Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988 Steinblinda í glerhúsi eftirdr. Gunnlaug Þórðarson Þann 23. september 1986 birtist hér í blaðinu grein eftir mig út af umdeildri embættisveitingu og fór- ust mér þá m.a. svo orð: „Það er vissulega kostur við okkar lýðræðisskipulag að pólitískur ráðherra skuli veita embætti á eigin ábyrgð og ekki öðru vísi. Hörmulegt væri til þess að hugsa, ef t.d. heimarikir starfsmenn ættu að hafa eitthvað um slíkt að segja. Það hefur sýnt sig í skólakerfinu að stundum vegur þyngst hjá umsagnaraðil- um að vilja fá milt yfirvald.“ Þessi orð eiga vel við nú í dag, þegar menntamálaráðherra Birgir Isleifur Gunnarsson hefur kveikt í „Melamóðunni" með því að skipa mann öðrum umsækjendum mennt- aðri í lektorsstöðu við Háskóla ís- lands. Viðbrögð nokkurra háskóla- manna með rektor í broddi fylking- ar sýna hve háskólamenn okkar margir hveijir líta stórum augum á sjálfa sig og sína menntastofnun líkt og hér væri um einhvem merki- legasta háskóla að ræða í heiminum og kennaraliðið eftir því. Nú er svo komið, að þar munu kennarar nánast hækka í stöðum og verða að lokum prófessorar að mestu vegna kerfís, en ekki að sama skapi verðleika og hugsanlega geta menn í framtíð unnvörpum orðið prófessorar án þess að vera doktor- ar eða með sambærilega menntun. Þá virðist sem menntaframi við erlenda háskóla sé að litlu metinn. E.t.v. stafar þetta af því hve allt sækir í það horfíð að gerðar eru minni kröfur til þess að menn stand- ist próf en áður fyrr. Þá er hitt jafn kunnugt að t.d. doktorsgráður eru mjög mismunandi að verðleik- um eftir því við hvaða háskóla dokt- orsgráða er tekin. í flestum háskól- um er krafíst hæfnisprófs til þess síðar að fá að veija doktorsritgerð við háskólann. Slíku er ekki til að dreifa í Háskóla íslands, þar leggja menn inn sína ritgerð eða ritgerðir og síðan er það sérstök dómnefnd, sem fallar um það hvort ritgerð sé hæf eða ekki. Hjá okkur er hættara við að niðurstaða slíkra dómnefndar verði mörkuð duttlungum dóm- nefndarmannanna; enda er það svo að sumir, sem samið hafa ágæt verk, hafa orðið að leita á náðir annarra háskóla til þess að fá að veija ritgerð, sem ekki hefur þótt hæf hér. Óheiðarleg vinnubrögð I Háskóla íslands Alvarlegasta dæmi seinni tíma um vafasöm og hlutdræg vinnu- brögð að þessu leyti er, þegar Eirík- ur Jonsson kennari lagði fram til doktorsvamar rit sitt „Rætur ís- landsklukkunar", en hann óskaði eftir að skipuð yrði önnur nefnd þar sem hann hann hafði ástæðu til að efast um heilindi bókmenntafræð- inganna, sem voru í nefndinni. Þeirri beiðni hans var synjað af Háskóla ÍSlands. Með grein í Skírni 1984 bls. 249-301: „Dómur í dags- yósi“ sýnir hann fram á óheilindi manna í mati sínu og voru um- mæli þeirra sem gerðu verkið óhæft til doktorsvamar síðar dæmd dauð og ómerk í Hæstarétti, Hrd-safn 1985, bls. 1148, mál nr. 99/1984. I máli því, sem hér um ræðir, skipun dr. Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, hefur sagan óþyrmi- lega endurtekið sig. Lögmaður dr. Hannesar Hólmsteins óskaði eftir því, að ný dómnenfd yrði skipuð af því að hann taldi hætt við að hún fengi ekki litið hlutlaust á málið. Krafa þessi var sett fram áður en dómnefndin hafði skilað áliti. Háskólinn synjaði þessum til- mælum. Vissulega hefði stjóm Há- skóla Islands átt að verða við óskun- um í báðum tilfellum, enda þótt það hafí e.t.v. ekki verið skylt að lögum. í svona málum ætti Háskóli íslands að gera allt til þess að fyrirbyggja að minnstu grunsemdir kæmu fram um óheilindi dómnefndarmanna. Að fenginni áðumefndri dóms- niðurstöðu í Hæstarétti hefði heim- spekideild Háskólans að sjálfsögðu átt að sjá sóma sinn í því að bjóða Eiríki Jonssyni að veija þetta merka ransóknarverk til doktorsnafnbótar við Háskólann, þannig að þessi róg- ur, sem nálgaðist atvinnuróg, fengi viðeigandi meðferð Engin úlfaþytur 1968 við svipaða afstöðu ráðherra