Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 58
58
MORGUNBLAÐH) IÞROTTIR FTMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988
HANDKNATTLEIK / JÚGÓSLAVÍA
Isakovic og Cvetkovic
leika ekki með Júgóslövum
á Ólympíuleikunum
MILE Isakovic og Jovica
Cvetkovic, óiympiu- og
heimsmeistarar í handknatt-
leik, verða ekki í ólympíuliði
Júgóslava sem tekur þátt f
Ólympíuleikunum f Seoul í
september. Missæti kom upp
milli þeirra og júgóslavneska
handknattleikssambandsins
sem leiddi til þess að þeir
gáfu ekki kost á sér í ólympíu-
liðið. Þetta er mikil blóðtaka
fyrir heims- og ólympfumeist-
ara Júgóslava, þvf Isakovic
og Cvetkovic hafa verið f
fremstu röð handknattleiks-
manna heims udnanfarin ár.
Júgóslvar eru sem kunnugt
er f sama riðli og íslendingar
f Seoul.
Isakovic hafði gert tveggja ára
samning við spánska liðið Barc-
elona, en júgóslvaneska hand-
knattleikssambandið neitaði hon-
um um leyfí til að leika á Spáni.
Isakovic, sem er talinn einn besti
homamaður heims, sætti sig ekki
við þessa ákvörðun og sagðist
ekki gefa kost á sér í ólympíuliðið
af þeim sökum.
Sama var upp á teningnum hjá
Jovica Cvetkovic sem lék með
GWD Minden í 2. deild vestur-
þýsku deildarinnar á síðasta
keppnistímabili. Hann hafði gert
óformiegan samning við Gum-
mersbach en fékk ekki leyfi hjá
sambandinu til að leika þar eftir
Ólympíuleika. Hann neitaði því
að taka þátt í Ólympíuleikunum.
Cvetkovic er mikil skytta og var
m.a. markahæstur í vestur-þýsku
2. deildinni í vetur með 173 mörk.
Júgóslvar, sem hættu við þátttöku
í austur-þýska handknattleiks-
mótinu á dögunum, fóru til Japan
og léku þar fjóra landsleiki í
síðustu viku. Þeir unnu þrjá leiki,
en töpuðu einum, 25:29. Isakovic
og Cvetkovic fóru ekki með til
Japan og hefur austur-þýska sam-
bandið ákveðið að gefa þeim alfar-
ið frí frá landsliðinu.
Júgóslavar hafa valið 15 leikmenn
sem taka þátt í Ólympíuleikunum
í Seoul. Þeir eru:
Mile Isakovlc.
Markverðir:
Mirko Basic, Rolando PuBnik og Ermin
Wielic.
Aðrir leikmenn:
Irfan Smaliasic, Goran Perkovac, Vaselin
Vujovic, Istoc Puc, Veselin Vukovic,
Zlatko Portner, Zlatan Saracevic, Skobod-
an Kusmanowski, Momiier Rnic, Mo-
hamed Memic, Brokitsky og Holbreth.
Jovlca Cvotkovlc.
KNATTSPYRNA
FH-ingar
fá Víkinga
í heimsókn
EPSTA liðið í 2. deild, FH.fær
Víkinga í heimsókn á Kapla-
krikavöll í kvöld klukkan 20.00
í mjólkurbikarnum. FH-ingar
hafa átt mjög góða leiki í sum-
ar, hafa skorað mikið af mörk-
um og hafa ótvíræða forystu í
deildinni. Þá eru Víkingar að
koma til eftir afleita byrjun.
*
Ovíst er hvort Pálmi Jónsson,
markaskorarinn í liði FH, get-
ur leikið með í kvöld vegna meiðsla,
og þá er Janus Guðlaugsson einnig
meiddur. í Víkingsliðinu er Lárus
Guðmundsson frá vegna meiðsla í
öxl, sem hann hlaut í leik gegn ÍBK.
„FH-ingar eiga heima í 1. deild,
eins og þeir hafa leikið í sumar
þannig að við gerum okkur vel grein
fýrir því að leikurinn í kvöld verður
erfíður. Þetta verður hins vegar
opinn og fjörugur leikur," sagði
Guðmundur Hreiðarsson, mark-
vörður Víkinga.
Hörður Magnússon, í liði FH, sagði
að FH-ingar myndu að líkindum
stilla upp óbreyttu liði frá síðasta
leik. „Við ætlum okkur að komast
beina leið í úrslitin og draumaleik-
urinn er á móti Fram,“ sagði Hörð-
ur.
