Morgunblaðið - 21.07.1988, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 1988
39
Austurland:
Óánægja með hugmyndir
um breytta virkjunarröð
í KJÖLFAR ákvörðunar iðnaðar-
ráðherra að slíta Kísilmálmfélag-
inu á Reyðarfirði hafa orðið
miklar umræður á Austurlandi.
Þeim, sem hafa fylgst með þessu
máli frá upphafi, finnst sem með
þessu sé verið að slíta tengslin
milli ráðuneytisins og þeirra,
breytist markaðshorfur og er-
lendir aðilar fá aftur áhuga á
byggingu kísilmálmverksmiðju á
Reyðarfirði. Inn í þetta hefur
blandast umræðan um stækkun
álversins í Straumsvík. Stjórn-
endur bæjar- og sveitarfélaga
hafa lýst yfir miklum vonbrigð-
um með þær hugmyndir Lands-
virkjunar að breyta lögum um
Fljótsdalsvirkjun, þ.e.a.s. að
breyta virlyunarröðinni þannig
að virkja á Þjórsársvæðinu næst
á eftir Blönduvirkjun til að anna
orkuþörf nýs álvers. Fréttaritar-
ar Morgunblaðsins á Seyðisfirði
og Egilsstöðum leituðu álits
nokkurra sveitarstjórnamanna á
þessum málum. Fyrir svörum
urðu þeir Þorvaldur Jóhannsson,
bæjarstjóri á Seyðisfirði, Hrafn-
kell A. Jónsson, forseti bæjar-
stjórnar á Eskifirði, Hörður Þór-
hallsson, sveitarstjóri á Reyðar-
firði, og Þráinn Jónsson, oddviti
I Fellabæ.
Fljótsdalsvirkjun á að vera
næst
„Ég er afar óhress með tal manna
um að breyta virkjunarröðuninni,
vegna þess að Fljótsdalsvirkjun á
að vera næst samkvæmt lögum,“
sagði Þorvaldur-Jóhannsson, bæjar-
stjóri á Seyðisfirði. „Austfírðingar
hljóta að kreíjast þess að farið verði
í Fljótsdalsvirkjun næst á eftir
síðasta áfanga í Blöndu. Ég er stór-
gáttaður á því að þessar umræður
skuli koma upp á sama tíma og
hriktir í undirstöðuatvinnuvegunum
og misvægið milli landsbyggðarinn-
ar og höfuðborgarsvæðisins eykst
stöðugt. Menn eru að tala um hátt
í 50 milljarða framkvæmdir á Suð-
vesturlandinu. Kannski er það
tímanna tákn að þetta ber næstum
upp á sama dag og iðnaðarráðherra
ákveður að slíta Kísilmálmfélaginu
á Reyðarfirði. Ef það er rétt sem
áður hefur komið fram hjá iðnaðar-
ráðherra að Rio Tinto hafi ennþá
áhuga að reisa þessa verksmiðju á
Reyðarfirði um leið og aðstæður
breytast og verð á kísilmálmi hækk-
ar á heimsmarkaði, þá tel ég þessa
ávörðun ranga hjá ráðherra. Ég er
virkilega hræddur við stóraukna
byggðaröskun samfara þessum
framkvæmdum ef þær verða að
veruleika," sagði Þorvaldur.
Landsbyggðin í vörn
„Ég hef ekkert við álverið í
Straumsvík að athuga, því ég er
hlynntur auknum orkufrekum iðn-
aði til að byggja ekki allt á sjávarút-
veginum," sagði Hörður Þórhalls-
son, sveitarstjóri á Reyðarfirði.
„Það hefði hins vegar verið æski-
legra að koma upp stóriðju á Aust-
ur- eða Norðurlandi þar sem það
skapar síður aukna þenslu. Lands-
byggðin er í vörn; mikill samdráttur
er framundan í landbúnaði. Kísil-
málmverksmiðjan var engin endan-
leg lausn í sjálfu sér frekar en eitt-
hvað annað. Þetta var bara einn
af álitlegustu kostunum og ég held
að svo sé raunar ennþá. Mér finnst
að samfara slitum á félaginu rofni
tengsl okkar við ráðuneytið og að
jafnvel sé með þessu verið að af-
skrifa þetta alveg. Menn mega ekki
gleyma því að hugmyndin að þess-
ari verksmiðju er til komin vegna
frumkvæðis okkar Reyðfirðinga og
Eskfirðinga og það er búið að eyða
Morgunblaðið/Björn Sveinsson
Þráinn Jónsson, oddviti í
Fellabæ.
í þetta miklu fé og mikilli vinnu.
Arðsemisútreikningar hafa í megin-
dráttum alltaf sýnt að þessi verk-
smiéya yrði arðsöm, en að visu hafa
hugsanlegir erlendir eignaraðilar
litið öðrum augum á arðsemina. Það
kemur mér ekkert á óvart að sam-
fara hugmyndum um stækkun ál-
versins í Straumsvík skuli menn
vera famir að tala um aðra virkjun-
armöguleika á undan Fljótsdals-
virkjun, því ef ekki verður um
orkufrekan iðnað að ræða á Norð-
ur- eða Austurlandi liggur það í
augum uppi. Mér finnst hinsvegar
óviðkunnanlegt þegar menn lýsa
því yfir á þann hátt sem gert var,
áður en Alþingi hefur fjallað um
málið, því það eru í gildi lög frá
Alþingi um Fljótsdalsvirkjun,"
sagði Hörður Þórhallsson.
Aukin hætta á
byggðaröskun
„Ég kem ekki auga á nauðsyn
þess að leggja Kísilmálmfélagið nið-
ur,“ sagði Hrafnkell A. Jónsson.
