Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
164. tbl. 76. árg.
FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rio de Janeiro, Brasilíu. Reuter.
UM 130 manns létu lífið í tveim-
ur slysum sem urðu i Brasiliu
um helgina. Á föstudagskvöld
sökk ferja á Amazon-fljotinu og
a.m.k. 58 létu lífið og 30 annarra
er saknað. Snemma á sunnudag
fór rúta út af veginum til Sao
Paulo og féll 15 metra niður í
á. Lík 39 farþega hafa fundist
en sjö lifðu slysið af.
Ferjuslysið varð þegar drekk-
hlaðin gömul feija rakst á skipsflak
sem lá á botni Amazon og sökk á
fímm mínútum. 79 mönnum var
bjargað en ekki er búist við að
fleiri hafi lifað slysið af þar sem
fljótið er mjög straumþungt.
Á sunnudag fór rúta út af vegin-
um 160 km vestur af Sao Paulo,
þegar önnur rúta ók aftan á hana.
Yfir Atlants-
haf í tunnu
Ósló. Reuter.
NORSKUR skipstjóri hyggst i
janúar leggja af stað yfir Atl-
antshafið á minnstu fleytu sem
ennþá hefur verið hönnuð til
slíkrar siglingar — plasttunnu.
Vonast hann til þess að komast
i heimsmetabækur fyrir tiltækið.
„Fjölskylda mín hristir höfuðið
út af þessu en ég held að þetta sé
ekki hættulegt," segir skipstjórinn,
hinn 49 ára gamli Rolf Hanssen.
Hann er skipstjóri á 30.000 tonna
olíuskipi og hefur verið á sjó síðan
hann var táningur.
Tunnan er einn og hálfur sinnum
einn metri að stærð. Hún verður
búin litlu segli og talstöð. Hanssen
ætlar að leggja upp frá Las Palmas
á Kanaríeyjum í janúar og vonast
til að ná landi á frönsku eyjunni
Guadeloupe á Karíbahafinu eftir
u.þ.b. 50 sólarhringa siglingu.
Dukakis ogKing
Reuter
Seint í gærkvöld var þess vænst að Michael Dukakis, rikisstjóri
Massachusetts, yrði útnefndur forsetaframbjóðandi demókrata
á landsfundi flokksins í Atlanta. Dukakis býður sig fram ásamt
öldungadeildarþingmanninum og varaforsetaefninu Lloyd
Bentsen, en George Bush varaforseti verður frambjóðandi repú-
blikana. Hann hefur ekki valið sér varaforsetaefni enn. Á mynd-
inni sjást (f.v.) Bentsen, Coretta King, ekkja blökkumannaleið-
togans Martins Luthers Kings, Kitty Dukakis og Michael, eigin-
maður hennar. Yfir þeim er mynd Martins Luthers Kings.
Sjá ennfremur frétt á bls. 26.
irbýr vopnahlé
Bahrain, SÞ. Reuter.
SAMEINUÐU þjóðirnar hyggjast senda tíu manna nefnd til írans
og Iraks til að undirbúa vopnahlé í stríði ríkjanna tveggja á grund-
velli samþykktar Öryggisráðs SÞ í fyrra. Aðalritari SÞ, Perez de
Cuellar, tilkynnti þetta í gær skömmu eftir að leiðtogi Irana, Aja-
tolla Khomeini, hafði lýst því yfir að íranir vildu af einlægni semja
um frið. Iraski utanrikisráðherrann, Tareq Aziz, hvatti í gær til
tafarlausra friðarviðræðna hjá SÞ og síðar í Bagdað eða Teheran,
höfuðborgum styrjaldaraðilanna, til að sannreyna hvort friðarvilji
Irana væri raunhæfur eða aðeins herbragð.
Khomeini sagði þjóð sinni í gær
að sú ákvörðun hans að samþykkja
friðarviðræður án nokkurra skil-
yrða hefði verið „erfiðari en að taka
inn eitur. Ég sætti mig við vilja
guðs og drakk það til að þóknast
honum ... Þið vitið að ég hét ykk-
ur því að við myndum beijast til
hinsta blóðdropa. Ég breytti um
skoðun til að þjóna ykkur.“ Kho-
meini varaði Bandaríkjamenn og
önnur vestræn ríki við og sagði að
herskip þeirra yrðu að hverfa burt
af Persaflóa áður en það yrði of
seint.
De Cuellar sagði að tíu manna
nefndin yrði undir forystu norska
herforingjans Martin Vadset og það
myndi taka nefndina í mesta lagi
viku að undirbúa vopnahléð svo að
hægt yrði að dagsetja upphaf þess.'
Fulltrúi írans hjá SÞ sagði í gær
að íranir vildu aðeins ræða við ír-
aka fyrir milligöngu SÞ.
Öryggisráð SÞ lauk í gær um-
ræðum um írönsku farþegaþotuna,
sem Bandaríkjamenn grönduðu yfir
Persaflóa í byijun mánaðarins, með
því að lýsa þungum áhyggjum
sínum vegna atburðarins. Einnig
var lýst yfir harmi vegna láts fjöl-
margra óbreyttra borgara. Ráðið
hvatti aðildarríki Alþjóða flugmála-
ráðsins til að virða undantekningar-
laust alþjóðareglur um farþegaflug.
Sjá fréttir á bls. 27.
Nagorno-Karabak:
Verkafólk hunsar fyr-
irskipanir Kremlar
Moskvu. Reuter.
