Morgunblaðið - 13.07.1988, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.07.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1988 15 Afmælistón- leikar í Skálholti Tónlist Jón Ásgeirsson Um næstu helgi mun Þorkell Sigurbjömsson tónskáld hafa full- talið í fimm áratugi og af því til- efni stóð Sönghópurinn Hljómeyki fyrir tvennum tónleikum í Skál- holti um síðustu helgi, þar sem eingöngu voru flutt verk eftir Þorkel, er bæði stjómaði og lék undir á orgel. Þorkell er einn af- kastamesti tónhöfundur okkar Is- lendingar en auk þess og með kennslustörfum við tónlistarskól- ann í Reykjavík hefur hann verið áhrifamikill í félagsmálum lista- manna. Fyrri tónleikamir hófust á raddsetningu á þjóðlagi við sálm- inn Dagur er, dýrka ber, sem höfundur segir að ekki hafi verið fluttur fyrr opinberlega, þó hann hafi átt í verki eitthvert síðkvöld- ið árið 1973. Margt fallegt er í þessari raddsetningu og sömuleið- is í næsta verki, sem var Orðlaus söngur, „vókalísa", er Marta G. Halldórsdóttir flutti ágætlega, við undirleik Harðar Áskelssonar. Þriðja verkið var Kirkjusónata í fimm þáttum, sem flutt var með þokka og góðri samstillingu af Ingu Rós Ingólfsdóttur, Kjartani Óskarssyni og Herði Áskellssyni en þetta verk samdi Þorkell 1985. Sónatan er byggð á sálminum Hver sem ljúfan Guð lætur ráða og mátti og heyra stefbrot úr þessum fallega sálmi. Tvö síðustu verkin vom söng- verk, það fyrra, Te Deum, upphaf- lega samið fyrir bamakór en var hér flutt af kvennakór og það síðara, hundraðasti og fimmtug- asti sálmur Davíðs, Lofsöngur, er Hljómeyki flutti með aðstoð Áma Áskelssonar og undir stjóm höf- undar. Það er margt stórt að heyra í Lofsöng Davíðs og mætti vel hugsa sér þetta verk í umgerð hljómsveitar. Það er ef til vill jaftit því að bera í bakkafullan lækinn að Qalla um tónverk Þorkels nú af þessu Þorkell Sigurbjömsson tilefni en það sem riQa mætti upp, að ritháttur hans er mjög opinskár og ljós, og má vera að svo ótalin „tematík" er einkennir mörg söngverk hans, hafi við fyrstu heym dregið athyglina frá textanum eða með einhverum hætti slitið tónferlið úr sambandi við innihald hans, hvað sem þessu líður þola mörg verka hans tíða endurtekningu og vinna á við hverja. Flytjendur skiluðu sínu mjög vel en það sem mætti helst finna að Hljómeyki, var óskýr textaframburður, sem ef til vill mætti kenna ónógum undirbún- ingi. Sönghópurínn Hljómeyki Seinni tónleikamir í Skálholti um síðustu helgi vom í heild fram- færðir af Sönghópnum Hljó- meyki, en sem fyrr aðstoðaði Ámi Áskelsson á bumbur og höfundur- innlék með á orgei og stjómaði. Á efnisskránni vora Davíðs- sáimur (121) Lofsöngur (77) þijú lög við kvöldbænir eftir Hallgrím Pétursson og síðasta verkið sem var hér framflutt og nefnist Koma. Texti þess er sóttur víða að, bæði úr Gamla og Nýja testa- mentinu. Það var margt einstak- lega fallegt að heyra á þessum tónleikum, sérstaklega í Davíðs- sálminum, Kvöldbænum Haligríms og í nýja verkinu, sem þó í heild er nokkuð sundurlaust, enda líklegt að hér sé um að ræða drög að stærra verki eða Hvíta- sunnuóratoríu, eftir því sem höf- undur segir í efnisskrá. í heild vora þetta góðir tónleik- ar en söngur Hljómeykis ekki jafn viss og oft áður og sérstaklega var textinn iinlega fluttur, sem oft vill vera raunin, þegar stuttur tími hefur gefíst til æfínga. Hvort sem því er til dreifa að þessu sinni, þá var það ljóst, að texta- framburðurinn var oftlega óvenju slakur og það svo, að nærri ófært gat verið að heyra orðaskil þó fylgst væri með textanum í efnis- skrá. Hvað sem þessum ónotum líður, þá ber að geta þess, að Hljómeyki gerði margt mjög fallega enda vel skipað í hvert rúm. Að þessu sinni mátti heyra smá einsöngsstófur mjög vel framfærðar af ungri og efnilegri söngkonu, Önnu Sigríði Helgadóttur, í Lofsöngnum og sfðasta verkinu Koma, eftir þvf sem undirritaður man best til. í heild vora þetta góðir tónleik- ar og vel viðeigandi afmælisgjöf. Undirritaður óskar Þorkeli tii hamingju og þakkar honum það sem þegar hefur verið saman gengið af enn ógenginni langleið ef Guð