Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 55 Hermundur meiddur HERMUNDUR Sigmundsson, sem lék með Stjörnunni í vet- ur, sleit krossbönd á fjórðu æfingu sinni með norska liðinu Bekkelaget fyrir skömmu. Her- mundur sem er á leið í fram- haldsnám til Noregs mun ekki geta leikið með sínu nýja félagi fyrr en eftir áramót. Þetta er rosalegt áfall," sagði Hermundur, en hann hafði ekki dvalið í Noregi nema §óra daga þegar óhappið varð. „Gólfíð þama úti er talsvert öðruvísi en maður á að venjast og æfíngin var varla byijuð þegar þetta gerðist. En það þýðir ekkert að gefast upp, ég reikna með að geta byrjað á fullu í handboltanum eftir ára- mót,“sagði Hermundur að lokum. ÍÞRÚmR FOLX M VALSMENN halda vel hópinn fyrir leikinn gegn Fram í Mjólkur- bikarnum í kvöld. í gær tóku þeir létta æfíngu að Hlíðarenda, en skunduðu sfðan austur í Hvera- gerði þar sem þeir gistu í nótt á Hótel Órk. ■ HANA Mandlikova. fékk ekki grænt ljós hjá alþjóða tennissam- bandinu um að keppa fyrir Ástralíu á meistaramóti sambandsins í des- ember. Mandlikova sem er tékk- nesk að uppruna, er gift Ástrala og gerðist ástralskur ríkisborgari á árinu. Talsmaður 'alþjóða tennis- sambandsins segir neitunina vera byggða á þeim reglum sambandsins sem segja að keppandi verði að hafa verið búsettur a.m.k. í þijú ár í viðkomandi landi til þess að geta verið fuiltrúi þess í keppni. ■ MARCELINO Garcia Pan- iaqua forseti fyrstu deildar félags- ins Guadelajara, var kosinn forseti mexíkanska knattspymusambands- ins á mánudag. Fyrrverandi for- seti, Rafael Del Castillo hætti í kjölfar hneykslis er varð þegar Mexíkönum var vísað úr heims- meistarakeppninni fyrir skömmu. ■ BALLESTEROS, sigurvegar- inn á Opna breska meistaramótinu í golfí, ljóstraði upp leyndarmáli, sem hefur verið vel varðveitt fram til þessa. Hann sagðist hafa borgað Ed Barnes, fymim framkvæmda- stjóra sínum stórfé til þess að hann gæti losnað við hann. Ballesteros sagðist hafa átt í miklum vandræð- um með Bames og sagði það hafa tekið sig þijú ár að losna við hann. „Ég fór nú-að velta því fyrir mér hversu góður framkvæmdastjóri Barnes væri þegar hann ráðlagði mér að taka ekki þátt í einu af §ór- um helstu golfmótum heims, Bandaríska PGA meistaramótinu. Barnes vildi meina að það væri ekki svo merkilegt mót og að ég gæti haft eins gott upp úr því að koma einhversstaðar fram eða taka þátt í einhveiju öðru móti í Evr- ópu,“ sagði Ballesteros, sem nú hefur ráðið sér nýjan framkvæmda- stjóra, Joe Collett. HANDKNATTLEIKUR Njarðvík fær liðsauka NJARÐVÍKINGUM hefur held- ur betur bæst liðsauki í hand- boltanum fyrir veturinn. Tveir leikmenn Stjörnunnar úr Garðabæ, þeir Magnús Teits- son og Sigurjón Guðmunds- son hafa gengið frá félaga- skiptum yfir í UMFN og Eg- gert ísdal úr Haukum hefur einnig gengið til liðs við Njarðvíkinga. Magnús mun jafnframt verða þjálfari liðs- ins. Ohætt er að segja að félaga- skipti þessi séu töluverð blóðtaka fyrir Stjömuna og að sama skapi liðsstyrkur fyrir UMFN, sem í lok síðasta keppn- istímabils mátti sjá á bak nokkr- um leikmönnum úr byrjunarliði sínu. „Við ætlum okkur upp í fyrstu deild í vetur, það er engin spum- ing,“ sagði Erlingur Hannesson, framkvæmdastjóri handknatt- leiksdeildar UMFN, í samtali við Morgunblaðið. „Við höfum mann- skapinn til að gera góða hluti og ætlum okkur það. Æfíngar hófust hjá okkur fyrir þremur vikum og nú í ágúst erum við á föram til Munster í Þýskalandi, þar sem við ætlum að æfa og keppa í 8 daga. Það er því hægt að segja að undir- búningur fyrir veturinn sé kominn í fullan gang,“ sagði Erlingur. Þeir Magnús og Siguijón hafa þrátt fyrir félagaskiptin ekki al- veg sagt skilið við Stjömuna því báðir munu þeir í vetur taka að sér þjálfun yngri flokka þar á bæ. Morgunblaöið/Sverrir Nýlr Njardvíklngar. Magnús Teitsson, Eggert fsdal og Siguijón Guðmundsson komnir í Njarðvíkurbúninginn. KNATTSPYRNA / MJÓLKURBIKARKEPPNIN || KNATTSPYRNA ÍBK stal stigiaf Stjörnunnj KR vann Fram 3:0 í gærkvöldi, en sigurinn hefði getað orðið mun stærri eftir gangi leiksins. Þá léku KA og Valur á Akureyri og sigraði Valur 2:1. Í Keflavík gerðu ÍBK og Stjarnan jafntefli, 2:2. Mikil barátta var í báðum iið- um í leik Fram og KR. KR- liðið byijaði