Morgunblaðið - 21.07.1988, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988
Perú:
Y erkfállsmenn
handeknír í Líma
arasa
Líma.
FELAGAR í stærsta verkalýðsfélagi Perú eru nú i tveggja sólar-
hringa verkfalli. Til átaka kom á milli verkfallsmanna og lögreglu
á þriðjudag þegar mótmælendur gengu um götur, kröfðust hærri
launa og mótmæltu stefnu Alans Garcia, forseta Perú. 230 inanns
voru handteknir og átta særðust.
Reuter
Víðtæk leit fer nú fram i Grikklandi að Khadar Samir Mohamad, félaga í hryðjuverkasamtökum Abu
Nidals. Khadar er grunaður um að hafa staðið á bak við árás á griska feiju í siðustu viku sem varð 9
manns að fjörtjóni. Hér sést Khadar á þremur myndum sem gríska lögreglan hefur dreift.
Um 8000 manna lögreglu- og
fótgöngulið var á götum úti til að
koma í veg fyrir óeirðir. Verkfalls-
menn komu fyrir gijóthnullungum
og tijágreinum á fjölförnum vegum
í Líma, höfuðborg Perú, og grýttu
Blóðug
gríska ferju
rakín til Abu Nidal-hópsins
\ nnnn Pmitnr
Aþenu. Reuter.
GRISK yfirvöld sögðu í gær að hryðjuverk um borð í grisku feij-
unni Poros-borg í síðustu viku mætti rekja til öfgasamtaka Abu
Nidals. Maðurinn á bak við árásina er sagður vera Khadar Samir
Mohamad, einnig þekktur undir nafninu Hejab Jaballa. Hann stóð
fyrir hryðjuverki á Kýpur árið 1978.
í yfirlýsingu frá grísku stjórn-
inni segir að a.m.k. fimm menn
hafi tekið þátt í árásinni í grennd
við Trocadero Marina hinn 11.
júlí sl. Átta farþegar og einn úr
áhöfninni létust þegar árásar-
mennirnir vörpuðu handsprengj-
um og skutu úr vélbyssum. Um
borð var 471 farþegi.
Talið er líklegt að einn árásar-
mannanna hafi beðið bana, Sojod
Adnan Mohamad, 21 árs gamall,
en í fyrstu var talað um hann sem
Zozab Mohammed. Hinir fjórir
voru líklega í landi þegar árásin
átti sér stað. Heimildarmenn innan
grísku lögreglunnar segja að stað-
ið hafi til að ræna ferjunni og taka
farþegana sem gísla.
Tveir hryðjuverkamannanna
biðu bana þegar sprengja sprakk
í bifreið þeirra nærri Troeadero
Marina skömmu fyrir árásina á
skipið. Lögregla telur að plast-
sprengjur hafi sprungið fyrir
slysni. Talið er að þeir hryðju-
verkamannanna sem eftir lifðu
hafi ákveðið að hætta við að ræna
feijunni og gripið til varaáætlunar
um að valda sem mestu manntjóni.
Gríska lögreglan hefur nú lýst
eftir Khadar en hann var hand-
tekinn árið 1978 fyrir morð á
blaðamanni í andyri Hilton-hótels-
ins í Nikósíu. Fjórum árum síðar
var hann látinn laus eftir að ráð-
herrum á Kýpur bárust morð-
hótanir frá hryðjuverkasamtökum
Abu Nidals.
bíla sem áttu leið um, að sögn sjón-
arvotta. Fyrir framan háskólann
kveiktu nemendur í bíldekkjum.
Verkalýðsfélagið CGPT, sem
boðaði verkfallið, er hið fjölmenn-
asta í Perú. Það er undir stjórn
kommúnista. Talsmenn þess voru
mjög ánægðir með þátttökuna í
verkfallinu og sögðust ætla að auka
mótmælin enn frekar. Þeir telja að
um ein og hálf milljón félaga krefj-
ist hækkunar á launum til samræm-
is við verbólguna sem var 230% á
síðasta ári. Einnig vilja þeir að
skorður verði settar við hækkunum
á matvöru en í síðustu viku hækk-
aði stjórnin matvæli um 62%.
