Morgunblaðið - 20.07.1988, Page 38

Morgunblaðið - 20.07.1988, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kæri stjömuspekingur. Það væri gaman að fá að vita sem flest um sig, svo sem hvaða vinna hæfi best, ástir og ævin- týri, skapferli o.fl. Ég er fædd- ur í Reykjavík milli klukkan 3 og 4 að nóttu þann 21. mars 1959. Svar: Þú hefur Sól í Fiskamerkinu, Tungl í samstöðu við Úranus í Ljóni, Bogmann Rísandi, Merkúr í Hrút, Venus í Nauti og Mars í Tvíbura. Fjölbreytileg merki Þú ert því samsettur úr mörg- um merkjum og býrð því yfir margslungnum persónuleika. Það sem þó stendur uppúr er ákveðin frelsisþörf og þörf fyr- ir hreyfíngu og fjölbreytileika. Víðsýnn Það að Sól er í Fiskamerkinu táknar að þú ert næmur til- finningamaður í grunneðli þínu. Þú metur lífið og tilver- una útfrá innsæi og tilfinn- ingalegu mati. Það sem ein- kennir Fiskinn öðru fremur er hæfileikinn til að taka á móti heiminum án þess að dæma. Fiskurinn er opinn og umburð- arlyndur. Hann er því sveigjan- legur og breytilegur og á auð- velt með að laga sig að nýjum aðstæðum. Ríkt er einnig í eðli Fisksins, og um leið þínu, að upphefja lífíð og fást við annað og meira en gráan og venjulegan veruleika. Lífbg sjálfstœÖi Tungl/Úranus í Ljóni táknar að þú hefur opnar og hlýjar tilfinningar og hefur þörf fyrir að vera í miðju umhverfi þínu og hljóta athygli og virðingu. Daglegt lífsmunstur þitt þarf síðan að vera skapandi og lif- andi. Þú ert ekki færibanda- maður, en þarft spennu, líf og frelsi. Þér hentar því ekki að vera bundinn á klafa, hvorki tilfinningalega né í daglegu lífi. Óþolinmóð í hugsun Merkúr í Hrút táknar að þú hefur opna, lifandi og öra hugsun, en jafnframt eilítið óþolinmóða. Það sama er upp á teningnum hér, þú ert sjálf- stæður í hugsun og ferð eigin leiðir. Opin ogjákvœÖ framkoma Rísandi Bogamaður táknar að þú ert opinn og jákvæður í framkomu og hefur ftjálslegan persónulegan stíl. Ahugi á ferðalögum og hreyfanleika er áberandi. Það er einnig undir- strikað af Mars í Tvíbura sem bendir til framkvæmdaorku sem nýtur sín best í fjölbreyti- legri vinnu. Hreyfanleg vinna Ef við reynum að draga kort þitt saman og spá út frá því í vinnu sem hentar þér, er nokk- uð auðséð að starfið þarf að vera lifandi. Þú gætir notið þín við akstur og flutninga á vöru milli staða eða landshluta, i sjálfstæðri verktakastarfsemi þar sem unnið er að tíma- bundnum verkefnum og síðan tekið til við ný verkefni. Sjó- mennska ætti að geta átt við þig. Kort þitt er einnig listrænt og skapandi. Fiskur ásamt Neptúnusi á Miðhimni bendir til hæfileika í tónlist eða getu til að vinna við leikhúsmál og önnur fjölbreytileg og marg- slungin listræn viðfangsefni. Sjálfstœö ást Venus í Nauti táknar að þú er jarðbundinn í ást, ert líkam- legur og hefur þörf fyrir líkam- lega snertingu. Önnur staða bendir til sjálfstæðis og frelsis- þarfar. Þvi er liklegt að ástar- mál þín verði frekar skrautleg. - - ■ r GARPUR TOMMI OG JENNI LJÓSKA SMÁFÓLK A5 L0N6 A5 YOU UUON T TELL ME YOUR AI7PRE55, l'LL JU5TGIVE YOOTHI5 VALENTINE IN PER50N.. Úr því að þú vilt ekki segja mér hvar þú átt heima af- hendi ég þér þetta kort sjálfur . .. mayseyoushoulpn'tjf OUR HANP5 T0UCHEP, I MIGHT FAlNT UUITH EKCITEMENT... Kannski ættir þú ekki að gera það. Ef hendur okkar snertust kynni að líða yfir mig af spenningi. . . Til hamingju með Val- entínusardaginn, Lydía! í dag heiti ég ANNA ... Andvarp! Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Ásar og kóngar eru almennt í meira uppáhaldi hjá spilurum en tvistar og þristar. En háspilin eru ekki alltaf betri en hundam- ir — oft verri, nema hægt sé að beygja þau í duftið og með- höndla sem óbreytta launþega. Suður gefur; allir á hættu: Vestur ♦ D9 VG83 ♦ ÁG54 ♦ D983 Norður ♦ Á2 ♦ 72 ♦ D976 ♦ Á10762 Austur ♦ G74 ♦ ÁD6 ♦ 10832 ♦ G54 Suður ♦ K108653 ♦ K10954 ♦ K ♦ K Vestur Norður Austur Suður — — — 1 spaði Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu Pass 2 grönd Pass 3 hjörtu Pass 3 spaðar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Útspil: tígulás. Þegar spilið kom upp skipti vestur yfir í lauf í öðrum slag. Sagnhafi tók á kónginn heima, spilaði trompi á ás blinds og henti tveimur hjörtum niður í laufás og tíguldrottningu. Spil- aði svo hjarta. Austur stakk upp ás og trompaði út. Þar með komst sagnhafi ekki hjá því að gefa fjórða slaginn á hjarta. Einn niður. Samningurinn fer léttilega heim ef sagnhafi á lauftvistinn í staðinn fyrir kónginn. Þá drep- ur hann á laufás og spilar hjarta. Vömin hefur ekki tíma til að trompa tvisvar út svo hægt er að stinga hjarta í blindum. Hjartað er þá frítt og spilið unn- ið. Niðurstaðan verður auðvitað sú sama ef laufkóngurinn er meðhöndlaður sem tvistur, það er að segja, fómað undir ásinn. En einhverra hluta vegna eiga spilarar erfitt með ,að koma þannig fram við aðalinn og því er stundum betra að vera án hans. SKÁK Umsjón Margeir Pétursson í norsku deildakeppninni í ár kom þessi staða upp í skák þeirra Ragnars Hoens, Oslo Sjakkselskap, sem hafði hvítt og átti leik, og Jörans Jans- sons, Asker. 31. Hb7! — Dxb7 Engu betra var 31. - Dd6 32. Dh7) 32. Dxe5+ - Ke7 33. Dxe6+ - Kd8 34. Bf5 - Kc7 35. Dc5+ - Kb6 36. Hbl+ - Ka6 37. Bd3+ - Db5 38. Hxb5 - Hb8 39. Hxb8 mát. Oslo Sjakkselskap vann örugg- an sigur í keppninni, þótt ýmsa af þeirra sterkustu mönnum vant- aði, svo sem þá Agdesteinbræður og alþjóðlegu meistarana Leif Ógaard og Björn Tiller. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.