Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 56
ttrgtmfrlfifrtfe m Tork þurrkur. Þegar hreinlæti er nauðsyn. cm ssiaco hf Vesturgótu 2 Pósthólf 826 121 Reykjavik Simi (91) 26733 MIÐVIKUDAGUR 20. JULI 1988 VERÐ I LAUSASOLU 70 KR. Nýju bílnúmerin; Setja má skjaldar- merki bæja á skiltin Bifreiðaskoðun Islands hf. stofnuð á fimmtudag ÞEGAR nýtt númerakerfi bif- reiða kemst í gagnið verður leyfilegt að setja skjaldarmerki viðeigandi bæjarfélags á núm- eraskiltin. Að sögn Hauks Ingi- bergssonar, framkvæmdastjóra Bifreiðaeftirlitsins, verður þessi svokallaða heimamerking líklega eina sérmerkingin á skiltunum. Haukur sagði að ekki væri ljóst hvenær nýtt númerakerfi yrði tekið upp. Undirbúningur stæði nú yfir iflNog hefðu reglur um nýju númerin enn ekki verið settar. Líklegt væri þó að nýju númerin fengjust síðla hausts eða um áramótin. Allar bifreiðir eru nú skráðar með tvöföldu númerakerfi. Annars vegar eru þær skráðar eftir bílnúm- erinu en hins vegar samkvæmt svo- nefndu fastnúmerakerfi. Fastnúm- erið byggist á tveimur bókstöfum og þremur tölustöfum og kemur fram í skráningarskírteini bílsins. I framtíðinni verða bifreiðir eingöngu •^skráðar eftir fastnúmerinu. Fyrirtækið Bifreiðaskoðun Is- lands hf. verður stofnað fimmtu- daginn 21. júlí. Það mun taka við hlutverki Bifreiðaeftirlitsins en að sögn Hauks er ekki ákveðið hvenær það verður. Slasaður sjómaður sóttur í nótt ÞYRLA Landhelgisgæslunnar flaug í gærkvöld 135 sjómílur mám. norð-norð-austur af Siglunesi til að sækja færeyskan sjómann sem slasaðist á handlegg. Þyrlan kom að skipinu um miðnætti og var búist við að lent yrði með hann á Akureyri milli kl. 2 og 3 í nótt. Landhelgisgæslunni barst beiðni um að sækja sjómanninn frá fær- eyska loðnuskipinu Havlot kl. 19.40 í gærkvöld. Þyrla gæslunnar fór í loftið um kl. 21 og kom að skipinu kringum miðnætti. Ríkið á um helming í fyrirtækinu en aðrir eigendur eru tryggingafé- lög, sem tryggja bifreiðir, Bílgreinasambandið, Félag íslenskra bifreiðaeigenda og Félag bifvélavirkja. Fleiri vax- töflur finn- ast í Viðey EIN eða tvær vaxtöflur, að öllum líkindum frá því um siðaskipti, fundust við fornleifauppgröft í Viðey á mánudag. Að sögn Margrétar Hallgrímsdóttur, fornleifafræðings fundust töfl- urnar á svipuðum slóðum og á sömu dýpt og vaxtöflur er fund- ust í Viðey síðasta sumar. Því sé um mjög merkilegan fund að ræða þar sem vaxtöflur séu ein- stæður fundur í íslenskum rústum. Ekki er ljóst hvort um eina eða tvær töflur er að ræða þar sem þær eru samanlímdar. Þær eru nokkru mjórri en töflumar sem fundust í fyrra en þær vom 9x5 sm að stærð. Ekki er sjáanlegt letur á töflunum sem fundust á mánudag en þær em ágætlega varðveittar. Að sögn Margrétar vom töflurnar frá í fyrra mjög vel varðveittar og hefur for- varsla á þeim staðið í tæpt ár. Bjóst Margrét við að niðurstöðurnar gætu orðið mjög athyglisverðar og lægju þær fyrir fljótlega. „Vaxtöflumar em n.k rissblöð síns tíma, en þær em líklega frá því rétt um eða fyrir siðaskipti. Þær hafa verið bomar við beltisstað, og til þeirra hefur verið gripið tH að rissa athugasemdir og skilaboð nið- ur,“ sagði Margrét. Auk vaxtaflanna hefur fundist mikið af tréáhöldum frá miðöldum; skeiðum, skálum og diskum, einnig klébergspottum og steinkolum, svo fátt eitt sé nefnt. Morgunblaðið/KGA Þeir Mark og Ingo frá Stuttgart í Þýskalandi lágu úti við Kröflu aðfararnótt þriðjudagsins og ætluðu að vera þar áfram í von um gos. Þeir voru á ferð á Austurlandi en drifu sig til Mývatns þegar þeir fréttu af skjálftunum. Heldur var farið að kólna á þeim þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að í gærkvöldi og reyndu þeir að hita sig á heitri súpu. Erlendir ferðamenn gosóðir: Sofið við Kröflu með myndavélar Reykjahllð. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaðsins. Skjálftavirkni hélt áfram við Kröflu í gær en flestir kippirnir voru smáir og fundust ekki. Laust fyrir klukkan 11 í gærmorgun kom þó kippur er mældist um 3 stig á Richterskvarða. Að sögn hótelstarfsmanna og tjaldstæðisvarða í Reykjahlíð eru mikil brögð að því að útlendingar vilji framlengja dvöl sína í sveitinni til þess að bíða eftir gosi. Nokkrir ferðamenn sváfu uppi við Kröflu með myndavélarnar tilbúnar til þess að missa áreiðanlega ekki af neinu. Jarðf ræðingar segja þó ómögulegt að spá um hvort gos sé á leiðinni. „Þeir eru alveg gosóðir," sagði Sigríður Þorgrímsdóttir á tjald- stæðinu í Reykjahlíð. „Þeir halda að þetta sé bara handa þeim til að taka huggulegar myndir af. Þeir gera sér enga grein fyrir hættunni sem þessu fylgir þótt við höfum varað þá við.