Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988
Forstöðumaður Stofnlánadeildar:
Ekki hægt að hjálpa
öllum refabændum
Fasteignamat hinna verst stöddu
verður yfirfarið á næstunni
Breski líffræðingnrinn Lowana Veal við mýgildru Náttúrurverndarráðs við Mývatn. Mýið laðast að
glerplötunni, sem stendur upp úr gildrunni og dettur svo niður í vökvann í glerkerinu. Fáar flugur voru
í þessari gildru.
Mývatnssveit:
Léleg veiði í vatninu
og mikill ungadauði
ÞAÐ er ljóst að ekki verður
hægt að hjálpa öllum refabænd-
um með skuldbreytingum og
láni frá Framleiðnisjóði, að
sögn Leifs Jóhannessonar, for-
stöðumanns Stofnlánadeildar
landbúnaðarins. Hann sagði að
það væru 10-15 bændur, sem
væru eingöngu með ref, sem
væru langverst settir. Nokkru
fleiri væru búnir að nýta öll sín
veð, en þeir væru ekki allir með
lausaskuldir, sem þyrfti að
breyta. Fasteignamat hinna
verst stöddu verður yfirfarið til
að sjá hvort það hefur verið
vanmetið.
Á stjómarfundi Stofnlánadeild-
ar á mánudag var samþykkt að
veita skuldbreytingalán, sem munu
nema um 140-150 milljónum króna
alls, og að lána Framleiðnisjóði 7
milljónir, sem myndi síðan endur-
lána refabændum 14 milljónir.
Leifur sagði að skuldbreytingalán-
in yrðu veitt til 15 ára og yrðu þau
verðtryggð með 2% vöxtum. Lán
Framleiðnisjóðs yrðu líklega á
sömu kjörum og lán Stofnlána-
deildar fyrr á árinu, óverðtryggð
og vaxtalaus til sex ára. Þau lán
væru óbeinn styrkur, en refabænd-
ur hefðu orðið fyrir áföllum vegna
hins tnikla verðfalls á refaskinnum
síðastliðin þrjú ár. Hann sagði að
lán Framleiðnisjóðs næmu tæpum
200 krónum á hvolp, en ekki 300,
eins og Einar Gíslason, formaður
Sambands íslenskra loðdýrarækt-
enda, áætlaði í frétt sem birtist í
Morgunblaðinu í gær.
Leifur sagði að farið yrði yfir
mat á fasteignum þeirra bænda
sem verst væru staddir. Það gætu
alltaf verið skekkjur í slíku mati,
en endurmat yrði líklega gert í
samráði við Byggingastofnun land-
búnaðarins, en forstöðumaður
hennar væri erlendis. Leifur sagð-
ist myndu fara yfir tillögur um
lausn á þessum vanda ásamt Ste-
fáni Valgeirssyni og Halldóri
Blöndal, og þær yrðu væntanlega
lagðar fram á fundi Stofnlána-
deildar á þriðjudaginn næstkom-
andi.
Reykjahlíð. Frá Ólafi í>. Stephensen,
blaðamanni Morgimblaðsins.
Mývetningum, sem Morgun-
blaðið hefur haft tal af, kemur
flestum saman um að það sem
af er sumri hafi silungsveiði í
Mývatni verið sáralítil og silung-
urinn oft magur. Þá sé unga-
dauði mikill hjá öndunum og
kenna menn sáralitlu mýi um
þetta hvorttveggja. Tún brunnu
víða I þurrkunum fyrr í sumar
og segist Einar bóndi ísfeldsson
á Kálfaströnd fá þriðjungi til
helmingi minna af túnum sínum
en í fyrra.
Þótt Morgunblaðsmenn sæju
endur með stóra hópa af litlum
ungum sögðu kunnugir að ekki
væri víst að þeir yrðu allir langlífir.
„Hér var mikið af fugli í vor en nú
sést ekki einn einasti ungi sem orð-
inn er hálfs mánaðargamall á vatn-
inu nema þeir sem fljóta dauðir í
vatnsskorpunni," segir Friðrik D.
Amarsson, landvörður við Mývatn.
Hann sagðist hafa farið víða um
vatnið í vikunni og aldrei hafa séð
það jafnfugllaust. „Auðvitað hafa
komið hér sveiflur í lífríkinu, en
þetta er í fjórða sinn síðan 1980
sem er hrun í rykmýinu, hverju sem
um er að kenna,“ segir Friðrik.
Einar á Kálfaströnd segir að
andarungamir lifi aðallega á mýi
og mýlirfum og drepist því, sé það
ekki að hafa. Hann sagði dæmi
þess að endumar leituðu upp á land
Umferð:
47 teknir
fyrir of
hraðanakstur
Hraðamælingar
framkvæmdar á
hverjum degi
LÖGREGLAN í Reykjavík tók 47
ökumenn fyrir of hraðan akstur
í fyrrakvöld. Hraði bílanna
mæidist í nokkrum tilfellum yfir
100 km en algengast var að öku-
mennirnir sem teknir voru
keyrðu á bilinu 70-80 km eða
20-30 km yfir löglegum hraða.
