Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988
45
Ásbjörn Guðmunds
son - Minningarorð
Fæddur 23. nóvember 1894
Dáinn 12. júlí 1988
Horfinn er heiðursmaður í hárri
elli, maður sem skilaði miklu og
góðu verki hávaðalaúst.
Ásbjörn var kennari, lauk kenn-
araprófi 1922 og starfaði eftir það
í nokkur ár við kennslu. Hann var
einn af stofnendum Strætisvagna
Reykjavíkur og eins og margir aðr-
ir úr þeim hópi vagnstjóri um tíma,
en hætti því 1942 þegar hann réðst
sem bílstjóri að Kleppsspítalanum.
Áður hafði hann ekið strætisvagni
inn að Kleppi um langt árabil og
var þá eins og aðrir vagnstjórar
gúðkunnir.gi allra sem með vögnun-
um óku, ekki síst okkar sem þá
vorum börn að aldri og þurftum á
vinsamlegri ögun og ábendingum
vagnstjóranna að halda. Oft voru
þeir okkur hjálplegir og biðu jafn-
vel eftir okkur svo að við j/rðum
ekki of sein á áfangastað. Á þeim
tíma sem Ásbjörn ók strætisvagni
gerðu vagnstjórar það af vinsemd
sinni og lipurð við þá sem bjuggu
fyrir innan Vatnsþró að taka blöð
og aðra pakka sem fólk sótti í vagn-
inn þangað sem hann stansaði til
að taka farþega eða láta þá af.
Endastöð Kleppsvagnsins var á
þessum árum við eldhúsdyrnar á
Kleppsspítalanum og vagnstjórarn-
ir höfðu tækifæri til að stoppa þar
í nokkrar mínútur til að fá sér kaffi-
sopa og er mér ekki grunlaust um
að það hafi leitt til kynna sem síðar
skiptu miklu máli fyrir Ásbjörn.
Ásbjöm vann óslitið við Klepps-
spítalann frá 1942 og þangað til
hann lét af störfum fyrir aldurssak-
ir. Framan af var hann bílstjóri og
sá um alla aðdrætti fyrir spítalann,
en síðar eftir að spítalinn eignaðist
vísi að bókasafni var Ásbjörn bóka-
vörður og garðyrkjumaður spítal-
ans. Hann hafði á yngri árum feng-
ist við garðyrkju og nokkrum árum
eftir að hann hóf störf á spítalanum
fór hann að hugsa um skrúðgarð-
ana og átti verulegan þátt í að fegra
umhverfi spítalans með tijágróðri.
Bókavörslunni sinnti Ásbjörn fyrst
í hjáverkum og sá um að kaupa inn
bækur fyrir sjúklingabókasafnið af
fé sem bókafulltrúi ríkisins úthlut-
aði á hveiju ári, en síðar varð bóka-
varslan hans aðalstarf á spítalan-
um. Ásbirni var mjög í mun að fara
vel með og spara fyrir ríkið og
keypti því oft óbundnar bækur og
batt þær inn sjálfur. Einnig batt
hann inn læknatímarit eftir að
spítalinn fór að eignast þau.
Ásbjörn var lengst af meðan við
þekktumst heilsugóður og hélt and-
legu og líkamlegu þreki svo að hann
gat haldið áfram störfum í tíma-
vinnu eftir að hann hafði náð sjö-
tugsaldri og hélt áfram að hlaupa
öðru hvoru í skarðið sem bókavörð-
ur, síðast á árinu 1978.
Ásbjörn var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Guðríður ísaksdóttir,
en þau skildu. Síðari kona hans, sem
lifir mann sinn, er Sigríður Kjerúlf
sem einnig starfaði lengi við
Kleppsspítalann. Ásbjörn átti tvö
böm með fýrri konu sinni, en eina
dóttur, sem nú er látin, með Sigríði.
Um leið og ég minnist vináttu
Ásbjarnar, bæði sem drengur í
strætisvagninum og síðar sem sam-
starfsmaður, og hollustu hans við
Kleppsspítala, votta ég börnum
hans og Sigríði konu hans samúð
mína.
Tómas Helgason
Fyrir um 15 árum kom lítil
stúlka, sem nýflutt var í hverfið,
að máli við eldri mann sem hún
hafði oft séð vera að vinna í garðin-
um sínum. Hún sagði honum að
pabbi sinn væri dáinn og spurði
hvort hann vildi koma í hans stað.
