Morgunblaðið - 13.07.1988, Síða 56
Nýtt
númer
692500
SJÓVÁ
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
AÆTLUN:^\
London-Detroit
Bilun kom
fram í hreyfli—
og vélinni snúið
til Keflavíkur
Farþegaþota með 182 innanborðs:
Lenti á öðrum
hreyfli á Kefla-
víkurflugvelli
Lendingin heppnaðist mjög vel
„ÉG VAR dauðskelkuð, en hinir
farþegarnir virtust vera róleg-
ir,“ sagði Angela Reynolds, ein
af 182 farþegum um borð í Air-
bus A 310 farþegaþotu frá Pan
Am, sem lenti heilu og höldnu á
öðrum hreyflinum á Keflavíkur-
flugvelli klukkan 16:20 í gær.
Allt öryggiskerfið á Keflavíkur-
flugvelli var gangsett er þotan
tilkynnti að hún hefði misst ann-
an hreyfil sinn út vegna vélarbil-
unar og bað um leyfi til nauð-
lendingar. Hún var þá stödd um
500 km suðvestur af Reykjanesi
á leið frá London til Detroit í
Bandaríkjunum.
„Flugstjórinn tilkynnti okkur
strax að það væri bilun í öðrum
hreyflinum og að það þyrfti að
drepa á honum og halda til Is-
256 millj-
ónir til
flugvalla
FRAMKVÆMDIR við flug-
velli á þessu fjárhagsári eru
um fjórfalt meiri en undan-
farin ár, að sögn Jóhanns H.
Jónssonar, framkvæmda-
stjóra fyrir flugvelli. Alls er
ráðstafað 256 milljónum
króna til framkvæmda við
flugvelli og flugleiðsögukerfi
á þessu ári. Stærsta einstaka
framkvæmdin er ný flug-
braut og stækkun á flugstöð-
inni á Egilsstöðum, sem mun
kosta um 82 milljónir króna.
Aðrar miklar framkvæmdir
eru gerð öryggissvæða á Akur-
eyrar- og Húsavíkurflugvelli, en
öryggissvæði eru belti meðfram
flugbrautum. Einnig er unnið
við gerð öryggissvæða á
Reykjavíkurflugvelli og verið er
að setja upp mannhelda girð-
ingu í kringum völlinn. Tveir
nýir slökkviliðsbílar bætast við,
í Reykjavík og á Akureyri.
Lokið verður við gerð flug-
stöðvar í Vopnafirði nú í mánuð-
inum og unnið er að flugstöðv-
arsmíði á Neskaupstað. Þá
verður bygging nýrrar flug-
stöðvar á Sauðárkróki boðin út
á þessu ári og ráðgert er að
hefja byggingu nýs farþega-
skýlis á Blönduósi. Lokið verður
að mestu við Bíldudalsflugvöll
í sumar, en eftir verður að
leggja slitlag á hann. Flug-
brautin við Reykjahlfð við Mý-
vatn verður lengd og einnig
brautin á Borgarfirði eystra,
upp í 1.000 metra. Gerð örygg-
issvæða á Breiðdalsvík er nán-
ast lokið og öryggissvæði á
Patreksfjarðarflugvelli verða
fullbúin í sumar.
lands. Farþegarnir héldu stillingu
sinni, en létti greinilega mikið eftir
lendinguna, sem tókst mjög vel.
Húrrahróp heyrðust og áhöfninni
var klappað lof í lófa,“ sagði Raym-
ond Reynolds, einn farþeganna.
Tilkynning flugstjórans um olíu-
leka í öðrum hreyfli þotunnar barst
Flugmálastjórn um kl. 15.30 og
þremur stundarfjórðungum síðar
var vélin lent á Keflavíkurflugvelli.
Flugvél Flugmálastjórnar var send
á loft og fylgdi hún þotunni inn til
lendingar. Allt almannavarnarkerf-
ið á höfuðborgarsvæðinu og á
Reykjanesi var einnig sett í gang
vegna þessa máls. Sjúkrahúsin
voru aðvöruð og það starfsfólk
þeirra sem var að ljúka vaktavinnu
var beðið að doka við, þar til sýnt
væri hvemig lendingin tækist. Lög-
reglan á Keflavíkurvelli, Reykja-
nesi og á höfuðborgarsvæðinu hafði
mikinn viðbúnað til þess að leiðir
milli Keflavíkur og Reykjavíkur
væru opnar hefði þurft á því að
halda.
Farþegar og áhöfn Airbus vélar-
innar dvöldu hérlendis í nótt, á
Hótel Loftleiðum og Holiday Inn.
í dag heldur fólkið áfram för sinni
með vélinni þar sem væntanlega
verður búið að gera við hreyfilinn.
fram
Starfsmenn Flugleiða athuga
hreyfil Airbus A 310 þotunnar,
en í gær var ekki ljóst hvað olli
því að hann bilaði, svo nauðlenda
varð vélinni á Keflavíkurflug-
velli. A kortinu sést flugleið vél-
arinnar, en hún var um 500 kiló-
metra suðvestur af Reykjanesi
þegar bilun kom í ljós.
