Morgunblaðið - 20.07.1988, Side 17

Morgunblaðið - 20.07.1988, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 17 Meðal viðstaddra voru Jón Sigurðsson ráðherra, Gylfi Guðjónsson arkitekt, Sigtryggur Sigurjónsson verktaki og Halldór Kristinsson sýslumaður. Húsavík: Ný sýsluskrifstofa og lögreglustöð Húsavík. SÝSLUSKRIFSTOFA og lög- reglustöð var formlega tekin i notkun á Húsavík föstudaginn 15. júlí að viðstöddum frammá- mönnum í héraði og víðar að komnum. Aður var starfsemi sýslumanns- embættisins á þrem stöðum í bæn- um, skrifstofan í lítilli viðbyggingu við Tún — áður embættisbústaður Jóhanns heitins Skaptasonar, sýslumanns, lögreglustöðin á öðr- um stað og fangaklefar á þeim þriðja og er því hér bætt úr brýnni þörf. Avörp við þetta tækifæri fluttu sýslumaður Halldór Kristinsson, dómsmálaráðherra Jón Sigurðs- son, Sigurður Gizurarson, fyrrver- andi sýslumaður Þingeyinga, og Skúli Guðmundsson, verkfræðing- ur Innkaupastofnunar ríkisins, sem umsjón hefur haft með bygg- ingarframkvæmdum. Lýsti hann byggingunni í stórum dráttum, en hún er á tveim hæðum og öll tæp- ir 900 fermetrar að flatarmáli og lóð með bílastæðum 1400 fermetr- ar. Aætlanir um byggingarkostn- að hafa að mestu staðist, en bygg- ingin fullfrágengin með innbúi mun kosta um 55 milljónir á fram- reiknuðu kostnaðarverði. Hönnuður byggingarinnar var Gylfi Guðjónsson, arkitekt, fram- kvæmdir hófust 1985 og aðalverk- taki Norðurvík hf. á Húsavík, byggingarstjóri, Sigtryggur Sig- urjónsson og lofar verkið meistar- ann eins og sýslumaður sagði í árvarpi sínu. Veitingar voru rausnarlega fram reiddar og héraðsbúar fagna því að sýslumannsembættið er nú komið undir veglegt og reisulegt þak. — Fréttaritari Morgunblaðið/Sigurður P. Bjömsson Sýsluskrifstofa og lögreglustöð var formlega tekin í notkun á Húsavík fyrir skömmu. und perestrojkunnar til að koma í heimsókn og leggja á ráðin. Annars er sorglegt að lesa um erlenda skuldafenið og erfiðu árin, sem framundan eru sögð bíða íslenzkrar þjóðar. Ekki efast ég um, að ástandið sé alvarlegt, en það verð- ur erfitt fyrir landsfeðurna að fá fólkið til þess að trúa því, að nú sé alvara á ferðum. Það er búið að hræða lýðinn svo oft áður á sl. 25 árum, en á þeim tíma hafa lífskjörin haldið áfram að batna. Það hefir verið mikið fjallað um Sovétríkin í fjölmiðlum hér, enda hafa þar verið að gerast merkir hlut- ir, þ.e. leiðtogafundurinn og stór- þingið. Eg ætla að ljúka þessu spjalli með því að endursegja litla sögu, sem birtist hér í blaði fyrir nokkrum vikum. Hun gerist fyrir nokkrum árum og er um ungan, efnilegan málara, sem var fengið í hendur verkefni af listanefnd Leníngrad. Atti hann að mála stórt málverk, sem sýna átti Lenln í Póllandi. Eftir tvo mánuði gekk málarinn á fund nefndarinnar til þess að sýna túlkun sína á „Lenín í Póllandi.“ Afhjúpaði hann nú myndina, sem sýndi mann og konu, bæði kviknak- in, í heitum faðmlögum uppi í rúmi! Nefndarmenn störðu á léreftið orð- lausir. Loks sagði formaðurinn hvat- skeytislega: „Hvaða fólk er þetta með leyfi?“ „Þetta er Nadezhda Krupskaja (kona Leníns) og Smirnoff (aðstoð- armaður hans),“ svarði ungi málar- inn. „Nú, hvar er þá Lenín?" spurði formaðurinn agndofa. „í Póllandi, auðvitað!" svaraði listamaðurinn sigri hrósandi. Höfundur er ræðismaður íslands íSuður-Flórída og framkvæmda- stjóri hjá fisksölufyrirtæki á Miami. ^^ 1300, t KR. 285.000,- f500, KR. 318. I l l | «, m pillpi < ■* x „ ' ' vj .. • V J l 'f"' < f' m WBm lÍWiHffi LADA SPORT 4x4 LADA LUXSG i ■ ■■ .— —, l SG KR. 499.000.- LADA STATION5G 1600, KR. 316. LADA SAFIR KR. 317.000.- LADA 1200 2800 Lada bílar seldir ’87 Hugsaðu málið Ef þu ert i bilahugleiðingum,ættir þu að lesa þessa auglýsingu tvisvar. Ræddu við sölumenn okkar um kosti LADA bílanna og vinsælu greiðslukjörin. Afgreiðslu- tíminnn er 2-4 dagar. Við eigum einnig úrval notaðra LADA bila. Beinir símar: Nyir bilar simi: 31236 Notaðir bílar simi: 84060 Opið laugardaga fra 10-16 Festið bíiakaup - forðist hækkanir BIFREÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR Ármúla 13 108 Reykjavík, sími 681200. i 1 S I -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.