Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988
+
Fríhöfnin í Leifs-
stöð þriðja ódýrust
FRÍHÖFNIN í Leifsstöð reyndist
vera með þriðja lægsta meðal-
verð í könnun sænska fyrirtækis-
ins Generation AB á verði í
fríhöfnum 25 flugvalla. Könnun-
in leiðir ennfremur í ljós, að
Schipol-flugvöllur í Amsterdam
er ekki lengur sá ódýrasti í toll-
fijálsum vörum, heldur er það
flugvöllurinn i Varsjá. Frá þessu
var skýrt í norska blaðinu Dag-
ens Næringsliv fyrir skömmu.
Á eftir flugvellinum í Varsjá
koma Aþena, Leifsstöð og Luxem-
borg, en Schipol-flugvöllur er í
fímmta sæti. Sé aðeins tekið mið
af verði á áfengi er flugvöllurinn í
Varsjá enn með lægsta meðalverð,
Luxemborg er í 2. sæti, Madrid í
3. sæti, Schipol í Amsterdam í 4.
sæti og Leifsstöð í fimmta. Á flug-
vellinum í Aþenu er lægsta meðal-
verð á ilmvatni og snyrtivörum,
flugvöllurinn í Varsjá er í 2. sæti
og Leifsstöð í 3. sæti. Á þeim lista
nær Schipol-völlur aðeins 10. sæti.
„Ég er mjög ánægður með þessa
útkomu og það er sigur út af fyrir
sig að vera með lægra verð en
Schipol," sagði Guðmundur Karl
Jónsson, forstjóri fríhafnarverslun-
arinnar í Leifsstöð. Hann kvað
flesta íslenska ferðalanga gera sér
grein fyrir að fríhöfnin væri ódýr-
ari en aðrar slíkar verslanir á Norð-
urlöndum, en flestir teldu þó Schip-
ol-verslunina ódýrari. „Þessi góða
útkoma okkar kemur mér ekki á
óvart, við höfum alla tíð verið í
lægri kantinum og svo reikna ég
með að þessi könnun hafí verið
gerð þegar dollarinn var í lægð.
Þá höfum við haft þá reglu að
hækka ekki verð á áfengi og tóbaki
nema einu sinni á ári, svo verðlistar
okkar verði ekki úreltir. Það ber
þó að hafa í huga að fríhafnarversl-
unin er í raun skattheimta fyrir
ríkissjóð og því verðum við að reyna
að ná sem mestum hagnaði," sagði
Guðmundur Karl.
I könnun þessari kom einnig fram
að mjög misjafnt vöruúrval er í
fríhöfnum. Þannig voru til dæmis
aðeins 34 tegundir ilmvatns og
snyrtivara á flugvellinum í Aþenu,
sem var með lægsta meðalverðið,
en í fríhöfninni í Leifsstöð, sem var
í þriðja sæti þess lista, reyndist
vera 581 tegund.
Morgunblaðið/KGA
Sölvi Már Sveinsson, einn af 17 starfsmönnum
Kröfluvirkjunar, sandblæs borholutopp. í baksýn
er bormastur Dofra.
Jarðbor settur
upp við Kröflu
Reykjahlíð. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgun-
blaðsins.
UNDIRBÚNINGUR að borun nýrrar holu við
Kröfluvirkjun, númer 24, er nú langt kominn og
hefur jarðbornum Dofra verið stillt upp á bor-
staðnum. Að sögn Birkis Fanndals Haraldssonar,
yfirvélstjóra við Kröfluvirkjun, er tilgangurinn
með borununum að tryggja virkjuninni næga
gufu og einnig að fá upplýsingar um ástand jarð-
hitans á svæðinu. Ekki hefur verið boruð ný hola
við Kröflu síðan haustið 1983.
„Hér hefur ekki verið verulegur gufuskortur, en
lítil umframgufa og sumar holurnar hafa rýrnað með
árunum,“ sagði Birkir. Dofri hefur undanfarið verið
notaður til að hreinsa gamla holu, en borinn hafði
verið verkefnalaus í 2 ár. Nýlega gerðu Jarðboranir
hf. samning við Landsvirkjun um að borinn verði stað-
settur við Kröflu á næstunni. Bormenn luku fyrr í
vikunni við að stilla bomum upp, en fara nú í sumar-
leyfi og byija síðan að bora 10. ágúst.
Að sögn Hinriks Áma Bóassonar, vélstjóra við
Kröflu og formanns Almannavama í Mývatnssveit,
var ákveðið að reisa borinn þrátt fyrir ókyrrðina á
svæðinu. „Við fáum þá bara lið til að kippa honum
niður ef hér fer að skjálfa að ráði,“ sagði hann.
I/EÐURHORFUR í DAG, 21. JÚLÍ 1988
YFIRLIT í GÆR: [ dag verður suðaustlæg átt á landinu, gola eða
kaldi. Skýjað verður um sunnan- og vestanvert landið. Þokuloft við
norövestur- og austurströndina en léttskýjað Norðaustanlands.
Hiti verður á bilinu 8—16 stig.
SPÁ: Um 400 km suðvestur af Reykjanesi er nærri kyrrstæð 990
mb lægð. Við norðaustur Grænland er 1020 mb hæð. Hiti breytist
lítið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suöaustlæg átt. Skúrir á Suður- og Vest-
urlandi. Þokuloft viö austurströndina en víða léttskýjaö norðan-
lands. Fremur hlýtt í veðri.