Gamli maðurinn sagðist vera orðinn
of gamall til þess en sagðist skyldu
reyna að vera afi hennar.
Þannig hófst vinátta okkar Ás-
björns afa, sem stóð allt fram til
dauðadags hans þó vissulega hafi
ég fjarlægst hann þegar nýir og
spennandi hlutir glöptu unglings-
hugann. En alltaf var hægt að leita
til afa, sem fylgdist vel með ná-
grannanum sínum.
Ásbjöm afi var fæddur í Vatns-
koti í Þingvallasveit, sonur hjón-
anna Guðmundar Þórðarsonar og
Guðfinnu Einarsdóttur. Hann lauk
kennaraprófi árið 1922 og kenndi
víðs vegar um land í nokkur ár.
Hann var einn stofnenda Strætis-
vagna Reykjavíkur og var vagn-
stjóri þar í rúman áratug en þá
flutti hann sig til Ríkisspítalanna.
Þar vann hann sem vagnstjóri auk
þess sem hann lagði gjörva hönd á
margt innan- og utandyra á
spítölunum.
Ásbjöm var tvígiftur, fyrri kona
hans var Guðríður ísaksdóttir, sem
nú er látin. Þau eignuðust 2 börn,
Sigurð, fæddan 1923, og Guðrúnu *
1924. Guðríður og Ásbjörn skildu
og kvæntist hann árið 1938 Sigríði
Kjerúlf sjúkraliða. Þau áttu saman
eina dóttur, Eddu, árið 1940, en
hún átti við vanheilsu að stríða og
lést árið 1983.
Ásbjöm var verklaginn og vel
gefinn. Hann byggði upp bókasafn
Ríkisspítalanna og starfaði lengi á
safninu á Kleppsspítala, þar sem
hann bjó ásamt konu og dóttur.
Hann hafði mikið dálæti á garð-
rækt og vann mikið umhverfis
spítalann. Garðvinnunni hélt hann -v
áfram eftir að hann fluttist þaðan
og bar garðurinn hans vitni þeirri
alúð, sem hann lagði í allt er hann
tók sér fyrir hendur.
Afi var mér hald og traust, en
ekki síður félagi og vinur. Við unn-
um saman í görðunum okkar, bund-
um inn bækur og spássémðum um
nágrennið, gjaman með viðkomu í
sælgætisbúð. Oðram nágrönnum
reyndist hann ekki síður vel.
Ásbjöm hélt góðri heilsu fram
undir nírætt en þá tók henni að
hraka. Hann fylgdist alla tíð vel
með því sem gerðist og ræddi alla
hluti af skynsemi og æsingalaust.
Með þessari kveðju vil ég þakka
fyrir hversu velÁsbjöm afi reyndist
mér. Guð blessi minningu hans.
Urður
Minning:
Há varður Helga
son, Seyðisfirði
Fæddur 25. júlí 1893
Dáinn8.júlí 1988
í dag verður til moldar borinn
elsti borgari Seyðisfjarðar.
Hávarður Helgason fæddist 25.
júlí 1893 í Haga í Mjóafirði. For-
eldrar hans vom hjónin Ingibjörg
Þorvarðardóttir og Helgi Hávarðs-
son.
Þeim hjónum varð 13 barna auð-
ið og komust 11 þeirra upp, eftir
lifa nú 3 systur. Árið 1895 flutti
fjölskyldan að Dalatanga, en faðir
hans gerðist fyrsti vitavörður þar.
Ungur fór Hávarður til sjós og
var hálfa öld á höfum úti, lengst
af sem skipstjóri á litlum bátum.
Hann réði sig á togarann ísólf,
þegar hann kom nýr til landsins,
og var á honum í fjölda ára.
Eftir að hann kom í land vann
hann hjá Síldarbræðslu Seyðisfjarð-
ar.
Árið 1923 gekk hann að eiga
ömmu mína, Þorbjörgu Sigurðar-
dóttur, sem þá var ekkja með 7 ára
gamla dóttur sína, Huld móður
mína.
