Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 Minning: Þórarinn Þorkels- son yfirdyravörður Kveðja frá Þjóðleikhúsinu Fæddur 18. maí 1917 Dáinn 12. júlí 1988 Þórarinn Þorkelsson yfirdyra- vörður Þjóðleikhússins fæddist á Reynissthð í Vestmannaeyjum. For- eldrar hans voru þau hjónin Þor- kell Sæmundsson og Oktavía Guð- mundsdóttir. Þórarinn ólst upp í Vestmanna- eyjum til fjórtán ára aldurs er hann flutti með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur. Eiginkona Þórarins er Sigríður Bjömsdóttir. Dætur þeirra eru Erla, sem er gift Sævari Karli Ólasyni og Fríða Björg, gift Óla Elvari Ein- arssyni. Bamabömin eru Qórir drengir. Á yngri árum lagði Þórarinn mikla rækt við íþróttir og þó sér- staklega knattspymu með Val og fimleika með Armanni, einnig var hann skíðamaður góður. Þórarinn var útlærður húsgagna- smiður og réðst sem slíkur að Þjóð- leikhúsinu árið 1951. Þórarinn var ákafiega vinsæll meðal starfsfélaga sinna í leikhúsinu og því varð mikil eftirsjá að honum þegar hann sagði starfi sínu lausu og réðst til Sjón- varpsins. Árið 1967 tók Þórarinn við verk- stjóm í leikmunadeild Sjónvarpsins og lagði dijúgan skerf til upp- byggingar hennar, en þá var Sjón- varpið að slíta bamsskónum þannig að mikið skipulags- og uppbygging- arstarf var fyrir höndum. Um tíma átti Þórarinn við van- heilsu að stríða, sem leiddi til þess að hann réð sig aftur að Þjóðleik- húsinu árið 1973 og nú sem yfir- dyravörður og gegndi hann því starfi þar til í febrúar er hann varð að hætta vegna þeirra veikinda sem nú hafa leitt hann til dauða. Þórarinn var afskaplega vinnu- samur og natinn við störf sín og mjög vinsæll meðal starfsfélaga sinna, enda með eindæmum skemmtilegur maður sem alltaf var með spaugsyrðin tiltæk. í svona stóm leikhúsi vill bregða við að starfsfólkið kynnist lítið inn- byrðis, en Þórarinn gerði sér far um að heimsækja hinar ýmsu deild- ir og halda sambandi við starfs- félaga sína og það vom ófá skiptin, sem hann kom í kaffi á skrifstofuna og þá var ætíð glatt á hjalla, og nú síðast heimsótti hann okkur fyr- ir rúmum þremur vikum. En Þórarinn var ekki bara vin- sæll meðal starfsfélaga sinna, held- ur og allra gesta leikhússins. Hann var fyrsti maðurinn sem tók á móti leikhúsgestum þegar þeir mættu til leiksýninga og með hlýju viðmóti, hjálpsemi og glaðlegri framgöngu eignaðist hann marga vini meðal fastagesta leikhússins og er ég viss um að þeir munu sakna hans, því vissulega var hann sjálfum sér og leikhúsinu til mikils sóma í starfi slnu. Það verður mikil eftirsjá að Þór- ami Þorkelssyni og skarð hans hér t Hjartkær móöir okkar, tengdamóöir og amma, DAÐEY GUÐMUNDSDÓTTIR frá Ísafiröi, sem andaðist á Hrafnistu sunnudaginn 17. júlí sl., verður jarð- sungin föstudaginn 22. júlí kl. 15.00 frá Fossvogskapellu. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Faöir okkar, GUÐJÓN KRISTINSSON fyrrverandi kennari, Þórsgötu 8b, er lést 8. júlí sl., verður jarösunginn frá Áskirkju miövikudaginn 20. júlí kl. 13.30. Böm hins lótna. t Eiginmaöur minn og faðir okkar, SKARPHÉÐINN ÁRNASON, lést i Osló 18. júlí sl. EUnborg Reynisdóttir, Helga Skarphéðinsdóttir, Brynja H. Hansen. t Útför eiginmanns míns og fööur okkar, SKÚLA JÓNSSONAR, Hróarslæk, Rangárvöllum, er andaðist 14. júlí, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 22. júlí kl. 13.30. Ingigerður Oddsdóttir og börnin. í leikhúsinu verður vandfyllt. Ég veit að ég mæli fyrir munn allra hér í leikhúsinu þegar ég færi eigin- konu hans, dætrum, tengdasonum og bamabömum innilegar samúð- arkveðjur. Gísli Alfreðsson Guðjón Ásg. Krist- insson - Kveðjuorð Hann Doddi vinur minn er dáinn og er þar góður drengur fallinn í valinn. Þórarinn Þorkelsson hét hann, en ávallt kallaður Doddi með- al vinnufélaga. Ég var svo lánsam- ur að vera vinnufélagi Dodda síðan 1960 að undanskildum Qómm ámm sem hann vann hjá Sjónvarpinu. Eftir að Doddi hóf störf hjá Þjóð- leikhúsinu í annað sinn var sam- starf okkar mjög náið og kynntist ég þá vel mannkostum hans. Hann var mjög samviskusamur. Prúður var hann í öllum samskipt- um og átti gott með að umgangast aðra sökum þjónustulipurðar sinnar, sem var honum í blóð borin. Þessum eðlisþáttum hans kynntist fyöldi íslendinga gegnum starf hans, en hann var yfírdyravörður við Þjóðleikhúsið um margra ára skeið. 