HORFUR Á LAUGARDAG: Austanátt, skúrir við suðurströndina,
þokuloft austanlands og við norðurströndina en þurrt og sums
staðar léttskýjað vestanlands og í innsveitum fyrir noröan. Áfram
fremur hlýtt.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
/, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
■j o Hitastig:
10 gráður á Celsius
y Skúrir
*
V
Él
= Þoka
= Þokumóða
* r *
* / * Slydda
r * r
* * *
* * * Snjókoma
’ , ’ Súld
OO Mistur
—l~ Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri 9 alskýjaS
Reykjavfk 10 súld
Ðergen 14 skýjað
Helsinki 21 léttskýjað
Kaupmannah. 15 skýjað
Narssarssuaq 8 skýjað
Nuuk 6 alskýjað
Ósló 9 rignlng
Stokkhólmur 17 hálfskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Algarve 19 heiðskfrt
Amsterdam 15 þokumóða
Barcelona 23 skýjað
Chicago 23 alskýjað
Feneyjar 20 þokumóða
Frankfurt 13 léttskýjað
Glasgow 11 skúr
Hamborg 15 skýjað
Las Palmas vantar
London 15 rigning
Los Angeles 19 hálfskýjað
Lúxemborg 14 léttskýjað
Madrfd 16 heiðskfrt
Malaga 22 heiðskfrt
Mallorca 24 hólfskýjað
Montreal 17 þokumóða
New York 24 þrumuveður
Parfs 17 léttskýjað
Róm 21 þokuruðning
San Diego 20 alskýjað
Winnipeg 14 léttskýjað
Iðnaðar- og* heilbrigðisráðherrar:
Agreiningur um starfsleyfi
álversins lagður til hliðar
Unnið að lausn innan ranuna aðalsamnings
FRIÐRIK Sophusson iðnaðarráðherra og Guðmundur Bjarnason heil-
brigðisráðherra hafa orðið ásáttir um að leggja til hliðar ágreining
um gildi aðalsamnings ríkisstjórnar íslands og Alusuisse frá 1966 með
áorðnum breytingum, sem starfsleyfi fyrir álverið i Straumsvík. í
yfirlýsingu frá ráðherrunum segir að mestu máli skipti að mengunar-
varnir við álverið séu í samræmi við kröfur sem gerðar eru þar að
lútandi. Ráðherrarnir eru sammála að vinna að lausn málsins innan
ramma aðalsamningsins.
í yfírlýsingu ráðherranna segir
ennfremur, að til undirbúnings við-
ræðum sem iðnaðarráðuneytið mun
eiga við Alusuisse og ÍSAL um
mengunarmál í haust geri heilbrigð-
isráðuneytið, að höfðu samráði við
Hollustuvernd ríkisins, tillögur til
iðnaðarráðuneytisins um fram-
kvæmd og fyrirkomulag mengunar-
varna, þar með talið eftirlit. Heil-
brigðisráðuneytið mun eiga aðild að
viðræðunum eftir því sem við á.
í lok yfirlýsingarinnar segir að
ráðherramir séu „sammála um
nauðsyn þess' að ÍSAL geri allar
eðlilegar ráðstafanir til að hafa hem-
il á og draga úr skaðlegum áhrifum
af rekstri bræðslunnar í samræmi
við góðar venjur í iðnaði í öðrum
löndum við svipuð skilyrði."
Varaflugvöllur millilandavéla:
Þáttur varnarliðsins
ræddur í ríkissljórn
AÐ SÖGN Matthfasar Á. Mathiesen, samgönguráðherra, verður
meðal annars rætt um þátt varnarliðsins þegar samþykkt Flugráðs
um varaflugvöll í millilandaflugi verður tekin fyrir innan ríkisstjórn-
arinnar.
í skýrsludrögum um varaflugvöll
fyrir millilandavélar, sem afhent
voru Flugráði í apríl, er fyrst og
fremst miðað við þarfír flugvallar
með 3.000 metra langri braut, fyrir
herflugvélar auk véla í áætlunar-
og leiguflugi. Gert er ráð fyrir í
drögunum að slíkur flugvöllur yrði
staðsettur við Húsavík en sagt að
ef Flugráð mæli með 2.400 metra
flugvelli, eins og greint er frá á
baksíðu, væru Egilsstaðir heppileg-
asti kosturinn.
Að sögn Leifs Magnússonar,
formanns Flugráðs, kemur til kasta
stjómvalda að taka ákvörðun um
varaflugvöll sem sinnt gæti hemað-
arlegum þörfum. Ekki sé I verka-
hring Flugráðs að ákveða slíkt.
Aðspurður um málið segir Matt-
hías Á. Mathiesen, samgönguráð-
INNLEN"T
herra, að varaflugvöllur sem einnig
gæti nýst vamarliðinu væri eitt af
því sem rætt yrði á næstunni innan
ríkisstjórnarinnar. Endanlegrar nið-
urstöðu í varaflugvallarmálinu væri
þó ekki að vænta fyrr en að nokkr-
um vikum, jafnvel mánuðum, liðn-
um. -------- -------
Lánskjaravísitalan:
Mælir 41,3%
verðbólgu
SEÐLABANKINN hefur reiknað
út hækkun lánskjaravísitölunnar
fyrir júlímánuð og reyndist hún
hafa hækkað um 2,92%. Sam-
kvæmt þessu er verðbólgan í
mánuðinum 41,3%.
í frétt frá bankanum um lán-
skjaravísitöluna segir að samkvæmt
henni hafi verðbólgan verið 45,1%
síðustu þijá mánuðina, 28,2%
síðustu sex mánuði og 27,2%
síðasta ár.
Miðað við 2,92% hækkun gildir
lánskjaravísitalan 2217 fyrir ágúst-
mánuð.