Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988
I
Tillögiir nefndar um verðtryggingu
og lánskjaravísitölu:
Heimilt að breyta
viðmiðun vísitölu
í verðtryggingu
NEFND, sem fjallaði um verðtryggingu fjárskuldbindinga, telur að
lagalega mæli ekkert á móti því að stjórnvöld breyti viðmiðun vísi-
tölu í verðtryggingu, eins og vöxtum. Hingað til hefur verið talið
að verðbréf og skuldabréf sem eru verðtryggð á grundvelli lán-
skjaravísitölu verði svo til enda samningsins. Viðskiptaráðherra
kynnti niðurstöður nefndarinnar á ríkisstjórnarfundi í gær en nefnd-
in skilaði skýrslu sinni fyrir helgi.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins mælir nefndin hins veg-
ar ekki með breytingu á samsetn-
ingu eða viðmiðun lánskjaravísitölu
að óbreyttu, þó svo að hún telji það
leyfilegt. Talið er koma til greina
að taka upp gengisviðmiðun í stað
þess að miða við innlend iánskjör,
en það yrði að gera í samhengi við
aðrar aðgerðir. Helstu forsendur
fyrir slíkum breytingum væru af-
nám ríkisábyrgðar, jöfnun á starfs-
Mótor Slysa-
varnafélags-
ins fundinn
MÓTORINN sem stolið var
úr gúmbát Slysavarnafélags-
ins Ingólfs fyrir skömmu
fannst i Keflavík í gærdag.
Að sögn lögreglu fannst hann
fyrir utan íbúðarhús í bænum
en lögreglan hafði unga „góð-
kunningja“ sína grunaða um
verknaðinn. Skrúfan var lítillega
skemmd en það spillti ekki fyrir
ánægju slysavarnamanna sem
sóttu mótorinn í gærkvöldi.
lqörum banka og verðbréfamarkað-
ar, og opnun fjármagnsmarkaðar,
þannig að fyrirtækjum yrði leyft
að taka milliliðalaust lán erlendis.
Nefiidin segir að nú stefni í 10%
hækkun lánskjaravísitölu umfram
Iaunataxta á samningstímabilinu,
að öllu óbreyttu. Greiðslubyrði hús-
næðisstjómarlána muni hins vegar
ekki hækka að sama skapi, eins og
raunin varð á árið 1983. Þá hafi
kaupmáttur fallið um 25% og verð-
fall hafi orðið á fasteignum, en nú
sé kaupmáttarrýmun í mesta lagi
1% ogfasteignaverð fari hækkandi.
í skýrslu nefndarinnar er gerður
samanburður á raunvöxtum hér-
lendis og erlendis. Þar mun koma
fram að raunvextir fyrir þorra fyrir-
tækja erlendis séu 7-8%, en 8,5-
10,75% í íslenska bankakerfinu,
þótt hærri vextir þekkist á verð-
bréfamarkaði.
INNLENT
Vaxtafrádráttur o g
húsnæðisbætur fyrir
tæpan 1,1 milljarð
HÚSNÆÐISBÆTUR verða I fyrsta skipti sendar með álagningarseðl-
um um næstu mánaðamót. Búið er að ganga frá umsóknum 9.505
aðila og nema ákvarðaðar húsnæðisbætur til þeirra tæpum 409,5
milljónum króna, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur
aflað. Vaxtafrádráttur verður jafnframt afgreiddur um mánaðamót-
in og nemur hann um 678,6 milljónum króna i ár sem skiptast á
milli 25.330 aðila. Alls munu því nærri 1,09 milljarðar króna verða
afgreiddir í húsnæðisbætur og vaxtafrádrátt um næstu mánaðamót.
Húsnæðisbætur þijú til fjögur rúmlega 46 þúsundum króna í sex
hundruð umsækjenda til viðbótar
verða ekki með á álagningarseðlum
um mánaðamótin, þar sem ekki
vannst tími til að afgreiða umsókn-
imar á réttum tíma. Þeir munu hins
vegar fá bréf frá skattstjóra um
afstöðu hans til umsókna þeirra um
svipað Ieyti og álagningaseðlamir
verða sendir út. Koma þær bætur
því til útborgunar á sama tíma og
aðrar. Þá verður þeim sem fá höfn-
un sent bréf frá skattstjóra.
