Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 40
-40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988
Breski rokksöngvarinn
Steve Marriott til íslands
BRESKI rokksöngvarinn Steve
Marriott er væntanlegur hingað
til lands og mun hann skemmta
ásamt hljómsveit sinni i veit-
ingahúsinu Hollywood um
næstu helgi. Marriott var einn
þekktasti og vinsælasti popp-
tónlistarmaður í Bretlandi á sjö-
unda áratugnum og í upphafi
þess áttunda og söng meðal
annars með hljómsveitunum
„Small Faces“ og „Humple Pie“.
Hljómsveitin „Small Faces"
varð heimsfræg árið 1966 þegar
lagið „Sha La La Le“ komst í
fyrsta sæti vinsældalista víða um
heim og á næstu árum voru þeir
félagar í hópi vinsælustu rokk-
hljómsveita á Bretlandseyjum.
Einkum vakti söngvarinn Steve
Marriott mikla athygli og má segja
að frægð og velgengni hljónisveit-
arinnar hafi einkum tengst hans
nafni. Frægðinni fylgdu þeir félag-
ar eftir með hveijum „smellinum"
á fætur öðrum og má þar nefna
„Lazy Sunday Afternoon", „All or
nothing", „Inchygoo Park“ og
mörg fleiri, þar sem Marriott var
í aðalhlutverki. Um 1970 sagði
Marriott skilið við „Small Faces“
og stofnaði hljómsveitina „Humple
Pie“ ásamt Peter Frampton, sem
þá var að verða stórstjarna í popp-
tónlistarheiminum. „Humple Pie“
átti mikilli velgengni að fagna
fyrst í stað en var síðan lögð nið-
ur. Eftir það gaf Marriott út
nokkrar sólóplötur þótt nokkuð
hafi dregið úr fyrri vinsældum
hans hvað plötusölu snertir. Hann
hefur þó aldrei sagt að fullu skilið
við rokktónlistina og hefur ferðast
víða um heim með hljómsveit sinni.
Þeir félagar eru nú væntanlegir
í Hollywood og segir í frétt frá
veitingahúsinu að koma Steve
Marriott sé einn af stórviðburðum
sumarsins, sem gestir Hollywood
og allir aðdáendur góðrar rokktón-
listar muni kunna vel að meta.
Steve Marriott, annar frá hægri, ásamt hljómsveit sinni. (úr fréttatiikynningu)
Sériílöð
Á LAUGARDÖGUM
Auglýsingar íLesbók með ferðablaði
þurfa aðhafa borist auglýsingadeild fyrir
kl 16.00 á föstudögum, viku fyrir
birtingu og í menningarblaðið fyrir kl. 16.00
á miðvikudögum.
Y _ bl^é allra landsmanna
Þessir strákar sem heita Eysteinn Orri Gunnarsson, Bjarni Þór Sig-
urðsson og Sjtyrmir Gunnarsson, héldu hlutaveltu til ágóða fyrir
Rauða kross íslands. Söfnuðu þeir rúmlega 1100 krónum.
Þetta eru Guðrún, Sigríður og Margrét, en þær héldu hlutaveltu til
ágóða fyrir Rauða kross íslands og söfnuðu 1875 kr.
4 Sssrss m g Smmm • z=ii^
mmmrx. . . • ■ Tlmmnmm- « ' ' m j
Fyrir nokkru héldu þessar ungu vinkonur hlutaveltu á Fálkagöt-
unni, til ágóða fyrir Blindrafélagið. Þær heita Helga Heiðdal, Unnur
Vala Guðbjartsdóttir, Sara Ólafsdóttir og vinkona þeirra Guðlaug
Kristin Karlsdóttir er hér með þeim á myndinni. Telpurnar söfnuðu
340 kr.
Þessir krakkar sem heita Bjarki Smárason, Elva Gunnarsdóttir og
Lilja Gréta Kristjánsdóttir, héldu hlutaveltu á Sunnuvegi 8 til ágóða
fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar og söfnuðust þar tæplega 1370 krón-
ur.