Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988
Landsfundur demókrata í Atlanta:
Bush hæddur eftir að
Kennedy gaf tóninn
Carter segir Dukakis þurfa að beita sér fyrir öflugum vömum
Atlanta, Daily Telegraph, Worldnet og Reuter.
Reuter
í Bandaríkjunum tíðkast það ekki að fara dult með pólitíska sannfær-
ingn sína og síst á landsfundum flokkanna. Þessar dömur, sem hér
má sjá, eru engar undantekningar, en til vinstri er Marilyn Stewart
frá Burke i Virginíu og til hægri er Mary Jane Stakes frá Cumber-
Fjögurra ára gömul stúlka, sem
verið hafði á valdi mannræningja
í sex vikur, fannst á mánudag í
kirkju einni f bænum Elk Grove
í Kalifomíu í Bandaríkjunum.
Lögreglumenn fundu litlu stúlk-
una í hólfí undir altari kirkjunnar
eftir að ræninginn, sem reyndist
vera starfsmaður kirkjunnar,
hafði verið handtekinn fyrir annað
rán á lítilli stúlku, sem fannst
kefluð í farangursgeymslu bifreið-
ar hans. Hólfíð undir altarinu er
aðeins rúmur einn og hálfur metri
í þvermál og kom ræninginn þar
fyrir sjónvarpi auk þess sem stúlk-
unni voru fengin leikföng og teppi.
„Hún var mjög undrandi að sjá
mig og spurði hvar ég hefði ver-
ið,“ sagði móðir hennar og kvaðst
aldrei hafa gefíð upp von um að
dóttir hennar fyndist á lífí.
KOSNINGABARÁTTA demó-
krata hefur verið að mótast und-
anfarna daga á landsfundi
demókrata í Atlanta og í gær
mátti segja að ljóst væri hveija
stefnu hún tæki. Það var öld-
ungadeildarþingmaðurinn Ed-
ward Kennedy sem virtist ráða
mestu um mótun hennar, en í
ræðu sinni rakti hann embættis-
færslu Bush og spurði í sífellu
„Hvar var George" og átti þar
við George Bush varaforseta og
forsetaframbjóðanda Repúblik-
anaflokksins. Fundarmenn voru
ekki seinir að gripa þessa setn-
ingu á lofti og áður en varði
svaraði mannfjöldinn Kennedy
einum rómi: „Hvar var George.“
Það bar til tíðinda í gær, að
Jimmy Carter fyrrverandi Banda-
ríkjaforseti hvatti leiðtoga flokks-
ins til þess að sofna ekki á verðin-
um í vamarmálum. Sagði hann
vonlaust að flokkurinn ynni í kom-
andi forsetakosningum nema
Bandaríkjamönnum væri ljóst að
demókratar styddu öflugar og ár-
angursvænlegar vamir. fviðtali hjá
sjónvarpsstöðinni Worldnet sagði
hann ennfremur að ekki kæmi ann-
að til greina en að Bandaríkjamenn
stæðu við vamarskuldbindingar
sínar í Evrópu, nema að samið
væri um fækkun herafla við Sov-
étríkin og þá yrðu Evrópubúar að
sjájfsögðu hafðir með í ráðum.
í ræðu sinni reifaði Kennedy
vopnasöluhneykslið, auk ýmis
vandræði önnur, sem stjóm Ron-
alds Reagans hefur ratað í og
spurði hvar George hefði verið.
Forsetaframbjóðandi demókrata,
Michael Dukakis fylgdi þessu eftir
og sagði: „Ef einhveijum undir-
manna minna í stjóminni dytti í
Iand í Maryland.
hug önnur eins vitleysa [og vopna-
söluhneykslið], þá vil ég hafa vara-
forseta sem getur vaðið inn í for-
setaskrifstofuna og sagt: „Herra
forseti, þetta fjarstæðukennd hug-
mynd.““
Repúblikanar ættu að fá næg
tækifæri til þess að svara demókr-
ötum á landsfundi sínum í næsta
mánuði og eru reyndar þegar fam-
ir að skjóta á andstæðinga sína.
Draga þeir flokkseiningu demó-
krata í efa og gefa í skyn að miðað
við kosningabaráttu demókrata
virðist þrír menn vera í framboði
til sama embættisins, þeir Dukakis,
varaforsetaefni hans Lloyd Bentsen
og blökkumannaleiðtoginn Jesse
Jackson.
Þá hefur kosningastjóri Bush
gert sér upp forundran vegna per-
sónuárása demókrata á sinn mann.
„Þeir eyða meiri tíma í að tala illa
um George Bush en þeir veija til
þess að segja fallega hluti um Mic-
hael Dukakis!"
