Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekingur. Það
væri gaman að fá að vita sem
flest um sig, svo sem hvaða
vinna hæfi best, ástir og ævin-
týri, skapferli o.fl. Ég er fædd-
ur í Reykjavík milli klukkan 3
og 4 að nóttu þann 21. mars
1959.
Svar:
Þú hefur Sól í Fiskamerkinu,
Tungl í samstöðu við Úranus
í Ljóni, Bogmann Rísandi,
Merkúr í Hrút, Venus í Nauti
og Mars í Tvíbura.
Fjölbreytileg merki
Þú ert því samsettur úr mörg-
um merkjum og býrð því yfir
margslungnum persónuleika.
Það sem þó stendur uppúr er
ákveðin frelsisþörf og þörf fyr-
ir hreyfíngu og fjölbreytileika.
Víðsýnn
Það að Sól er í Fiskamerkinu
táknar að þú ert næmur til-
finningamaður í grunneðli
þínu. Þú metur lífið og tilver-
una útfrá innsæi og tilfinn-
ingalegu mati. Það sem ein-
kennir Fiskinn öðru fremur er
hæfileikinn til að taka á móti
heiminum án þess að dæma.
Fiskurinn er opinn og umburð-
arlyndur. Hann er því sveigjan-
legur og breytilegur og á auð-
velt með að laga sig að nýjum
aðstæðum. Ríkt er einnig í
eðli Fisksins, og um leið þínu,
að upphefja lífíð og fást við
annað og meira en gráan og
venjulegan veruleika.
Lífbg sjálfstœÖi
Tungl/Úranus í Ljóni táknar
að þú hefur opnar og hlýjar
tilfinningar og hefur þörf fyrir
að vera í miðju umhverfi þínu
og hljóta athygli og virðingu.
Daglegt lífsmunstur þitt þarf
síðan að vera skapandi og lif-
andi. Þú ert ekki færibanda-
maður, en þarft spennu, líf og
frelsi. Þér hentar því ekki að
vera bundinn á klafa, hvorki
tilfinningalega né í daglegu
lífi.
Óþolinmóð í hugsun
Merkúr í Hrút táknar að þú
hefur opna, lifandi og öra
hugsun, en jafnframt eilítið
óþolinmóða. Það sama er upp
á teningnum hér, þú ert sjálf-
stæður í hugsun og ferð eigin
leiðir.
Opin ogjákvœÖ
framkoma
Rísandi Bogamaður táknar að
þú ert opinn og jákvæður í
framkomu og hefur ftjálslegan
persónulegan stíl. Ahugi á
ferðalögum og hreyfanleika er
áberandi. Það er einnig undir-
strikað af Mars í Tvíbura sem
bendir til framkvæmdaorku
sem nýtur sín best í fjölbreyti-
legri vinnu.
Hreyfanleg vinna
Ef við reynum að draga kort
þitt saman og spá út frá því í
vinnu sem hentar þér, er nokk-
uð auðséð að starfið þarf að
vera lifandi. Þú gætir notið þín
við akstur og flutninga á vöru
milli staða eða landshluta, i
sjálfstæðri verktakastarfsemi
þar sem unnið er að tíma-
bundnum verkefnum og síðan
tekið til við ný verkefni. Sjó-
mennska ætti að geta átt við
þig. Kort þitt er einnig listrænt
og skapandi. Fiskur ásamt
Neptúnusi á Miðhimni bendir
til hæfileika í tónlist eða getu
til að vinna við leikhúsmál og
önnur fjölbreytileg og marg-
slungin listræn viðfangsefni.
Sjálfstœö ást
Venus í Nauti táknar að þú
er jarðbundinn í ást, ert líkam-
legur og hefur þörf fyrir líkam-
lega snertingu. Önnur staða
bendir til sjálfstæðis og frelsis-
þarfar. Þvi er liklegt að ástar-
mál þín verði frekar skrautleg.
- - ■ r
GARPUR
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
SMÁFÓLK
A5 L0N6 A5 YOU UUON T
TELL ME YOUR AI7PRE55,
l'LL JU5TGIVE YOOTHI5
VALENTINE IN PER50N..
Úr því að þú vilt ekki segja
mér hvar þú átt heima af-
hendi ég þér þetta kort
sjálfur . ..
mayseyoushoulpn'tjf
OUR HANP5 T0UCHEP, I
MIGHT FAlNT UUITH
EKCITEMENT...
Kannski ættir þú ekki að
gera það. Ef hendur okkar
snertust kynni að líða yfir
mig af spenningi. . .
Til hamingju með Val-
entínusardaginn, Lydía!
í dag heiti ég ANNA ...
Andvarp!
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Ásar og kóngar eru almennt
í meira uppáhaldi hjá spilurum
en tvistar og þristar. En háspilin
eru ekki alltaf betri en hundam-
ir — oft verri, nema hægt sé að
beygja þau í duftið og með-
höndla sem óbreytta launþega.
Suður gefur; allir á hættu:
Vestur
♦ D9
VG83
♦ ÁG54
♦ D983
Norður
♦ Á2
♦ 72
♦ D976
♦ Á10762
Austur
♦ G74
♦ ÁD6
♦ 10832
♦ G54
Suður
♦ K108653
♦ K10954
♦ K
♦ K
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 spaði
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 2 grönd Pass 3 hjörtu
Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: tígulás.
Þegar spilið kom upp skipti
vestur yfir í lauf í öðrum slag.
Sagnhafi tók á kónginn heima,
spilaði trompi á ás blinds og
henti tveimur hjörtum niður í
laufás og tíguldrottningu. Spil-
aði svo hjarta. Austur stakk upp
ás og trompaði út. Þar með
komst sagnhafi ekki hjá því að
gefa fjórða slaginn á hjarta.
Einn niður.
Samningurinn fer léttilega
heim ef sagnhafi á lauftvistinn
í staðinn fyrir kónginn. Þá drep-
ur hann á laufás og spilar hjarta.
Vömin hefur ekki tíma til að
trompa tvisvar út svo hægt er
að stinga hjarta í blindum.
Hjartað er þá frítt og spilið unn-
ið.
Niðurstaðan verður auðvitað
sú sama ef laufkóngurinn er
meðhöndlaður sem tvistur, það
er að segja, fómað undir ásinn.
En einhverra hluta vegna eiga
spilarar erfitt með ,að koma
þannig fram við aðalinn og því
er stundum betra að vera án
hans.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í norsku deildakeppninni í
ár kom þessi staða upp í skák
þeirra Ragnars Hoens, Oslo
Sjakkselskap, sem hafði hvítt
og átti leik, og Jörans Jans-
sons, Asker.
31. Hb7! — Dxb7 Engu betra var
31. - Dd6 32. Dh7) 32. Dxe5+
- Ke7 33. Dxe6+ - Kd8 34.
Bf5 - Kc7 35. Dc5+ - Kb6 36.
Hbl+ - Ka6 37. Bd3+ - Db5
38. Hxb5 - Hb8 39. Hxb8 mát.
Oslo Sjakkselskap vann örugg-
an sigur í keppninni, þótt ýmsa
af þeirra sterkustu mönnum vant-
aði, svo sem þá Agdesteinbræður
og alþjóðlegu meistarana Leif
Ógaard og Björn Tiller.
i