Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 53
53
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 20. JÚIÍ 1988
KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNIN
Tveir stórleikir í kvöld
ÍÞRÚfflR
FOLK
■ TOUR DE FRANCE hjól-
reiðakeppninni fer nú brátt að ljúka,
en 16. dagur hennar var í gær.
Sigurvegari var Adri van der Poel
frá Hollandi, en hann hjólaði stystu
vegalengd keppninnar - frá Tarpes
til Pau - á 46 mínútum og 36 sek-
úndum. Meðalhraði hans var því
nærri 50 km. á klukkustund. Sigur
van der Poel var annar sigur liðs
hans, en sá fyrri var unnin af Ste-
ven Rooks í Ölpunum, en sá sigur
gerði Rooks að einum helsta keppi-
naut Pedro Delgado frá Spáni, en
hann he'fur forystu einstaklinga i
keppninni.
■ GAUTI LAXDAL skoraði
seinna mark KA í leiknum gegn
Þór á föstudaginn en ekki Valgeir
Barðason, eins og mishermt var í
blaðinu á laugardaginn.
■ HELGA HALLDÓRSDÓTT-
IR, Gunnlaugur Grettisson, og
Martha Emstdóttir tóku þátt í
stórmóti í Gateshead á Englandi
um helgina. Helga varð þriðja í 400
metra grindarhlaupi, hljóp á 57,97,
en sigurvegari var Sally Flemming
frá Astralíu á 56.09. Gunnlaugur
varð sjötti í hástökki, stökk 2.05,
en heimsmethafinn Patrick Sjö-
berg, stökk 25 sm. hærra. Martha
Ernsdóttir varð sjöunda í 3000
metra hlaupi, hljóp á sínum besta
tíma til þessa 9:31,80. Þá bætti
Martha einnig árangur sinn í 1500
metra hlaupi á móti í Sunderland
tveimur dögum áður, jafnframt því
sem hún sigraði í hlaupiriu.
TVÖ sterkustu lið 1. deildar að
margra dómi, Fram og Valur,
etja kappi að Hlíðarenda í kvöld
kl. 20.00 í átta liða úrslitum
bikarkeppninnar. Á sama tíma
mætast IA og ÍBK á Akranesi.
etta verður önnur viðureign
Fram og Vals innbyrðis á stutt-
um tíma og hefðu eflaust margir
viljað sjá liðin leika til úrslita um
mjólkurbikarinn á Laugardalsvell-
inum laugardaginn 27. ágúst. Þetta
er því fyrir sumum hinn eiginlegi
bikarúrslitaleikur, sem hann og er,
því allir bikarleikir eru úrslitaleikir.
Framarar sigruðu í síðsta leik lið-
anna með einu marki gegn engu
og er víst að Valsmenn telja sig
eiga harma að hefna.
Erum dauðsvekktir með tapið
„Leikurinn í kvöld leggst bara vel
í mig. Við munum leggja allt í söl-
umar til að vinna, því við eram
dauðsvekktir með að hafa tapað
fyrir Fram í deildinni," sagði Hörð-
ur Helgason, þjálfari Valsmanna.
„Þetta verður hins vegar erfiður
leikur því Framarar hafa sterku liði
á að skipa og hafa ekki tapað leik
í deildinni. Við ætlum okkur hins
vegar sigur. Það era engin ný
meiðsli hjá mannskapnum þannig
að við verðum með okkar sterkasta
lið gegn þeim í kvöld, að því undan-
skyldu að Hilmar Sighvatsson verð-
ur ekki með,“ sagði Hörður, en
hnýtti svo 7,9,13 aftan við ræðuna.
Hann var beðinn um að spá fyrir
um hvaða lið kæmust í fjögurra liða
úrslit úr hinum leikjunum og nefndi
hann Leiftur, FH og ÍA.
Tvö sterkustu liðin eigast við
Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram,
sagði að sér litist ágætlega á leik-
inn. „Að vísu vitum við ekki enn
hvort Guðmundur Steinsson getur
leikið með í kvöld, en vonandi kem-
ur það ekki að sök,“ sagði Ásgeir.
Hann var spurður að því hvort eitt-
hvað væri um önnur meiðsli í liðinu
og sagði hann að ekki væri alveg
ljóst hvort Jóns Sveinsson og Am-
ljótur Daviðsson gætu leikið með
vegna meiðsla sem þeir fengu á
æfingu á mánudagskvöldið.