Þeim fæddist einkadóttirin
Svanhvít 1924. Hún var þeim stoð
og stytta ásamt manni sínum Svav-
ari Karlssyni umdæmisstjóra Pósts
og síma á Seyðisfirði. Amma og
afi ólu upp bróður minn Atla og
Hávarð son Svanhvítar. Þessir
drengir voru miklir gleðigjafar í lífi
þeirra..
Eftir lát ömmu árið 1970 fluttist
afi til dóttur sinnar og tengdason-
ar. Svavar lést 1971 langt um aldur
fram. Þá átti afi um sárt að binda
því hann mat tengdason sinn mikils
sem og allir er hann þekktu.
Árið 1972 veiktist afi og fór í
Sjúkrahúsið á Seyðisfirði. Hann
náði sér vel, en fæturnir voru einu
óvinir hans, svo hann taldi sig bet-
ur kominn í sjúkrahúsinu þó að
ætlunin væri að hann byggi áfram
hjá dóttur sinni. Hann fór í göngu-
ferðir og takmarkið var að komast
til Ingibjargar dótturdóttur sinnar,
en hún og synir hennar ásamt Karli
bróður hennar styttu honum stund-
irnar. Hávarður búandi á Stöðvar-
firði, stýrimaður, lét afa í té upplýs-
ingar um sjósókn og aflabrögð
reglulega í síma, þetta kunni afi
vel að meta.
Ég varð þeirrar gæfu njótandi
að fá að dvelja nokkur sumur hjá
ömmu og afa svo og Svönu frænku
og Svavari. Þessi sumur lifa í minn-
ingunni björt og fögur, afi stór og
stæðilegur bar af öðrum í mínum
augum.
Hann unni bókum og átti gott
safn þeirra. Ég sé hann fyrir mér
að loknum vinnudegi með bók í
hönd. Aldrei sá ég hann skipta skapi
en gat verið fastur fyrir ef svo bar
undir.
Hann vantaði 17 daga upp á 95
ára afmælið, og var fjölskyldan
ákveðin í að koma saman og njóta
samvistar við hann. í þess stað
komum við saman og kveðjum öðl-
inginn Hávarð Helgason. Hann hélt
sínu andlega atgervi til hins síðasta,
kvaddi þennan heim sáttur við guð
og menn.
Ég, eiginmaður minn og synir
kveðjum hann með þökk og virð-
ingu.
Guð geymi hann.
Lóa
+
Eiginmaður minn og faðir okkar,
JÓN HJALTALÍN GUNNLAUGSSON
lœknir,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. júlí kl.
15.00.
Jóna Bjarnadóttir,
Gunnlaugur Jónsson, Kristín Jónsdóttir,
Gfsli Geir Jónsson, Bergþóra Jónsdóttir,
Gerður Jónsdóttir, Huld Jónsdóttir.
+
Ástkær sonur, eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afl og bróðir,
HÖSKULDURSTEFÁNSSON,
Hjallabrekku 12,
Kópavogl,
lést í Borgarspítalanum 18. júlf.
Guðrún össurardóttlr,
Sigurbjörg Björnsdóttir,
Valbjörn Höskuldsson, Hrönn önundardóttir,
Stefán Rúnar Höskuldsson,
Þröstur Þór Höskuldsson,
Heiða Björg Valbjörnsdóttir
og systkini hins látna.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
jaröarför móður okkar,
JÓHÖNNU BLÖNDAL,
Sauðárkróki.
Álfheiður, Auðunn og Árni Blöndal,
tengdabörn og barnabörn.
I
+
Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur samúð og heiðruöu
minningu móður okkar, tengdamóður, ömmu og iangömmu,
HÓLMFRÍÐAR BENEDIKTSDÓTTUR PETERSEN,
er lést 30. júní sl.
Emil Petersen, Guðbjörg S. H. Petersen,
Gunnar Adolfsson, Ragnhildur Thorlacius,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Minningarathöfn um eiginmann minn og föður okkar,
EYSTEIN GUÐJÓNSSON,
Steinum, Djúpavogi,
verður í Djúpavogskirkju laugardaginn 23. júlí kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigrfður Jakobfna Magnúsdóttir
og börn.
+
Þökkum hjartanlega auösýnda samúð og vináttu við andlát og
jarðarför sonar míns og bróður okkar,
ORRA GÍSLASONAR.
Sigríður Bernodusdóttir,
Jónfna Gfsladóttir,
Ragnheiður Gfsladóttir,
Friðrik Gfslason.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.