Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sauðárkrókur
- blaðberar
Blaðbera vantar í ytra hverfi.
Upplýsingar í síma 95-5494.
Hrafnista í
Reykjavík
Lausar stöður
Hjúkrunarfræðingar óskast á kvöld- og helg-
arvaktir. Sjúkraliðar óskast til starfa.
Starfsfólk vantar í aðhlynningu, ræstingu og
borðsal nú þegar og frá 1. september. Gott
barnaheimili á staðnum.
Upplýsingar í síma 689500 frá kl. 10-12 virka
daga.
íslenskt-franskt
eldhús
Óskum eftir að ráða starfsfólk í eftirtalin
störf: Bílstjóra til að annast dreifingu og
sölu og stúlkur í pökkun á matvælum.
Sumarstarf kemur ekki til greina.
Uppl. á staðnum, Dugguvogi 8, sími 680550.
Matvælaframleið-
endur athugið!
Er nýkominn úr 3ja ára framhaldsnámi í
matvælatækni og óska eftir starfi frá og með
1. ágúst nk. Góð málakunnátta og reynsla í
stjórnun og sölustörfum.
Tilboð óskast send auglýsingadeild Mbl. fyrir
25. júlí nk. merkt: „H - 2927“.
Starfsfólk óskast
Óskum eftir að ráða starfsfólk.
Heils- og hálfsdagsstörf.
Upplýsingar á staðnum.
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Vestmannaeyja vill ráða hjúkrunar-
fræðinga frá 1. september eða eftir nánara
samkomulagi. Um er að ræða fullt starf eða
hlutastarf, ennfremur næturvaktir eingöngu.
Nánari upplýsingar um launakjör og starfsað-
stöðu veitir hjúkrunarforstjóri í síma
98-11955.
Sjúkrahús Vestmannaeyja
Framkvæmdastjóri
gjaldeyrissviðs
Staða framkvæmdastjóra gjaldeyrissviðs
Verzlunarbankans er laus til umsóknar.
Starfið er vel launað og áhugavert. Fram-
kvæmdastjóranum er falin dagleg yfirstjórn
gjaldeyrissviðs og efling erlendra viðskipta
Verzlunarbankans. Gjaldeyrissviðið annast
kaup og sölu erlends gjaldeyris, erlendar
innheimtur og ábyrgðir, erlendar lántökur
og veitir viðskiptamönnum alhliða ráðgjöf í
gjaldeyrismálum.
Æskileg menntun er háskólapróf í viðskipta-
fræði og/eða reynsla í erlendum viðskiptum.
Nánari upplýsingar veita Tryggvi Pálsson,
bankastjóri, og Indriði Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri starfsmannasviðs.
Umsóknir berist bankastjórn Verzlunarbank-
ans fyrir 25. júlí nk.
Verzlunarbanki íslands hf.
Sendilstarf
Fyrirtækið er rótgróið og þekkt innflutnings-
fyrirtæki í Reykjavík.
Starfið felst í allskyns sendiferðum og útrétt-
ingum, svo sem í toll og banka, auk annarra
tilfallandi starfa. Vinnutími er frá kl. 9.00-
17.00. Um framtíðarstarf er að ræða.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu
áreiðanlegir, stundvísir og reglusamir. Skil-
yrði er að viðkomandi séu með réttindi til
bifhjólaaksturs.
Umsóknarfrestur ertil og með 27. júlí. Ráðn-
ing verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Skóla^ordustig 1a - 101 Reykjavik - Simi 621355
Barnaheimili
St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði
Okkur vantar fóstru og starfskraft í 50%
starf. Einnig vantar starfskraft til afleysinga
í eldhús í einn mánuð, september.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
50198 eða Hlíðabraut 10.
Útkeyrslumaður -
kaffistofuumsjón
Okkur vantar nú þegar vanann bílstjóra, ekki
yngri en 20 ára. Ennfremur starfskraft hálfan
daginn til að sjá um kaffistofuþrif o.fl.
Upplýsingar aðeins veittar á staðnum í dag
og næstu daga milli kl. 14 óg 17.
Kjötbankinn,
Flatahrauni27, 220 Hafnarfirði.
BORGARSPÍTALINN
Móttökuritari
Fjölbrautaskóli Suðumesja
Kvflavik
Ptothólf 100 Slmi 02-3100
Kennarar óskast
óskast á rannsóknadeild.
Vinnutími frá kl. 8-16.
Upplýsingar gefur skrifstofustjóri í síma
696204.
Verslunarstjóri
Fyrirtæki úti á landi auglýsir eftir verslunar-
stjóra í byggingavöruverslun. Þarf að hafa
viðskiptamenntun eða reynslu við verslunar-
eða skrifstofustörf.
Þeir sem áhuga hafa leggi inn umsóknir á
auglýsingadeild Mbl. merktar: „T - 14533“
fyrir 27 júlí.
Starfskraftar óskast
Óskum að ráða starfskrafta til afgreiðslu-
starfa, ekki yngri en 18 ára.
Upplýsingar á skrifstofunni milli kl. 17.00 og
18.00 fimmtudagínn 21. júlí.
ssovn ga||eri »r
Kennarar
Tvo kennara vantar fil almennrar kennslu að
grunnskólanum á Eiðum, sem er heimavist-
arskóli. Ferðastyrkur er greiddur. Ódýrt og
gott húsnæði fylgir.
Upplýsingar fást hjá Sigtryggi Karlssyni í
síma 97-13825 eða Kristjáni Gissurarsyni,
skólanefndarformanni í síma 97-13805.
Við Fjölbrautaskóla Suðurnesja vantar kenn-
ara í eftirtaldar stöður: íslensku, íþróttum
og tölvufræðum. Góð vinnuaðstaða.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma
92-14160.
Skólameistari.
Skrifstofustarf
Laust er starf við embætti bæjarfógetans í
Keflavík, Njarðvík, Grindavík og sýslumanns-
ins í Gullbringusýslu við Tryggingarumboðið.
Laun skv. launakerfi BSRB. .
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf óskast sendar undirrituðum
fyrir 1. ágúst 1988.
Bæjarfógetinn í Keflavík,
Grindavík og Njarðvík.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Símavarsla
Starfskraftur óskast, aðallega til símavörslu
og sendiferða, á málflutningsskrifstofu í mið-
borginni.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Þ - 8737“ fyrir 27. júlí.
Sölufólk
Óskum eftir að ráða sölufólk til starfa nú
þegar. Um er að ræða kvöld- eða dagsölu.
Spennandi vara. Góð sölulaun í boði.
Upplýsingar veittar í síma 15118.