Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 60
upplýsingar um vörur og þjónustu. bi* ALLTAF , ‘ ' SOLARMEGIN FIMMTUDAGUR 21. JULI 1988 VERÐ I LAUSASOLU 70 KR. Kvóti á þorsk og ýsuaukinn Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að leyfa sölu á 550 tonn- um af þorski og ýsu úr gámum í Bretlandi í næstu viku en sl. föstudag höfðu aðeins verið veitt leyfi til sölu á 350 tonnum. „Vegna góðra söluhorfa var ákveðið að hækka kvótann," sagði Stefán Gunnlaugsson í ut- anríkisráðuneytinu í samtali við Morgunblaðið. Seld verða um 300 tonn úr skip- um í Bretlandi í næstu viku, að sögn Sveins H. Hjartarsonar hjá Landssambandi íslenskra útvegs- manna. í Bretlandi voru m.a. seld 118 tonn af þorski úr gámum sl. þriðjudag fyrir 93,58 króna meðal- verð og 93 tonn af ýsu fyrir 83,00 króna meðalverð. Umboðsmaður Alþingls: Tuttugu erindi hafa þegar borist Á NÆSTU dögum tekur til starfa skrifstofa umboðsmanns Alþing- is á Rauðarárstíg 27 í Reykjavík. Að sögn Gauks Jörundssonar, umboðsmanns Alþingis, hafa embættinu þegar borist 20 erindi auk fjölda fyrirspurna. Gaukur Jörundsson sagði að meðal þeirra erinda sem nú liggja fyrir séu mál er varða forræði bama, skattamál og ýmis atriði varðandi atvinnulöggjöf, svo sem leyfisveitingar og -sviptingar. Þetta geti orðið algeng viðfangsefni um- boðsmanns. Gaukur kvaðst telja æskilegt að erindi verði afgreitt innan hálfs árs frá því að það berst embættinu. Hver sá sem telur sig hafa verið órétti beittan af stjórnvaldi getur skotið máli sínu til umboðsmanns að uppfylltum vissum skilyrðum. Úrlausn umboðsmanns skuldbindur ekki stjórnvöld en þeim er skylt að veita umboðsmanni þær upplýsing- ar sem hann óskar eftir vegna meðferðar mála sem honum berast. Sjá frétt um umboðsmann Al- þingis á bls. 25. Morgunblaðið/Sverrir Fallhlíf dregin afhraðbáti Tómstundaiðja Islendinga verður sífellt fjölbreyttari. Ungir menn iðkuðu þann leik á Fossvogi eitt kvöldið í vikunni að svífa um í fallhlíf, sem dregin var af hraðbáti. Þessi íþrótt hefur verið vinsæl við erlendar baðstrendur og er að ryðja sér til rúms hér. Starfsmenn flugturnsins í Reykjavík gerðu athugasemdir þegar ungu mennirnir svifu við enda flugbrautarinnar en höfðu að öðru Ieyti ekkert við þessa iþróttaiðkan að athuga. Skýrsla um salm- onellasýkingar; Skipulags- leysi í ali- fuglarækt ÁSTAND mála á sviði alifugla- ræktar hér á landi er með þeim hætti í dag að salmonellumengun kjúklinga og annarra kjötvara getur átt sér stað á öllum sviðum framleiðslunnar. Aðstaða til fuglaeldis er mjög misjöfn og víða slæm. Þá er skipulegt heil- brigðis- og framleiðslueftirlit nánast ekkert og heilbrigðis- skoðun í sláturhúsum er ábóta- vant. Þetta kemur fram í skýrslu nefndar á vegum heilbrigðisráðu- neytisins, sem kannað hefur út- breiðslu salmonellasýkilsins, og leiðir til að koma í veg fyrir matar- sýkingar af völdum hans. I skýrslunni er einnig bent á að engar kröfur eru gerðar varðandi eftirlit við eldi alifugla hér á landi, en þar er hættan mest á sýkingu og mengun fuglanna. Nefndin telur að ríkt hafi skipulagsleysi í alifugla- rækt, sem byggist fýrst og fremst á töluverðu þekkingarleysi fram- leiðenda og neytenda, og ennfremur afskiptaleysi stjórnvalda. Nefndin bendir á ýmsar leiðir til úrbóta, og leggur ríka áherslu á að þegar verði hafnar aðgerðir til lagfæringa á því sem hún álítur vera í ólestri, og vekur sérstaka athygli á að setja þurfi ný lög um matvælaframleiðslu og eftirlit. Sjá ennfremur bls. 2 og 24. Flugráð gerir samþykkt um varaflugvöll á Egilsstöðum Stórar vélar geti einnig lent á Akureyri og Sauðárkróki FLUGRAÐ hefur gert samþykkt um varaflugvöll á Egilsstöðum fyrir millilandaflug en leggur jafnframt til að lokið verði við endurbætur á Akureyrarflug- velli næsta sumar. Þannig er 2.000 metra langri flugbraut á Akureyri ætlað að brúa bilið uns Staðgreiðsla ekki reiknuð af hlunnindum í 66% tilvika Viðamikil