Hjónin Angela og Raymond
Reynolds ásamt 13 mánaða göml-
um syni sínum, Jared.
-
Morgunblaðið/Þorkell
Bréf menntamálaráðherra til háskólaráðs:
Fordæmi eru fyrir því að ráð-
herra gangi gegn dómnefnd
Hótun um málshöfðun vítaverð að mati ráðherra
BIRGIR ísleifur Gunnarsson menntamálaráðherra átelur forystu-
menn Háskólans fyrir stóryrði, vanstillt viðbrögð, rangfærslur og
missagnir í bréfi sem hann sendi háskólaráði í gær. Bréfið er
svar við ályktun háskólaráðs vegna skipunar dr. Hannesar H.
Gissurarsonar í lektorsstöðu í stjórnmálafræði. Birgir segir rangt
að menntamálaráðherra hafi ekki áður gengið gegn dómnefndar
áliti um hæfi umsækjenda um kennarastöður við skólann. Iðulega
fylgi ráðuneytið ekki meðmælum meirihluta deildarfunda og eigi
það við um nær alla menntamálaráðherra undanfarin tuttugu ár.
Þá hafi deildarfundir í Háskólanum haft dómnefndarálit að engu,
jafnvel þótt umsækjandi hafi verið talinn hæfur með fyrirvara.
Háskólaráð lætur nú athuga
þann möguleika að stefna ráð-
herra vegna stöðuveitingarinnar.
Birgir vísar þessum hótunum á
bug, segir að enginn vafi leiki á
lagalegum rétti ráðherra. Vald
ráðherra eigi við þau rök að styðj-
ast að með því sé komið í veg
fyrir rangindi, mismunun og ófag-
leg sjónarmið við stöðuveitingar.
í bréfinu er háskólaráð vítt fyrir
þessi viðbrögð og þau sögð eins-
dæmi í samskiptum Háskólans og
ráðuneytisins.
Birgir segir að árið 1968 hafi
menntamálaráðherra veitt dós-
entsstöðu við heimspekideild þeg-
ar dómnefnd lýsti viðkomandi
umsækjanda óhæfan. Dr. Sig-
mundur Guðbjarnason háskóla-
rektor sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þetta væri rangt og hafi
þáverandi menntamálaráðherra
dr. Gylfi Þ. Gíslason staðfest það
við sig.
Birgir segir orð sín standa. Hér
hafi verið um að ræða dósents-
stöðu í almennum málvísindum.
Dómnefnd skipuð af heimspeki-
deild hafi lýst eina umsækjandann
um starfið óhæfan en ráðherra
sett hann í trássi við dóminn. Þá
hafi dr. Gylfi sagst líta niðurstöð-
una svo alvarlegum augum að taka
yrði ákvæði í reglugerð um skipun
dómnefnda til athugunar.
I bréfinu segist Birgir hafa orð-
ið fyrir því oftar en einu sinni að
kennarar við Háskólann reyni að
hafa áhrif á stöðuveitingar, til
þess að aðrir hreppi kennaraemb-
ætti en meirihluti viðkomandi há-
skóladeildar hefur mælt með. Seg-
ir Birgir að sumir viðmælenda
sinna eigi nú aðild að ásökunum
um að hann gangi gegn vilja Há-
skólans. Aðspurður kvaðst
menntamálaráðherra ekki nefna
nöfn í þessu sambandi. Liti hann
svo á að um trúnaðarsamtöl hafi
verið að ræða.
Ráðherra segir óeðlilegt að dr.
Jónatan Þórmundsson, sem hafi
verið skipaður sérstakur fulltrúi
háskólarektors í dómnefndinni,
skrifi undir álit dómnefndar án
þess að sérstaða hans komi fram.
Ámælisvert sé að Háskólinn hafi
aldrei svarað þeim athugasemdum
sem lögmaður dr. Hannesar H.
Gissurarsonar gerði um vanhæfi
dómnefndarmanna. Með vinnu-
brögðum sínum hafi félagsvísinda-
deild brotið „meginreglu fijálsra
háskóla", en þar vitnar ráðherra
til ályktunar deildarfundar í
síðustu viku.
Sigmundur vísar þessum um-
mælum á bug. Hann segir að með
því að skipa fulltrúa sinn í nefnd-
ina hafi hlutleysi nefndarinnar
verið tryggt og að formsatriðum
yrði fullnægt. „Félagsvísindadeild
fór þess á leit við mig að skipa
þennan fulltrúa enda var talin
ástæða til að ætla að órói kynni
að skapast vegna niðurstöðu dóm-
nefndar þótt einn nefndarmanna
hafi vikið sæti. Er eflaust enginn
hæfari til þess að gegna þessari
stöðu en prófessor Jónatan, vara-
forseti háskólaráðs.
Það var athugað hvort ástæða
væri til að skipa aftur í nefndina
eftir að nýjar reglur höfðu verið
settar um skipan í dómnefndir, en
lögfróðir menn töldu að hæpið
væri að fara þá leið þar sem
ákvæði nýju reglanna væru
þrengri en þeirra eldri,“ sagði dr.
Sigmundur Guðbjarnason.
Sjá bréf menntamálaráð-
herra til háskólaráðs á bls. 22.