“ Reynt er eftir megni að’ halda ferðamönnum frá hættusvæðinu við Leirhnúk. Skilti á 4 tungumálum hafa verið sett upp við veginn sem liggur upp að Víti og er þar mælst til þess að menn haldi sig á veginum og fari ekki norður fyrir hann. Að sögn Jóns Péturs Líndals, sveitar- stjóra og varaformanns almanna- vamanefndar í Mývatnssveit, hafa flestir virst virða þessi tilmæli en þó hefði hann haft fregnir af öðrum sem hafi látið sér fátt um finnast. Jón sagði að enn hefði almanna- Fímmtán böm frá bullandi verða ættleidd á þessu ári GENGIÐ hefur verið frá ættleiðingu fimmtán barna frá Indlandi á árinu á vegum félagsins íslenskrar ættleiðingar. Þegar eru átta börn komin til landsins en þau sjö sem eftir eru verða sótt til Indlands á næstu vikum og mánuðum. A síðastliðnu ári voru aðeins þijú börn ættleidd af islenskum hjónum með milligöngu félagsins, öll frá Líbanon. Félagið fslensk ættleiðing starfar eftir leyfi dómsmálaráðu- neytisins og hefur milligöngu um stóran hluta ættleiðinga hingað til lands að sögn Helga Bjarnason- ar, formanns félagsins. Þó feng- ust þær upplýsingar i dómsmála- ráðuneytinu að á síðastliðnu ári hefðu alls verið veitt 37 leyfi til ættleiðinga, þar af 11 erlendis frá. Helgi Bjamason segir skýring- una á auknum fjölda ættleiðinga á vegum félagsins í ár vera að náðst hefur samband við ind- verskt bamaheimili sem viður- kennt er af yfirvöldum í Indlandi og starfar undir eftirliti þeirra. Gert er ráð fyrir að milli fimmtán og tuttugu börn af þessu heimili á aldrinum sex til átta mánaða komi til landsins árlega á næst- unni. Á ámnum 1984 til 1986 ættleiddu íslensk hjón rúmlega 90 böm frá Sri Lanka. Því var hætt eftir að yfirvöld á Sri Lanka tóku að mestu fyrir ættleiðingar úr landi. Aðspurður um gang mála frá því að hjón hafa samband við ís- lenska ættleiðingu segir Helgi að félagið leiti vilyrðis dómsmála- ráðuneytis fyrir ættleiðingarleyfi. Þá þurfi félagsmálayfirvöld í hveiju byggðarlagi að kanna hagi viðkomandi hjóna og reynist að- stæður fullnægjandi komi til kasta ráðuneytis að veita leyfi til ættleiðingar. Segir Helgi að þetta geti tekið liðlega tvo mánuði, stundum fleiri, en yfirleitt gangi hlutirnir mun hraðar fyrir sig hjá barnaverndar- nefndum á landsbyggðinni en í Reykjavík. Að svo búnu taki við gagnaöflun og skjalaþýðingar fyr- ir indversk yfirvöld sem séu um þijá mánuði að afgreiða erindi. Þannig taki undirbúningur ætt- leiðingar oft um hálft ár. Að sögn Önnu Theodóru Gunn- arsdóttur í dómsmálaráðuneytinu er það skilyrði sett í lögum fyrir ættleiðingu að fólk sé í hjúskap og eldra en 25 ára. Þá segir hún að yfirleitt sé iriiðað við að hjón sem ættleiða barn séu á barneign- araldri, búi við eðlilegar félagsleg- ar aðstæður og séu heil heilsu. vamanefndin ekki séð tilefni til sérstakra aðgerða. Yrði talin hætta á gosi yrði svæðinu lokað algjörlega og menn settir á vakt. Það var augljóst að ekki höfðu viðvaranir Almannavarna náð at- hygli allra. Morgunblaðsmenn rák- ust á ítalskan ferðalang, sem var á vappi norðan Vítis, nýbúinn að aka fram hjá tveimur aðvörunarskiltum. „Hvað segirðu, sprengihætta?_ Er ekki óhætt að vera hér?“ sagði Ital- inn skelfingin uppmáluð, er hann var spurður hvort hann hefði ekki séð skiltin. Að svo mæltu stökk hann beint upp í bifreið sína og ók greitt á braut. Er stærsti kippurinn kom í gær- morgun voru Morgunblaðsmenn staddir í Vogum við Mývatn en þar hrikti í og hundarnir ruku upp með gjamiai. Eftir þetta komu aðeins smáir skjálftar og landhæð breyttist lítið sem ekkert. Ármann Péturs- son, bóndi og skjálftavörður í Reynihlíð, sagði að undanfarið hefðu skjálftarnir verið á annað hundrað daglega, líklega um 150 á laugardaginn. Ekki útlit fyrir sól SÓLARLEYSI mun halda áfram að hijá Sunnlendinga á næst- unni, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Veðurstofu ís- lands á þriðjudag. Búist er við hvassri suðaustanátt með rign- ingu á suðvesturhorninu og á Suðurlandi um helgina. Rigningin mun líklega ná yfir allt sunnanvert landið og austur á Hornafjörð, að sögn Veðurstofunn- ar. Úrkomulaust verður í öðrum landshlutum, en ekki er hægt að búast við sólskini.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.