Þó verkalýðsforingjar segi að
þátttaka í verkfallinu hafi verið
mjög góð segja stjórnvöld að 90%
verkamanna hafi mætt til vinnu á
þriðjudag og að verkfailið hafi því
mistekist. Samt sem áður virtust
flestar verslanir í Líma vera lokaðar
og bankar buðu aðeins upp á tak-
markaða þjónustu á þriðjudag.
Hernan Chang, formaður bílstjóra-
félagsins, sagði að 80% af öllum
fólks- og vöruflutningum lægi niðri
þar sem bílstjórar hræddust árásir
verkfallsmanna.
Sharpeville-dauðadómarnir:
Mál sexmenmnganna
tekið fyrir í haust
Jóhannesarborg. Reuter.
MÁL sexmenninga frá bænum
Sharpeville í Suður-Afríku, verð-
ur tekið fyrir þann 7. september
Bretland:
Jafnréttið á
langt í land
London. Reuter.
KARLARNIR virðast ætla að bera
sigur úr býtum í stríði kynjanna
og þeir játa því aðeins með vörun-
um, að jafnræði skuli rikja með
þeim og konum. Segir frá þessu
í bók, sem út kom í vikunni í Bret-
Iandi.
Höfundar bókarinnar, sem heitir
„Upphafið að ólifuðum ævidögum",
eru félagsfræðingar við óháða stofn-
un þar sem kannað er flest, sem að
hjónabandinu lýtur, og ræddu þeir
við 65 nýgift hjón. Fannst öllum
sjálfsagt, að jafnrétti ríkti í hjóna-
bandinu en þegar að var gáð kom í
ljós, að það var aðeins í orði en ekki
á borði. Jafnvel konur, sem vinna
úti, sjá um heimilið að langmestu
leyti og starfsframi karlsins skiptir
meira máli en konunnar.
næstkomandi að sögn lögmanns
hinna ákærðu. Fólkið var dæmt
til dauða árið 1985 og hefur dómn-
um verið mótmælt víða um heim.
Aftöku sexmenninganna var frest-
að þann 12. þessa mánaðar. Að sögn
lögmannsins, Prakash Diar, mun
fresturinn verða notaður til að fá
mái sexmenninganna tekið fyrir að
nýju. Ef það tekst ekki mun forseta
landsins verða send beiðni um náð-
un.
Sexmenningamir frá Sharpeville
voru dæmdir til dauða fyrir að hafa
verið í hópi fólks sem myrti svartan
embættismann árið 1984. Málið olli
deilum vegna þess að fólkið var
ákært fyrir að hafa ætlað sér að
myrða manninn enda þótt aðrir hafí
drýgt ódæðið.
Dómsmálaráðherra Suður-Afrku
gaf út tilkynningu um að aftökunni
hefði verið frestað aðeins nokkrum
dögum áður en fullnægja átti dómn-
um. Hann tók fram að sakbomingun-
um væri heimilt að leita lagalegs
réttar síns til að komast hjá aftöku.
Sexmenningamir leita nú eftir því
að rettarhöldin verði endurtekin því
frá því fyrri réttarhöldin vom haldin
hefur einn þeirra sem þá bar vitni
játað að hafa logið fyrir réttinum.
Blævængjadans
Reuter
Nú eru einungis tveir mánuðir til Ólympíuleikanna í Seoul i haust. Þessar suður-kóresku unglings-
stúlkur eru að æfa þjóðlegan blævængjadans sem sýndur verður á lokahátíð leikanna.
Evrópuráðið:
Vilja lögvemdun Evrópufánans
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni,
FÁNI Evrópu kom til umræðu
þingi Evrópubandalagsins
Brussel:
Áfengi á útsöluverði hjá EB?