Fleiri dæmi mætti nefna um „óskeilulleika" margra háskóla- manna okkar, en skal þó ekki gert að sinni. Þó má ekki gleyma því atviki, er einn mikilvirtasti starfs- maður háskólans, deildarforseti og síðar rektor, tók doktor tali, sem hafði nýlokið við doktorsvöm við einn viðurkenndasta háskóla heims með ágætiseinkunn, með þeim orð- um, að hann hefði lesið doktorsrit- gerðina lauslega yfír, en hann gæti ekki verið á sömu skoðun og þar kæmu fram. Tíu árum síðar viður- kenndi þessi sami maður, að senni- lega hefði það óbeint ráðið skoðun hans, að ritgerðin gekk í berhögg við stefnu ríkisstjómarinnar í því máli, sem ritgerðin snerist um. Hanh sagðist sem háskólamaður ætíð hafa viljað vera „loyal" (hús- bóndahollur) hverri ríkisstjóm. Þannig að annarlegustu atriði geta haft áhrif á skoðanir manna jafnvel á slíkum verkum. Þetta er algjörlega andstæð af- staða ábyrgs háskólamanns jafnvel um of og þeirri, sem núverandi for- svarsmenn háskólans hafa tekið, er rektor hans hefur hótað mennta- málaráðherra málssókn út af þýð- ingarlítilli lektorsstöðuveitingu og er sú afstaða með fádæmum öfga- full miðað við það, er t.d. árið 1968 að sá mikilsmetni menntamálaráð- herra dr. Gylfí Þ. Gíslason lék svip- aðan leik, sem lítillega verður vikið að hér á eftir. En rétt hefur mér þótt að minna á þessi atvik, þar sem ágætt dokt- orsefni var hrakið frá Háskóla ís- lands með lævíslegum vinnubrögð- um og maður fær ekki varist þeirri hugsun, eftir að hafa fylgst með málum í blöðum að sömu vinnu- brögð séu aftur höfð í frammi, en nú vegna skipunar dr. Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar í lektors- stöðu við Háskóla íslands. Koma átti í veg fyrir skipun doktors Það fær ekki dulist neinum heil- vita manni, að af hálfu forsvars- manna félagsvísindadeildar hafí allt verið gert til þess að reyna að koma í veg fyrir að menntamálaráðherra, Dr. Gunnlaugur Þórðarson „Fræðimenn o g kenn arar hafa tækifæri til þess að hafa áhrif á gang mikilvægustu fé- lagsmála með tvennum hætti: annars vegar beinlínis með athöfnum sínum og hins vegar óbeinlínis með því að mennta þá sem vilja breyta heiminum. Starfsemi af þessu tagi rýfur löggenga at- burðarás blindrar sögu- legrar framvindu og á það skilið að kallast „sköpun sögunnar“ eða einfaldlega „virk starf- semi“; praxis.“ Birgir ísleifur Gunnarsson, gæti með sóma og réttú skipað hann í umrædda stöðu. Kunnur vísindamaður, sem er í andstæðingahópi menntamálaráð- herrans, lét þau orð falla um skil- greiningu á skilyrðum fyrir skipun í stöðuna hjá dómnefndinni að þar hefði aðeins vantað skóstærðina, því svo væri lýsingin nákvæmlega sniðin fyrir þann mann, sem þeir vildu að fengi stöðuna. Þetta er bjamargreiði við umsækjandann og án efa ekki með hans vilja gert. Það var tvímælalaust sannfæring þeirra, sem útbjuggu auglýsinguna um stöðuna, að með því að setja ákvæði um að umsækjandinn skyldi „vera hæfur til að annast kennslu í undirstöðugreinum stjómmála- fræði,“ hafi þeir hengt bjölluna á köttinn. Þeir hafí talið að með þessu skilyrði hefði Hannes Hólmsteinn enga möguleika á að fá stöðuna, því hann hefði ekki próf í því fagi, þótt hann væri doktor í stjóm- málafræði, „politics“. Þannig hefur það greinilega verið ætlun þeirra að binda fyrirfram hendur dóm- nefndarmanna. Dr. Hannes Hólmsteinn hefur aftur á móti talið sig fullnægja skilyrðunum þar sem hann væri doktor í faginu og auk þess verið ömggur með að fullnægja einu af þremur skilyrðum, sem sett voru aukalega og því gat hann lýst sig ánægðan með skilyrðin. Honum hefur ekki dottið í hug að sú nauma afstaða gæti komið upp að gerður yrði t.d. greinarmun- ur á stjómmálafræði og stjóm- málaheimspeki. Mér þykir trúlegt að flestum þyki í því efni skeggið íuémR Evrópumeist- aramóMhóri álandi1990 Listi yfir taunatekjur NBA-teikmanna birtur f fyrsta skipti: Pétur Guðmundsson með 7y4 milljónjr á ári pfiuSstftMtt EBLSj5 m m [■ ■ - - ■— --- Veiði, bílar, hreysti og þáttur um hesta. Auglýsingar í íþróttablaðið þurfa að hafa borist auglýsingadeild fyrir kl. 16.00. á föstudögum. t( °v ImmdHiiMð bmö allra landsmanna skylt hökunni, þannig að það væri nánast hártogun að greina þama á milli og í raun réttri mjög hæpið að gera slíka aðgreiningu, en hún var samt gerð. Má í þessu sam- bandi vitna til margra álíka fjar- stæðna á skólakerfí okkar, að mað- ur með doktors- eða meistaragráðu t.d. í stærðfræði geti ekki kennt byijendum í faginu og yrði ef á reyndi að víkja fyrir manni við kennslu í gmnnskólum, sem hefði t.d. aðeins þá menntun í stærð- fræði, sem menn fá í kennaraskóla. Mat dómnefndarinnar er og ann- arlegt, er ritgerð til háskólaprófs í sögu er metin sem grundvöllur að umsögn í stjórnmálafræði. Auðvitað hljóta menn að nálgast efnið með all mismunandi móti eftir því um hvort fagið er að ræða. I þessu máli er greinilega maðk- ur í mysunni. Ekki fær umvillst að þama er klíkuskapur á ferð, sem ekki má nafngreina. Að öllu athug- uðu er ljóst að menntamálaráðherra hefur tekið rétta afstöðu í málinu. Hins vegar var það mjög misráðið hjá rektor Háskóla íslands að bera brigður á upplýsingar menntamála- ráðuneytisins um málið og ruglar dr. Gylfa Þ. Gíslason í ríminu um löngu liðin atvik. Frásagnir, sem stangast á í Morgunblaðinu 14. þ.m. stang- ast frásagnir um atburðina á um það, sem átti sér stað 1968 er Ámi Böðvarsson fékk dósentsstöðu við heimspekideild Háskóla íslands fyr- ir tilverknað dr. Gylfa Þ. Gíslasonar enda þótt heimspekideild Háskóla íslands teldi hann óhæfan. Fyrir óbreyttan lesanda er án efa erfítt að átta sig á því hvað sé rétt. Þvf er nauðsynlegt að rekja það lítil- lega. Þar segir réttilega: „Ráð- herra (dr. Gylfi Þ. Gíslason) setti dósent sem deildin taldi óhæfan (Áma Böðvarsson). Synilega hefur dr. Gylfí Þ. hugsað sér að veita Áma Böðvarssyni stöðu, sem hann hafði ákveðið að stofna en talið vafasamt að hann fengist sam- þykktur og því ákveðið að setja hann f starfíð og talið dómnefnd því ekki eiga að fjalla um málið sem þó var lögbundið. Heimspekideildin fól þeim dr. Halldóri Halldórssyni, dr. Hreini Benediktssyni og Helga Guðmundssyni að meta hæfni Áma Böðvarssonar og töldu þeir hann allir óhæfan. Dr. Gylfi Þ. Gfslason veitti Áma Böðvarssyni engu að síður dósentsembætti gegn umsögn heimspekideildar. Dósentsstaðan er stærri staða en lektors. í allri ráðherratíð Gylfa Þ. Gfsla- sonar vom lektorsstöður veittar án þess að dómnefndir væru skipaðar til umsagnar. Þannig var það alls ekki lög- bundið að skipa dómnefnd varðandi lektorsstöðu þá, sem Hannes Hólm- steinn var skipaður í, það er ekki fyrr en með reglugerð, sem gekk í gildi á þessu sumri. Greinilegt var að þegar heim- spekideild hafði árið 1968 snúist gegn menntamálaráðherra, að ráð- herra leit á umsögnina sem væri hún dómnefndar og viðbrögð hans vom þau, að það þyrfti að taka þessi mál til endurskoðunar. Hér er um samskonar nefndir að ræða og hvomg lögbundin. í tilviki dr. Hannesar Hólmsteins var hann tal- inn óhæfur að hluta vegna hártog- unar þeirra um skilgreiningu á orð- inu „politics". í seinna tilvikinu var umsækjandinn talinn með öllu óhæfur. Það er því misskilningur hjá dr. Gylfa Þ. Gíslasyi er hann lætur hafa eftir sér.f Morgunblaðinu eftir- farandi: „f þau 15 ár sem ég gegndi starfi menntamálaráð- herra eða 1956-’71 skipaði ég aldrei í fullt starf við Háskólann nema samkvæmt meðmælum hlutaðeigandi deilda." Það er e.t.v. skiljanlegt hjá honum að vilja svona eftir á færa þetta til betri vegar og vilja ekki muna að þetta var samt dósentsstaða, hvort sem hún taldist „fullt starf" eða ekki. Reyndar er mér óljóst hvað margir klukkutímar háskólakennari þurfí að kenna til þess að starf teljist fullt, ég hef fyrir satt að sumir telj- ist í fullu starfí þótt þeir kenni ekki nema ejö.klst,. .á viku., ..
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.