Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988 Skutlan er eins og sniðin fyrir nútímafólk. Hún er sparneytin, 5 manna og sérlega léttog lipurí um- ferðinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Það tryggir 1. flokks þjónustu, sem er rómuð af öllum sem til þekkja. * LANCIA SKUTLA kostar kr. 356 þús.kr. stgr. Útborgun kr. 89.000 eftirstöðvar greiðast á 30 mánuðum, kr. 11.251 pr. mánuð að viðbættum verðbótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu er ekki innifalinn.___________ (Gengisskr. 23.6.88) Ef svo er þá getur þú eignast splunkunýja LANCIA SKTJTLU! BILABORG HF. FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99 Opið laugardaga frá kl. 1 - 5. Höfundur er fyrrverandi skóla- stjóri Bændaskólans á Hvanneyri G. J. FOSSBERG VÉLAVERZLUN HF. Skúlagötu 63 - Reykjavlk Slmi 18560 JÁRNSAGIR fyrir prófíla, rör, vinkla, flatjárn og massíft stál. Einfasa 220V 10A. Þvermál skurðarskífu 355 mm. Snúningshraði 3500sn/mín. Skurðarþvermál 110 mm. Þyngd 17,2 kg. Hópurinn fyrir framan Norræna húsið við brottför 8. júlí s.l. Morgunblaðið/KGA Norræni búnaðarskólinn í Danmörku í Islandsf ör Mátt þú sjá af 369 krónum á dag?* eftir Guðmund Jónsson Einn af bestu og fjölmennustu búnaðarskólum i Danmörku er á Fjóni og ber nafnið „Nordisk landboskole". Skólinn var stofn- aður 1908 af smábændum á Fjóni og bar þá nafnið „Fyns Stifts Husmandsskol“, en 1963 var breytt um kennslu í skólanum, en þá tóku við skólastjórn Frits og Inga Teichert og hafa setið skólann síðan af mikilli rausn og framfarahug. Nafnið „nordisk" er beint að þeirri hugmynd að náið samband yrði haft við aðra búnaðarskóla í norðlægum löndum. Hefur slíkt samband komist á einkum fyrir atbeina fyrrnefndra skólastjóra- hjóna. _ Frá íslandi hafa verið sendir all- margir nemendur í þennan skóla í fyrstu aðallega frá Hvanneyri og þeim tekið þar af mikilli velvild og þeir búið þar við sérstaklega góð kjör fjárhagslega. Aðalstjóm skólans er að sjálf- sögðu skipuð dönskum aðilum, en auk þess er einn stjómarnefndar- maður frá hveiju Norðurlandanna fjögurra. Auk venjulegs búnaðarnáms og margskonar námskeiða fyrir inn- lenda og erlenda nemendur er í skólanum sérstök framhaldsdeild, sem Frits Teichert er upphafsmaður að í Danmörku. Námið þar tekur 23 mánuði og inntökuskilyrði em m.a. búfræðipróf. Lokapróf frá þeirri deild er kallað LD-próf og er tæknipróf í búfræði. Nokkrir íslend- ingar hafa lokið því prófi og er það einskonar milliliður á milli búnaðar- skóla- og búnaðarháskólaprófs. Nemendur og kennarar frá fyrr- nefndri deild skólans hafa tvisvar komið í námsför til íslands, 1984 og nú í sumar. Stóð sú för yfir í 9 daga og vom fararstjórar undirrit- aður og Magnús Óskarsson kennari á Hvanneyri. Farin var hringferð um landið. Mætti hópurinn þar alls staðar mikilli gestrisni, svo og fræðslu um landbúnaðarmál hér og náttúm landsins. Helstu staðir sem komið var til auk gististaða vom þessi: Búnaðar- félag íslands, Þingvellir, Garðyrkju- skóli ríkisins, Landgræðslan í Gunnarsholti, stórbýlið Þorvalds- eyri, Búnaðarsamband Suðurlands við Skógarfoss og í Skógum, Bún- aðarsamand A-Skaftfellinga í Nesjaskóla, Búnaðarsamband Aust- urlands í Hallormsstaðarskógi og tilraunastöðinni í Skriðuklaustri, Búnaðarsamband S-Þingeyinga við Mývatn og Dettifoss, Búnaðarsam- band Eyjaíjarðar, Ræktunarfélag Norðurlands, Búnaðarfélag Hrafnagilshrepps, stórbýlið Hríshóll í Saurbæjarhreppi og Listigarður- inn a'Akureyri. Frá Akureyri var haldið til Hóla í Hjaltadal, staðurinn skoðaður, dvalið þar í tvær nætur. Þaðan var heimsókn til Búnaðarsambands Skagfirðinga með viðkomu í Glaumbæ, Varmahlíð, Saumastof- unni Vöku og myndarbúinu á Syðra-Skörðugili. Frá Hólum var farið til Hvanneyrar, komið við hjá Landsvirkjun við Blönduvirkjun, og á stórbýlunum Stóm-Giljá og Torfa- læk. Segja má að ferðinni væri lokið á Hvanneyri með skoðun staðarins. Þar luku nemendur norræna skól- ans að skrifa um ferð sína. Jón Helgason landbúnaðarráðherra kom þangað og flutti erindi um íslenskan landbúnað og svaraði fyr- irspumum hinna dönsku gesta. Á eftir héldu þeir veislu þar á staðn- um, þar sem ráðherra var boðið og þeim er til náðist og höfðu haft samband við norræna búnaðarskól- ann á einhvern hátt. Gjafir vom gefnar á Hvanneyri og svo höfðu dönsku gestimir ávallt gert þar sem þeir komu og nutu veitinga eða fræðslu. Jón Helgason ráðherra þakkaði norræna skólan- um fyrir komuna hingað til lands og þær móttökur sem skólinn ávallt hafði veitt íslenskum nemendum og öðmm íslendingum er þangað hafa komið. Veður var mjög gott á þessari hringferð um landið, góður bíll og ágætur bílstjóri, hvort tveggja frá Sæmundi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.