Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988
33
Íþróttahátíð HSK:
Mikil þátttaka og skemmti-
leg keppni í öllum greinum
Selfossi.
MIKIL og góð þátttaka og
skemmtileg' keppni var í öllum
greinum fijálsra íþrótta á
Iþróttahátíð Héraðssambandsins
Skarphéðins sem haldin var á
Selfossi um helgina. AJls voru á
hátiðinni 360 keppendur frá 23
félögum. A hátíðinni fór einnig
fram skemmtileg keppni í sundi
þar sem keppendur voru 50.
Á frjálsíþróttamótinu er keppt í
öllum flokkum og gekk keppnin vel
þrátt fyrir mikinn fjölda þátttak-
enda. Góður uppgangur er í ftjáls-
um á svæði HSK sem nú á 10 fijáls-
íþróttamenn í landsliði íslands og
það sem ekki skiptir minna máli,
öflugan hóp starfsmanna sem koma
til starfa við fyrsta kall.
■J
Þeir Vésteinn Hafsteinsson
kringlukastari og Pétur Guðmunds-
son kúluvarpari vöktu mesta at-
hygli á mótinu. Þeim tókst þó ekki
að bæta árangur sinn. Vésteinn
kastaði 60,36 m og Pétur kastaði
kúlunni 19,53 m. Kast Vésteins var
besta afrek mótsins í karlaflokki.
Það vakti mikla athygli og að-
dáun áhorfenda þegar Jón H. Sig-
urðsson fyrrum langhlaupari var
meðal þátttakenda á rásmarkinu í
Jónshlaupinu, 5.000 m hlaupi. Jón
renndi sér á hjólastólnum og var
keppni hans fólgin í því hversu langt
hann kæmist áður en hlauparamir
næðu honum. Jóni tókst að afgreiða
heilan hring í stólnum áður en Jó-
hann Ingibergsson, FH, fór frarnúr
honum, en hann sigraði í hlaupinu
sem er haldið Jóni til heiðurs. Jón
hefur mikinn hug á því að finna
út hversu mikla forgjöf hann þarf
til að geta tekið þátt í hlaupinu af
alvöru. Má því búast við því að
hlaupið verði á næsta ári opið þátt-
takendum í hjólastól jafnt sem öðr-
um.
Annað sem vakti verulega at-
hygli var þátttaka Sveins J. Sveins-
sonar sem tók þátt í kringlukasti.
Hann hefur tekið þátt í héraðsmóti
HSK í 40 ár samfellt sem er mikið
afrek.
Birgitta Guðjónsdóttir vann
besta afrek kvenna með 5,69 m í
langstökki. Bjarki Viðarsson vann
besta afrekið í flokki 15—18 ára,
varpaði kúlu 14,4 m, Árni Ólason
í flokki 14 ára og yngri með 1,75
í hástökki. Framfarabikar mótsins
fékk Ungmennafélagið Þórsmörk.
Hann er veittur því félagi sem
mestar framfarir sýnir á milli ára
og er að honum mikil hvatning.
Ungmennafélag Selfoss sigraði í
öllum flokkum, fékk 170 stig í
flokki fullorðinna, Samhygð var
næst með 80 stig. í flokki 15—18
ára fengu Selfyssingar 133 stig,
næsta félag var Vaka með 66 stig
og í flokki 14 ára og yngri fékk
Selfoss 163,5 stig og Laugdælir
voru næstir með 66 stig.
I sundi var keppt í flokkum 17
ára og yngri. Það var Þór í Þorláks-
höfn sem þar var sterkasta félagið
í stigakeppninni í sundinu.
- Sig. Jóns.
Jón H. Sigurðsson lýkur heilum hring um leið og Jóhann Ingibergs-
son, FH, fer framúr honum í Jónshlaupinu. '
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Sveinn J. Sveinsson fyrir miðju í hópi kringlukastara HSK áður en hans 40. kringlukastskeppni hófst.
Morgunblaðið/Gugu
Ómar Hauksson og Daniel Baldursson, eigendur fiskvinnsluhússins
ísafoldar.
Siglufjörður:
ísafold innleið-
ir nýja starfshætti
Á SIGLUFIRÐI hefur fiskvinnslu-
fyrirtækið ísafold komið sér fyrir
í nýlegu 600 fermetra húsnæði þar
sem trésmfðaverkstæði var áður
starfrækt. Húsnæðið hentar vel
fyrir fiskvinnsluna því þar er vel
rúmt og allt á einni hæð. Þar er
vinnslu- salur, móttaka og frysti-
geymslur á einni og sömu hæð og
þar ríkir mikil snyrtimennska.