Undanfarið hefur lögreglan tekið
um 35-40 ökumenn fyrir of hraðan
akstur á hveiju kvöldi. Sem dæmi
um götur sem ökumenn eru gjamir
að stíga of fast á bensíngjöfína má
nefna Skúlagötuna, Hverfisgötuna
og Bústaðaveginn.
Morgunblaðið/KGA
Einar bóndi á Kálfaströnd
skyggnir egg úr yfirgefnu and-
arhreiðri í túnjarðrinum. „Það
hefur verið orðið stropað þegar
hún afrækti það,“ sagði Einar.
Hreiðrið sést neðst til vinstri á
myndinni.
með unga sína til þess að finna
orma eða annað æti. Þá væri mikið
um að þær afræktu hreiðrin. „Ég
hef aldrei séð það svona slæmt,“
sagði hann.
Morgunblaðsmenn vitjuðu um
net með Jónasi Péturssyni og Bimi
Þorlákssyni í Vogum. í sumum net-
um var ekki ein einasta branda, í
öðrum einn og einn fiskur. Dag-
sveiðin var 6 fiskar, sem þó var
tvöfalt meira en á mánudaginn.
Friðrik Arnarsson segir að Skútu-
staðabóndi, sem hafi 26 net í vatn-
inu, nái oft ekki nema_15 fiskum
eftir sólarhringinn. „Áður þótti
branda á net léleg veiði."
Orsakir aflaleysisins og fugla-
fæðarinnar virðast ekki ljósar. Að
sögn Lowönu Veal, bresks líffræð-
ings í rannsóknarstöð Náttúru-
vemdaráðs á Skútustöðum, hefur
fyöldi sýna verið sendur til
Reykjavíkur og er þar i rannsókn.
Einar ísleifsson segir það einkenni-
legt að nóg sé af mýi við vötnin í
grenndinni en lítið við Mývatn. Ein-
ar segir að hugsanleg orsök þessa
geti verið efnamengun í vatninu af
völdum áburðar af túnum og frá-
rennslis frá Kísiliðjunni, bændabýl-
um og 100.000 ferðamönnum. Jón-
as Pétursson segðist telja að fugla-
fæðin sé ekki eins mikil og látið sé
af, endumar fari upp á land. Hann
segist hins vegar telja að bleikjan
hafi verið ofveidd og því sé nú lítil
veiði. Þá segist hann telja að nauð-
sjmlegt sé að dæla meiri kísilgúr
út vatninu til þess að dýpka það
ella sé stutt í að botninn komi upp
Listasafn íslands:
Sýningunni Norræn
konkretlist að ljúka
NÚ FER hver að verða síðastur
að sjá sýninguna Norræn konkr-
etlist sem staðið hefur í Lista-
safni íslands í sumar, en síðasti
sýningardagur er 31. júlí.
Þetta er farandsýning sem unnin
er að frumkvæði Norrænu listamið-
stöðvarinnar í Sveaborg í Finnlandi.
Listasafn íslands er beinn aðili að
sýningunni og hefur unnið að sýn-
ingunni fyrir íslands hönd.
Á sýningunni eru á annað hundr-
að listaverka, málverk og högg-
myndir eftir listamenn frá öllum
Norðurlöndunum.
Kynning á mynd mánaðarins fer
fram á fimmtudögum kl. 13.30.
Mynd júlímánaðar er olíumálverkið
Örlagateningurinn frá árinu 1925.
Höfundur hennar er Finnur Jónsson
en myndin er ein íslenskra verka á
sýningunni.
Á föstudögum er myndbandssýn-
ing í fyrirlestrasal safnsins á kvik-
mynd Vikings Eggelings, Symp-
honie Diagonal, sem frumsýnd var
í Berlín árið 1922. Eggeling var
sænskur myndlistarmaður og kvik-
myndagerðarmaður (1880—1925)
og er þessi kvikmynd hans talin
vera fyrsta abstraktkvikmyndin.
Aðgangur að sýningunni er ókeypis
og er Listasafnið opið alla daga,
nema mánudaga, kl. 11—17.
Á sama tíma fer fram i Listasafn-
inu sýning á vegum Listahátíðar í
Reykjavík, á verkum hins heims-
þekkta listamanns Marcs Chagalls,
en sýningunni lýkur þ. 14. ágúst.
Aðgangur að sýningunni er kr.
300 en Listahátíð býður ellilífeyris-
þegum aðgang fyrir kr. 200 þriðju-
daga og miðvikudaga.