011 samskiptamál leysti hann með lipurð og af háttprýði. Doddi var mikill smekkmaður og hafði þennan fíngerða smekk fagur- kerans, hjá honum varð allt að vera í röð og reglu og umfram allt snyrti- legt. Honum var ekki að skapi að illa væri gengið um, því reglusemi og snyrtimennska virtist honum með- Fæddur 4. desember 1988 Dáinn 8. júlí 1918 Elsku afí, Guðjón Ásgeir Krist- insson, er dáinn. Við áttum erfitt með að trúa því, þrátt fyrir að við vissum að hann hafði um langt skeið átt við sjúkdóm að stríða, sem allir vonuðu að hann myndi sigrast á að lokum. Við munum aldrei gleyma þeim skiptum þegar afi kom í heimsókn og hafði alltaf eitthvað meðferðis handa okkur krökkunum. Síðustu árin bjó afi einn og þó hann hefði ekki um það mörg orð vissum við hversu mikið hann saknaði ömmu sem dó fyrir nokkrum árum. Nú hefur afi fengið þá ósk sína uppfyllta að hitta ömmu á ný og getum við glaðst jrfir því. Megi elsku afi okkar hvíla í friði og hafi hann þökk fyrir allt. Bamabörnin Oskar Olafsson — Kveðjuorð fædd. Hann bar hag þeirrar stofnunar, sem hann vann hjá, mjög fyrir bijósti, gladdist þegar vel gekk og reisn var yfir hlutunum, en leiður þegar illa gekk, en í leikhúsi skipt- ast á skin og skúrir ef til vill öðrum vinnustöðum fremur. Alltaf var ánægjulegt að koma á heimili Dodda og Sigriðar, gest- risni, prúðmennska og hlítt viðmót alltaf í öndvegi á þeirra fallega heimili. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég góðan vin og félaga. Guð blessi minningu Dodda. Frú Sigríði, Erlu, Fríðu, tengda- sonum og bamabömum votta ég mína dýpstu samúð. Halldór Z. Ormsson Föstudaginn 15. júlí var til mold- ar borinn Óskar Ólafsson, húsa- smíðameistari, Iðjumörk 1 í Hvera- gerði. Frá æskuárum mínum minnist ég með gleði og þakklæti ánægju- legra stunda með frænda mínum. { hvert skipti sem hann kom á heim- ilið í Söðulsholti var eins og allt yrði bjartara. Ég minnist þess að þegar maður vaknaði á morgnana mátti heyra að leikið var á orgelið og þá vissi maður að Óskar var kominn heim öllum til mikillar gleði, en hann var mjög músíkalskur. Hann var sístarfandi maður, hug- myndaríkur og hafa margir notið góðs af verkum hans. Er ég hugsa til hans kemur upp í hugann lítið kvæði sem ég lærði á unglingsárum mínum austur á Laugarvatni: Það er gott að ganga á rósum, giaður og hýr á lífsins vori. Þó er betra ef blómum og ljósum bregður upp í hveiju spori. Óskar var sífellt öðrum hjálp- andi. Gróðursetti allsstaðar tré og blóm þar sem hann bjó. Það brá líka svo sannarlega upp blómum og Ijósum í hveiju spori hans. Hann var hamingjumaður, sem átti in- dæla konu og indæl böm, svo og tengda- og bamabörn. Hann varð þeirrar gleði aðnjótandi að verða langafi. Ég og fjölskylda mín sendum nánustu vandamönnum Óskars og hans fólki öllu innilegar samúðar- kveðjur. Mjöll frænka t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, OLGEIR SIGURVINSSON, Hrafnistu, áður Hraunbœ 73, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju 21. júlf, kl. 13.30. Jarðsett veröur í Grindavíkurkirkjugarði. Erla G. Olgeirsdóttir, Guðmundur Finnbogason, Guðborg K. Olgeirsdóttir, Sigurður Brynjólfsson og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR BÆRINGSSON, Bjarkagötu 8, Patreksflrði, verður jarðsunginn frá Patreksfjarðarkirkju fimmtudaginn 21. júlí kl. 14.00. Hrafnhildur Ágústsdóttir, Gísli Ólafsson, Kristfn Gfsladóttir, Bæring Ólafsson, Guðbjörg Pétursdóttir, Ágúst Ólafsson, Nanna Leifsdóttir og barnabörn. t Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, PÁLL AXELSSON, strætisvagnastjóri, Lönguhlfð 19, er lóst 15. júlí, verður jarðsunginn frá Fíladelfíukirkjunni, Hátúni 2, föstudaginn 22. júlf kl. 13.30. Sigrfður Halldórsdóttir, Halldór Pálsson, Björg Davfðsdóttir, Páll Pálsson, Guðrún Margrét Pálsdóttir, Hannes Lentz og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.