„Þetta verður vafalaust hörkuleikur
því þetta era tvö sterkustu liðin,
sem þarna munu eigast við. Hvort
I
leikið er á Hlíðarénda eða í Laug-
ardalnum skiptir ekki meginmáli.
Ég vona bara að allir leikmenn verði
heilir, en það kemur ekki endanlega
í ljós fyrr en á rnorgun," sagði
Ásgeir bjartsýnn.
Slógum þá út ífyrra og
eram því bjartsýnir
Keflvíkingar taka sér ferð á hendur
upp á Skaga til að keppa við ÍA.
„Við slógum þá út í fyrra í 16 liða
úrslitum og eram þvi hvergi smeyk-
ir,“ sagði Sigurður Björgvinsson,
fyrirliði ÍBK. „Það er hugur í mönn-
um, sérstaklega eftir að sigurinn á
föstudaginn gegn Völsungum á
Husavík. Það er fyrsti leikurinn sem
við höfum unnið síðan við mættum
Völsungum í 1. umferð íslands-
mótsins. Við teljum leikinn á móti
Selfossi ekki með því hann sigrað-
um við með vítaspymukeppni,"
sagði Sigurður.
Skagamaðurinn Karl Þórðarson var
sannfærður um að leikurinn yrði
mikill baráttuleikur.
„Við verðum að reyna að hefna
fyrir bikaleikinn í fyrra, en þá slógu
Keflvíkingar okkur út, og við höfum
ekki nema þennan eina möguleika
til' að komast áfram,“ sagði Karl.
„Keflvíkingar era alltaf erfiðir því
þeir era miklir baráttujaxlar, og
bikarleikir era alltaf miklir baráttu-
leikir. Við verðum að vísu án Haf-
liða Guðjónssonar í þessum leik því
hann tognaði illa í leiknum gegn
Leiftri um helgina," sagði Karl
Þórðarson.
1
Framarar hampa bikamum eftir sigur á Víði ( fyrra. Þeir eiga erfiðan leik fyrir höndum í kvöld.
GOLF / LACOSTE-MOTIÐ
Morgunblaöið/Óskar Sæmundsson
LACOSTE-mótlð í golfi fór fram í Grafarholti um síðustu helgi. Keppendur
voru 120 og var þetta þriðja fjölmennasta golfmót sumarsins. Sigurvegari varð
Ragnar Guðmannsson, GR, sem lék á 62 höggum nettó. Þorsteinn Marteins-
son, GR, varð annar á 66 höggum og Finnur Oddsson, GR, þriðji á 67 högg-
um. Besta skorið átti Sigurður Hafsteinsson, GR, 72 högg. Á myndinni eru
frá vinstri: Björgúlfur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri GR, Guðmundur Ólafs-
son, umboðsmaður Lacoste á íslandi, Þorsteinn Marteinsson, Ragnar Guðmanns-
son, Sigurður Hafsteinsson og Finnur Oddsson.
GOLF/AKRANES
Ómar sigraði
MEISTARAMÓTI Golfklúbbs-
ins Leynirs á Akranesi lauk nú
um síðustu helgi og varö Ómar
Örn Ragnarsson sigurvegari í
meistaraflokki á 293 höggum.
Aðeins einn keppandi auk
Ómars lék í meistaraflokki en
það var Elvar Skarphéðinsson
en hann hætti þátttöku áður
en keppni lauk.
Omar Öm Ragnarsson var einn-
ig sigurvegari á meistaramóti
Leynis á síðasta ári. Úrslit í öðram
flokkum urðu annars þessi:
1. flokkur karla:
1. ReynirÞorsteinsson...........318
2. Birgir Amar Birgisson........320
3. Jóhannes Ármannsson.............381
2. flokkur karla:
1. Jón E. Pétursson...............341
2. Hlynur Þórsson..................360
3. Guðfínnur Biigisson.............355
3. flokkur karla:
1. Valur Guðjónsson................337
2. Aðalsteinn Huldarsson...........338
3. Reynir Sigurbjörasson...........869
Unglingaflokkur:
1. Hjalti Nielsen..................307
2. Rósant Freyr Birgisson..........308
3. Kristinn B. Bjamason............815
Drengjaflokkur:
1. ÞórðurÓlafsson..................319
2. Birgir Hafþórsson...............846
3. Helgi Dan Steinsson.............352
Kvennaflokkur:
1. Sigríður Ingvadóttir............282
2. Amheiður Jónsdóttir.............298
3. Elin Hannesdóttir...............299
KNATTSPYRNA / V-ÞYZKALAND
Leikmenn fá 50-100
þúsund kr. fyrir sigur
LEIKMENN vestur-þýzku 1.
deildarliðanna í knattspyrnu
eru verðlaunaðir ríkuiega fyr-
ir góðan árangur á knatt-
spyrnuveiiinum. Bónusinn,
sem leikmenn fá í sinn hlut
sem viðbót við regluleg laun,
er mismunandi eftir liðum en
hann getur orðið býsna rífleg-
ur.