I fyrirlestrasal safnsins í kjallara
fer fram myndbandssýning um líf
og list Chagalls. Þetta er bresk
mynd með ensku tali og er hún 55
mínútna löng. Myndin er sýnd alla
daga nema föstudaga. Leiðsögn um
Chagall-sýninguna fer fram á
sunnudögum kl. 13.30. Veitinga-
stofan er opin á sama tíma og safn-
ið.
Glæðist í Laxá í Þing.
Þórður Pétursson veiðivörður
við Laxá í Aðaldal hafði vart
sleppt orðinu við Morgunblaðið á
dögunum um slaka veiði í Laxá,
er veiði tók að glæðast verulega
og munu nú komnir á níunda
hundrað laxa á land úr ánni allri.
Að sögn Orra Vigfússonar form-
anns Laxárfélagsins sem hefur
stóran hluta Laxár á leigu, eru
menn sáttir við útkomuna, því
þeirra eigin spá fyrir veiði sumars-
ins hafí hljóðað upp á 2000 laxa.
„Við erum því enn yfir pari þrátt
fyrir gruggið og leirinn í ánni.
Venjan er að áin sé búin að ná
helmingi sumaraflans svona 25.
júlí og samkvæmt því ætti heildar-
útkoman nú að verða í samræmi
við væntingar okkar," sagði Orri.
Töluverður hluti aflans er smálax
sem gengur grimmt, en talsvert
er af vænni laxi og margir 17 til
18 punda laxar hafa dáið drottni
sínum á bökkum Laxár í sumar.
Vegna gruggsins, sem stafar af
leirlosinu í Mývatni svo og óhag-
stæðum vindum, er fluguveiði
minni en áður. Þær sem best gefa
eru með gylltum lit og hafa tvær
nýjar flugur blómstrað, Gullflug-
an hans Þórðar Péturssonar og
svo sú nýjasta, Gullmolinn, eftir
Jón Helga Vigfússon á Laxamýri.
Góðlaxavoní
Vestmannsvatni....
„Þetta var mikið fyrir lítið hjá
þeim bræðrum Bimi og Tómasi
Agnarssonum, sem renndu í Vest-
mannsvatni í Reykjadal fyrir
skömmu, þeir fengu 6 laxa og
kostaði veiðileyfið þó aðeins þús-
und krónur," sagði Gísli Helgason
í Búnaðarbankanum í Garðabæ í
samtali í gær, en hann selur veiði-
leyfí í Vestmannsvatn hér syðra.
Laxar þeirra bræðra voru 6 til
11 punda og komu tveir á spón
og fjórir á maðk. „Það stökk lax
um allt vatn, greinilega mikið
gengið upp úr Laxá og Eyvindar-
læk,“ bætti Gísli við. Til nánari
glöggvunar, þá rennur Reykja-
dalsá í Vestmannsvatn, Eyvindar-
lækur úr því til Laxár í Aðaldal.
Svona laxaskot eru ekki óalgeng
í vatni þessu, einu sinni veiddi
maður þama 7 laxa á einum degi,
allt að 18 punda og þegar karl
faðir hans sá aflann að kvöldi,
dreif hann sig sjálfur daginn eftir
og fékk Qóra til viðbótar.
2000 um mánaðamótin...
„Nú þarftu að skrifa stórar tölur,
það voru komnir rétt tæpir 1600
laxar á land á hádegi í dag og
sýnt er að veiðin verður komin í
2000 laxa um mánaðamótin. Met-
ið fykur ömgglega í sumar," sagði
Þórarinn Sigþórsson tannlæknir
og stórveiðimaður í samtali í gær-
dag, en hann var þá að tygja sig
til veiða í Laxá í Kjós. „Áin er
alveg gull núna, vatnið hæfílegt
og fiskur um allt,“ bætti Tóti við.
Þetta er til áréttingar, að í blaðinu
í gær voru sagðir komnir milli
1100 og 1200 laxar úr ánni, en
tölur eru fljótar að verða úreldar
í mörgum laxveiðiánum þessa
dagana. .
Jöfn og góð veiði í Laxá í
Leir.
„Þetta gengur ágætlega, það
eru komnir 859 laxar á land, en
það er farið að slakna verulega á
göngunum og þetta er ekki
mokstur lengur, algengt að stan-
gimar sjö séu með svona 25 laxa
á dag,“ sagði Gísli Pálsson veiði-
vörður við Laxá í Leirársveit í
gærdag. Laxinn fæst nú um alla
á, en minnst þó fyrir ofan stiga
í Eyrarfossi. Hann er yfirleitt
smár, 4 til 6 pund að sögn Gísla
veiðivarðar, sá stærsti í sumar var
þó 17 punda veiddur um miðjan
júní. Vatn er minnkandi og mætti
vera ögn meira að mati Gísla.
Þess má geta, að allt síðasta sum-
ar veiddust 911 laxar í Laxá þann-
ig að veiðin verður miklu meiri í
sumar, mikill lax hefur skilað sér
í ána.