,Það er ljóst að kísilmálmur, ál og
jámblendi búa við miklar verðsveifl-
ur á heimsmarkaði og þó ekki sé
nú grundvöllur fyrir kísilmálm-
verksmiðju á Reyðarfirði getur það
breyst með mjög stuttum fyrirvara.
Þess vegna virkar ákvörðun iðnað-
arráðherra á mig eins og hann sé
að hreinsa til og þegar aðstæður
skapast til að byggja kísilmálm-
verksmiðju þá séu menn ekki
bundnir við þessa staðsetningu hér
á Austurlandi. Það era aðilar sem
hafa barist fyrir breytingu á lögun-
um um verksmiðjuna svo hægt
Hörður Þórhallsson, sveitarstjóri
á Reyðarfirði.
væri að ganga til samninga við
Elkem um byggingu samskonar
verksmiðju á Grandartanga. Sagt
er að ekki séu tengsl á milli stækk-
unar álversins í Straumsvík og þess
að Kísilmálmfélagið var niður. Við
sem eram búnir að fylgjast með
þessu frá upphafi getum tæpast
skilið þarna á milli. Við sáum í kísil-
málmverksmiðjunni leið til að
byggja upp öflugri byggðarlög og
bæta búsetuskilyrði. Þess vegna er
verið að auka hættuna á frekari
byggðaröskun þegar rekunum er
kastað á Kísilmálmfélagið nánast
sama daginn og verið er að ákveða
stækkun álversins í Straumsvík og
hugsanlega nýjar virkjanir á Suð-
vesturlandi á undan Fljótsdalsvirkj-
un,“ sagði Hrafnkell A. Jónsson.
Skammsýni að stækka í
Straumsvík
„Ég tel mjög varasamt að virkja
allt á sama stað og skammsýni að
stækka álverið í Straumsvík," sagði
Þráinn Jónsson oddviti Fellahrepps.
„Svona fyrirtækjum á að dreifa um
landið ef það er vilji manna að það
haldist allt í byggð. Þessar fram-
kvæmdir og fjárfestingar á litlu
svæði munu líka hafa í för með sér
gífurleg þensluáhrif og ýta undir
stórfellda byggðaröskun. Hér er
verið að tala um fjárfestingu upp á
um 50 milljarða og það þolir enginn
landshluti að fá svoleiðis fjár-
streymi inn á svæðið."
Þráinn sagði það skammsýni að
byggja verksmiðju á borð við álver
í útjaðri mesta þéttbýlissvæðis
landsins. „Slíkum verksmiðjum
Upphækkanir fyrir flestar
gerðir bifreiða
Útsölustaðir:
Bílanausthf.
Flest bifreiðaumboð
Málmsteypan HELLA hl.
KAPLAHRAUNI 5 ■ 220 HAFNARFJORÐUR • SÍMI 65 10 22
Ferda-
tryggingar
SJÓVÁ
Hrafnkell A. Jónsson, forseti
bæjarstjórnar á Eskifirði.
fylgir viss mengunarhætta og því
tel ég varasamt að hafa þær of
þétt saman. Það verður líka að
hugsa fram í tímann þegar svona
verksmiðju er valinn staður. Þegar
Áburðarverksmiðjunni var valinn
staður í Gufunesi var hún nánast
út í sveit, en nú er hún komin inn
í miðja borg og menn vilja helst
losna við hana þaðan, sem skiljan-
legt er.
Morgunblaðið/Garðar Rúnar Sigurgeirsson
Þorvaldur Jóhannsson, bæjar-
stjóri á Seyðisfirði.
Það fylgir því viss áhætta að
virkja á Þjórsársvæðinu og við
Kröflu og þá áhættu eigum við að
forðast að taka á meðan við eigum
hagkvæma virkjunarkosti utan eld-
virkra svæða. Stór hluti erlendra
skulda þjóðarbúsins er vegna virkj-
unarframkvæmda og ef þessi
mannvirki verða óstarfhæf vegna
eldsumbrota eða jarðskjálfta þá er
þjóðin endanlega komin á hausinn.
Alþingi hefur samþykkt lög um^
að næsta virlq'un á eftir Blöndu-'-
virkjun skuli vera Fljótsdalsvirkjun.
Það er hagkvæm virkjun og stærð-
arinnar vegna hentar hún vel orku-
þörf fyrirhugaðs álvers. Það er því
engin ástæða að breyta gildandi
lögum um virkjunarröð og ég hef
ekki trú á að aíþingismenn séu svo
skammsýnir að gera það,“ sagði
Þráinn Jónsson.
— Garðar Rúnar
— Björn
VIÐGERÐAR- OG
VATNSÞÉTTINGAR-
EFNI SEM GERA
MEIRA EN AÐ DUGA
'r
■■((■ ■--
t
THORITE
Framúrskarandi viðgeröar-
efni fyrir steypugalla.
Þannig sparar það bæði
tíma og fyrirhöfn við móta-
uppslátt ofl. Thorite er til-
vaíið til viðgerða á rennum of>
ACRYL60
Eftir blöndun hefur efnið
tvöfaldan þenslueiginleika,
tvöfaldan þrýstieiginleika,
þrefaldan sveigjanleika og
áttfalda viðloðun miðað við
venjulega steypu.
WATERPLUG
Sementsefni sem stöðvar
rennandi vatn. Þenst út við
hörnun og rýrnar ekki.
Þetta efni er talið alger bylt-
ing.
THOROGRIP
Thorogrip er sementsefni,
rýrnar ekki, fljótharðnandi.
Þenst út við þornun og er
ætlað til að festa ýmsa
málmhluti í stein og stein-
steypu.
RR
BYGGINGAVOHUR HE
Suðurlandsbraut 4, Slmi 33331 og Nethyl 2, Ártúnsholti, Slmi 671440