lofar. Til sölu fasteignirnar Rituhóiar 2 Húsið skiptist í efri hæð sem er 170 fm glæsileg íbúð. Neðri hæð er séríbúð 55 fm að stærð, saunabað með heitum potti og tvöföldum bílskúr. Húsið er allt fullfrágeng- ið með vönduðum innréttingum. Fallegt útsýni. Rituhólar 11 Húsið er ca 250 fm á tveimur hæðum auk 50 fm bílskúrs. Á neðri hæð er leikfimiaðstaða og heitur pottur. Mögu- legt er að hafa litla íbúð á neðri hæð. Frábært útsýni. Hér er um að ræða vandaðar eignir í mjög góðu ástandi. Nánari upplýsingar aðeins veittar á skrifstofu, ekki í síma. Austurgerði 9 Til sölu ca 300 fm glæsilegt einbýlishús á mjög fallegum stað. Möguleiki á séríbúð í kjallara. Innbyggður tvöfaldur bíiskúr. Falleg lóð. Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignaaali, simi 623444, Borgartúni 33, Reykjavík. Þing norrænna verkmenntaJkennara: Haft verði samráð um laun og vinnutíma AÐALFUNDUR NYS (Nordisk Yrkeskollares Samrad), sem er félag 30 þúsund verkmenntakenn- ara við framhaldsskóla á Norðurl- öndum, var haldinn í Álaborg i Danmörku dagana 18.— 20.maí s.l. Á fundinum voru samþykktar ályktanir m.a. um laun og vinn- utima, vinaskóla í anda norrrænn- ar samvinnu og mikilvægi þess að starfandi verkmenntakennarar taki þátt í ráðstefnum um verk- menntakennslu. í frétt af þinginu, frá Sambandi sérskóla, segir m.a.: „Kennarar fá- mennra iðngreina hafa mjög tak- markaða möguleika til framhalds- menntunar. Þess vegna hefur NYS ákveðið að hvetja til eflingar nám- skeiðahalds fyrir kennara í þessum greinum. Félagið hefur farið þess á leit við Norrænu ráðherranefndina að námskeið þessi, undir umsjón NYS, verði tekin með í fjárhagsáætl- un ráðsins. Einnig munu aðildarfélög hvers lands þrýsta á að námskeið verði haldin heima fyrir og þátttak- endum frá hinum Norðurlöndunum boðið á þau.“ Eftirfarandi ályktanir voru sam- þykktar: „Samanburður á greinar- gerðum frá aðildarfélögunum sýnir að norrænar ríkisstjórnir viðrast hafa samstarf um laun og vinnutíma verk- menntakennara og verða fyrir áhrif- um hver frá annarri. Ekki síst vegna þess er mjög mikilvægt að kennara- samtökin geri slíkt hið sama og mun NYS gera reglulega samanburð á þessum þáttum og munu upplýsingar verða endumýjaðar við hverja nýja samninga. NYS vill ennfremur leggja til að í anda norrænnar samvinnu verði komið á vinaskólum. Þeir skólar sem óska aðildar geta snúið sér til stjóm- ar NYS eða stéttarfélags verkmenn- takennara í hveiju landi. NYS vill einnig minna á þýðingu þess að starfandi verkmenntakenn- arar taki þátt. í ráðstefnum um verk- menntakennslu sem haldnar era á Norðurlöndum árlega. Það er alls ekki fullnægjandi að um þessi mál sé einungis fjallað af sérfræðingum í kennaramenntun á háskólastigi. Þess vegna er það álit NYS að full- trúum þess beri sæti á slíkum ráð- stefnum svo verkmenntakennarar geti sjálfir tekið þátt í að marka stefnu um kennaramenntunina." í tilefni afmælis NYS, sem verður í október er verið að undirbúa úgáfu bæklings um starfsemi félagsins. í niðurlagi fréttarinnar segir:„ Starfsmenntun á Norðurlöndum hef- ur og mun hafa mikla þýðingu fyrir atvinnulífið. NYS styður allt sem til heilla horfir I menntunarmálum kennara, einnig framfarir í launa- og atvinnumálum verkmenntakenn- ara og mun beita sér í þeim efnum næsta starfsáratuginn, eins og hing- að til.“ Á næsta aðalfundi, sem haldinn verður í Noregi, hefur verið ákveðið að ræða um kennaramenntun og þær kröfur sem gerðar era til verkmenn- takennara á Norðurlöndum og lögð áhersla á þýðingu þess að verkmenn- takennarar allra Norðurlandanna þekki þær hæfniskröfur sem gerðar eru í hveiju landi. (Úr fréttatilkynningu.) Garðabær - einbýlishúsalóðir Auglýstar eru til úthlutunar 8 einbýlishúsalóðir við Löngumýri 41-55 í Garðabæ. Lóðirn- ar eru um 800-900 fm að stærð og geta orðið byggingarhæfar snemma vetrar 1988. Áskilið er að allar lóðirnar seljist á næstu 6 vikum. Frekari upplýsingar eru veittar á bæjarskrifstofunum, Sveinatungu, sími 42311. Bæjarstjórinn f Garðabæ. Ferdatryggingar SJÓVÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.