Bush sagði sjálfur í viðtali að
hann hefði ekki miklar áhyggjur
af þessum kosningabrellum demó-
krata. „Ef demókratar vilja gera
mál úr vopnsaöluhneykslinu skal
ég taka á mig alla sökina. En þá
vil ég líka fá að njóta að minnsta
kosti helmings heiðursins af efna-
hagsástandinu, hinu lága atvinnu-
leysi, heimsfriðnum og þeim fjölda
hluta, sem við höfum komið á
þurrt.“
Keronskæruliðamir í austurhluta
landsins hafa lítið komið við sögu,
en stúdentar og verkamenn sem
ekki hafí haft afskipti af stjóm-
málum hafí nú látið til skarar
skríða. Hafí verið efnt til fjölda-
gangna og mótmælafunda í
Rangoon og stjómvöldum hafí
ekki tekist að hafa hemil á fólk-
inu, fyrr en hermenn voru kvadd-
ir til og beittu þeir valdi til að
dreifa fólkinu. Talið er að allmarg-
ir hafí særst og nokkrir hafí verið
skotnir. Einnig hefur komið til
átaka í bænum Taunggyi og þar
voru einnig nokkrir skotnir til
bana.
Heimildir segja, að óánægja
fólks eigi sér ekki aðeins rætur í
ófrelsi og höftum, heldur hafí
einnig verið hækkað verð á nauð-
synlegustu matvöru upp á síðkas-
tið, laun fryst og stúdentum vísað
frá námi við Rangoon-háskóla ef
þeir þóttu sýna andstöðu gagn-
vart stjómvöldum. Margir stúd-
enta voru einnig handteknir, en
síðar neyddust stjórnvöld til að
sleppa þeim úr haldi og hétu því
að þeir fengju að halda áfram
námi.
í Reuter-skeyti í gær er haft
eftir ónefndum íbúa í Rangoon,
að menn bindi nokkrar vonir við
aukafund Sósíalistaflokksins.
Fæstir trúi því að nokkrar vera-
legar umbætur verði gerðar í
efnahagslífi né á öðram sviðum,
fyrr en Ne Win hefur verið komið
frá völdum, með illu eða góðu.
Þó svo að það sé greinilegt að
hann eigi nú við meiri erfíðleika
að etja en nokkra sinni á ferli
sínum, bendi ekkert til þess að
herinn né helstu valdastofnanir
aðrar hugsi sér að snúa við honum
bakinu.
Samantekt:j.k.
Stjórn Búrma í vanda:
Stj ómarflokkurínn boðar til
skyndifundar á laugardag
TALSMAÐUR Burmastjórnar
kunngerði í gær, að efnahags-
stefna landsins yrði tekin til
gagngerðrar endurskoðunar á
aukafundi Sósíalistaflokksins,
BSPP, sem hefst á laugardag-
inn. Um 1300 fulltrúar sitja
fundinn. Þetta kemur í kjölfar
afsagnar innanríkis-og trú-
málaráðherra Iandsins á mánu-
dag og blóðugustu óeirða sem
hafa orðið í landinu frá valda-
töku Ne Wins, hæstráðanda
árið 1962.
Sendiráðunautar I höfuð-
borginni Rangoon segja, að Ne
Win kunni að taka inn í stjórn-
ina yngri menn, og ekki sé úti-
lokað að hann muni fallast á
að segja af sér formennsku og
taka við valdalausri virðingar-
stöðu innan stjórnarinnar.
Þegar Ne Win tók völdin 1962
voru stjórnarandstöðuflokkar
bannaðir, fyrirtæki þjóðnýtt í
stóram stíl og landinu var nánast
lokað umheimi. Erlendir blaða-
menn era illa séðir í Búrma og
verða flestir að fara inn í landið
undir fölsku flaggi. Skrifí þeir um
ástandið fá þeir ekki vegabréfsá-
ritun þangað aftur. Almennt er
fréttafíutningur frá Búrma af
mjög skomum skammti og helst
að vestrænír sendiráðsstarfsmenn
Götumynd frá Rangoon
leki fréttum um atburði í landinu.
Undanfarin ár hafa lífskjör
rýmað og íbúar landsins, 38 millj-
ónir, era orðnir langþreyttir á
gylliboðum og loforðum, sem
stjómin gefur öðra hveiju, en
stendur sjaldnast við. Gjaldmiðill
landsins, kyat, er skráður á 6.5
gagnvart Bandaríkjadollar en
selst fyrir 40 kyat á svarta mark-
aðnum.
Sérfræðingar segja, að óeirð-
imar í Rangoon og víðar í landinu
síðustu daga og vikur séu meðal
annars sérstæðar fyrir þá sök, að