Morgunblaðið - 20.07.1988, Side 2

Morgunblaðið - 20.07.1988, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 I Tillögiir nefndar um verðtryggingu og lánskjaravísitölu: Heimilt að breyta viðmiðun vísitölu í verðtryggingu NEFND, sem fjallaði um verðtryggingu fjárskuldbindinga, telur að lagalega mæli ekkert á móti því að stjórnvöld breyti viðmiðun vísi- tölu í verðtryggingu, eins og vöxtum. Hingað til hefur verið talið að verðbréf og skuldabréf sem eru verðtryggð á grundvelli lán- skjaravísitölu verði svo til enda samningsins. Viðskiptaráðherra kynnti niðurstöður nefndarinnar á ríkisstjórnarfundi í gær en nefnd- in skilaði skýrslu sinni fyrir helgi. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mælir nefndin hins veg- ar ekki með breytingu á samsetn- ingu eða viðmiðun lánskjaravísitölu að óbreyttu, þó svo að hún telji það leyfilegt. Talið er koma til greina að taka upp gengisviðmiðun í stað þess að miða við innlend iánskjör, en það yrði að gera í samhengi við aðrar aðgerðir. Helstu forsendur fyrir slíkum breytingum væru af- nám ríkisábyrgðar, jöfnun á starfs- Mótor Slysa- varnafélags- ins fundinn MÓTORINN sem stolið var úr gúmbát Slysavarnafélags- ins Ingólfs fyrir skömmu fannst i Keflavík í gærdag. Að sögn lögreglu fannst hann fyrir utan íbúðarhús í bænum en lögreglan hafði unga „góð- kunningja“ sína grunaða um verknaðinn. Skrúfan var lítillega skemmd en það spillti ekki fyrir ánægju slysavarnamanna sem sóttu mótorinn í gærkvöldi. lqörum banka og verðbréfamarkað- ar, og opnun fjármagnsmarkaðar, þannig að fyrirtækjum yrði leyft að taka milliliðalaust lán erlendis. Nefiidin segir að nú stefni í 10% hækkun lánskjaravísitölu umfram Iaunataxta á samningstímabilinu, að öllu óbreyttu. Greiðslubyrði hús- næðisstjómarlána muni hins vegar ekki hækka að sama skapi, eins og raunin varð á árið 1983. Þá hafi kaupmáttur fallið um 25% og verð- fall hafi orðið á fasteignum, en nú sé kaupmáttarrýmun í mesta lagi 1% ogfasteignaverð fari hækkandi. í skýrslu nefndarinnar er gerður samanburður á raunvöxtum hér- lendis og erlendis. Þar mun koma fram að raunvextir fyrir þorra fyrir- tækja erlendis séu 7-8%, en 8,5- 10,75% í íslenska bankakerfinu, þótt hærri vextir þekkist á verð- bréfamarkaði. INNLENT Vaxtafrádráttur o g húsnæðisbætur fyrir tæpan 1,1 milljarð HÚSNÆÐISBÆTUR verða I fyrsta skipti sendar með álagningarseðl- um um næstu mánaðamót. Búið er að ganga frá umsóknum 9.505 aðila og nema ákvarðaðar húsnæðisbætur til þeirra tæpum 409,5 milljónum króna, samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið hefur aflað. Vaxtafrádráttur verður jafnframt afgreiddur um mánaðamót- in og nemur hann um 678,6 milljónum króna i ár sem skiptast á milli 25.330 aðila. Alls munu því nærri 1,09 milljarðar króna verða afgreiddir í húsnæðisbætur og vaxtafrádrátt um næstu mánaðamót. Húsnæðisbætur þijú til fjögur rúmlega 46 þúsundum króna í sex hundruð umsækjenda til viðbótar verða ekki með á álagningarseðlum um mánaðamótin, þar sem ekki vannst tími til að afgreiða umsókn- imar á réttum tíma. Þeir munu hins vegar fá bréf frá skattstjóra um afstöðu hans til umsókna þeirra um svipað Ieyti og álagningaseðlamir verða sendir út. Koma þær bætur því til útborgunar á sama tíma og aðrar. Þá verður þeim