Morgunblaðið - 07.10.1988, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988
Bjöm Tryggvason, aðstoðarbankasljóri í Seðlabankanum:
Breyting- á lánskjaravísi-
tölu varðar áUt þjóðfélagið
Alitamál hvort ríkisstjómin hefur vald til að fela Seðlabankanum breytingiuia
HUGMYNDIR ríkisstjómarinnar
um nýjan grundvöll lánskjara-
vísitölunnar em nú til athugnnar
hjá Seðlabankanum. Að sögn Jó-
hannesar Nordals Seðlabanka-
stjóra má búast við að málið verði
*
ASI krefst sammngsréttar
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands ís-
lands samþykkti í gær ályktun þar
sem þess var krafíst að stjómvöld
skiluðu samningsréttinum þar sem
hann væri mannréttindi sem
maettu aldrei verða söluvara.
Ályktunin er svohljóðandi: Mið-
stjóm Alþýðusambands íslands mót-
mælir harðlega síendurteknum að-
förum stjómvalda að samningsrétti
verkalýðshreyfingarinnar. Grund-
völlur lýðræðislegs samfélags byggir
á því að þegnamir geti gert með sér
samninga og treyst því að þeir verði
haldnir. Afnám samningsréttar kipp-
ir stoðunum undan því gagnkvæma
VEÐUR
trausti sem þarf að ríkja til þess að
lýðræðislegt starf hafi eðlilegan
framgang.
Miðstjóm vekur sérstaka athygli
á því að engar hömlur eru settar á
samningsrétt annara en launþega.
Þann hátt hafa stjómvöld haft á
hvenær sem þeim hefur þótt henta.
Til þess hafa þau misbeitt aftur og
aftur því neyðarúrræði sem bráða-
birgðalög eiga að vera samkvæmt
stjómarskránni.
Miðstjóm krefst þess að stjómvöld
skili samningsréttinum. Hann er
mannréttindi sem em ekki og mega
aldrei verða söluvara.
afgreitt þaðan innan viku tíma.
Björn Tryggvason aðstoðar-
bankastjóri segir þetta vera eitt
stærsta hagsmunamál, sem kom-
ið hefur til meðferðar í mörg ár,
enda varði það allt þjóðfélagið.
„Allt þjóðfélagið er að velta þessu
fyrir sér,“ sagði Bjöm Tryggvason
þegar Morgunblaðið ræddi við hann
í gær. „Þetta er lykilmál í þjóð-
félaginu, eitt það stærsta í mörg
ár.“ Ríkisstjómin hefur óskað eftir
áliti Seðlabankans á fyrirhuguðum
breytingum á lánskjaravísitölunni.
Gert er ráð fyrir að launavísitala
komi inn í lánskjaravísitöluna og
hafí þar helmings vægi. Steingrím-
ur Hermannsson segir þetta nauð-
synlegt til að draga úr víxlverkun
vísitölu á ýmsum sviðum. „Ég tel
þessa breytingu sem nú er verið
að gera nauðsynlega til þess að
IDAGkl. 12.00:
Heimild: Veöurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær)
draga úr misgengi launa og fjár-
magnskostnaðar, en aðalatriðið er
að framkvæma þá stefnu flestra
flokka á Alþingi að draga úr þess-
ari víxlverkun," sagði Steingrímur.
í Seðlabankanum er verið að kanna
lagalegar hliðar þessarar breyting-
ar, meðal annars hvort hún standist
lög og hvaða áhrif hún muni hafa
á þegar gerða samninga um §ár-
skuldbindingar, þar á meðal ríkis-
skuldabréf. I þeim eru skilmálar um
að verðtrygging þeirra skuli miðast
við núgildandi lánskjaravísitölu.
Steingrímur Hermannsson segir
um iögmæti brejrtingarinnar, að í
áliti verðtryggingamefndar frá því
í vor sé komist að þeirri niðurstöðu,
að hún sé f samræmi við lög.
Þá liggur ekki ljóst fyrir hvort
ríkisstjómin hefur vald til að gera
Seðlabankanum að breyta láns-
kjaravísitölunni. Jóhannes Nordal
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að hann teldi ríkisstjómina
ekki hafa þetta vald. „Bankinn hef-
ur ákveðnu hlutverki að gegna
þama samkvæmt lögum, en hann
verður að leggja á það sjálfstætt
mat hvort hann getur orðið við
þeirri beiðni," sagði Jóhannes.
