Morgunblaðið - 13.07.1988, Síða 51
51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLf 1988
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
/\P 1 /wvwi 'U II
Bjórkjallari innréttaður
aftan við Dómkirkjuna
Stefnt að opnun í mars á næsta ári
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
erindi um innréttingu veitinga-
stofu í kjallara hússins við Póst-
hússtræti 17, á horni Skólabrúar
og Pósthússtrætis aftan við Dóm-
kirkjuna. Stefnt er á að opna þar
bjórkjaUara í byijun mars á
nsesta ári og hafa mat á boðstól-
um í hádeginu og á kvöldin.
Eigendur hússins eru hjónin Guð-
borg Kristjánsdóttir og Bjami Mar-
teinsson, arkitekt, sem teiknað hef-
ur innréttingar i kjallarann. Hús-
næðið er um 130 fermetrar og að
sögn Bjama mun veitingasalurinn
taka um 100 manns I sæti. „Þetta
verður ekta bjórkjallari i grófum
stíl, einn salur með nokkmm útskot-
um,“ segir Bjami. „Við stefnum að
þvi að opna á næsta ári um svipað
leyti og bjórinn verður leyfður.
Eflaust fáum við einhvem f lið með
okkur til að sinna matseldinni."
Þessir hringdu . . .
Leikfélag-
Haf narfj arðar
Þau leiðu mistðk áttu sér stað
í Velvakanda 9. júlí að Dóra Sig-
urðardóttir var sögð formaður
Leikfélags Kópavogs, en hún er
formaður Leikfélags Hafnarfjarð-
ar. Það er auðvitað Leikfélag
Hafnarifjarðar sem hefur verið
með leikritið Emil í Kattholti á
fjölum sínum en ekki Leikfélag
Kópavogs. Einnig ber að taka það
fram að ekkert samkomulag hefur
náðst við bæjaryfirvöld Hafnar-
fjarðar um hvernig leysa á að-
stöðumál leikfélagsins, því bæjar-
stjórn hefur tekið stóran hluta af
anddyri Bæjarbíós undir starfsemi
sína. Því er ekki vitað hvar leik-
ritið verður sýnt næst.
Velvakandi biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
Hvor sinn
gjalddaginn
Jóhanna Jónsdóttir hringdi:
„Mér þykir það óþægilegt að
síðan Hitaveitan og Rafveitan
fóru að senda hvor sína gíróseðla
að þeir skuli hafa hvor sinn gjald-
daga. Hvers vegna er ekki hægt
að hafa sama gjalddaga? Oft man
maður einungis eftir öðrum og
gleymir þá hinum, auk þess sem
þessu fylgja aukasnúningar. Það
væri best fyrir alla aðila að hafa
sameiginlegan gjalddaga."
Bjórkjallari við
Dómkirkjuna
„Ein sem lifir í voninni“
hringdi:
„Mér birtist framtíðarsýn eftir
að hafa lesið í Morgunblaðinu 9.
júlí að bjórkjallari yrði innréttaður
aftan við Dómkirkjuna:
Að ég muni engla sjá,
er mig farið að gruna,
þá smakka ég elsku ölinu á,
aftan við Dómkirkjuna."
Gleraugu
Gleraugu töpuðust 6. júlí. Þetta
eru lesgleraugu, óræð á litinn en
með skrauti á örmum við lamim-
ar. Finnandi vinsamlegast hafið
samband við Eggert í síma 32364.
Fundinn köttur
Arnfríður hringdi:
„Ungur og státinn alsvartur
fressköttur kom í nauðum staddur
að Njálsgötu 8c laugardaginn 9.
júní. Hann virðist vera af síam-
skyni, fagurskapaður og lífsglað-
ur. Skynsamur eigandi ætti ekki
að láta svo fallegan kött úr greip-
um ganga. Upplýsingar fást í
síma 17459.“
2 týndir kettlingar
2 gulbröndóttir kettlingar töp-
uðust frá Víðihlíð 13. Finnandi
er beðinn að hafa samband við
Bryndísi í síma 38607 eða 21199.
Seðlaveski
8. júní tapaðist seðlaveski á
leiðinni milli Þverholts og Bræðra-
borgarstígs. í veskinu voru 2000
kr., og voru það blaðburðarlaun
ungs drengs. Ekkert annað var í
veskinu. Skilvís finnandi er vin-
samlegast beðinn að hafa sam-
band við Þór í síma 12635.
Heimur hinna gleymdu
Til Velvakanda.
Mig langar til að minnast Önnu
Guðmundsdóttur og þakka henni
fyrir að fá að kynnast henni, konu
sem gaf mér innsýn inn í heim hinna
gleymdu. Sá þögli hópur deyr í
kompum úti um allan bæ, já svo
afskrifaður að enginn auglýsir lát
þeirra eða jarðarför eins og nú er
með Önnu.
Jafnvel starfsfólk Félagsmála-
stofnunarinnar spyr: „Hver var kon-
an sem fannst látin í Grjótaþorpi?"
Hjá mér getið þið fengið að vita
hver hún var. Þetta var Anna sem
gekk undir nafninu Vestmanna-
eyja-Anna. Ég kynntist Önnu þegar
ég vann á klósettum borgarinnar og
er viss um að hún vildi að ég sendi
þessum konum sem þar unnu sínar
bestu þakkir. Þar gat hún komið,
fengið sér kaffísopa og margar gáfu
henni föt. Um fram allt gáfu þær
henni hlýhug sem þetta fólk þráir
mest af öllu.
