Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 - segir Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra á fyrsta degi Norðurlandsferðar Verðum að skjóta styrkum stoðum undir fiskvinnsluna Síðan hef ég gengið með þing- manni kjördæmisins, Haildóri Blöndal, um göngugötuna og feng- ið smá nasasjón af því fallega mannlífí, sem hér ríkir,“ sagði Þorsteinn í samtali við Morgun- blaðið eftir fyrsta dag heimsóknar- innar. „Því er ekki að neita að hér fyrir norðan kemur fram sá al- menni vandi sjávarútvegs og fryst- ingar sem við eigum við að glíma í dag. Á móti eru hér mjög traust og öflug fyrirtæki og í sjálfu sér gróska í atvinnulífi, bæði hvað snertir iðnað og sjávarútveg. Þó að almennur rekstrarvandi ríki í sjávarútveginum vegna versnandi ytri skilyrða og innlendra kostnað- arhækkanna, þá er hér sterkur grunnur að byggja á og á Akur- eyri er einmitt eitt öflugasta og best rekna sjávarútvegsfyrirtæki landsins. I sumum fyrirtækjum má einnig sjá nokkuð af viðbótar- vandamálum, sem rekja má til ákvarðana í rekstri einstakra fyrir- tækja og þeim verður ekki velt yfír á þjóðfélagið. Hitt hljóta menn þó að gera sér grein fyrir að við verðum að haga eyðslu okkar í samræmi við tekjurnar og því er mjög brýnt að skjóta styrkum stoð- um undir fiskvinnsluna ásamt því að leysa önnur mál á sviði efna- hagsmála. Hinsvegar vil ég segja að þrátt fyrir erfíðleika hjá fisk- vinnslunni nú og þjóðin verður að taka þátt í að leysa, þá búa íslend- ingar við almenna velsæld og góð lífskjör. Með því að heimsækja fyrirtæki, þá kemst maður af eigin raun að því hvemig staðið er að rekstri og oft er það með ólíkum hætti, eins og gerist og gengur. Meginmeinsemd þjóðfélagsins er sú að verðbólga er hér of mikil, það fer ekki á milli mála, og hún er undirrót of mikils fjármagris- kostnaðar," sagði Þorsteinn. Þorsteinn taldi fullkomlega eðli- legj; að frystitogurum fjölgaði hér við land. Þó vildi hann ekki dæma um hvort þetta væri rétti tíminn til að fara út í skipakaup, en eins og fram hefur kömið eru bæði ÚA og Samheiji að leita eftir nýjum togurum. Stjórnendur atvinnufyr- irtækja yrðu að taka sínar ákvarð- anir sjálfir og bera ábyrgð á slnum Úárfestingaákvörðunum. Vissu- lega þyrfti að búa atvinnulífinu eðlileg rekstrarskilyrði, • en menn yrðu að standa og falla með sínum ákvörðunum. Þorsteinn var í fyrri viku á ferð um Vestfírði og í Vest- mannaeyjum í fyrradag. Hann sagðist hafa mikið gagn af ferðun- um og sérstaklega væru viðræð- umar við menn í atvinnulífinu nauðsynlegar. Aðspurður um hvort hlutabréf ríkisins í Slippstöðinni væru ennþá til sölu sagðist Þorsteinn gjarnan vilja selja hlutabréf ríkisins í fyrir- tækjum eftir því sem markaður og kaupendur væru fyrir hendi. „Hinsvegar hvað varðar Slippstöð- ina sérstaklega teldi ég skynsam- legt að selja hlut ríkisins ef nægi- lega traustir kaupendur finnast og ef hægt er að reka fyrirtækið af sama krafti og áður.“ Um þær hugmyndir er fram komu í Morgunblaðinu I gær um staðsetningu álvers við Eyjafjörð taldi forsætisráðherra eðlilegt að dreifa orkufrekum iðnaði um landiú. Hinsvegar mættum við ekki henda slíkum kostum frá okkur bara út af ágreiningi um staðsetn- ingu. Það verkefni, sem nú væri í gangi, miðaði eingöngu við stað- setningu í Straumsvík, annað kæmi ekki til greina. „Hvað varðar önnur verkefni í framtíðinni, vil ég leyfa mér að vona að samkeppn- isaðstaða okkar verði sterkari," sagði Þorsteinn. Forsætisráðherra heimsótti Vestmannaeyjar á mánudag og í samtali við Morgunblaðið sagði hann að þar virtist vera sami al- menni vandinn og víðast í fisk- vinnslunni. „Það var þó gott hljóð í Eyjamönnum almennt, enda er það bjartsýnisfólk," sagði Þor- steinn. í dag heimsækir hann Út- gerðarfélag Akureyringa kl. 8.00 og því næst verður haldið til Hauganess í Arnarneshreppi kl. 9.30. Þaðan verður keyrt til Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Á fímmtudag fer ráðherra til Grenivíkur, Mývatnssveitar og Húsavíkur. Fimmtíu bílnúmer „fuku“ á sólarhring Morgunblaðið/Rúnar Þór Þorsteinn Pálsson í heimsókn í Slippstöðinni á Akureyri. Með forsætisráðherra eru á myndinni Halldór Blöndal alþingismaður, Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðvarinnar, Sigurbjörn Magnússon fram- kvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og Björn Björnsson formaður útbreiðslunefndar Sjálfstæð- isflokksins. unar og síðast þeir með hæstu bílnúmerin. Lögreglan byrjaði þó ekki að klippa fyrr en mánuði eftir að skoðun á að vera lokið, meðal annars vegna þess að bifreiðaeftir- litsmenn hafa verið í suamrfríi. Þá sagði Ingimar að borist hefðu nokkrar beiðnir frá öðrum umdæm- um af