Morgunblaðið - 20.07.1988, Side 33

Morgunblaðið - 20.07.1988, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 33 Íþróttahátíð HSK: Mikil þátttaka og skemmti- leg keppni í öllum greinum Selfossi. MIKIL og góð þátttaka og skemmtileg' keppni var í öllum greinum fijálsra íþrótta á Iþróttahátíð Héraðssambandsins Skarphéðins sem haldin var á Selfossi um helgina. AJls voru á hátiðinni 360 keppendur frá 23 félögum. A hátíðinni fór einnig fram skemmtileg keppni í sundi þar sem keppendur voru 50. Á frjálsíþróttamótinu er keppt í öllum flokkum og gekk keppnin vel þrátt fyrir mikinn fjölda þátttak- enda. Góður uppgangur er í ftjáls- um á svæði HSK sem nú á 10 fijáls- íþróttamenn í landsliði íslands og það sem ekki skiptir minna máli, öflugan hóp starfsmanna sem koma til starfa við fyrsta kall. ■J Þeir Vésteinn Hafsteinsson kringlukastari og Pétur Guðmunds- son kúluvarpari vöktu mesta at- hygli á mótinu. Þeim tókst þó ekki að bæta árangur sinn. Vésteinn kastaði 60,36 m og Pétur kastaði kúlunni 19,53 m. Kast Vésteins var besta afrek mótsins í karlaflokki. Það vakti mikla athygli og að- dáun áhorfenda þegar Jón H. Sig- urðsson fyrrum langhlaupari var meðal þátttakenda á rásmarkinu í Jónshlaupinu, 5.000 m hlaupi. Jón renndi sér á hjólastólnum og var keppni hans fólgin í því hversu langt hann kæmist áður en hlauparamir næðu honum. Jóni tókst að afgreiða heilan hring í stólnum áður en Jó- hann Ingibergsson, FH, fór frarnúr honum, en hann sigraði í hlaupinu sem er haldið Jóni til heiðurs. Jón hefur mikinn hug á því að finna út hversu mikla forgjöf hann þarf til að geta tekið þátt í hlaupinu af alvöru. Má því búast við því að hlaupið verði á næsta ári opið þátt- takendum í hjólastól jafnt sem öðr- um. Annað sem vakti verulega at- hygli var þátttaka Sveins J. Sveins- sonar sem tók þátt í kringlukasti. Hann hefur tekið þátt í héraðsmóti HSK í 40 ár samfellt sem er mikið afrek. Birgitta Guðjónsdóttir vann besta afrek kvenna með 5,69 m í langstökki. Bjarki Viðarsson vann besta afrekið í flokki 15—18 ára, varpaði kúlu 14,4 m, Árni Ólason í flokki 14 ára og yngri með 1,75 í hástökki. Framfarabikar mótsins fékk Ungmennafélagið Þórsmörk. Hann er veittur því félagi sem mestar framfarir sýnir á milli ára og er að honum mikil hvatning. Ungmennafélag Selfoss sigraði í öllum flokkum, fékk 170 stig í flokki fullorðinna, Samhygð var næst með 80 stig. í flokki 15—18 ára fengu Selfyssingar 133 stig, næsta félag var Vaka með 66 stig og í flokki 14 ára og yngri fékk Selfoss 163,5 stig og Laugdælir voru næstir með 66 stig. I sundi var keppt í flokkum 17 ára og yngri. Það var Þór í Þorláks- höfn sem þar var sterkasta félagið í stigakeppninni í sundinu. - Sig. Jóns. Jón H. Sigurðsson lýkur heilum hring um leið og Jóhann Ingibergs- son, FH, fer framúr honum í Jónshlaupinu. ' Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Sveinn J. Sveinsson fyrir miðju í hópi kringlukastara HSK áður en hans 40. kringlukastskeppni hófst. Morgunblaðið/Gugu Ómar Hauksson og Daniel Baldursson, eigendur fiskvinnsluhússins ísafoldar. Siglufjörður: ísafold innleið- ir nýja starfshætti Á SIGLUFIRÐI hefur fiskvinnslu- fyrirtækið ísafold komið sér fyrir í nýlegu 600 fermetra húsnæði þar sem trésmfðaverkstæði var áður starfrækt. Húsnæðið hentar vel fyrir fiskvinnsluna því þar er vel rúmt og