Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JUU 1988
23
Morgunblaðið/Emilía
íslenska hárgreiðslulandsliðið ásamt þjálfara sínum. Frá vinstri: Guðfinna Jóhannsdóttir, Dóróthea
Magnúsdóttir, Ann Brady, þjálfari, og Sólveig Leifsdóttir.
Bandarísk kona þjálfar ís-
lenska hárgreiðslulandsKðið
Spáir liðinu sigri í heimsmeistarakeppninni í Diisseldorf í haust
LANDSLIÐIÐ í hárgreiðslu
œfir nú af fullum krafti fyrir
heimsmeistarakeppnina í hár-
greiðslu sem haldin verður í
DUusseldorf í Þýskalandi í
haust. Liðið er skipað þeim
Dórótheu Magnúsdóttur, Guð-
finnu Johannnsdóttur og Sól-
veigu Leifsdóttur, en þetta er i
annað sinn sem íslendingar
keppa um heimsmeistaratitil-
inn. Þær hafa fengið til liðs við
sig bandaríska hárgreiðslu-
þjálfara, hjónin Gary og Ann
Brady, en þau þykja í fremstu
röð þjálfara og áttu m.a. þátt í
að koma bandaríska liðinu í sig-
ursætið í keppninni 1984. Morg-
unblaðið hitti Ann Brady að
máli þar sem hún var við æfing-
ar ásamt liðinu, á hárgreiðslu-
stofunni Papillu við Laugaveg.
„Keppni í hárgreiðslu fer fram
með mjög svipuðum hætti og önn-
ur íþróttakeppni. Þáttakendur í
heimsmeistarakeppninni koma frá
35— 40 löndum og eru þrír í hveiju
liði. Keppt er í þremur greinum. í
fyrsta lagi „gala“ greiðslu, eða
viðhafnargreiðslu, sem er frjáls-
asta formið, og fá keppendur þá
25 mínútur til að greiða. Þar reyn-
ir fyrst og fremst á sköpunargáfu
og fimi. Síðan er það daggreiðsla,
en þar eru ekki notaðir neinir topp-
ar eða skraut og fá keppendur
aðeins sjö mínútur til umráða svo
þar reynir á snör handtök. í þriðja
lagi er svo klipping og blástur, en
þar er mikið atriði að vita eftir
hveiju dómaramir eru að leita
hveiju sinni og þarf klippingin að
vera seljanleg.
Helsti munurinn á hárgreiðslu
í svona keppni og hárgreiðslu á
stofu er að keppnisgreipslur eiga
meira skylt við list. Harið er þá
efnið sem listamaðurinn vinnur í
sína höggmynd.
Þjálfunin felst fyrst og fremst
í því að kenna tækni en einnig að
fylgjast með því sem er að gerast
nýtt og koma þeim hugmyndum á
framfæri. Reynsla er afskaplega
mikilvæg í svona keppni. Elsa
Haraldsdóttir, sem verður dómari
fyrir íslands hönd í keppninni, er
vel þekkt á alþjóðavettvangi og
það á áreiðanlega eftir að koma
sér vel þar sem miklu máli skiptir
að ná góðu sambandi við dómara
hinna þáttökuþjóðanna.
Við hjónin leggjum höfuðáherslu
á aga og jákvæða hugsun í okkar
þjálfun. Hæfíleikar nýtast ekki til
fulls nema unnið sé undir ströng-
um aga. Góður keppnismaður þarf
að vera reglusamur, jákvæður og
öruggur með sjálfan sig. Við höf-
um þjálfað bandariska liðið í fjögur
ár og margir hafa sóst eftir að fá
okkur til sín, en okkur líkar vel
við fólkið hér og höfum trú á vinn-
ingsmöguleikum þeirra. “
Þær Dóróthea, Guðfinna og
Sólveig voru önnum kafnar við
æfíngar þegar blaðamann bar að
garði. Þær kváðust ótrauðar stefna
að gullinu, en í síðustu keppni
varð liðið einhversstaðar í kring
um miðju. Þær hafa allar keppt
áður sem einstaklingar og unnið
til verðlauna, en Guðfinna og Dó-
róthea tóku þátt í síðustu heims-
meistarakeppni.
„Við höfum lært mjög mikið á
þessari þjálfun. Ann er mikil lista-
kona og hefur miðlað okkur óspart
af reynslu sinni. Þýska liðið verður
trúlega sterkasti keppinautur okk-
Guðfinna Jóhannsdóttir greiðir
Báru Dagný Guðmundsdóttur,
en sömu stúlkurnar sitja fyrir
hjá keppendum allan æfingat-
ímann og í keppninni sjálfri.
ar, en Hollendingar og Belgar eru
líka líklegir til að verða framar-
lega.
Við höfum æft allan daginn og
fram á kvöld, þessa daga sem Ann
hefur verið hér, en æfingar fyrir
keppnina hófust í febrúar. fslenska
landsliðið hefur notið fjárhagslegs
stuðnings Halldórs Jónssonar hf,
sem flytur inn Wella hársnyrtivör-
ur. Aðrir heildsalar og Hár-
greiðslumeistarafélag íslands
munu einnig styrkja það til þáttöku
í keppninni, en þáttakan og undir-
búningurinn eru mjög kostnaðar-
söm.“
Umferðin:
Slysum fækkar
SLYSUM í umferðinni hefur
fækkað nokkuð það sem af er
árinu miðað við sama tímabil í
fyrra í Reykjavík. Um síðustu
mánaðarmót voru umferðar-
slysin orðin 102 talsins á móti
114 á sama tíma i fyrra. Hins
vegar hefur banaslysum fjölgað
verulega í ár, voru orðin 7 um
síðustu mánaðarmót en aðeins
eitt i fyrra.
„Þetta sýnir að við erum á réttri
leið en betur má ef duga skal.“
segir Ómar Smári Ármannsson
aðalvarðstjóri í umferðardeild
Reykjavíkurlögreglunnar. „Við er-
um ekkert sáttir við ástandið eins
og það er og þá einkum hina miklu
Qölgun dauðaslysa."
Ef litið er á tíðni slysa einstaka
mánuði framangreindra tímabila
kemur í ljós að hún var mest í
janúar í fyrra. Þá slösuðust 32 í
borgarumferðinni, þar af 14 mikið.
Minnst er tíðnin í apríl í ár, 13
slasaðir þar af 5 mikið.
í máli Ómars kemur fram að
mesta fækkunin milli áranna er í
tíðni mikið slasaðra. Fyrrihluta
þessa árs voru mikið slasaðir 39
talsins á móti 49 á sama tímabili
í fyrra. Áberandi er að mest hefur
fækkað í hópi farþega í framsæt-
um sem er örugglega bílbeltanotk-
un að þakka. A móti hefur orðið
fjölgun á slysum í hópi fótgang-
andi vegfarenda.
PÖNTUNARLISTINN
Yfir 1000 síður kr. 190,- (án bgj).
Vetrartískan frá Roland Klein - Kit -
Burberrys - Mary Quant - YSL o.fl.
Búsáhöld - leikföng - sælgæti
-jólavöruro.fl.
BM B. M AGNUSSON
nvl VI HÖLSHRAUNI 2 - SÍMI 52866 - P.H. 410 - HAFNARFIRÐI
Veistu hvað gerir okkur arfavitlaus?
Ef vélin fer ekki ó réffum tíma.