Hér á eftir fer listi yfir bónus-
kerfi liðanna á komandi
keppnistímabiii. Til gamans má
geta, að ef meistarar Werder
Bremen fá jafnmörg stig og í fyrra
eða 52, fær hver ieikmaður liðsins
í sinn hlut 104 þúsund þýzk mörk
(jafngildi 2,6 milljóna ísl. kr.) í
bónus. Ágætis búbót það. Ásgeir
Sigurvinsson og félagar hans í
Stuttgart fengju 48 þús mörk
(jafngildi 1,2 milljónar ísl. kr.)
hver, ef þeir lentu í 4. sæti og
fengju 40 stig eins og síðast.
Liðin eru misvel stæð og leikmenn
þeirra mismunandi dýrir. Bayem
Munchen er með langdýrasta
mannskapinn en þar á eftir koma
Köln, Bremen, Stuttgart og Bayer
Leverkusen. Tölumar í svigunum
gefa til kynna virði allra leik-
manna einstakra liða, mælt í millj-
ónum þýzkra marka en markið
er nú um það bii 25 ísl. kr.
Werder Bremen (16) - 2000 þýzk
mörk fyrir hvert stig, ef liðið lendir
í 1.-4. sæti og 1500 mörk fyrir 5.-10.
8ætið.
Bayern MUnchen (80) - 2000 mörk
fyrir stig á útivelli, fyrir sigur á
heimavelli 3000 mörk en 1000 fyrir
jafntefli heima.
FC Köln (17) - 2000 mörk fyrir
stig ef iiðið lendir í 1.-2. sæti, 1750
fyrir 3. sætið, 1500 fyrir 4.-6. sæti,
ekkert fyrir jafntefli á heimavelli.
Stuttgart (16) - 2000'mörk fyrir
hvert sig ef liðið lendir 1.-2. sæti.
1000 mörk fyrir 3.-5.sætið, ( 1500
mörk fyrir stig á útivelli), fyrir 6.-10
sæti: 700 mörk fyrir stig á heima-
velli (1000 á útivelli).
NuPnberg (12) - 2000 mörk fyrir
1.-5. sæti, 1500 fyrir 6.-10. sæti,
1000 iýrir 10.-15. sæti.
HSV (9,5) - Ekki vitað.
Giadbach (10) - 2000 mörk fyrir
1.-5. sæti, 1500 mörk fyrir 6.-8
sæti, 1000 fyrir 9.-12 sæti.
Bayer Leverkusen (14,4) - 2000
mörk fyrir 1.-3. sæti, 1800 fyrir
4.-6. sæti, 1500 fyrir 7.-10. sæti.
Eintracht Frankfurt (8) - 1500
mörk fyrir stig á útivelli og 0,5%
af heildarinkomu á heimaleikjum
þegar fleiri en 15000 áhorfendur
koma / hvert fengið stig.
Hannover 96 (7,5) - 5000 mörk
fyrir sigur á útivelli, jafntefli á úti-
velli gefur 3000, heimasigur 4000,
1000 fyrir jafntefli á heimavelli.
Uerdingen (6,8) - 2200 mörk fyrir
hvert stig.
Bochum (6) - 1500 mörk fyrir hvert
stig.
Borussia Dortmund (9,5) - 1500
mörk fyrir hvert stig.
Kaiserslautern (10,5) - Ekki Ijóst
enn. Hugsanlega 1250 mörk fyrir
hvert stig og einhver ágóðahlutur
af heimaleikjum.
Karlsruher (5,6) - 1750 mörk fyrir
hvert stig.
Mannheim (5) - Ekki ljóst enn en
sennilega 1000-1250 fyrir hvert
fengið stig.
Stuttgarter Kickers(3,8) - 1200
mörk fyrir hvert stig.
St. Pauli (3,9) - Ekki Ijóst enn. Var
um 400 mörk fyrir hvert stig stðasta
keppnistímabil. Hækkar núna.