Morgunblaðið - 20.07.1988, Page 40

Morgunblaðið - 20.07.1988, Page 40
-40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 1988 Breski rokksöngvarinn Steve Marriott til íslands BRESKI rokksöngvarinn Steve Marriott er væntanlegur hingað til lands og mun hann skemmta ásamt hljómsveit sinni i veit- ingahúsinu Hollywood um næstu helgi. Marriott var einn þekktasti og vinsælasti popp- tónlistarmaður í Bretlandi á sjö- unda áratugnum og í upphafi þess áttunda og söng meðal annars með hljómsveitunum „Small Faces“ og „Humple Pie“. Hljómsveitin „Small Faces" varð heimsfræg árið 1966 þegar lagið „Sha La La Le“ komst í fyrsta sæti vinsældalista víða um heim og á næstu árum voru þeir félagar í hópi vinsælustu rokk- hljómsveita á Bretlandseyjum. Einkum vakti söngvarinn Steve Marriott mikla athygli og má segja að frægð og velgengni hljónisveit- arinnar hafi einkum tengst hans nafni. Frægðinni fylgdu þeir félag- ar eftir með hveijum „smellinum" á fætur öðrum og má þar nefna „Lazy Sunday Afternoon", „All or nothing", „Inchygoo Park“ og mörg fleiri, þar sem Marriott var í aðalhlutverki. Um 1970 sagði Marriott skilið við „Small Faces“ og stofnaði hljómsveitina „Humple Pie“ ásamt Peter Frampton, sem þá var að verða stórstjarna í popp- tónlistarheiminum. „Humple Pie“ átti mikilli velgengni að fagna fyrst í stað en var síðan lögð nið- ur. Eftir það gaf Marriott út nokkrar sólóplötur þótt nokkuð hafi dregið úr fyrri vinsældum hans hvað plötusölu snertir. Hann hefur þó aldrei sagt að fullu skilið við rokktónlistina og hefur ferðast víða um heim með hljómsveit sinni. Þeir félagar eru nú væntanlegir í Hollywood og segir í frétt frá veitingahúsinu að koma Steve Marriott sé einn af stórviðburðum sumarsins, sem gestir Hollywood og allir aðdáendur góðrar rokktón- listar muni kunna vel að meta. Steve Marriott, annar frá hægri, ásamt hljómsveit sinni. (úr fréttatiikynningu) Sériílöð Á LAUGARDÖGUM Auglýsingar íLesbók með ferðablaði þurfa aðhafa borist auglýsingadeild fyrir kl 16.00 á föstudögum, viku fyrir birtingu og í menningarblaðið fyrir kl. 16.00 á miðvikudögum. Y _ bl^é allra landsmanna Þessir strákar sem heita Eysteinn Orri Gunnarsson, Bjarni Þór Sig- urðsson og Sjtyrmir Gunnarsson, héldu hlutaveltu til ágóða fyrir Rauða kross íslands. Söfnuðu þeir rúmlega 1100 krónum. Þetta eru Guðrún, Sigríður og Margrét, en þær héldu hlutaveltu til ágóða fyrir Rauða kross íslands og söfnuðu 1875 kr. 4 Sssrss m g Smmm • z=ii^ mmmrx. . . • ■ Tlmmnmm- « ' ' m j Fyrir nokkru héldu þessar ungu vinkonur hlutaveltu á Fálkagöt- unni, til ágóða fyrir Blindrafélagið. Þær heita Helga Heiðdal, Unnur Vala Guðbjartsdóttir, Sara Ólafsdóttir og vinkona þeirra Guðlaug Kristin Karlsdóttir er hér með þeim á myndinni. Telpurnar söfnuðu 340 kr. Þessir krakkar sem heita Bjarki Smárason, Elva Gunnarsdóttir og Lilja Gréta Kristjánsdóttir, héldu hlutaveltu á Sunnuvegi 8 til ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar og söfnuðust þar tæplega 1370 krón- ur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.