leikinn af krafti og hóf strax þunga sókn að marki Fram. Hrafnhildur Hreinsdóttir skoraði fyrsta mark KR gegn sínum gömlu félögum í Fram. Katla Kristjáns- dóttir var góð í marki Fram og átti stóran þátt í því að KR skoraOT**" ekki fleiri mörk í fyrri hálfleik. Sókn KR hélt áfram eftir hlé og þær Guðlaug Jónsdóttir og Elísabet Tómasdóttir bættu við mörkum fyr- ir vesturbæjarliðið. Sigur KR hefði getað orðið mun stærri eftir gangi leiksins, en mörkin urðu ekki fleiri. KA-Valur 0:2 Valsstúlkur skoraðu tvívegis strax í byijun leiksins. Eftir mörkin komst KA-liðið smám saman betur inn í spilið og leikurinn varð opinn og skemmtilegur á að horfa. Valur sótti þó öllu meira en Bára Hreið- arsdóttir í marki KA varði vel. _ Lykilmenn vantaði í lið KA vegna meiðsla og kom Jpað niður á leik liðsins. Hjördís Ulfarsdóttir, hinn markheppni framheiji KA lék til að mynda í vöminni að þessu sinni og stóð sig vel. ÍBK-Stjaman 2:2 Stjörnustúlkur vora óheppnar -að missa stig til ÍBK. Staðan í leikhleí var 1:0 fyrir Stjörnunni og þær bættu öðru marki við í síðari hálf- leik. Guðný Guðnadóttir og Ragna Lóa Stefánsdóttir skoraðu mörkin. Eftir að Stjaman var komin tveim^' ^ ur mörkum yfir fór allur kraftur úr spili þeirra og Keflavíkurliðið nýtti sér það vel. Svandís Gylfadóttir minnkaði mun- inn fyrir ÍBK og jöfnunarmarkið kom tveimur mínútum fyrir leiks- lok. Það var frekar ódýrt. Vamar- menn Stjömunnar vora að hreinsa frá marki sínu en ekki tókst betur til en svo að boltinn hrökk í Ásdísi ÍBK leikmann og þaðan í markið. Morgunblaðiö/Rúnar Þór Bjöm Sverrisson, Tindastóli stendur hér vígalegur yfir markverði liðsins, Gísla Sigurðssyni, og sér til þess að Haf- steinn Jakobsson, Leiftri, nái ekki til boltans. Leiftur vann sanngjarnan sigur 3:0 LEIKUR Leifturs og Tindastóls hófst meö umtalsverðum hamagangi og látum, en knatt- spyrnan sem boðið var upp á var fremur bágborin. Leikurinn á malarvellinum á Ólafsfirði einkenndist af miklum lang- spyrnum og mikilli hörku. Leift- ursmenn höfðu þó undirtökin lengst af og var sigur þeirra fyllilega verðskuldaður. Komið var vel fram yfír fyrri hálfleik þegar knöttinn fór að nema við jörðu að ráði, og vora áhorfendur velflestir komnir með ■■■ hálsríg af því að Frá Magnúsi rýna á eftir knettin- Máá um upp f háloftin. Olafslirði Það vora þó heima- menn sem áttu frumkvæði að því að láta boltann ganga manna á milli, og viti menn samleikur þeirra bar ávöxt. Á 27. mínútu leiksins fengu Leiftursmenn óbeina aukaspymu við vítateig Tindastóls. Sauðkrækingar náðu að hreinsa frá en ekki vildi betur til en svo að knötturinn barst til Guð- mundar Garðarssonar sem átti fírnagóða sendingu á Steinar Ingi- mundarson, sem knálega snéri á vamarmenn Tindastóls og sendi knöttinn öragglega í netið. Einungis tveimur mínútum síðar vora heimamenn aftur á ferðinni, og eftir nettan samleik sendi Þor- steinn Geirson á Hafstein Jakobs- son, er vippaði laglega yfír upp- gefínn markvörð Tindastóls. Mikið fjör færðist nú í leikinn þar sem hvoragur aðilinn gaf neitt eft- ir, en jafnræði var þó með liðunum. Um síðari hálfleikinn er lítið að segja, annað en að menn virtust staðráðnir í að gefa allt, og þá gjaman á kostnað knattspymunn- ar; harka og fremur andstyggileg samstuð urðu aðall seinni hálfleiks- ins. Tindastóll sótti samt öllu meira en í fyrri hálfleik, en án þess þó að skapa sér umtalsverð marktæki- færi, enda. var vöm Leifturs þétt og föst fyrir. Það kom hins vegar í hlut heimamanna að bæta um betur og í þetta sinn með veralegri aðstoð leikmanna Tindastóls. Á 83. mín. átti Hafsteinn Jakobsson fyrir- gjöf, hver olli uppnámi í vöm Tinda- stóls, og ekki vildi betur til en svo að einn þeirra rak tána í knöttin og í markið fór hann rakleitt. Staðan var því orðin þijú mörk gegn engu og sigur Leiftursmanna í höfn. Bikarævintýri Tindastóls er þar með á enda í ár; sigur þeirra gegn fyrstu deildar liði KR var sætur fyrir þá en gegn sterkum Ólafs- firðingum áttu þeir aldrei von. Bestu menn Leifturs vora þeir Haf- steinn Jakobsson og Steinar Ingi- mundarson, svo og vöm liðsins, sem andstæðingar náðu aldrei að snúa á. Endir bundinn á bikar- ævingtýrí Tindastóls
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.