Morgunblaðið - 21.07.1988, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988
15
Flestir umsagnaraðilar hlynntir #
sameiginlegu neyðarsímanúmeri
Slökkviliðsstj óri lýsir einn efasemdum um gagnsemi slíks númers
Morgunblaðið/KGA
Maria Gísladóttir.
en sýningar séu ekki nægilega marg-
ar. „Stelpumar í íslenska dans-
flokknum væru betri ef þær hefðu
meira að gera. Það er oft sagt að
Islendingar séu of fáir til þess að
hafa margar ballettsýningar árlega
en í öllum litlum borgum í Þýska-
landi, borgum sem eru jafnvel minni
en Reykjavík em ballett- flokkar
sem sýna oft á ári.“
Langar alltaf heim
„Ég vonaði að með tímanum hyrfi
heimþráin en svo hefur ekki verið.
Þvert á móti, mig langar ennþá heim
og síðasta ár gerði ég tilraun til að
setjast að hérna heima. Það gekk
ekki upp meðal annars vegna þess
að verkefni fyrir ballettdansara em
fá. Kannski breytist þetta á kom-
andi ámm og þá kem ég heim. Eins
og er langar mig að koma oftar og
dansa fyrir íslendinga. Ég hef til
að mynda mikinn áhuga á að koma
og dansa á næstu listahátíð."
í TILEFNI þess að hugmyndum
um sameiginlegt neyðarsíma-
númer fyrir Reykvíkinga var
hreyft í Borgarráði nýlega hafði
Morgunblaðið samband við þær
stofnanir og aðila sem fengið
hafa málið til umfjöllunar. í við-
tali við Morgunblaðið f síðustu
viku sagði Katrín Fjeldsted,
læknir og borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, að hún hefði
fyrst lagt fram tillögu um eitt
neyðarnúmer fyrir borgarbúa
fyrir tveimur árum. Afgreiðsla
málsins hefði nú tafist í tvö ár,
þó svo að nú væri sú tækni sem
til þyrfti til staðar hjá Pósti og
síma. Morgunblaðið leitaði álits
lögreglu, almannavarna, slökkvi-
liðs, pósts og síma og borgar-
læknis á sameiginlegu neyðar-
númeri, en fengin var umsögn
þessara stofnana er tillaga um
neyðarnúmer var fyrst lögð fram
fyrir tveimur árum síðan.
Böðvar Bragason, lögreglustjóri,
sagði lögregluna hafa fullan hug á
að leggja sitt af mörkum svo að
taka megi í notkun sameiginlegt
neyðarnúmer í Reylq'avík. „Reynsla
annarra þjóða sýnir að þetta er
áreiðanlega hægt. Við erum hrifnir
af þessari hugmynd og reiðubúnir
að taka þátt í undirbúningi," sagði
Böðvar. „Ástæða þess að lögreglan
hefur haldið að sér höndum hingað
til er sú að hér er verið að taka í
notkun nýjan fjarskiptabúnað, en
ný stjómstöð verður tilbúin í haust.
Tæknilega er hægt að koma upp
slíkum neyðarsíma en undirbúning-
ur og skipulagning öll er flókin. Til
að hægt verði að hrinda þessum
hugmyndum í framkvæmd þarf að
vera ljóst hversu miklu íjármagni
stjómvöld vilja veija til málsins,"
sagði lögreglustjóri að lokum.
