Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 31 Ástralía: Tónleikar kórs Oldutúns- skóla vöktu mikla hrifningii Canberra, Ástralíu. Frá Jóni Birgfi Péturssyni. SJALDAN eða aldrei hefur sá er þetta ritar upplifað jafn mikla hrifn- ingu og þá sem 4-500 tónleikagestir sýndu á fyrstu tónleikum kórs Öldutúnsskóla í Ástralíu. Kórinn söng í hinni nýju og glæsilegu Borgar- kirkju Canberra, höfuðborgar landsins. Það er jafnan nokkur spenna hjá listafólkinu fyrir tónleika í ókunnu landi og spurning hvort nokk- ur mætir. En kirkjan rúmaði ekki fleiri áheyrendur, og urðu fjölmarg- ir að standa frammi í anddyri kirkjunnar. Gestir voru fjölmargir borg- arbúar, sem mættu enda þótt tónleikarnir færu fram á slæmum tíma, kl. 12.30-13.30, en auk þess kom fjölmargt tónlistarfólk víða að úr heiminum, sem situr alþjóðaþing ISME, alþjóðasamtaka tónlistarkenn- ara. Stefán Sandholt sölustjóri og Finnbogi Eyjólfsson blaðafulltrúi hjá Heklu, við 1989-árgerðina af Mitsubishi Colt. Breyttar útgáfur af Lancer og Colt Á söngskránni voru íslensk verk og erlend. Greinilegt var að flutning- ur nútímaverkanna vakti langmesta hrifningu, en kórnum var fagnað með sterku lófataki eftir hvert lag og fór fögnuður vaxandi eftir því sem á tónleikana leið. Varð kórinn að syngja tvö aukalög. Að tónleikum loknum þustu heimamenn hver til sinnar vinnu, en margir kórstjóranna urðu eftir og spurðu íslensku farar- stjórana spjörunum úr. Greinilegt var að þeir undruðust mjög að svo góður kór skyldi koma frá litlum skóla í litlum bæ norður í höfum. Margir báðu um að fá keyptar hljómplötur með kórnum, en þær voru ekki til. Útvarpið hér í Canberra hljóðritaði tónleikana með allri bestu tækni, og var þeim útvarpað á næstu dögum. Stúlkumar tuttugu sem eru í kóm- um hafa staðið sig einstaklega vel þrátt fyrir erfið ferðalög, tímamun milli staða og sveiflur í veðráttu. Hér í Canberra er hávetur, 12-14 gráðu hiti yfír daginn, en hrollkaldir suð- lægir vindar blása._ Á nóttunni er eilítið næturfrost. Ástralíubúar eru kappklæddir og það eru hinir fjöl- mörgu erlendu gestir ISME-þingsins einnig. Engu að síður eru Ástralir enn í hátíðarskapi, 200 ára afmæli landsins er daglega minnst, og er ISME-þingið einmitt liður í afmælis- haldinu. Þrátt fyrir napran næðing í Can- berra er fólkið sem við hittum fyrir Hveragerði helgina 9-10. júlí. Mættu gestir frá öllum vinabæj- unum fjórum. Frá Sigdal í Nor- egi komu 20, frá Örnskjöldvík í Svíþjóð 53, frá Brandi í Dan- mörku 46 og frá Aanekoski í Finnlandi 17 manns. Flestir gest- anna dvöldu á einkaheimilum. Mótið þótti takast með ágætum. Undanfarnar vikur hefur verið unnið mikið starf við undirbúning mótsins. Starfsmenn Hveragerðis- bæjar og fleiri hafa gengið vel fram í að hreinsa og prýða bæinn og var t.d. gert mikið átak í skrúðgarðin- um okkar sem bytjað var að gróður- setja í fyrir fáum árum og nú er að verða augnayndi. Fréttaritari hitti framkvæmda- stjóra mótsins Halldór Sigurðsson kennara að máli er hann var að kveðja síðustu gestina og bað hann að segja frá dagskrá mótsins. Hann sagði svo frá: „Gestirnir komu að kvöldi þ. 8. júlí og voru þá boðnir til kvöldverðar í Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum, í boði skólans, en að lokum var formleg mótssetn- ing í Hveragerðiskirkju. Þar sungu Ömskjöldvíks-kammarkór undir stjóm Dahlen Hokans og kirkjukór Hveragerðis og Kotstrandarsókna undir stjórn Ara Agnarssonar. Á laugardag þ. 9. júlí var farið í ferð til Þingvalla. Með í ferðinni vom harmónikuleikarar sem spil- uðu í rútunum á leiðinni við góðar undirtektir. Gestum var boðið upp á drykki sem verslunin Olís í Hvera- gerði og Söluskáli Shell gáfu til ferðarinnar. Kvöldverður var síðan snæddur í boði Heilsuhælis NLFÍ. Kl. 21. var svo haldin kvöldvaka í íþróttahúsi bæjarins, sem var yfir- einstaklega hlýtt í viðmóti. Þá sem ég hef hitt hér svo fjarri landinu okkar, hafa flestir vitað