Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JULI 1988 33 Forsætisráðherra á ferð um Norðurland: Bæði slæmt og gott hljóð í heimamönnum Morgunblaðið/Rúnar Þór Á Dalvík kom forsætisráðherra við í Sæplasti. F.v.: Trausti Þorsteins- son, bæjarfulltrúi og skólastjóri, Halldór Blöndal, þingmaður kjör- dæmisins og forsætisráðherra, Þorsteinn Pálsson. Forsætisráðherra hélt áfram ferð sinni um Norðurland í gær. Fyrsta viðkoma var hjá Útgerðar- félagi Akureyringa og síðan var keyrt í vestur frá Akureyri og farið út á Hauganes og Árskógs- strönd þar sem meðal annars var rætt við menn í atvinnulífinu og fyrirtæki skoðuð. Valdimar Kjart- ansson útgerðarmaður á Hauga- nesi gaf gestum kaffi áður en rækjuvinnslan Árver og útgerð G. Ben. voru heimsóttar. Þvínæst var haldið til Dalvíkur þar sem farið var í frystihús KEA, Pólar- stjömuna, fiskeldisstöðina Ölunn og Sæplast. Frá Dalvík var farið til Ól- afsfjarðar og fyrirhugaður staður fyrir jarðgöng í gegnum Múlann skoðaður. Ráðherra heimsótti síðan útgerðarfyrirtækin Magnús Gamal- íelsson hf., Sæberg, Sæver og Sig- valda Þórðarson. Bæjarskrifstofur Ólafsfjarðar voru sóttar heim og endað var hjá frumkvöðli í fijálsum útvarpsrekstri, Skúla Pálssyni, þar sem forsætisráðherra fór í stutt við- tal. Veðrið lék við ráðherra á Norður- landi í gær og móttökur hafa allar verið góðar. „Við sjáum mikla erfið- leika hjá sumum fyrirtækjum og jafnframt ugpgang hjá öðrum. Frystihúsin á Ólafsfirði eiga í miklum erfiðleikum auk þess sem hráefniss- kortur hrjáir fyrirtækin til að hægt sé að halda uppi fullri atvinnu. Á Hauganesi var þó ekki sama sagan og virtist Valdimar Kjartansson til dæmis eiga nægan kvóta,“ sagði Sigurbjörn Magnússon fram- kvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæð- isflokksins í samtali við Morgun- blaðið í gær, en hann er með í för- inni ásamt Halldóri Blöndal alþingis- manni og Birni Björnssyni út- breiðslustjóra flokksins. Ráðherra hé'.t fundi með heima- mönnum á Dalvík og Ólafsfirði í gærkvöldi og í dag verður haldið til Grenivíkur, Mývatnssveitar og Húsavíkur. Heimsókn forsætisráð- herra til Norðurlands lýkur í kvöld. Morgunblaðið/Rúnar Þór Vestmannaey við bryggju Slippstöðvarinnar á Akureyri skömmu áður en hún hélt til veiða sem frystiskip. Vestmannaey VE 54 hélt á veiðar sem „nýtt“ frystiskip VESTMANNAEY VE 54 hélt til veiða um hádegi á laugardag frá Akureyri i fyrsta skipti sem frysti- togari. Undanfarna 14 mánuði hefur verið unnið að breytingum á Vestmannaey, fyrst í Póllandi og frá því í vor hafa starfsmenn Slippstöðvarinnar hf. á Akureyri unnið að því að setja í skipið al- frystibúnað og vinnslubúnað. Breytingarnar munu hafa kostað útgerð skipsins um 200 milljónir króna. Útgerðarfyrirtækið Berg- ur-Huginn sf. í Vestmannaeyjum á og rekur Vestmannaey VE ásamt Bergey VE, sem er 350 tonna tog- ari. Auk þessa sér fyrirtækið um reksturinn á Halkíon VE, Gídeon VE, sem hvor um sig eru 220 tonn að stærð, og. Smáey VE, sem er 100 tonn að stærð. Öll skipin eru á togveiðum. Vestmannaey hélt til Gdynia í Póll- andi 5. maí í fyrra með viðkomu í Vestur-Þýskalandi þar sem afli var seldur á markað. Már Sigurðsson útgerðarstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að verkið væri vel unnið og væru menn almennt ánægðir ef frá væru taldar