Fullar húsnæðisbætur nema
ár, og fylgir sú fjárhæð lánskjara-
vísitölu. Til þess að öðlast rétt til
húsnæðisbóta þurfa aðilar að upp-
fylla tiltekin skilyrði og sækja sér-
staklega um bætur til skattstjóra
með skattframtali. Þeir sem fá
vaxtafrádrátt em hins vegar þeir
sem uppfylla skilyrði til húsnæðis-
bóta en hafa ekki sótt um þær sér-
staklega eða þeir sem eiga ekki
rétt á húsnæðisbótum en hafa
vaxtagjöld umfram sjö prósent af
tekjuskattsstofni.
Loðnuveiðarnar:
Færeyingar hafa ein-
ungis veitt 150 tonn
„FÆREYINGAR hafa einungis veitt 150 tonn af loðnu en Norðmenn
að öllum líkindum ekkert," sagði Þorsteinn Kristjánsson hjá Hrað-
frystihúsi Eskifjarðar hf. í samtali við Morgunblaðið í gær. Fyrstu
færeysku skipin héldu til loðnuveiða fyrir norðan landið fyrir hálf-
um mánuði en fyrstu norsku skipin fyrir viku.
Færeyska loðnuskipið Þrándur í innan við mörkin. Tvö færeysku
Götu náði 150 tonna kasti í fyrri-
nótt við ísjaðarinn skammt fyrir
norðan 200 mílna mörkin og norsku
skipin fóm nýlega yfir lóðningar
skipanna fóra heim í fyrradag til
að ná í olíu og vistir en reiknað var
með að þau fæm aftur út í dag,
að sögn Þorsteins.
Morgunblaðið/Sverrir
Bygging skrifstofuhúsnæðis Sambandsins við Laugamesveg, þar sem frystihúsið Kirkjusandur var til
húsa, gengur eftir áætlun. Það verður væntanlega tekið í notkun nú í vetur.
Valur Arnþórsson um stöðu Sambandsins:
Afram tap en reksturinn
ekki versnað á þessu ári
Nær 500 miUjóna halli vegna gengisfellinga
„REKSTUR Sambandsins hefur ekki farið versnandi frá þvi á síðari
hluta fyrra árs. Það má segja að það hafi tekist að halda í horfinu
með vamarbaráttu," sagði Valur Arnþórsson, formaður stjórnar
Sambandsins, er hann var spurður urn yfirlit yfir rekstur Sambands-
ins fyrstu 6 mánuði ársins, sem lagt var fram á stjóraarfundi á
mánudag. Valur sagði að fjármunamyndun hefði verið neikvæð um
60 milljónir króna, en bókhaldshalli miklu meiri vegna áhrifa gengis-
fellinganna. Gengismunurinn sem kæmi nú til skuldar væri 4-500
milljónir króna, en jákvæð langtímaáhrif gengisfellinganna á rekst-
urinn ættu að koma þar á móti síðar.
„Rekstrarskilyrði em nú verri en félaga hvort þau fæm eftir ábend-
kringum 200 milljónir, vegna auk-
innar verðbólgu.
Valur var spurður hvort uppgjör
við þá Eystein Helgason og Geir
Magnússon vegna uppsagna þeirra
hjá Iceland Seafood, lægi fyrir.
Hann sagði að uppgjöri hefði verið
flýtt í samræmi við samþykkt aðal-
fundar Sambandsins og væri það
nú í burðarliðnum.
þau hafa verið í mörg ár eða ára-
tugi. Fjármagnskostnaður er með
ólíkindum og meiri en hægt er að
búast við að atvinnulífið geti lifað
við. En það er mikill hugur í mönn-
um að móta stefnu til að vinna
okkur út úr erfiðleikunum nú,“
sagði Valur.
Á stjómarfundinum var skipaður
7 manna starfshópur til að skoða
skipulag Sambandsins og hugsan-
lega allrar samvinnuhreyfingarinn-
ar. Það væri þó mál einstakra kaup-
Morgunblaðið/BAR
Öskjuhlíðar-
geymarnir:
Hvolfþak
keypt fyrir
143 milljónir
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að taka um 143 milljóna
króna tilboði frá þýsku fyrir-
tæki í hvolfþak úr gleri, stáli
og áli, yfir fyrirhugaðan veit-
ingastað á geymum hitaveit-
unnar í Öskjuhlið.