talsvert um Island. Dæmi um þetta: Aðstoðar- kona okkar þekkti mest til í Grímsey, — hún og maður hennar em af skosk- um ættum og höfðu lesið bók séra Róberts Jack um eyna þar sem hann eitt sinn þjónaði. Vélvirki einn á sjö- tugsaldri sem ég spjallaði við á bið- stöð strætisvagna sagði að ísland hefði átt að heita Grænland, og Selfosskaupstaður og Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi hafa keypt hús Kaupfélags Árnesinga á Selfossi, gamla kaupfélagið. Kaupverðið er 57 milljónir og greiðist */2 við undirritun samn- ings en 4/s eru til 15 ára. Samn- ingar þessa efnis voru undirrit- fullt af gestum. Þar var margt til skemmtunar. Gestirnir vom með skemmtiatriði, einnig var þjóð- dansasýning, kórsöngur, kveðnar rímur og margt fleira. Dagskrá sunnudagsins 10. júlí hófst með norrænni guðsþjónustu í Hveragerðiskirkju. Eftir hádegi var farin skoðunarferð um Hveragerð- isbæ t.d. var dvalarheimilið Ás skoðað og komið við á sölusýningu sem haldin var í Hótel Ljósbrá og stóð alla mótsdagana. Uppsetningu hennar annaðist Helgi Grétar Krist- insson, en þar sýndu verk sín Sig- urður Sólmundarson, Ingvar Sig- urðsson og Ásgarður. í Kjörís var öllum gestunum boð- ið í kaffi og ís, eftir að verksmiðjan hafði verið skoðuð. Gönguferðinni lauk síðan í Eden en þar gaf eigand- inn öllum erlendu gestunum rósir. Um kvöldið var svo lokahóf í Hótel Örk í boði Hveragerðisbæjar, sátu það um 300 manns. Gestimir fóm ýmsar skoðunar- ferðir um landið, bæði fyrir og eft- ir mótið. Síðustu gestirnir yfirgáfu Hveragerði í dag þ. 12.7. Flestir öfugt, það væri nefnilega ekkert kalt á íslandi. Kirkjuvörðurinn í Borgarkirkjunni hafði komið til Is- lands sem sjóliði í herskipalest 1943 og verið um kyrrt í Hvalfirði í nokkra daga og heimsótt Reykjavík. Þannig mætti áfram telja. Andfætlingar okkar virðast vita meira um ísland en margar nágrannaþjóðir okkar. Óskir hafa borist frá fulltrúa Kennedy Center í Washington að Egill Friðleifsson gæfí kost á sér sem fulltrúi Evrópu í stjórn alþjóðasam- bands barna- og unglingakóra, en það samband starfar utan ISME, en í nánu samstarfi. Egill hefur ekki ákveðið hvort hann gefur kost á sér, enda um tímafrekt starf að ræða. Þessi tilnefning er hinsvegar mikil viðurkenning fyrir Egil og kór Öldu- túnsskóla. Þess má geta að kórinn hefur fengið mörg tilboð um tónleika- hald víða um lönd á komandi ámm. aðir í gær, þriðjudag. Einnig var skrifað undir samning um kaup bæjarins á svonefndri Sigtúnslóð af kaupfélaginu. Kaupin á húsinu ná yfir 93,34% af húsinu, alls 1.830 fermetra, en hluti kjallara þess hafði verið seldur áður. Hlutur Selfoss er 62,6% eða erlendu gestanna dvöldu á einka- heimilum meðan á mótinu stóð, við frábærar móttökur. Nokkrir bjuggu á Garðyrkjuskólanum í boði skólans og á Hótel örk í boði bæjarins. Hluti erlendu gestanna borðaði morgunverð í Hótel Ljósbrá í boði eigenda hótelsins. Blómaskreytingu alla mótsdag- ana annaðist Kara Jóhannesdóttir, en allt efni til skreytinganna gáfu garðyrkjubændur í Hveragerði. Motsnefndina skipuðu þessir menn: Séra Tómas Guðmundsson, Ester Hjartardóttir, Jóna Einarsdóttir, Guðrún Þórðardóttir, Snorri Bald- ursson og Hafsteinn Kristinsson. Að lokum sagðist Halldór Sig- urðsson framkvæmdastjóri mótsins vilja þakka öllu samstarfsfólkinu fyrir góð störf og öllum sem styrktu mótið með gjöfum og góðum ráðum. Það er mál manna að Halldór eigi skilið mikið hrós fyrir frábæra stjórn á undirbúningi og framgangi mótsins. - Sigrún HEKLA hf kynnti um helgina 1989-árgerðirnar af japönsku Mitsubishi-bifreiðunum. Töluverðar breytingar hafa orðið á tveimur gerðum Mitsubishi-bif- reiða, Lancer og Colt. Yfirbygg- ingu, innréttingum, sætum og mælaborði hefur verið gjörbreytt, 1.146 fermetrar og SASS 37,4%, 684 fermetrar. Selfosskaupstaður fær kjallara hússijis, fyrstu hæðina og hluta af risi. Á fyrstu hæðinni er fyrirhugað að hýsa Héraðsbókasafn Árnes- sýslu