könnun um allt land á döfinni EMBÆTTI skattrannsóknarstjóra hefur lokið við könnun á stað- greiðsluskilum 80 fyrirtækja á Reykjavíkursvæðinu. I Ijós kom að í 52 fyrirtækjum eða 66% tilvika reiknuðu fyrirtækin ekki stað- greiðslu af hlunnindum, til dæmis bílastyrk, eins og kveðið er á um í nýju skattalögunum. Könnunin var gerð í júnímánuði síðast- liðnum. Guðmundur Guðbjarnason skattrannsóknarstjóri segir í sam- tali við Morgunblaðið að tvennt hafi einkennt niðurstöður þessar- ar könnunar auk framangreinds. „I ljós kom að launagreiðendur virðast almennt ekki hafa gert sér grein fyrir þeim áhrifum sem nýju lögin hafa á nákvæmari færslur í launabókhaldi. Hinsvegar reikn- uðu allir staðgreiðslu af venjuleg- um launum, það er fyrir dag- og næturvinnu,“ segir hann. í aðeins einu tilviki af 80 reynd- ist fyrirtæki ekki hafa staðið skil á staðgreiðslunni til ríkissjóðs, en sem fyrr segir var mikill brestur á að þeim ákvæðum um stað- greiðslu af hlunnindum sem lögin gera ráð fyrir væri fylgt. Fyrirtækin 80 sem mynduðu úrtak könnunarinnar voru það sem Guðmundur kallar af eðli- legri stærð fyrir höfuðborgina, með allt að 30 starfsmenn hvert. Á næstunni mun embætti skatt- rannsóknarstjóra gera aðra könn- un svipaða þessari en mun viða- meiri og mun úrtakið í henni ná til alls landsins. Aðspurður um hvað embættið gerði í tilvikum þar sem ekki er um að ræða staðgreiðslu skatta af hlunnindum sagði Guðmundur að fyrst væri mönnum gefínn kostur á að leiðrétta mistök sín. Ef þeir gerðu slíkt ekki færi stað- greiðslan í vanskil og því fylgdu sektar- og dráttarvaxtagreiðslur. hægt verður að taka 2.400 metra braut á Egilsstöðum í notkun 1991. Samþykkt um þetta var gerð á flugráðsfundi í fyrradag og send samgönguráðuneytinu. Að sögn formanns ráðsins, Leifs Magnús- sonar, er gert ráð fyrir 2.400 metra langri flugbraut á Egilsstöðum sem gagnast mun þegar veðurskilyrði á Keflavíkurflugvelli hamla lendingu þar. Leifur segir vaxandi notkun tveggja hreyfla þotna gera aúknar kröfur til varaflugvalla. Þijú flugfé- lög í áætlunarflugi til og frá landinu, það er Arnarflug, Luft- hansa og SAS, noti nú eingöngu slíkar þotur og Flugleiðir stefni að hinu sama fyrir árslok 1991. Þegar er hafin vinna við 2.000 metra langa braut á Egilsstöðum og bætist 400 metrar við skapast lendingarskilyrði fyrir allar gerðir millilandaflugvéla sem nú eru í áætlunarflugi til og frá landinu. Talið er að kostnaður við lengingu brautarinnar um 400 metra sé kringum 100 milljónir króna. Segir Leifur Magnússon það til- lögu Flugráðs að þjóðvegurinn við Egilsstaði verði lagður yfir flug- brautina og honum lokað í þau fáu skipti sem nota þurfi síðustu 400 brautarmetrana í stað þess að flytja veginn suður fyrir brautarendann. Þá segir Leifur að þar sem ekki verði lokið við framkvæmdir á Eg- ilsstöðum fyrr en í fyrsta lagi 1991 leggi Flugráð til að Akureyrarflug- völlur brúi bilið. Lagfæringum sem hófust nú í sumar verði lokið á næsta sumri þannig að stórar flug- vélar geti lent þar. Felist lagfæring- arnar einkum í að breikka malbik- aðan hluta brautarinnar og bæta við svæði fyrir brautarenda svo að stórar vélar geti snúið við auk ör- yggisráðstafana. Flugráð telur að áfram skuli stefnt að endurbótum á flugvellin- um á Sauðárkróki í samræmi við flugmálaáætlun svo að stórar vélar geti einnig lent þar. Þannig verði í framtíðinni 2.000 metra langar flugbrautir á Akureyri og Sauðár- króki, en fyrst verði reynt að beina vélum sem ekki geta lent á Keflavíkurflugvelli til Egilsstaða. Matthías Á. Mathiesen, sam- gönguráðherra, segir að sér hafi borist samþykkt Flugráðs í gærdag en ekki hafi verið fjallað um hana í ráðuneytinu. Hann muni leggja samþykktina fram á ríkisstjómar- fundi næstkomandi þriðjudag og ríkisstjórnin móti stefnu í varaflug- vallarmálinu á næstu vikum eða mánuðum. Sjá ennfremur bls.4.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.