Að sögn Jóhannesar Zoega,
sem hefur umsjón með fram-
kvæmdunum, var leitað eftir til-
boðum frá nokkmm erlendum
aðilum en einungis barst eitt
tilboð í tæka tíð frá þýska fyrir-
tækinu og var ákveðið að taka
því. Gert er ráð fyrir að þakið
verði sett upp næsta sumar.
Verið er að undirbúa útboð á
steypuvirki fyrir lyftuhús og
stiga milli geymanna, og gólfi
veitingastaðarins. Standa vonir
til að samið verði við væntanleg-
an verktaka innan mánaðar.
ingum um skipulagsbreytingar, sem
koma kynnu frá nefndinni. Síðast-
liðinn vetur hefði verið ákveðið að
sérgreina reksturinn meira inn-
byrðis og rætt yrði um hvort ganga
ætti lengra í þessa átt. Einnig yrði
rætt um hvort nota ætti meira al-
menningshlutafélaga- eða sameign-
arfélagaform í sumum greinum.
Af öðmm málum á stjómarfund-
inum nefndi Valur að þar hefðu
verið lögð fram drög að samþykkt-
um um hagsmunafélag um sam-
vinnuverslunina. Stofnfundur slíks
félags ætti að geta farið fram áður
en langt um liði, en undirbúnings-
fundur var haldinn á Bifröst í vor.
Aðspurður sagði Valur að bygg-
ingaframkvæmdir við Kirkjusand
gengju eftir áætlun, en fyrirhugað
væri að taka skrifstofiihúsnæði
Sambandsins þar í notkun nú í vet-
ur. Kostnaður myndi fara eitthvað
fram úr áætlun, sem hefði verið í
Hestur á sundí
í Hafnar-
fjarðarhöfn
HESTUR ráðsmannsins á Bessa-
stöðum strauk í gærdag og lagð-
ist til sunds við Bala, sem er í
fjörunni fyrir neðan Hrafnistu í
Hafnarfirði. Talið er að hann
haf i ætlað að synda yf ir að Hval-
eyrarholti.
Börn, sem vom stödd á bryggj-
unni í Hafnaríjarðarhöfn, tilkynntu
lögreglunni að hestur væri á sundi
í höfninni. Var lóðsbátur sendur
fyrir hestinn og honum snúið til
lands. Að sögn lögreglu var hestur-
inn nokkuð þrekaður er hann náði
landi enda hafði hann synt um kíló-
metra leið í köldum sjó. Hann var
síðan teymdur til síns heima.
Erlend lán til uppbyggingar fiskeldis:
Skipting lánsheim-
ilda milii sjóða kynnt
Á ríkisstjóraarfundi í gær var kynnt fyrirhuguð skipting milli
lánasjóða á ráðstöfun erlends lánsfjár til fiskeldis, samtals 300 millj-
ónir króna á þessu ári. Að sögn Jóns Helgasonar landbúnaðarráð-
herra liggur ekki alveg ljóst fyrir hveraig sú skipting verður endan-
lega en það fari eftir vilja sjóðanna hvernig þeir vilji standa að
þessum lánveitingum.
Þeir sjóðir sem um er að ræða
em aðallega Framkvæmdasjóður og
Byggðasjóður en einnig em inni í
myndinni Iðnþróunarsjóður og Fisk-
veiðasjóður. Ríkisstjómin hefur
samþykkt að veita heimildir til að
taka alls 800 milljónir króna að láni
erlendis á þessu og næsta ári, sem
renni til uppbyggingar fiskeldis.
Lánveitingar nú verða miðaðar við
að þau fyrirtæki sem hafa áform
um stækkun geti haldið þeim áfram.
Landbúnaðarráðherra vakti einn-
ig máls á því, á ríkisstjórnarfundi í
gær, að ekki væri enn búið að ganga
frá lánsheimild til framieiðsluráðs
landbúnaðarins vegna gjaldfallinna
útflutningsbóta á landbúnaðaraf-
urðjr, að upphæð 420 milljónir, en
efnislegt samkomulag er um það i
ríkisstjóm að þessi heimild verið
veitt. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er hugsanlegt að
þessi lánveiting komi inn í viðræður
^ármálaráðherra við banka um inn-
lenda lánsQáröflun, en fyrsti fundur
þessara aðila verður í dag.