Briissel. Reuter.
HJÁ Evrópubandalaginu er nú til athugunar, hvort selja eigi
gríðarmikið af eimuðu víni á útsöluverði í því skyni að lækka í
„vín-Ióninu“, sem safnast hefur fyrir vegna offramleiðslu í EB-
löndunum.
Eimaða vínið, sem unnið hefur
verið úr umframbirgðum
borðvíns, yrði að öllum líkindum
seit iðnfyrirtækjum sem eldsneyti
eða hráefni til efnagerðar. Tals-
maður EB sagði, að fram-
kvæmdanefnd bandalagsins hefði
ákveðið að fara fram á það við
ráðherranefndina að leyfa sölu á
163 milljónum hektólítra af eim-
uðu víni. Að sögn heimildarmanna
innan EB yrði verðið óverulegt.
Efnahagsbandalagið hefur
árum saman keypt umframbirgðir
borðvíns í því skyni að létta á
birgðum vínsölufyrirtækja og
halda uppi verði. Vínið hefur síðan
verið eimað með ærnum tilkostn-
aði og geymt. Bandalagið ætlaði
upphaflega að setja lágmarksverð
á eimaða vínið, en varð að hverfa
frá því vegna lítillar eftirspurnar
eftir vörunni.
Heimildarmennirnir sögðu, að
mikill áhugi væri á því innan
bandalagsins að losna við fyrir-
liggjandi birgðir, sem eiga rætur
að rekja allt aftur til ársins 1982,
áður en fjórar milljónir hektólítra
af umframframleiðslu yfirstand-
andi árs bætast í safnið.
fréttaritara Morgunblaðsins.
á Strassborg í síðustu viku. Lagt var
í fram erindi þess efnis að fáninn
yrði löggiltur innan bandalagsins
þannig að hann nyti sömu verndar
og þjóðfánar aðildarríkjanna.
Ókleift reyndist að greiða atkvæði
um málið vegna fjarveru þing-
Fyrir tveimur árum gerði Evrópu-
bandalagið fána Evrópuráðsins að
sínum en Evrópuráðið hafði tekið upp
þennan fána árið 1950. Það er út-
breiddur og eðlilegur misskilningur
að eitthvert samband sé milli stjarn-
anna tólf á fánanum og fjölda aðild-
arríkja EB. Þegar Evrópuráðið tók
upp þennan fána árið 1950 voru
stjörnurnar ákveðnar vegna þess að
tólf hefur verið talin fullkomin tala
bæði í vísindum og trúarbrögðum frá
örófi alda. Jafnframt því að taka upp
fána Evrópuráðsins tileinkaði EB sér
söng Evrópu sem er Óðurinn til gleð-
innar úr níundu sinfóníu Beethovens.
Töluverðar deilur urðu um þetta
„rán“ á sínum tíma en endanlega
hefur verið fallist á að hvoru tveggju
séu tákn Evrópu og megi þá einu
gilda hvort um er að ræða Evrópur-
áðið eða Evrópubandalagið. Það er
hins vegar ekki Ijóst hvernig ríki
utan bandalagsins munu bregðast
við ef EB ætlar að helga sér fánann
með löggjöf.
Tillagan gekk annars út á það að
Evrópubandalagið setti reglur um
meðferð fánans og tiltæki ákveðna
fánadaga og tilefni s.s. Ólympíuleika
o.s.frv. Jafnframt var talið við hæfí
að framkvæmdastjórn EB tryggði
að öll sveitarfélög innan bandalags-
ins ættu fána til að flagga þegar til-
efni gefast. Með þessu hyggjast þing-
mennirnir tryggja að þegnar banda-
lagsins séu á viðeigandi hátt minntir
á aðild sína að því og sömuleiðis á
þegnrétt sinn í sameinaðri Evrópu.