allt á einni hæð. Þar er vinnslu- salur, móttaka og frysti- geymslur á einni og sömu hæð og þar ríkir mikil snyrtimennska. ísafold var áður til húsa við Ránar- götu og var þá margfalt stærri í sniðum. Eigendur fyrirtækisins eru Ómar Hauksson og Daníel Baldurs- son. Alls unnu hjá fyrirtækinu á fimmta tug manna. Fyrirtækið gerði út 200 rúmlesta bát en að sögn Ómars stóð útgerðin í jámum. Nú hafa þeir dregið saman seglin og flutt sig um set ásamt því sem starfsfólki á gamla staðnum var sagt upp. Þegartíðindamaður Morgunblaðs- ins heimsótti fyrirtækið á dögunum var starfsemin ekki komin í fullan gang. Að sögn Ómars Haukssonar framkvæmdastjóra er annað hvort um það að ræða að fyrirtæki séu svo stór að þau þoli yfirbyggingu og hámarksnýtingu á tækjum og vélum eða fyrirtæki hafi enga yfirbyggingu og það litla fjárfestingu að ekki þurfi að binda sig við hámarksnýtingu fjárfestingarinnar. „Við reynum að komast hjá því að hafa marga á skrifstofu og forstjóra sem gerir ekki annað en að tala í síma. Við ætlum að vinna við það sem til fellur." Hefur því verið ákveðið að ráða að- eins tíu manns til fyrirtækisins en eigendumir, Ómar Hauksson og Daníel Baldursson, ætla að vinna við framleiðsluna sjálfir. Þeir ætla að leggja mesta áherslu á flatfísk, nán- ar tiltekið kola og ásamt öðrum fisk sem lítið er unninn hér á landi. Má þar nefna grálúðu sem góður mark- aður er fyrir bæði í Japan og Þýska- landi, að sögn Ómars. Ómar sagði að grálúðan þætti herramannsmatur í Þýskalándi. „Hún er bráðfeit og reykt þykir hún mesta lostæti." Kol- ann ætla þeir að flaka og sagði Ómar að þeir renndu nokkuð blint í sjóinn með það því lítið hefði verið gert af því flaka kola undanfarin ár. Veiðitími kola er frá því í júlí og fram að jólum og þá er kolinn feitast- ur. Þeir í ísafold hafa ekki hugsað sér að beijast um þorskinn sem berst að landi við saltfiskverkendur á staðnum. Ómar telur ekki grundvöll fyrir því að vinna fiskinn meira en jafnan tíðkast. „Við ætlum að stunda hefðbundna lausfrystingu á þann markað sem borgar best.“ Úrval l.flokks notaöra bíla í okkar eigu. Allir skoöaöir og yfirfarnir. Sýnishorn úr söluskrá: MAZDA 323 t ,S QLX 8TATION Árgerö ’87. Eklnn 47 þ/km. Hvítur. MAZDA 323 1,3 Árgerö *82. Ekinn 92 þ/km. Blér. MAZDA 929 LTD Árgerö ’82. Ekinn 53 þ/km. Greenn. TOYOTA CARINA ÁrgerÖ ’84. Ekinn 60 þ/km. Greenn. CHEVROLET MONZA Árgerö '87. Greenn. VOLVO 340 Árgerö '86. Ekinn 41 þ/km. Fjöldi annarra bíla á staönum. Opiö laugardaga frá kl. 1—5 mazoa BÍLABORG H.F. FOSSHÁLS11 ,SÍMI 68 12 99 MAZDA 629 LTD Árgerö '87. Ekinn 23 þ/km. Hvítur. MAZDA 323 QTI Argerö '86. Ekinn 26 þ/km. Svartur. COLTTURBO Argerö '84. EKinn 47 þ/km. MAZDA 626 1,6 Argerö '87. Ekinn 1 8 þ/km. Dökk- grér. MAZDA 626 QLX Argerö '86. Ekinn 25 þ/km. TOYOTA COROLLA 1,3 LIFTBACK Argerö '88. Óekinn. Hvftur. DAIHATSUCHARADE ArgerÖ '88. Óekinn. Blór. MAZDA 323 1,6 QLX 8TATION Árgerö '87. Ekinn 47 þ/km. Hvftur. MMC TREDIA QL8 ÁrgerÖ '84. Ekinn 35 þ/km. Grœn- sans. OPELCORSA Argerö '84. Brúnn. TOYOTA COROLLA ÁrgerÖ '86. Ekinn 40 þ/km. Munið okkar hagstæðu verð og greiðslukjör! BMW 8201 Sjólfskiptur. Argerö ’84. Ekinn 77 þ/km. Blógrór. MAZDA 323 1,8 Sjólfskiptur. ArgerÖ '84. Ekinn 65 þ/km. Vínrauöur. SAAB 900 QL8 3 dyra. ÁrgerÖ ’84. Ekinn 74 þ/km.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.