TILMÆLI Sovétstjórnarinnar
frá því á þriðjudag, um að hætta
verkföllum, eru höfð að engu i
héraðinu Nagorno-Karabak í
Azerbajdzhan að sögn embættis-
manns i héraðinu. Talsmaður
Drög að samkomulagi um frið í Angola og framtíð Namibíu:
stjórnar héraðsins harmaði i gær
þá ákvörðun Kreml-stjórnarinn-
ar að hafna ósk íbúa héraðsins
um að sameinast Sovét-Armeníu
en flestir íbúarnir eru Armenar.
Stjórn Sovétríkjanna hefur
ákveðið að vísa einum af helstu
leiðtogum andófsins í Sovét-
Armeníu úr landi.
Stórslys
í Brasilíu
Persaflóastríðið:
Nefnd SÞ und-
Gert ráð fyrir brottfhitn-
ingi kúbanskra hersveita
Suður-Afríkumenn hyggjast láta Namibíu af hendi eftir 70 ára yfirráð
Pretóríu. Reuter, The Daily Telegraph.
SUÐUR-Afríka, Angola og Kúba hafa samþykkt drög að friðarsamn-
ingum í borgarastyijöldunum sem geisað hafa í Angola og Namibíu
með beinni og óbeinni þátttöku annarra ríkja í mörg ár. Utanríkisráð-
herra Suður-Afríku, Pik Botha, skýrði frá skilmálum samkomulags-
draganna i gær. Herlið Kúbumanna i Angola mun verða flutt á brott
og Namibía, sem eitt sinn var þýsk nýlenda undir nafninu Suðvestur-
Afríka en hefur undanfarin 70 ár verið undir stjórn Suður-Afríku,
hlýtur sjálfstæði. Skýrt var frá samkomulagsdrögunum samtímis í
Pretoríu, Washington, Havanna og Luanda, höfuðborg Angola.
„Við höfum lagt langa leið að
baki. Enn erum við hjá rótum fjalls-
ins sem við verðum að klífa, leiðin
framundan er bæði brött og hættu-
leg. -Mikilvægum áfanga er samt
sem áður náð,“ sagði utanríkisráð-
herrann er hann kynnti drögin fyr-
ir fréttamönnum í höfuðborg Suð-
ur-Afríku, Pretoríu, í gær.
Margt er enn óljóst varðandi út-
færslu samningsins, t.d. hefur
brottför kúbanska herliðsins ekki
verið dagsett. Botha sagði að skil-
málar samningsins væru allir ná-
tengdir og neitaði einhver deiluaðila
að samþykkja einhvem þeirra yrði
öllu samkomulaginu stofnað í
hættu. Þetta gerir deiluaðilum auð-
velt að hætta við ef pólitískar að-
stæður breytast skyndilega.
Deiluaðilar skuldbinda sig til að
styðja frumkvæði Sameinuðu þjóð-
anna að friði á svæðinu, Angola og
Suður-Afríka heita því að stuðla
að fijálsum kosningum í Namibíu
með sjálfstæði landsins að tak-
marki, kúbanskt herlið verður í
fyrstu flutt burt frá suðurlanda-
mærum Angola og síðar frá landinu
undir eftirliti Öryggisráðs SÞ og
deiluaðilar heita því að skipta sér
ekki af innri málefnum annarra
ríkja.
Hvergi er minnst á skæruliða-
hreyfinguna UNITA, sem barist
hefur gegn kommúnískum stjórn-
völdum Angola árum saman með
stuðningi Suður-Afríkumanna og
Bandaríkjamanna. Botha sagði að
ekki væri „ennþá á dagskrá" að
biðja Suður-Afríku um að hætta
vopnasendingum til UNITA-skæru-
liðanna. Botha neitaði að skýra frá
því hvort samkomulagið merkti að
vopnahlé væri nú komið á milli allra
stríðandi aðila. Hann sagði að við-
ræðum yrði að líkindum fram hald-
ið á næstu dögum, hugsanlega i
Suður-Afríku.
Sumir vestrænir stjórnmálaskýr-
endur telja að yfírmenn suður-
afríska hersins séu lítt hrifnir af
samkomulaginu þar sem það geti
leitt til óvinveittrar ríkisstjórnar í
Namibíu, þar sem skæruliðar
SWAPO-hreyfingarinnar hafa lengi
barist gegn suður-afrískum stjórn-
völdum.
7!ASS-fréttastofan sovéska
skýrði frá brottvísuninni í gær.
Maðurinn, sem heitir Paruir Airikj-
an, á sæti í nefnd er berst fyrir
innlimun héraðsins Nagomo-Kar-
baks í Armeníu. Bandaríska sendi-
ráðið í Moskvu sagði í gær að sov-
ésk yfirvöld hefðu spurst fyrir um
það hvort Bandaríkjamenn myndu
taka við manninum sem setið hefur
í varðhaldi síðan 24. mars. Formleg
umsókn um vegabréfsáritun hefur
enn ekki borist.
TASS sagði að forsætisnefnd
Æðsta ráðsins hefði ákveðið á fundi
sínum á miðvikudag að svipta Ai-
rikjan ríkisborgararétti og reka
hann úr landi. Ástæðurnar væru
„athafnir sem væru svívirða gagn-
vart þeim heiðri sem fylgdi því að
vera þegn Sovétríkjanna og vörp-
uðu rýrð á landið" sagði í,tilkynn-
ingu fréttastofunnar. Ekki kom
fram hvert Airikjan yrði sendur.
Hálf milljón manna mótmælti
ákvörðunum forsætisnefndarinnar
á götum úti í Jerevan, höfuðborg
Sovét-Armeníu, á þriðjudagskvöld.
í fréttum breska útvarpsins, BBC,
í gærkvöldi var sagt að hundruð
þúsunda manna hefðu safnast sam-
an í Jerevan í gærkvöldi og sam-
þykkt að halda verkföllum áfram.