefði keypt 16 mm kvikmyndatökuvél árið 1975 gagngert til að festa á filmu mannlífið á Blönduósi og varðveita minningar úr leik og starfi Blöndu- ósinga. Kvikmynd sú sem þau hjón- in Sigursteinn og Brigitta frum- sýndu 2. júlí sl. nær yfir árin 1973 til 1983 en meginefni myndarinnar er 100 ára afmæli Blönduóss 4. júlí 1976. Af öðru efni myndarinnar má nefna 100 ára afmæli Halldóru Bjarnadóttur 14. október 1973 en þann kafla tók Sigursteinn á kvik- myndatökuvél Björns heitins Berg- manns. Þættir úr sögu flugs til Blönduóss, starf leikfélagsins og hestamannafélagsins, hátíðarhöld á 17. júní og myndir frá laxveiði í Blöndu og myndir frá heimilisiðnað- arsafninu eru nokkrir þættir sem .mætti nefna og koma fyrir í þess- ari kvikmynd. Það er óhætt að fullyrða að hér er á ferðinni merkileg heimildar- mynd um sögu Blönduóss og þó fimmtán ár í sögunni sé ekki lang- ur tími þá hefur margt breyst á þessum tíma og margir þeir sem sáu myndina og hittu fyrir sjálfan sig til muna yngri höfðu af góða skemmtun. Sýningartími myndar- innarer 1 klukkustund og 19 mínút- ur og ætlar Sigursteinn að sýna myndina aftur í haust og þá með tali sem spilað verður af segulbandi jafnhliða kvikmyndinni. Jón Sig. Leikarar og- kvik- myndag’erðarmenn: Nýr samn- ingurundir- ritaður í síðustu viku FELAG íslenskra leikara og Samtök íslenskra kvikmynda- gerðamanna undirrituðu nýjan samning fimmtudaginn 7. júlí sl. Þetta er eini samningurinn sem þessir aðilar hafa gert með sér síðan 1985 og gildir hann til næstu tveggja ára. Samningur Félags íslenskra leik- ara og Samtaka íslenskra kvik- myndagerðarmanna var undirritaður fimmtudagskvöldið 7. júlí, eftir tveggja daga stanslausar viðræður, að því er Sigríður Þorvaldsdóttir, formaður Félags íslenskra leikara sagði í samtali við Morgunblaðið, en hún átti einnig sæti í samninga- nefnd. I samningnum felast ein- hveijar hækkanir, að hennar sögn, en ekki verulegar. Helstu breytingarnar frá síðasta samningi, sagði Sigríður vera þær að nú hafi verið ákveðið að allir kvik- myndagerðarmenn sem gera myndir á árinu og hafi ekki verið í SÍK, séu nú aðilar að samtökunum. Þetta er því heildarsamningur fyrir SÍK, svo þeir þurfa ekki semja við hvern og einn, eins og stundum hefur verið. Hún sagðist að lokum vera ánægð með að samningar tókust þar sem ekki hefur verið samið síðan 1985. Samningurinn gildir til næstu tveggja ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.