Morgunblaðið - 20.07.1988, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 20.07.1988, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JUU 1988 23 Morgunblaðið/Emilía íslenska hárgreiðslulandsliðið ásamt þjálfara sínum. Frá vinstri: Guðfinna Jóhannsdóttir, Dóróthea Magnúsdóttir, Ann Brady, þjálfari, og Sólveig Leifsdóttir. Bandarísk kona þjálfar ís- lenska hárgreiðslulandsKðið Spáir liðinu sigri í heimsmeistarakeppninni í Diisseldorf í haust LANDSLIÐIÐ í hárgreiðslu œfir nú af fullum krafti fyrir heimsmeistarakeppnina í hár- greiðslu sem haldin verður í DUusseldorf í Þýskalandi í haust. Liðið er skipað þeim Dórótheu Magnúsdóttur, Guð- finnu Johannnsdóttur og Sól- veigu Leifsdóttur, en þetta er i annað sinn sem íslendingar keppa um heimsmeistaratitil- inn. Þær hafa fengið til liðs við sig bandaríska hárgreiðslu- þjálfara, hjónin Gary og Ann Brady, en þau þykja í fremstu röð þjálfara og áttu m.a. þátt í að koma bandaríska liðinu í sig- ursætið í keppninni 1984. Morg- unblaðið hitti Ann Brady að máli þar sem hún var við æfing- ar ásamt liðinu, á hárgreiðslu- stofunni Papillu við Laugaveg. „Keppni í hárgreiðslu fer fram með mjög svipuðum hætti og önn- ur íþróttakeppni. Þáttakendur í heimsmeistarakeppninni koma frá 35— 40 löndum og eru þrír í hveiju liði. Keppt er í þremur greinum. í fyrsta lagi „gala“ greiðslu, eða viðhafnargreiðslu, sem er frjáls- asta formið, og fá keppendur þá 25 mínútur til að greiða. Þar reyn- ir fyrst og fremst á sköpunargáfu og fimi. Síðan er það daggreiðsla, en þar eru ekki notaðir neinir topp- ar eða skraut og fá keppendur aðeins sjö mínútur til umráða svo þar reynir á snör handtök. í þriðja lagi er svo klipping og blástur, en þar er mikið atriði að vita eftir hveiju dómaramir eru að leita hveiju sinni og þarf klippingin að vera seljanleg. Helsti munurinn á hárgreiðslu í svona keppni og hárgreiðslu á stofu er að keppnisgreipslur eiga meira skylt við list. Harið er þá efnið sem listamaðurinn vinnur í sína höggmynd. Þjálfunin felst fyrst og fremst í því að kenna tækni en einnig að fylgjast með því sem er að gerast nýtt og koma þeim hugmyndum á framfæri. Reynsla er afskaplega mikilvæg í svona keppni. Elsa Haraldsdóttir, sem verður dómari fyrir íslands hönd í keppninni, er vel þekkt á alþjóðavettvangi og það á áreiðanlega eftir að koma sér vel þar sem miklu máli skiptir að ná góðu sambandi við dómara hinna þáttökuþjóðanna. Við hjónin leggjum höfuðáherslu á aga og jákvæða hugsun í okkar þjálfun. Hæfíleikar nýtast ekki til fulls nema unnið sé undir ströng- um aga. Góður keppnismaður þarf að vera reglusamur, jákvæður og öruggur með sjálfan sig. Við höf- um þjálfað bandariska liðið í fjögur ár og margir hafa sóst eftir að fá okkur til sín, en okkur líkar vel við fólkið hér og höfum trú á vinn- ingsmöguleikum þeirra. “ Þær Dóróthea, Guðfinna og Sólveig voru önnum kafnar við æfíngar þegar blaðamann bar að garði. Þær kváðust ótrauðar stefna að gullinu, en í síðustu keppni varð liðið einhversstaðar í kring um miðju. Þær hafa allar keppt áður sem einstaklingar og unnið til verðlauna, en Guðfinna og Dó- róthea tóku þátt í síðustu heims- meistarakeppni. „Við höfum lært mjög mikið á þessari þjálfun. Ann er mikil lista- kona og hefur miðlað okkur óspart af reynslu sinni. Þýska liðið verður trúlega sterkasti keppinautur okk- Guðfinna Jóhannsdóttir greiðir Báru Dagný Guðmundsdóttur, en sömu stúlkurnar sitja fyrir hjá keppendum allan æfingat- ímann og í keppninni sjálfri. ar, en Hollendingar og Belgar eru líka líklegir til að verða framar- lega. Við höfum æft allan daginn og fram á kvöld, þessa daga sem Ann hefur verið hér, en æfingar fyrir keppnina hófust í febrúar. fslenska landsliðið hefur notið fjárhagslegs stuðnings Halldórs Jónssonar hf, sem flytur inn Wella hársnyrtivör- ur. Aðrir heildsalar og Hár- greiðslumeistarafélag íslands munu einnig styrkja það til þáttöku í keppninni, en þáttakan og undir- búningurinn eru mjög kostnaðar- söm.“ Umferðin: Slysum fækkar SLYSUM í umferðinni hefur fækkað nokkuð það sem af er árinu miðað við sama tímabil í fyrra í Reykjavík. Um síðustu mánaðarmót voru umferðar- slysin orðin 102 talsins á móti 114 á sama tíma i fyrra. Hins vegar hefur banaslysum fjölgað verulega í ár, voru orðin 7 um síðustu mánaðarmót en aðeins eitt i fyrra. „Þetta sýnir að við erum á réttri leið en betur má ef duga skal.“ segir Ómar Smári Ármannsson aðalvarðstjóri í umferðardeild Reykjavíkurlögreglunnar. „Við er- um ekkert sáttir við ástandið eins og það er og þá einkum hina miklu Qölgun dauðaslysa." Ef litið er á tíðni slysa einstaka mánuði framangreindra tímabila kemur í ljós að hún var mest í janúar í fyrra. Þá slösuðust 32 í borgarumferðinni, þar af 14 mikið. Minnst er tíðnin í apríl í ár, 13 slasaðir þar af 5 mikið. í máli Ómars kemur fram að mesta fækkunin milli áranna er í tíðni mikið slasaðra. Fyrrihluta þessa árs voru mikið slasaðir 39 talsins á móti 49 á sama tímabili í fyrra. Áberandi er að mest hefur fækkað í hópi farþega í framsæt- um sem er örugglega bílbeltanotk- un að þakka. A móti hefur orðið fjölgun á slysum í hópi fótgang- andi vegfarenda. PÖNTUNARLISTINN Yfir 1000 síður kr. 190,- (án bgj). Vetrartískan frá Roland Klein - Kit - Burberrys - Mary Quant - YSL o.fl. Búsáhöld - leikföng - sælgæti -jólavöruro.fl. BM B. M AGNUSSON nvl VI HÖLSHRAUNI 2 - SÍMI 52866 - P.H. 410 - HAFNARFIRÐI Veistu hvað gerir okkur arfavitlaus? Ef vélin fer ekki ó réffum tíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.