KORFUKNATTLEIKUR / DRENGJALANDSLIÐIÐ
Strákamir á
ferðinni í
herbrfreiðum
Morgunblaðið/Einar Falur
Jón Slgurðsson, þjálfari drengjalandsliðsins, sést hér með syni sínum, Sig-
urði, sem er leikmaður í íslenska drengjaliðinu.
GOLF
LEK-mót
íLeirunni
Landsamtök eldri kylfmga, sem
verða eins og eðlilegt má telja
Qölmennari með hveiju árinu, halda
á eigin vegum fjögur golfmót á
sumrinu. Það næsta verður haldið
á golfvelli Golfklúbbs Suðurnesja í
Leiru á laugardaginn og hefst það
kl. 9.30. Ræst verður út til kl. 13.
Þetta LEK-mót er jafnframt eitt
af svonefndum viðmiðunarmótum,
og felst í því, að árangur manna
þar vegur þungt í sambandi við val
í landslið LEK, sem keppir á Spáni
í lok september. Keppt verður bæði
með og án forgjafar og eins og í
J* fyrri LEK-mótum eru kylfingar á
aldursbilinu 50-55 ára velkomnir
með sem gestir.
■Á morgun verður opin hjóna- og
parakeppni hjá Golfklúbbi Suður-
nesja kl. 14. Keppt verður bæði
með og án forgjafar.
■JC-mótið fer fram á Svarf-
hólsvelli á Selfossi á laugardaginn.
Mótið er fyrir JC-félaga og gesti
þeirra.
DRENGJALANDSLIÐIÐ f körfu-
knattleik stóð sig vel f keppni
í Portúgal - vann landsliðið
Portúgal, sem varð sigurvegari
í mótinu.
Strákarnir léku vel gegn
Portúgölum og náðu þeir mjög
góðum kafla þegar staðan var,
10:14, fyrir Portúlga. Þá skoruðu
strákarnir tíu stig í röð og komust
yfir, 24:14. Staðan var svo, 37:27,
í leikhléi. Strákarnir héldu sínu
striki í seinni hálfleik - komust
yfir, 62:43, og unnu öruggan sigur,
75:62,“ sagði Jón Sigurðsson, þjálf-
ari liðsins.
Jón Arnar Ingvarsson var besti leik-
maðurinn á vellinum og skoraði 31
stig. Nökkvi Már Jónsson var einn-
ig góður - setti 18 stig. Þá léku
þeir Marel Guðlaugsson, átta stig,
og Eggert Garðarson, vel. Eggert
var mjög sterkur í vörninni og tók
mörk fráköst.
„Strákarnir léku síðan gegn portú-
galska meistaraliðinu Atletico, sem
var skipað eldri leikmönnum. Þeir
náðu sér aldrei á strik og máttu
þola tap, 54:57, eftir jafnan Ieik.
Atletico skoraði þrjú síðustu stig
leiksins, en Jón Amar var nær bú-
inn að jafna - knötturinn dansaði
á hringnum, en vildi ekki ofan í
körfuna, rétt fyrir leikslok,“ sagði
Jón.
Nökkvi Jónsson var besti leikmaður
íslenska liðsins. Hann setti 12 stig,
en Jón Arnar var stigahæstur, með
21 stig. Bergur Hinriksson og
Eggert Garðarsson léku einnig
ágætlega.
Landslið Portugal varð sigurvegari
í mótinu, Spánn varð í örðu sæti,
Island í þriðja og lið Atletico í fjórða.
Góðar móttökur
Jón sagði að íslenska liðið hafi feng-
ið góðar móttökur í Portúgal og
hefur liðinu verið boðið að koma
aftur til að taka þátt í móti. „Við
bjuggum við sérstakar aðstæður -
vomm keyrðir fram og til baka í
langferðabifreið frá portúgalska
hernum. Og dvöldum t.d. í æfinga-
búðum hersins, þannig að við vomm
í_ „ömggum höndum," sagði Jón.
Ástæðan fyrir þessi var að æðsti
maður hermála í Portugal, er form-
aður körfuknattleikssambands
landsins.
$
I
MJOLKURBIKARIIMN
8 liða úrslit
HÖRKULEIKUR
FH — VÍKIIMGUR
4 vj&J* *°°0
I'Ö*
0:1 tsv A*‘Ai
iuÆÍumaAiUisÍ tumUMÍIÍÍ
. I, 11)10
JloVÓiiB i'áílö (kJ -HIÖVJV
•i‘AS. I <13 .1. •.i/y-li.W.
via óéiáe iBaafHyi 008 mu