Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.07.1988, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 Krabbameinsleit í Bretlandi: Rangar niðurstöð- ur í greiningu á leghálsstrokum St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. LJÓST varð í síðustu viku, að sýni, sem greind höfðu verið 60 konur í Manchester höfðu fengið rangar niðurstöður úr greiningu á stroki úr leghálsi. Agreiningur um gildi slikra próf- ana er djúpstæður meðal sér- fræðinga í Bretlandi. I fyrra var tekið upp eftirlit með greiningu á strokum úr leghálsi. í síðustu viku var farið yfir 3000 Bandaríkin: Gasleki í geimskutlu Canaveralhöfða. Reuter. EKKI er búist við að gasleki í einum af stýrihreyflum Discov- ery geimskutlunnar valdi seink- un á fyrirhugaðri för hennar í september. Aformað er að ræsa vélina til reynslu 28. júlí. Þegar er búið að fresta för Dis- covery fímm sinnum vegna tækni- legra örðugleika. í síðustu viku uppgötvaðist gasleki í einum stýri- hreyfla flaugarinnar en nú er búið að stöðva hann. Þó enn sé ekki búið að finna orsök lekans verður vélin ræst til reynslu í lok júlí þar sem ekki reynir á stýrihreyflana við það. Discovery var flutt út á skotpall fjórða júlí sl. en verði nauðsynlegt að færa hana í hús til viðgerða mun það væntanlega teíja för hennar um nokkrar vik- ur. Öllum áætlunum um mannaðar geimferðir Bandaríkjamanna var frestað þegar geimfeijan Challen- ger sprakk í janúar árið 1986 en nú er útlit fyrir að þær hefjist á ný. sem greind höfðu venð á Christie-sjúkrahúsinu í Manchester. í ljós kom, að 60 þeirra voru rang- lega greind; konunum var sagt, að þær væru ekki með krabbamein, en í sýnunum var óeðlileg frumu- fjölgun. Þeir, sem börðust fyrir því, að konur almennt fari í próf til að at- huga, hvort þær eru með legháls- krabbamein, sættu gagnrýni frá byrjun. Gagmýnendumir segja, að hvað eftir annað hafi komið í ljós mistök við greiningu, og hafi það valdið konum ómældum áhyggjum. Strok úr leghálsi, sem sýni óeðlilega fjölgun fruma, sé ekki einhlít vísbending um krabbamein. Og loks sé þessi aðferð of dýr miðað við árangurinn. Edwina Currie aðstoðarheilbrigð- isráðherra varði þá stefnu heilbrigð- isráðuneytisins að verja fé til að taka stroku úr leghálsi kvenna. Hún sagði, að þetta eftirlit hefði sannað gildi sitt. Þessi 60 sýni af 3000 hafi auk þess ekki verið augljóst dæmi um óeðlilega fjölgun fruma. Á síðasta ári kom í ljós við rann- sókn í Royal Free Hospital í Lund- únum á 200 heilbrigðum konum, að frumuijölgun greindist hjá eini af hverjum 20, en við leghálsspegl- un kom í ljós, að hjá 11% þeirra var um óeðlilega frumuíjölgun að ræða. Samkvæmt þessu ætti ein af hveijum tíu konum í Bretlandi á aldrinum 20 til 65 ára að hafa ein- kenni, sem krefjast meðferðar. Sumir sérfræðingar halda fram, að grípa þurfi til almennrar legháls- speglunar á konum. Aðrir stað- hæfa, að slík aðgerð sé glapræði, sérstaklega í ljósi þess, að vitneskja um óeðlilega frumufjölgun í leg- hálsi sé ekki nægileg. Lurkum lamdir lögreglumenn Reuter Til átaka kom í gær í Seoul í Suður-Kóreu þegar bændur vildu ganga fylktu liði að þing- húsinu til að mótmæla fijálsari matvælainn- flutningi frá Bandaríkjunum. Stöðvuðu lög- reglumenn för þeirra en bændurnir svöruðu fyrir sig og börðu á þeim með lurkum. Ebbe Carlssons-málið í Svíþjóð: Yerður Hans Holmer opinberlega ákærður? Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara HANS Holmer, fyrrum lögreglu- stjóri í Stokkhólmi, og Sune Sandström, nýr yfirmaður leyni- þjónustunnar, eiga nú báðir yfir höfði sér ákæru í framhaldi af rannsókn á Ebbe Carlssons- málinu. Við rannsókn Ola Nilssons, sak- sóknara í Málmhaugum, hefur kom- ið í ljós, að það var Sandström, sem ákvað útvegun hlerunartækjanna, sem tekin voru í tollinum í Hels- Morgfunblaðsins. ingjaborg 1. júní sl. Sandström sjálfur vísar því raunar algjörlega á bug og segir, að áburðurinn sé atlaga að starfsheiðri sínum, en í gær átti hann að mæta til yfir- heyrslu hjá lögreglunni í Málm- haugum. Eftir morðið á Olof Palme ákvað Holmer að láta lífverði gæta sín og konu sinnar þáverandi þótt honum hefði ekki beinlínis verið hótað neinu og af þeim sökum hefur Holland: Tilraun með fyrirbyggjandi aðgerðir í fíkniefnamálum 12 ára börn fá að kynna sér hlutskipti fórnarlambanna Amsterdam. Reuter. RÁÐIÐ til að halda ungmenn- um frá fíkniefnum er að kynna þeim sem börnum hlutskipti fórnarlamba þessara efna. Þetta er aðalinntakið í nýrri áætlun, sem lögreglan f Amsterd- am er að gera tilraunir með, en eins og margir kannast við, er borgin þekkt fyrir að vera Mekka fíkniefnaneytenda í Evrópu. Áætl- unin, sem skipulögð hefur verið í samvinnu við skólana í borginni, byggist á þeirri kenningu, að ekk- ert sé eins áhrifaríkt til að fá ungmenni til að halda sér frá fíkniefnum og að gefa þeim kost á að hlýða á frásagnir fómarlam- banna af dapurlegri og vonleysis- legri lífsreynslu sinni. Lögreglumenn og félagsráð- gjafar frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Skotlandi og Þýskalandi hafa komið til Amsterdam til að kynna sér áætlunina. „Þær aðferðir, sem notast var við áður, báru ekki nógu góðan árangur, af því að þær byggðust á því að reyna að breyta hegðun fólks á framhaldsskólaaldri — sem þegar var farið að nota þessi efni,“ sagði Rens de Keijser, 54 ára gamall lögreglumaður, en það var hann, sem hóf þessa tilraun fyrir um einu og hálfu ári. „Það er miklu vænlegra að styrkja neikvæða afstöðu barna og unglinga til fíkniefna, áður en þau byrja að neyta þeirra, en að reyna að breyta hegðunarmynstri unga fólksins eftir á — sem sjaldn- ast ber árangur," sagði hann. Horfíð var að því ráði að gefa 12 ára bömum kost á að hitta fórnarlömb fíkniefna og hlýða á lífsreynslusögur þeirra. De Keijser býður bömunum, fímmtán í senn, á hverfislögreglu- stöð sem næst heimkynnum þeirra. Þar ræða fíkniefnaneyt- endur, sem eru í haldi vegna smá- vægilegra afbrota, við bömin og svara spumingum þeirra. „Þetta er Ria,“ segir de Keijser við einn hópinn. „Hún er eiturly- fjaneytandi og ætlar að svara spumingum ykkar." í fyrstu spyija bömin spum- inga, sem þau hafa undirbúið í skólanum, en síðan leiðir eitt af öðru. „Hvað þarftu mikla peninga á dag fyrir eiturlyfjum?" spyr einn úr hópnum. „Hvemig færðu þessa peninga?" spyr annar. „Hvað líður langur tími, þar til þú þarft að útvega þér nýjan skammt?" „He- furðu samband við fjölskyldu þína?“ „Af hveiju ertu að tala við okkur?