sem fá höfn- un sent bréf frá skattstjóra. Fullar húsnæðisbætur nema ár, og fylgir sú fjárhæð lánskjara- vísitölu. Til þess að öðlast rétt til húsnæðisbóta þurfa aðilar að upp- fylla tiltekin skilyrði og sækja sér- staklega um bætur til skattstjóra með skattframtali. Þeir sem fá vaxtafrádrátt em hins vegar þeir sem uppfylla skilyrði til húsnæðis- bóta en hafa ekki sótt um þær sér- staklega eða þeir sem eiga ekki rétt á húsnæðisbótum en hafa vaxtagjöld umfram sjö prósent af tekjuskattsstofni. Loðnuveiðarnar: Færeyingar hafa ein- ungis veitt 150 tonn „FÆREYINGAR hafa einungis veitt 150 tonn af loðnu en Norðmenn að öllum líkindum ekkert," sagði Þorsteinn Kristjánsson hjá Hrað- frystihúsi Eskifjarðar hf. í samtali við Morgunblaðið í gær. Fyrstu færeysku skipin héldu til loðnuveiða fyrir norðan landið fyrir hálf- um mánuði en fyrstu norsku skipin fyrir viku. Færeyska loðnuskipið Þrándur í innan við mörkin. Tvö færeysku Götu náði 150 tonna kasti í fyrri- nótt við ísjaðarinn skammt fyrir norðan 200 mílna mörkin og norsku skipin fóm nýlega yfir lóðningar skipanna fóra heim í fyrradag til að ná í olíu og vistir en reiknað var með að þau fæm aftur út í dag, að sögn Þorsteins. Morgunblaðið/Sverrir Bygging skrifstofuhúsnæðis Sambandsins við Laugamesveg, þar sem frystihúsið Kirkjusandur var til húsa, gengur eftir áætlun. Það verður væntanlega tekið í notkun nú í vetur. Valur Arnþórsson um stöðu Sambandsins: Afram tap en reksturinn ekki versnað á þessu ári Nær 500 miUjóna halli vegna gengisfellinga „REKSTUR Sambandsins hefur ekki farið versnandi frá þvi á síðari hluta fyrra árs. Það má segja að það hafi tekist að halda í horfinu með vamarbaráttu," sagði Valur Arnþórsson, formaður stjórnar Sambandsins, er hann var spurður urn yfirlit yfir rekstur Sambands- ins fyrstu 6 mánuði ársins, sem lagt var fram á stjóraarfundi á mánudag. Valur sagði að fjármunamyndun hefði verið neikvæð um 60 milljónir króna, en bókhaldshalli miklu meiri vegna áhrifa gengis- fellinganna. Gengismunurinn sem kæmi nú til skuldar væri 4-500 milljónir króna, en jákvæð langtímaáhrif gengisfellinganna á rekst- urinn ættu að koma þar á móti síðar. „Rekstrarskilyrði em nú verri en félaga hvort þau fæm eftir ábend- kringum 200 milljónir, vegna auk- innar verðbólgu. Valur var spurður hvort uppgjör við þá Eystein Helgason og Geir Magnússon vegna uppsagna þeirra hjá Iceland Seafood, lægi fyrir. Hann sagði að uppgjöri hefði verið flýtt í samræmi við samþykkt aðal- fundar Sambandsins og væri það nú í burðarliðnum. þau hafa verið í mörg ár eða ára- tugi. Fjármagnskostnaður er með ólíkindum og meiri en hægt er að búast við að atvinnulífið geti lifað við. En það er mikill hugur í mönn- um að móta stefnu til að vinna okkur út úr erfiðleikunum nú,“ sagði Valur. Á stjómarfundinum var skipaður 7 manna starfshópur til að skoða skipulag Sambandsins og hugsan- lega allrar samvinnuhreyfingarinn- ar. Það væri þó mál einstakra kaup- Morgunblaðið/BAR Öskjuhlíðar- geymarnir: Hvolfþak keypt fyrir 143 milljónir BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt að taka um 143 milljóna króna tilboði frá þýsku fyrir- tæki í hvolfþak úr gleri, stáli og áli, yfir fyrirhugaðan veit- ingastað á geymum hitaveit- unnar í Öskjuhlið. Að sögn Jóhannesar