landinu þar sem Akureyrar- lögreglan er beðin um að klippa af bílnúmerin með þeirra einkennis- stöfum. Sekt fyrir að hafa ekki mætt með bíl til skoðunar nemur 3.000 krónum og hefur hækkað um 1.000 krónur frá því í fyrra. Ingimar sagði lögreglumenn meira með klippumar á lofti þegar lítið væri að gera í öðrum verkefnum, til dæmis á nótt- unni, og væm þeir þá á ferð á bíla- stæðum í íbúðahverfum og á bíla- sölum, þar sem mikið væri yfirleitt um óskoðaða bíla. Morgunblaðið/Rúnar Þór Magriús Axelsson lögreglumadur með klippurnar. ÞORSTEINN Pálsson forsætisráðherra er á ferð um Norðurland þar sem hann heimsækir fyrirtæki og ræðir við forstöðumenn um rekstrarstöðu og grundvöll atvinnulífs. Auk þess ræðir hann við forystumenn sveita- og bæjarstjóma. Þorsteinn kom til Akureyrar laust eftir hádegi í gær ásamt Halldóri Blöndal alþingismanni, Sigurbimi Magnússyni fram- kvæmdastjóra þingflokks sjálf- stæðisflokksins og Bimi Bjöms- syni formanni útbreiðslunefndar flokksins. „Við fómm fyrst í heim- sókn í Niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar, síðan í Slippstöðina þar sem forstjórinn Gunnar Ragnars er jafnframt forseti bæjarstjómar. LÖGREGLAN á Akureyri hefur nú tekið klippurnar fram úr geymslunum og eru þær á ferð- inni um bæinn jafnt á nóttu sem degi. Alls voru númer klippt af 50 bílum síðasta sólarhring enda af nógu að taka, að sögn Ingi- mars Skjóldal varðstjóra. „Rúmur mánuður er nú liðinn síðan almennri skoðun lauk á Akur- eyri svo mönnum á ekki að koma á óvart nú þótt þeir komi að bílum sínum númerslausum," sagði Ingi- mar. Nokkuð var um að lögreglan gæfí ökumönnum með lægstu núm- erin aðvaranir á meðan á skoðun stóð, en venjan er sú að bílar með lægstu númerin mæti fyrst til skoð- Sanitas byg*gir brugghús undir bjórframleiðslu Arleg framleiðsla verði 7-10 milljónir lítra SANITAS hf. hefur nú hafið framkvæmdir við nýtt brugghús á Akureyri. Byggingin er viðbygging við Sana á Akureyri sem er útibú Sanitas hf. í Reykjavík. Ragnar Birgisson forstjóri Sanitas vildi ekk- ert tjá sig um kostnað við uppbygginguna, en sagði að framleiðslu- geta fyrirtækisins á sterkum bjór yrði áætluð á bilinu sjö til tíu milljónir lítra á ári. „Við erum að þessu af fullum krafti og stefnum að því að hafa lokið framkvæmdum fyrir jól,“ sagði Ragnar. Engar fullmótaðar hugmyndir eru komnar fram hvernig staðið verður að bjórmálum okkar íslendinga eða dreifingu. Því finnst innlendum framleiðendum tíminn til stefnu knappur og benda í leiðinni á hvort ekki komi til greina að vernda innlendan iðnað til dæmis í formi verðverndar. Danska ráðgjafarfyrirtækið Al- ' fred Jörgensen Laboratorium verð- ur Sanitas hf. til aðstoðar við upp- bygginguna og er skoskur brugg- meistari að nafni Robert Thomson við störf á Akureyri sem kemur til með að vinna að vöruþróuninni. Baldvin Valdimarsson fram- kvæmdastjóri Sana sagði geysimik- inn tíma hafa farið í innkaup á vélum og tækjum til framleiðslunn- ar og að fá þau afgreidd á nógu stuttum tíma. Raunverulegur undir- búningstími hefur því verið mjög af skomum skammti auk þess sem innlendir framleiðendur verða að vinna upp 200 ára forskot. Sanitas hefur ekki farið út í það að afla sér erlends umboðs þó ómögulegt sé að segja til um hvað framtíðin ber I skauti sér, sagði Baldvin. „Við gætum hallað okkur að einhverjum erlendum bjórframleiðendum eða komið með okkar eigin tegund, sem við viljum miklu fremur. Við höfum alla burði til að vera með mjög góða eigin framleiðslu og ætlum að vinna að því öllum árum að gera hana sem best úr garði. „Við þurf- um að finna réttu bjórtegundina fyrir Islendinga og þess vegna er sá stutti tími, sem er til stefnu, mjög viðkvæmur. Hinsvegar getum við ekki fundið réttu bjórtegundina fyrir markaðinn öðruvísi en að prófa okkur áfram. Ef við komum með bjór, sem ekki fellur að bragðlauk- um íslendinga, hljóta menn heldur að halla sér að innflutningnum. Bjór er afar mismuriandi, sterkur, veikur, sætur og þar fram eftir götunum. Reynslan hefur sýnt okk- ur að Víking:bjórinn virðist of rammur fyrir íslendinga þar sem hann inniheldur mikið af humlum og er því afar bragðsterkur. Við þyrftum helst að finna okkur mild- ari bjór í líkingu við Heineken, sem virðist samkvæmt skoðanakönnun- um falla íslendingum vel í geð,“ sagði Baldvin. Sanitas hf. stefnir á að ná veru- legum markaði með íslenskri bjór- framleiðslu sinni og líta menn þar ennfremur til útflutnings svo fremi sem vel tekst til með vöruþróun. Blaðburðarfólk óskast í eftirtalin hverfi: Skarðshlíð 1-21, Lyngholt og Stórholt Uppl. í Hafnarstræti 85, Akureyri - sími 23905.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.