“ Ria er taugaóstyrk og fitlar við sígarettuna, sem hún er að reykja, og segir sögu sína. Samband hennar og fjölskyldunnar er sama og ekkert, og móðir hennar hugs- ar um soninn, sem Ria eignaðist, skömmu eftir að hún ánetjaðist heróíni 15 ára gömul. Sonur hennar er nú orðinn níu ára gamall og farinn að spyija um móður sína. Hana langar til að losna úr hlekkjum eiturly- fjanna, en segir, að það sé erfítt. Hið opinbera greiðir húsaleiguna fyrir hana, og hún stelur, þegar hana vantar peninga fyrir eitur- lyfjum. „Ég vona, að þið byijið aldrei að neyta eiturlyfja af neinu tagi,“ segir hún við gestina, áður en klefahurðin lokast að stöfum í fangaklefa hennar. Eftir þetta er farið með börnin í matsal lögreglustöðvarinnar og þau ræða saman um það, sem fyrir augu og eyru hefur borið á fundinum með Riu, og njóta að- stoðar kennara síns og fulltrúa lögreglunnar. Sumir sérfræðingar gagnrýna þessa tilraunastarfsemi Amster- dam-lögreglunnar harðlega. Þeir segja, að kynni barna af eiturly- fjaneytendum ýti undir hættu á, að þau verði fíkniefnum að bráð, auk þess sem þau læri í smáatrið- um, hvemig neyslan fer fram. En de Keijser er viss í sinni sök. Hann segist kanna vandlega hug eiturlyQaneytendanna, áður en þeir tala við bömin. „Ég vel aðeins þá, sem vilja losna við áþján eiturlyfjanna og kenna þjóð- félaginu ekki um vandann," sagði hann. Hann viðurkennir þó, að of snemmt sé að fullyrða um árang- ur þessarar aðferðar. Áætlað er, að rannsókn fylgi á eftir innan fárra ára til þess að kanna, hvort eitthvert ungmennanna, sem tóku þátt í kynningarfundunum, hefur fallið í freistni. umboðsmaður þingsins í réttarfars- málum í hyggju að kæra hann fyr- ir embættisafglöp. í janúar þegar Holmer fluttist til Vínar þar sem hann var við störf fyrir Sameinuðu þjóðirnar var upplýst, að kostnaður- inn við gæsluna næmi þá 43,5 millj- ónum ísl. kr., og fyrir þessum pen- ingum verður hann að gera grein á fundi með stjómarskrárnefndinni. Þeir aðrir, sem stjómarskrámefnd- in telur sig eiga vantalað við, eru Ebbe Carlsson og Ingvar Carlsson forsætisráðherra en hann féllst á að tala við nefndina til að hreinsa sig af allri sök í málinu. Ekki fer á milli mála, að Ebbe Carlssons-málið muni setja sinn svip á baráttuna fyrir þingkosning- amar 18. september nk. en vegna þessarar ólöglegu einkarannsóknar á morðinu á Olof Palme neyddist Anna-Greta Leijon dómsmálaráð- herra til að segja af sér. Ingvar Carlsson forsætisráðherra hefur hins vegar heitið henni nýju ráð- herraembætti sigri jafnaðarmenn í kosningunum. Tóku lásboga með í brúð- kaupsferðina Ipswich. Reutcr. ÞEGAR hin nýgiftu Marylyn og Mark Allen fóru í brúðkaupsferð um England höfðu þau lásboga og loftbyssu í farangrinum. Á þremur vikum rændu þau bæði pósthús og Iitla matsölustaði og höfðu um 5000 pund (390.000 ísl.kr.) upp úr krafsinu. Allt gekk vel þangað til bílstjóri nokkur réðist á eiginmanninn sem skaut á hann með lásboganum. Orin lenti hins vegar í veski manns- ins, og særði hann ekki alvarlega. Hjónin vom leidd fyrir dómara í Ipswich á föstudaginn. Brúð- guminn, sem er 22 ára, grét og viðurkenndi að hafa skipulagt nærri hundrað rán til þess að ganga í augun á hinni 34 ára gömlu brúði sinni. Hann var dæmdur í 12 ára fangelsi en hún fékk þriggja ára dóm.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.