Zoega, sem hefur umsjón með fram- kvæmdunum, var leitað eftir til- boðum frá nokkmm erlendum aðilum en einungis barst eitt tilboð í tæka tíð frá þýska fyrir- tækinu og var ákveðið að taka því. Gert er ráð fyrir að þakið verði sett upp næsta sumar. Verið er að undirbúa útboð á steypuvirki fyrir lyftuhús og stiga milli geymanna, og gólfi veitingastaðarins. Standa vonir til að samið verði við væntanleg- an verktaka innan mánaðar. ingum um skipulagsbreytingar, sem koma kynnu frá nefndinni. Síðast- liðinn vetur hefði verið ákveðið að sérgreina reksturinn meira inn- byrðis og rætt yrði um hvort ganga ætti lengra í þessa átt. Einnig yrði rætt um hvort nota ætti meira al- menningshlutafélaga- eða sameign- arfélagaform í sumum greinum. Af öðmm málum á stjómarfund- inum nefndi Valur að þar hefðu verið lögð fram drög að samþykkt- um um hagsmunafélag um sam- vinnuverslunina. Stofnfundur slíks félags ætti að geta farið fram áður en langt um liði, en undirbúnings- fundur var haldinn á Bifröst í vor. Aðspurður sagði Valur að bygg- ingaframkvæmdir við Kirkjusand gengju eftir áætlun, en fyrirhugað væri að taka skrifstofiihúsnæði Sambandsins þar í notkun nú í vet- ur. Kostnaður myndi fara eitthvað fram úr áætlun, sem hefði verið í Hestur á sundí í Hafnar- fjarðarhöfn HESTUR ráðsmannsins á Bessa- stöðum strauk í gærdag og lagð- ist til sunds við Bala, sem er í fjörunni fyrir neðan Hrafnistu í Hafnarfirði. Talið er að hann haf i ætlað að synda yf ir að Hval- eyrarholti. Börn, sem vom stödd á bryggj- unni í Hafnaríjarðarhöfn, tilkynntu lögreglunni að hestur væri á sundi í höfninni. Var lóðsbátur sendur fyrir hestinn og honum snúið til lands. Að sögn lögreglu var hestur- inn nokkuð þrekaður er hann náði landi enda hafði hann synt um kíló- metra leið í köldum sjó. Hann var síðan teymdur til síns heima. Erlend lán til uppbyggingar fiskeldis: Skipting lánsheim- ilda milii sjóða kynnt Á ríkisstjóraarfundi í gær var kynnt fyrirhuguð skipting milli lánasjóða á ráðstöfun erlends lánsfjár til fiskeldis, samtals 300 millj- ónir króna á þessu ári. Að sögn Jóns Helgasonar landbúnaðarráð- herra liggur ekki alveg ljóst fyrir hveraig sú skipting verður endan- lega en það fari eftir vilja sjóðanna hvernig þeir vilji standa að þessum lánveitingum. Þeir sjóðir sem um er að ræða em aðallega Framkvæmdasjóður og Byggðasjóður en einnig em inni í myndinni Iðnþróunarsjóður og Fisk- veiðasjóður. Ríkisstjómin hefur samþykkt að veita heimildir til að taka alls 800 milljónir króna að láni erlendis á þessu og næsta ári, sem renni til uppbyggingar fiskeldis. Lánveitingar nú verða miðaðar við að þau fyrirtæki sem hafa áform um stækkun geti haldið þeim áfram. Landbúnaðarráðherra vakti einn- ig máls á því, á ríkisstjórnarfundi í gær, að ekki væri enn búið að ganga frá lánsheimild til framieiðsluráðs landbúnaðarins vegna gjaldfallinna útflutningsbóta á landbúnaðaraf- urðjr, að upphæð 420 milljónir, en efnislegt samkomulag er um það i ríkisstjóm að þessi heimild verið veitt. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er hugsanlegt að þessi lánveiting komi inn í viðræður ^ármálaráðherra við banka um inn- lenda lánsQáröflun, en fyrsti fundur þessara aðila verður í dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.