Hafþór Jónsson fulltrúi hjá AI-
mannavömum ríkisins taldi sameig-
inlegt neyðamúmer tvimælalaust
vera til bóta og að Almannavamir
væru að sjálfsögðu hlynntar slíku
númeri. Samt sem áður þurfi margs
að gæta áður en slíkt númer er
tekið í notkun, sérstaklega að vanda
alla upplýsingaöflun. „Það sem að-
allega hefur staðið í mönnum er
hver eigi að þjónusta slíkt númer,"
sagði Hafþór. „En ég er ekki í vafa
um að neyðamúmer er það sem
koma skal.“
„Við viljum ekki leggjast gegn
neyðamúmeri," sagði Rúnar
Bjamason slökkviliðsstjóri í samtali
við Morgunblaðið. „Samt sem áður
hef ég ýmsar efasemdir um gagn-
semi slíks númers. í fyrsta lagi leyfi
ég mér að efast um að fólk sem
ekki þekki símanúmer Slökkviliðs-
ins 11100 muni frekar annað núm-
er. í annan stað hef ég kynnt mér
þessi mál meðal starfsbræðra
minna erlendis og orðið var við
neikvæð viðbrögð þeirra. Þeir sem
til þekkja segja að upplýsingar ber-
ist seint og illa frá sameiginlegu
neyðamúmeri. Ég vil einnig taka
það fram að símanúmer slökkviliðs-
ins er vel kynnt. Númerið ér skráð
á bílana en auk þess höfum við
dreift límmiðum með númerinu í
sjálflýsandi stöfum í þúsundatali. í
fljótu bragði get ég ekki séð að
hagur borgarbúa batni við þetta
fyrirkomulag og virðist mér að
betra væri að eitt neyðamúmer
væri til sem nota mætti út um land
þar sem ekki er slökkvilið í við-
bragðsstöðu. Það er mjög kostnað-
arsamt koma upp númeri sem þessu
og með þann mannafla sem við
höfum yfír að ráða er slökkviliðið
engan veginn í stakk búið til að
taka að sér þjónustu við slíkt núm-
er.“
Hjá Póst- og símamálastofnun-
inni fengust þær upplýsingar að
tæknilega stæði ekkert í vegi fyrir
því að hægt væri að taka í notkun
eitt neyðamúmer í Reykjavík. Berg-
þór Halldórsson verkfræðingur hjá
Pósti og síma sagði i samtali við
Morgunblaðið að fyrirspum borgar-
yfírvalda frá því í júlí 1986 hefði
þá strax verið svarað. „í svari Pósts
og síma kom fram að gert er ráð
fyrir að símanúmerið 000 verði að
sérstöku neyðarnúmeri," sagði
Bergþór. „Nú þegar hefur 000 ver-
ið gert að sérstöku neyðarnúmeri á
Suðumesjum og Suðurlandi og ekk-
ert hindrar það að 000 geti einnig
orðið að sameiginlegu neyðamúm-
eri þar sem svæðisnúmer 91 er
notað.“
Að sögn Bergþórs virðist ekki
ljóst hverjum beri að hafa frum-
kvæði um skipulagningu stjóm-
stöðvar. Upplýsingar þurfí að liggja
fyrir um umfang og stærð stjóm-
borðs, en flest bendi til þess að slíkt
stjómborð verði staðsett í lögreglu-
stöðinni við Hlemm. Aðspurður um
gjaldtöku sagði Bergþór að hægt
væri að koma því þannig fyrir að
hringja mætti endurgjaldslaust í
númerið úr hvaða símtæki sem er.
„Frá upphafi hefur borgarlækni-
sembættið verið meðmælt hug-
myndum um sameignlegt neyðar-
númer," sagði Skúli G. Johnsen
borgarlæknir í samtaii við Morgun-
blaðið. „Erlendis sýnir reynslan
okkur að þjónusta sem þessi er
mjög til bóta fyrir almenning, enda
oft sem leita þarf aðstoðar í skyndi
og oft þarf að ná til fleiri en eins
aðila í einu.“ Að sögn Skúla er
nauðsynlegt að undirbúa þjónustu
sem þessa af kostgæfni eigi hún
að heppnast. Til að svo megi verða
þarf að gera ítarlegan samstarfs-
samning um stjómun og skipulagn-
ingu neyðarþjónustunnar. „Ef vel
er að málinu staðið er tvímælalaust
um mikið framfaraskref að ræða,“
sagði Skúli að lokum.
Auknar skatt-
sektir með
ári hverju
Ríkisskattanefnd hefur á und-
anförnum árum sektað æ fleiri
vegna vangoldinna skatta. Síðast-
liðin fjögur ár námu uppkveðnar
sektir rúmlega 25 milljónum
króna, en 83 málum hefur verið
visað til nefndarinnar. Tvö af
hveijum þremur málum eru af-
greidd með sekt að jafnaði.
Þessar upplýsingar koma fram í
nýlegu fréttabréfi ríkisskattstjóra,
Tíund. í fyrra var 41 máli vísað til
nefndarinnar og voru 34 afgreidd
með sekt. Sektarupphæðin var um
níu milljónir króna, en árið 1986
náðu sektimar hámarki, námu 13
milljónum króna.
Q b
enel lon
SISLEY
WTDOOBj^I
012
>enellon
UTSALAN
BYRtJAR ÍDAG
KL. 10.00
ídagfrákl. 10-7.
Föstudag frá kl. 10-8.
Laugardagfrákl. 10-14
og áfram næstu vikur.
ítölsk gæðaföt á góðu
verði fyrir alla
&Wílon!)SISLEY
Kringlunni
012
beneíton