Morgunblaðið - 21.07.1988, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988
29
Boðað til þingkosninga í Pakistan:
Ovíst hvort stjórnmála-
flokkar fá að bjóða fram
Forseti landsins vændur um stjórnarskrárbrot
Islamabad. Reuter.
MOHAMMAD Zia-ul-Haq, forseti Pakistan, tilkynnti í gær að geng-
ið yrði til þing- og héraðsstjórnakosninga i landinu þann 16. nóvem-
ber næstkomandi. Forsetinn leysti upp neðri deild þingsins þann
29. maí síðastliðinn og vék forsætisráðherra landsins úr embætti.
Sjórnarandstæðingar segja að forsetanum hafi borið að boða fyrr
tii kosninga og hafa vænt hann um brot gegn stjórnarskrá landsins.
Mynd þessi var tekin af Nelson Mandela í fangelsisgarðinum á Rob-
ben-eyju árið 1965.
Suður-Afríka:
Þegar forsetinn rauf þing í
maímánuði hét hann því að boða
til kosninga innan 90 daga í sam-
Beeld skorar á stjóm-
ína að sleppa Mandela
Höfðaborg. Reuter.
SUÐUR-af ríska dagblaðið Beeld,
sem hlynnt er stjórninni í Pret-
oríu, hvatti í gær stjórnina til
þess að láta Nelson Mandela
lausan ýr fangelsi. í óvenju harð-
orðri forystugrein skoraði blað-
ið, sem gefið er út á Afrikaans,
á stjórnina að skýra þegnum
sínum frá þvi hvers vegna Mand-
ela væri ennþá í haldi. Blaðið
minnti á að stjórnin sæi sér fært
að semja við Kúbu, Angólu og
Sovétríkin og spurði hvers vegna
stjórnin gæti ekki rætt við mann
þann, sem þúsundir svertingja
litu á sem leiðtoga sinn.
Forystugrein þessi var svar við
yfirlýsingu Stoffel van der Merwe,
upplýsingaráðherra stjómarinnar,
sem sagði í sjónvarpsviðtali á mánu-
dag að ekki væri hægt að láta
Mandela lausan, enda hefði stjórnin
ein allar upplýsingar um málavöxtu.
„Sé svo vildum við gjaman spyija
hvort ekki er hægt að deila þessari
vitneskju með þjóðinni," sagði í for-
ystugreininni.
Mandela var boðið frelsi árið
1985 ef hann afneitaði ofbeldi en
hann sagðist ekki skuldbinda sig
til neins á meðan hann og þjóð
hans væm ekki fijáls. Upplýsinga-
málaráðherrann taldi að það mjmdi
ekki ráða úrslitum um hvort Mand-
ela yrði látinn laus, að hann afneit-
aði ofbeldi þegar í stað. Talsmaður
Íhaldsflokksins, Clive Derby-Lewis,
hefur ásakað ríkisstjórnina um lin-
kind í þessu máli. íhaldsflokkurinn
fær nú aukið fylgj hvítra manna
sem eru óánægðir með bráðabirgð-
aumbætur stjórnarinnar á aðskiln-
aðarstefnunni.
Einn stuðningsmanna Mandela
taldi stjómina vera hrædda við að
sýnast láta undan alþjóðlegum
þrýstingi og fannst líklegra að
Mandela yrði látinn laus eftir bæj-
ar- og sveitarstjómarkosningar sem
verða í október en þá er búist við
harðri baráttu á milli stjómarinnar
og íhaldsflokksins.
Byssuleikur íBeirút
Reuter
Sýrlendingar hafa her manna í úthverfum Beirút í Líbanon í
eftirlitsskyni. Börnin læra það sem fyrir þeim er haft og hér
sjást nokkrir snáðar, veifandi plastrifflum, stöðva vegfaranda.
ræmi við ákvæði stjómarskrár
landsins.í ávarpi sem forsetinn
flutti í efri deild þingsins í gær
sagði hann á hinn bóginn að
stjómarskrána mætti túlka á ýmsa
vegu og kvað ekki unnt að efna
til kosninga fyrr en 16. nóvember.
Tilkynning forsetans vekur að
líkindum litla hrifningu í röðum '
stjómarandstæðinga, sem höfðu
hvatt hann tl að efha til kosninga
fyrir 27. ágúst og miðað undirbún-
ing sinn við þann dag. Lögfróða
menn í landinu greinir á um hvort
túlka beri stjómarskrárákvæði á
þann veg að forsetinn hafí 90
daga eftir að þing hefur verið rof-
ið til að boða til kosninga eða
hvort kosningar verða að fara
fram innan þeirra tímamarka.
Mohammad Khan Junjeo, fyrr-
um forsætisráðherra landsins,
gagnrýndi þessa ákvörðun forset-
ans harðlega í gær og sakaði Zia
um stjómarskrárbrot. Sagði hann
tilganginn með þessu vera þann
að auka enn frekar stjórnmála-
spennu í landinu. Forsetinn vék
Junjeo úr embætti þann 29. maí
á þeim forsendum að honum hefði
ekki tekist að uppræta spillingu
og halda uppi lögum og reglu.
í ávarpi sínu í gær lét Zia þess
ógetið hvort stjómmálaflokkum
yrði heimilað að bjóða fram en
þeim var meinuð þátttaka í síðustu
kosningum árið 1985. Að sögn
kunnugra hefur fylgi helsta stjórn-
arandstöðuflokksins, Þjóðar-
flokksins aukist mjög á undanf-
ömum vikum en á hinn bóginn
hefur klofningur gert vart við sig
í röðum fylgismanna Bandalags
múhameðstrúarmanna en þangað
sækir forsetinn einkum fylgi sitt.
Þjóðarflokkurinn lýtur fomstu
Benazir Bhutto, dóttur Ali Bhutt-
os, fyrrum forsætisráðherra lands-
ins, sem.Zia lét taka af lífi. Kváð-
ust stjórnmálaskýrendur í gær al-
mennt líta svo á að með því að
fresta kosningum fram i nóvember
væri Zia að taka ákveðna áhættu.
Gæti þessi ákvörðun komið honum
í koll og reynst vatn á myllu stjóm-
arandstæðinga.
ERLENT
GARÐASTÁL
Lausn á steypuskemmdum
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 2, GARÐABÆ, SÍMI 52000
Útsala
Allt að 70% afsláttur
Kringlunni Skeifunni Kjörgarði Akureyri Njarðvík