að meðtöldu bókasafni séra Eiríks J. Eiríkssonar heitins og Kristínar Jónsdóttur sem þau gáfu. Héraðsskjalasafn Árnessýslu verð- ur hýst í kjallara hússins. Sá hluti hússins sem kemur í hlut Selfoss verður afhentur 20. júlí 1989. Samtök sveitarfélaga munu flytja aðalskrifstofur sínar á aðra hæð hússins, auk Fasteignamats ríkisins og Fræðsluskrifstofu Suð- urlands. Sá hluti hússins verður afhentur nokkru síðar. Gengið var frá kaupum bæjarins - á suðurhluta Sigtúnslóðar, 11.984 fermetrum, sem eru í miðju bæjar- ins. Kaupverðið var 7,8 miiljónir, sem greiðast á 15 árum. Aðilar lýstu ánægju sinni með kaupsamninginn við undirritun hans. „Þetta verður glæsilegasta bókasafn utan höfuðborgarinnar," sagði Karl Björnsson bæjarstjóri. Hann lét þess einnig getið að kaup- in á húsinu skertu ekki stórlega ráðstöfunarfé bæjarins og ætti ekki að bitna á framkvæmdum í framtíð- inni. Sigurður Kristjánsson kaupfé- lagsstjóri sagði þetta hagkvæm kaup fyrir báða aðila. „Við vitum að þið verðið góðir grannar," sagði hann meðal annars í ávarpi sínu. Aðrir aðilar lýstu einnig ánægju sinni og Brynleifur H. Steingríms- son sagði meðal annars: „Þetta er eign sem andar menningu og sögu þessa staðar." - Sig. Jóns. Leiðrétting í FRÉTT Morgunblaðsins í gær um tap Reiðhallarinnar á tónleik- um Status Quo, var rangt farið með til hverra hugsanlegur ágóði hefði runnið. Hið rétta er að ágóði, ef einhver hefði orðið, hefði runnið til ungl- ingastarfssemi í Reiðhöllinni. Biðst Morgunblaðið velvirðingar á þess- um mistökum. þannig að rými hefur aukist og vindstuðull lækkað. Þá er íjöðr- unarkerfi þýðara en áður og sporvídd aukin. Vél, gírkassi og drif hafa hins vegar tekið litlum breytingum, nema að nú er hægt að fá Colt í sextán ventla GTI- útgáfu í stað turbo-útgáfu áður. Stærsta fólksbifreiðin frá Mitsubishi, Galant, er því sem næst óbreytt frá 1988-árgerðinni og sömu sögu er að segja af Pajero- jeppanum og fjórhjóladrifna Lancer-skutbílnum. Að sögn Finnboga Eyjólfssonar hjá Heklu var bílasýningin um helg- ina sú fjölmennasta sem Hekla hef- ur haldið og seldust þegar um fimmtíu bílar á sýningunni. Jökull á Ólafsvík: Rekstur líf- eyrissjóðs gagnrýndur Á STJÓRNAR- og trúnaðarráðs- fundi Verkalýðsfélagsins Jökuls í Ólafsvík sem haldinn var þann 7.júli, var, að því er segir í frétt fá félaginu, heilshugar tekið undir þá ályktun er Verkalýðs- félag Borgarness lét frá sér fara á fundi er haldinn var 13. júní s.l., þar sem rekstur Lífeyrissjóðs Vesturlands er gagnrýndur. í fréttinni segir m.a.: „Oft hefur þetta verið rætt á fundum í okkar félagi, og hefur verið haft samband við starfsmenn sjóðsins, en svörin ávalt verið hin sömu; að eitthvað hafi farið úrskeiðis í tölvuvinnslu á reikningum sjóðsins, en verið sé að vinna að endurbótum á þessu. En að það skuli taka meira en þrjú ár að leiðrétta þessa villu. Varðandi iðgjaldagreiðslur í sjóð- inn þá kemur fram að það þurfi að fletta sérstaklega upp stöðu hvers sjóðsfélaga og hlýtur það að vera talsvert kostnaðarsamt. Það er ósk okkar að þessu máli verði flýtt og sjóðstjórn geri allt til þess að svo megi verða.“ Gott verð fyrir þorsk og ýsu GOTT meðalverð, 92,21 króna, fékkst fyrir 168 tonn af þorski og 99,24 króna meðalverð fékkst fyrir 32 tonn af ýsu sem seld voru úr gámum í Bretlandi sl. mánudag. Einnig voru m.a. seld 45 tonn af kola úr gámunum fyrir 76,35 króna meðalverð en úr þeim voru samtals seld 264 tonn fyrir 23,5 milljónir króna eða 89,06 króna meðalverð. Seld voru 205 tonn úr Ögra RE í Bremerhaven í Vestur-Þýskalandi í gær og fyrradag fyrir 9,3 milljón- ir króna eða 45,54 króna meðal- verð. Aflinn var að langmestu leyti karfí. Vinabæjamót í Hveragerði Hveragerði. VINABÆJAMÓT var haldið í Frá Hveragerði. Selfoss: Gamla kaupfélagshúsið selt á 57 milljónir króna Mun meðal annars hýsa Héraðsbókasafn Árnessýslu Selfossi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.