Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988
17
Meðal viðstaddra voru Jón Sigurðsson ráðherra, Gylfi Guðjónsson
arkitekt, Sigtryggur Sigurjónsson verktaki og Halldór Kristinsson
sýslumaður.
Húsavík:
Ný sýsluskrifstofa
og lögreglustöð
Húsavík.
SÝSLUSKRIFSTOFA og lög-
reglustöð var formlega tekin i
notkun á Húsavík föstudaginn
15. júlí að viðstöddum frammá-
mönnum í héraði og víðar að
komnum.
Aður var starfsemi sýslumanns-
embættisins á þrem stöðum í bæn-
um, skrifstofan í lítilli viðbyggingu
við Tún — áður embættisbústaður
Jóhanns heitins Skaptasonar,
sýslumanns, lögreglustöðin á öðr-
um stað og fangaklefar á þeim
þriðja og er því hér bætt úr brýnni
þörf.
Avörp við þetta tækifæri fluttu
sýslumaður Halldór Kristinsson,
dómsmálaráðherra Jón Sigurðs-
son, Sigurður Gizurarson, fyrrver-
andi sýslumaður Þingeyinga, og
Skúli Guðmundsson, verkfræðing-
ur Innkaupastofnunar ríkisins,
sem umsjón hefur haft með bygg-
ingarframkvæmdum. Lýsti hann
byggingunni í stórum dráttum, en
hún er á tveim hæðum og öll tæp-
ir 900 fermetrar að flatarmáli og
lóð með bílastæðum 1400 fermetr-
ar. Aætlanir um byggingarkostn-
að hafa að mestu staðist, en bygg-
ingin fullfrágengin með innbúi
mun kosta um 55 milljónir á fram-
reiknuðu kostnaðarverði.
Hönnuður byggingarinnar var
Gylfi Guðjónsson, arkitekt, fram-
kvæmdir hófust 1985 og aðalverk-
taki Norðurvík hf. á Húsavík,
byggingarstjóri, Sigtryggur Sig-
urjónsson og lofar verkið meistar-
ann eins og sýslumaður sagði í
árvarpi sínu.
Veitingar voru rausnarlega
fram reiddar og héraðsbúar fagna
því að sýslumannsembættið er nú
komið undir veglegt og reisulegt
þak. — Fréttaritari
Morgunblaðið/Sigurður P. Bjömsson
Sýsluskrifstofa og lögreglustöð var formlega tekin í notkun á
Húsavík fyrir skömmu.
und perestrojkunnar til að koma í
heimsókn og leggja á ráðin.
Annars er sorglegt að lesa um
erlenda skuldafenið og erfiðu árin,
sem framundan eru sögð bíða
íslenzkrar þjóðar. Ekki efast ég um,
að ástandið sé alvarlegt, en það verð-
ur erfitt fyrir landsfeðurna að fá
fólkið til þess að trúa því, að nú sé
alvara á ferðum. Það er búið að
hræða lýðinn svo oft áður á sl. 25
árum, en á þeim tíma hafa lífskjörin
haldið áfram að batna.
Það hefir verið mikið fjallað um
Sovétríkin í fjölmiðlum hér, enda
hafa þar verið að gerast merkir hlut-
ir, þ.e. leiðtogafundurinn og stór-
þingið. Eg ætla að ljúka þessu spjalli
með því að endursegja litla sögu,
sem birtist hér í blaði fyrir nokkrum
vikum. Hun gerist fyrir nokkrum
árum og er um ungan, efnilegan
málara, sem var fengið í hendur
verkefni af listanefnd Leníngrad.
Atti hann að mála stórt málverk,
sem sýna átti Lenln í Póllandi.
Eftir tvo mánuði gekk málarinn
á fund nefndarinnar til þess að sýna
túlkun sína á „Lenín í Póllandi.“
Afhjúpaði hann nú myndina, sem
sýndi mann og konu, bæði kviknak-
in, í heitum faðmlögum uppi í rúmi!
Nefndarmenn störðu á léreftið orð-
lausir. Loks sagði formaðurinn hvat-
skeytislega:
„Hvaða fólk er þetta með leyfi?“
„Þetta er Nadezhda Krupskaja
(kona Leníns) og Smirnoff (aðstoð-
armaður hans),“ svarði ungi málar-
inn.
„Nú, hvar er þá Lenín?" spurði
formaðurinn agndofa.
„í Póllandi, auðvitað!" svaraði
listamaðurinn sigri hrósandi.
Höfundur er ræðismaður íslands
íSuður-Flórída og framkvæmda-
stjóri hjá fisksölufyrirtæki á
Miami.
^^ 1300, t
KR. 285.000,- f500, KR. 318.
I l l |
«, m pillpi
< ■* x „ ' ' vj ..
•
V J l
'f"' < f'
m WBm lÍWiHffi
LADA SPORT 4x4
LADA LUXSG
i ■ ■■ .— —,
l SG KR. 499.000.-
LADA STATION5G
1600, KR. 316.
LADA SAFIR
KR. 317.000.-
LADA 1200
2800
Lada bílar
seldir ’87
Hugsaðu málið
Ef þu ert i bilahugleiðingum,ættir
þu að lesa þessa auglýsingu
tvisvar. Ræddu við sölumenn
okkar um kosti LADA bílanna og
vinsælu greiðslukjörin. Afgreiðslu-
tíminnn er 2-4 dagar. Við eigum
einnig úrval notaðra LADA bila.
Beinir símar:
Nyir bilar simi: 31236
Notaðir bílar simi: 84060
Opið laugardaga fra 10-16
Festið bíiakaup
- forðist hækkanir
BIFREÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR
Ármúla 13 108 Reykjavík, sími 681200.
i 1
S I
-