Ég hef í ræðu og riti reynt að
vekja athygli á lífi og dauða þessa
fólks. Svörin voru þau sömu og ég
fékk er ég reyndi að vekja athygli
á lífi ungmenna: „Já, ef þetta er
satt.“
Nú þegar ég sit hér og lít út sé
ég gluggann á kjallaraholunni henn-
ar Önnu. hann er tómur, engin blóm
eða gluggatjöld. Útigangskisurnar
sem hún gaf alltaf sitja nú og stara
inn um hann. Þær sakna hennar.
Henni var bannað að hafa kisur inni
hjá sér. Þegar ég horfi á gluggann
verkar hann á mig eins og starandi
auga, auga sorgar og bænar.
Eg krefst þess að þjóðfélagið sem
veitir ómældu fé í kannanir veiti fé
til að kanna líf og dauða þessa fólks.
Þögnin kemur hinum ábyrgu best.
Það þarf að opna hjálparstöð sem
er opin allan sólarhringinn, þar sem
allir, í hvernig ástandi sem þeir eni,
geta fengið mat, föt og aðstoð. Ég
veit að Rauði krossinn á góðu fólki
á að skipa og mun ekki láta sitt
eftir liggja. Unglingaathvarfið á
Suðurgötu 35, sem þeir komu á er
þeim til sóma.
Hvað segja skattgreiðendur? Eru
þeir sáttir við að fjármunum þeirra
sé sökkt í Tjörnina, reist ráðhús í
ráðalausu þjóðfélagi? Hvar eru
prestarnir? Kristur fór út á meðal
fólksins og mettaði þúsundir. Hann
breytti vatni í vín. Hvers vegna ekki
mjólk handa bömunum? Það hefði
verið hægt að fæða marga fyrir þá
fjármuni sem fara í að reisa eina
kirkju.
Póstur og sími:
Undirritaður er einn fjölmargra
óánægðra viðskiptavina Pósts og
síma. Reyndar er í hæsta máta vafa-
samt að tala um viðskiptavin, því
ekki stendur maður í skiptum við
stofnunina af fúsum og frjálsum
vilja, eins og tíðkast við vinaval.
Póstur og sími er ein örfárra
stofnana, sem ég veit til þess að
láti hringja út frekar en að svara í
síma. Hefði maður þó haldið að hún
reyndi að ganga á undan með góðu
fordæmi. Starfs míns vegna þarf ég
einatt að hringja til útlanda og þarf
að láta Póst og síma annast þær
hringingar. Þegar maður þarf hins
vegar að eyða allt að tíu mínútum
til þess eins að ná í Póst og síma
fara að renna á mann tvær grímur
um ágæti þess fyrirkomulags.
Kannski Pósti og síma sé að lær-
ast það að hún er þjónustustofnun.
Nýjar leiðbeiningar fyrir stafræna
símnotendur (eða notendur staf-
rænna síma) í símaskránni benda til
þess að síma-mandarínarnir við
Kirkjustræti séu e.t.v. loksins að ná
áttum. Hver veit?
Við verðum að stöðva það feigðar-
hjól sem ráðamenn halda sig geta
snúið í eigin þágu.
Ég vil að síðustu þakka vinkonu
minni fyrir öll þau blessunarorð sem
hún gaf mér og munu styrkja mig
í baráttunni fyrir hinum snauðu.
Guð blessi minninguna um góða
konu.
Laufey Jakobsdóttir
Hins vegar vaknar í sífellu sú
spurning hjá mér hvort ekki megi
fara að losa um einokunaraðstöðu
Pósts og síma frekar en verið hefur.
Ég held að öll umræða um einkavæð-
ingu sé af hinu góða og ekki síst
þegar að ræðir um tröllauknar stofn-
anir hjúpaðar egypskum myrkrum
líkt og gerist með Póst og síma. Um
skrifræði póstsins og óliðlegheit skal
ekki einu sinni fjallað hér. Það er
ráðstefnuefni fyrir her sálfræðinga.
Hin eilífu vandræði sem eru í
bæjarsímanum eru ekki til minni
leiðinda. Hver hefur ekki lent í því
að hringja eitthvert númer án þess
að nokkurt gerist? Eða því að hringja
í fyllilega gott og gilt númer til þess
eins að fá að heyra að það sé „eng-
inn notandi í þessu símanúmeri.“
í eina skiptið sem ég man eftir
því að kjöftugum hafi ratast satt orð
í munn í þessu viðfangi var þegar
þessi tilkynning glumdi á hljóð-
himnunni eftir að hafa reynt að ná
í eina af skrifstofum Pósts og síma.
Það er nefnilega enginn notandi
í því símanúmeri.
Andrés Magnússon.
Er enginn notandi
í því símanúmeri?
MAZDA 1988 T3500
Ekinn um 15 þús km. Bílaborgarkassi
3+1 hurð og lyfta.
Vindbrjótur, útvarp og símatenging.
Vinna tvo daga í viku gæti fylgt með,
ef um semdist.
Tilboð sendist augiýsingadeiid Mbl.
merkt: „V- 3763“ fyrir 20. júlí nk.
Plastkör
Þessi sterku og léttu plastkör henta vel til flutninga
og geymslu á hverskonar vörum og matvælum.
Þrjár stærðir.
B.Sígurðsson sf.
Veitum
allar ___
upplýsingar. Auðbrekku 2, Kópavogi. Sími 91-46216.
NÍÐSTERK ÞUNGAVIGTARLÍNA
MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ
loiisaiHiaj
ÚTILÍF"
Sími 82922
AKAI
HLJÓMTÆKI
nesco
LRUGRl/GGUR HF
Laugavegi 10, simi 2 7788