Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 51
... L MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Eim um Frí- kirkjuna Til Velvakanda „Fríkirkjufólk! Er ekki kominn tími Jtil fyrir okkur að spyrna við fótum og reyna að koma í veg fyr- ir slys innan kirkjunnar. Óstjóm sú, sem ræður innan safnaðarins, er óþolandi. Við verðum að koma íi/eg fyrir brottrekstur séra Gunnars Björnssonar. í fyrsta lagi var ólög- lega að málum staðið og í öðru lagi er uppsögnin algerlega ástæðulaus. Það er leiðinlegt ef fáeinir safnaðar- meðlimir fái svo miklu ráðið. Við sem kusum séra Gunnar höfum svo sannarlega ekki orðið fyrir vonbrigðum með starf hans, sem hann hefur unnið af kostgæfni og alúð. Ef svo fer sem horfir getur söfnuðurinn átt von á því að prest- ar komi og fari sem á færibandi, ef nokkur sækir um starfið. Ég skora á stjórnina að endur- skoða uppsögnina með heiðarlegu hugarfari og hafa þá í huga vilja safnaðarmeðlima." Valgerður H. Gísladóttir Málefni Fríkirkjunnar Til Velvakanda Kæru lesendur. Mér finnst vera kominn tími til að einhver skrifí á móti öllu þessu rugli um séra Gunn- ar Björnsson og konu hans. Séra Gunnar reisti Fríkirkjuna algerlega við ásamt söfnuði sínum. Eg hef aldrei orðið vör við annað hjá þeim hjónum en ljúfmennsku og prúð- mennsku. Ég hef þó nokkuð oft farið til kirkju og alltaf hef ég kom- ið frá kirkjunni minni glaðari í hjarta og með frið í sál. Barnamessurnar eru séra Gunn- ari til sóma. Þær eru í anda mann- vinarins mikla og góða, séra Frið- riks Friðrikssonar. I trúfræði er ég ekki svo fróð að ég geti dæmt um ræður hans. En allt sem hann seg- ir er fallegt og gott og sérhver maður getur lært eitthvað af því ef áhugi er fyrir hendi. Mér finnst að söfnuðurinn mætti vera stoltur af því hvað við höfum falleg og góð prestshjón. Svo er kirkjan svo vel rekin fjárhagslega að sómi er að. Virðingarfyllst, Elsa Kristjánsdóttir Verðbólgan: Hinn raunverulegi fjandi Athugasemd við skrif Guðrúnar Jacobsen Til Velvakanda Velvakandi birti þann 16. júlí síðastliðinn grein eftir Guðrúnu Jacobsen, þar sem hún veitist að undirrituðum fyrir grein í Morgun- blaðinu 13. júlí. Ég hef fulla samúð með Guðrúnu, enda þolandi verð- bólgunnar eins og hún. En ég and- mæli málflutningi hennar því að hann er í veigamiklum atriðum bæði rangur og hættulegur. Hún segir: „Það er ekki okkar að kveða niður verðbólguna.“ Þetta er dæmi- gert fyrir rangan og stórháskalegan hugsunarhátt almennings í landinu. Hver einasti íslendingur, sem óskar eftir batnandi samfélagi, verður einmitt að gera allt sem hann getur til að kveða niður verðbólguna. Og Guðrún Jacobsen hefur vissulega burði til að leggja fram lið í þessari óhjákvæmilegu baráttu, meðal annars að vekja skilning fólks á því, að hinn raun- verulegi fjandi er verðbólgan, en ekki einhverjar vísitölur. Því miður er hugur Gurúnar svo altekinn misskilningi, að hún getur ekki einu sinni lesið orð mín rétt. Hún hefur mál sitt á því, að ég „fullyrði að vaxtakjör lánþega séu góð, jafnvel of góð ...“ Þetta er ósatt Guðrún Jacobsen. Þvert á móti vek ég ítrekað athygli á því, að lán séu nú svo dýr, að þau eru háskaleg almenningi. Ég segi: „Vextir umfram verðbólgu, raun- vextir, ættu hins vegar jafnan að vera lágjr, og þeir eru nú um stundir miklu hærri en nokkru tali tekur.“ Á öðrum stað vara ég við þessum dýru lánum svo: „Við núverandi aðstæður er vissulega þarflegt að vekja ótta fólks við að taka lán. Sérhver viðvörun er þakk- arverð." Þessi orð sýna fullvel að það er ekki ég, sem segi lánakjör „góð eða of góð“. Það er oft erfitt að henda reiður á staðreyndum og getur komið fyr- ir alla að fara rangt með. Þetta er þó of einfalt atriði til að ruglast á. En nú heiti ég á Guðrúnu Jacobsen að lesa á ný grein mína frá 13. júlí og endurskoða viðhorf sín. Við þurfum að standa saman gegn hin- um geigvænlega óvini, óðaverð- bólgunni, sem er að ríða þjóðfélag- inu á slig. Enga leikur hún verr en hina fátæku. Guðjón Jónsson Þessir hringdu . . . Kettlingur fundinn Grár angórublandaður kettling- ur með hvítar hosur og hvíta bringu fannst síðastliðinn mið- vikudag í Hafnarfirði. Eigandinn getur vitjað hans á Dýraspítalann. Kápa tekin í mis- gripum Ljós kápa var tekin í misgripum á heilsuvemdarstöðinni á Borg- arspítalanum í júní. Ef einhver kannast við þetta er hann beðinn að hafa samband við Önnu Jóns- dóttur í síma 30472. Veiðihjól tapaðist ABU-veiðihjól tapaðist laugar- dagskvöldið 9. júlí við Eimskipafé- lagsbryggjuna á Akureyri. Finnandi er beðinn að hafa sam- band við Guðrúnu í síma 96-26929. Fundarlaunum er hei- tið. Týndi goillúrinu sinu Valgerður hringdi og sagði dóttur sína hafa týnt gullúrinu sínu, sem amma hennar gaf henni í fermingargjöf, í miðbæ Reykjavíkur. Biður hún finnand- ann að hringja í síma 29713. Gleraugn fundust Kvenlesgleraugu í hvítri umgjörð fundust við Brúarhlöð hjá Gull- fossi miðvikudaginn 13. júlí. Eig- andinn getur haft samband við Fríðu í síma 656274 eftir klukkan 18. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.