ísafold var áður til húsa við Ránar-
götu og var þá margfalt stærri í
sniðum. Eigendur fyrirtækisins eru
Ómar Hauksson og Daníel Baldurs-
son. Alls unnu hjá fyrirtækinu á
fimmta tug manna. Fyrirtækið gerði
út 200 rúmlesta bát en að sögn
Ómars stóð útgerðin í jámum. Nú
hafa þeir dregið saman seglin og flutt
sig um set ásamt því sem starfsfólki
á gamla staðnum var sagt upp.
Þegartíðindamaður Morgunblaðs-
ins heimsótti fyrirtækið á dögunum
var starfsemin ekki komin í fullan
gang. Að sögn Ómars Haukssonar
framkvæmdastjóra er annað hvort
um það að ræða að fyrirtæki séu svo
stór að þau þoli yfirbyggingu og
hámarksnýtingu á tækjum og vélum
eða fyrirtæki hafi enga yfirbyggingu
og það litla fjárfestingu að ekki þurfi
að binda sig við hámarksnýtingu
fjárfestingarinnar. „Við reynum að
komast hjá því að hafa marga á
skrifstofu og forstjóra sem gerir ekki
annað en að tala í síma. Við ætlum
að vinna við það sem til fellur."
Hefur því verið ákveðið að ráða að-
eins tíu manns til fyrirtækisins en
eigendumir, Ómar Hauksson og
Daníel Baldursson, ætla að vinna við
framleiðsluna sjálfir. Þeir ætla að
leggja mesta áherslu á flatfísk, nán-
ar tiltekið kola og ásamt öðrum fisk
sem lítið er unninn hér á landi. Má
þar nefna grálúðu sem góður mark-
aður er fyrir bæði í Japan og Þýska-
landi, að sögn Ómars. Ómar sagði
að grálúðan þætti herramannsmatur
í Þýskalándi. „Hún er bráðfeit og
reykt þykir hún mesta lostæti." Kol-
ann ætla þeir að flaka og sagði
Ómar að þeir renndu nokkuð blint í
sjóinn með það því lítið hefði verið
gert af því flaka kola undanfarin ár.
Veiðitími kola er frá því í júlí og
fram að jólum og þá er kolinn feitast-
ur. Þeir í ísafold hafa ekki hugsað
sér að beijast um þorskinn sem berst
að landi við saltfiskverkendur á
staðnum. Ómar telur ekki grundvöll
fyrir því að vinna fiskinn meira en
jafnan tíðkast. „Við ætlum að stunda
hefðbundna lausfrystingu á þann
markað sem borgar best.“
Úrval l.flokks notaöra bíla í okkar eigu. Allir skoöaöir og yfirfarnir.
Sýnishorn úr söluskrá:
MAZDA 323 t ,S QLX 8TATION
Árgerö ’87. Eklnn 47 þ/km. Hvítur.
MAZDA 323 1,3
Árgerö *82. Ekinn 92 þ/km. Blér.
MAZDA 929 LTD
Árgerö ’82. Ekinn 53 þ/km. Greenn.
TOYOTA CARINA
ÁrgerÖ ’84. Ekinn 60 þ/km. Greenn.
CHEVROLET MONZA
Árgerö '87. Greenn.
VOLVO 340
Árgerö '86. Ekinn 41 þ/km.
Fjöldi annarra bíla
á staönum.
Opiö laugardaga
frá kl. 1—5
mazoa
BÍLABORG H.F.
FOSSHÁLS11 ,SÍMI 68 12 99
MAZDA 629 LTD
Árgerö '87. Ekinn 23 þ/km. Hvítur.
MAZDA 323 QTI
Argerö '86. Ekinn 26 þ/km. Svartur.
COLTTURBO
Argerö '84. EKinn 47 þ/km.
MAZDA 626 1,6
Argerö '87. Ekinn 1 8 þ/km. Dökk-
grér.
MAZDA 626 QLX
Argerö '86. Ekinn 25 þ/km.
TOYOTA COROLLA 1,3
LIFTBACK
Argerö '88. Óekinn. Hvftur.
DAIHATSUCHARADE
ArgerÖ '88. Óekinn. Blór.
MAZDA 323 1,6 QLX 8TATION
Árgerö '87. Ekinn 47 þ/km. Hvftur.
MMC TREDIA QL8
ÁrgerÖ '84. Ekinn 35 þ/km. Grœn-
sans.
OPELCORSA
Argerö '84. Brúnn.
TOYOTA COROLLA
ÁrgerÖ '86. Ekinn 40 þ/km.
Munið okkar
hagstæðu
verð og
greiðslukjör!
BMW 8201
Sjólfskiptur. Argerö ’84. Ekinn 77
þ/km. Blógrór.
MAZDA 323 1,8
Sjólfskiptur. ArgerÖ '84. Ekinn 65
þ/km. Vínrauöur.
SAAB 900 QL8
3 dyra. ÁrgerÖ ’84. Ekinn 74 þ/km.