tafir. Þó væri ómögulegt að segja til um hve miklar tafir urðu þar sem við bætt- ust ýmis önnur verk er á leið. í fýrs- tunni var skipið lengt um sex metra og síðan aftur um fjóra þegar ákveð- ið var að gera skipið að frystitogara. „Sú ákvörðun var þó ekki tekin fyrr en liðið hafði nokkuð á verktímann enda virðist útlitið bjartara hjá frysti- togaraútgerðinni en ísfisktogaraút- gerð. Skipið kom til Akureyrar þann 12. maí og hafa engar tafir orðið á framkvæmdum þar frá því sem segir í samningi." Már sagði skipið hafa verið end- umýjað frá grunni og væri það nú sem nýtt. Vestmannaey VE var fyrsta skipið sem kom til landsins frá Jap- an, en alls komu tíu hingað til lands. Vestmanneyingar fengu skipið í jan- úar 1973. Skipstjóri á Vestmannaey er Eyjólfur Pétursson, fyrsti stýri- maður er Birgir Þór Sverrisson og yfírvélstjóri er Halldór Waagfjörð. Vestmannaeyin er á veiðum fyrir norðan land. Aðaleigendur fyrirtæk- isins eru Magnús Kristinsson og Kristinn Pálsson. Hver verður sterkast- ur á landsbyggðinni? SJÖ kraftajötnar takast á um titilinn „Sterkasti maður lands- byggðarinnar" næstu tvo daga. Á morgun hefst í þriðja sinn aflraunamót á vegum Lyftinga- ráðs Akureyrar en það er helsta fjáröflunarleið félagsins. Keppendur eru Flosi Jónsson og Torfi Ólafsson, báðir frá Akur- eyri, Magnús Ver Magnússon Seyðisfirði, Njáll Torfason Tálknafirði, Jón Gunnarsson Þor- lákshöfn, Magnús Hauksson Keflavík og Órn Traustason Hauganesi. Keppt verður í samtals átta þrautum og fara þrjár þeirra fram á morgun í miðbæ Akureyrar en hinar fimm fara fram á Akur- eyrarvelli á laugardaginn og hefst keppni þar kl. 13. A morgun verður keppt í blönduhlaupi, pepsí-togi og bíla- togi. Á laugardag munu keppend- ur velta svinghljóli, kasta flug- hamri, bera bobbinga og hlaupa með fóðursekki. Auk þess taka þeir þátt í leynigrein mótsins, fanganýlenduþraut. Hermann Guðmundsson útgerðarmaður á Árskógsströnd spjallaði við forsætisráðherra og sýndi honum útgerð G.Ben. Merki Norræns limdar á Ólafsfirði afhjúpað Ólafsfirði. AFHJÚPAÐ var merki Nor- ræna félagsins á Ólafsfirði sl. sunnudag. Merkið var sett upp á opnu svæði við bæjart- jörnina þar sem ætlunin er að verði norrænn lundur í framtiðinni . Það var Ragna Pálsdóttir, fráfarandi formaður Norræna félagsins á Ólafsfirði, sem af- henti bæjarstjórn Ólafsfjarðar merkið að gjöf en merkið smíðaði eiginmaður hennar Har- aldur Þórðarson. Starfsemi Norræna félagsins á Ólafsfirði er töluverð og snýst einkum um tengsl við hliðstæð félög í vina- bæjum Ólafsfjarðar á hinum Norðurlöndunum. Á vinabæjamóti sem haldið var á Ólafsfirði fyrir tveimur árum gróðursettu fulltrúar allra Norðurlanda tré í þessum norr- æna lundi og nú er ætlunin að fegra og snyrta umhverfi tjarn- arinnar með þennan norræna lund að miðpunkti. Nú stendur fyrir dyrum vinabæjamót í Hill- eröd í Danmörku og munu um 40 manns sækja mótið frá Ólafs- firði. SB Morgunbladid/Svuvar B. Magnússon Óskar Þór Sigurbjörnsson forseti bæjarstjórnar, Haraldur Þórð- arson smiður, Valtýr Sigurbjarnarson bæjarstjóri og Ragna Pálsdóttir, fráfarandi formaður Norræna félagsins. Blaöburðarfólk óskast í eftirtalin hverfi: Skarðshlíð 1-21, Lyngholt og Stórholt Uppl. í Hafnarstræti 85, Akureyri - sími 23905.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.