Ljósmynd /Jón Fjðmir
Fundur
umsfldar-
verð í dag
VERLAGSRÁÐ sjávarútvegs-
ins fundaði í gær um verð á
síld á vertíðinni en komst ekki
að niðurstöðu og ákvað að
halda annan fund um málið í
dag, að sögn Sveins Finnsson-
ar framkvæmdastjóra ráðs-
Hótel Ork
Hótel Örk sleg-
1/EÐURHORFUR í DAG, 7. OKTÓBER
YFIRLIT í GÆR: Gert er ráð fyrir stormi á austur-, Áustfjarða- og
suðausturmiðum, austur- og suðausturdjúpi. Skammt vestur af
Skotlandi er 968 mb hæð á leiö austur, en kyrrstæð 966 mb milli
Skotlands og S-Noregs. Veður fer smám saman kólnandi.
SPÁ: Noröan- og norðaustanátt um allt land, 6—7 vindstig austan-
lands en hægari á vestanveröu landinu. Slydda eða rigning á Norð-
ur- og Austurlandi, en annars þurrt. Hiti 0—8 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFURÁ LAUGARDAG: Norðan- og norðaustan-átt og hiti um
eða rétt undir frostmarki. Dálítil él við austur- og norðausturströnd-
ina annars þurrt. Víða verður léttskýjað sunnan- og vestanlands.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hKI veftur
Akureyri 2 alskýjað
Reykjavík 4 léttskýjað
Bergen 11 rigning
Helsinkl 13 heiðskirt
Kaupmannah. 12 skýjað
Narssarssuaq -1 skýjað
Nuuk -1 skýjað
Ostó 12 rigning
Stokkhólmur 12 þokumóða
Þórshöfn 9 háifskýjað
Algarve 24 heiðskírt
Amsterdam 13 rigning
Barcelona 19 skýjað
Chícago -0.6 léttskýjað
Feneyjar 17 þokumóða
Frankfurt 11 rígning
Glasgow 8 skúr
Hamborg 17 skýjað
Las Palmas vantar
London 14 skýjað
Lo8 Angeles 17 alskýjað
Lúxemborg 10 rignlng
Madrfd 23 mistur
Malaga 20 þoka
Mallorca 2S lóttskýjað
Montreal 2 léttskýjað
New York
Paris 14 skúr
Róm 23 léttskýjað
San Diego 17 alskýjað
Winnipeg -1 léttskýjað
in Hótel Ork hf.
Helgi Þór Jónsson einn af eigendum Hótels Arkar hf.
Selfossi.
HÓTEL Örk í Hveragerði var slegið hæstbjóðanda, Hótel Örk hf.,
á 230 milljónir króna á þriðju uppboðssölu sem fíram fór á eigninni
í gær. Heildarkröfur á á uppboðinu námu tæpum 200 mil^jónum
króna frá 37 uppboðsbeiðendum. Aðaleigandi Hótels Arkar hf. er
Helgi Þ. Jónsson.
Tvö önnur tilboð komu fram á
uppboðinu, frá Framkvæmdasjóði
íslands 200 milljónir og frá ÓOK
hf. 199 milljónir króna. Uppboðs-
haldari hefur tveggja vikna frest
til að athuga fram komin boð og
taka afstöðu til þeirra. Athugað
verður hvemig Hótel Örk hf. hyggst
standa við boðið. Verði boð þess
samþykkt innan þessa frests losna
aðrir bjóðendur frá boðum sínum.
Hótel Örk hf. var stofnað í lok
febrúar á þessu ári og er Helgi Þór
Jónsson aðaleigandi þess. Hlutafé-
lagið er eigandi að öllu innbúi Hót-
els Arkar. Fyrirtækið tók aðstöðu
hótelsins til veitingareksturs, á
fyrstu og annarri hæð, á leigu 1.
mars. Á uppboðinu var gerð grein
fyrir því að aðstaðan til veitinga-
rekstursins hefði verið framleigð til
tveggja einstaklinga og gildir sá
samningur til 31. desember 1993.
Einn veðhafi á uppboðinu lét bóka
að hann teldi sig óbundinn af þess-
um samningi.
Með aðild sinni að Hótel Örk hf.
býður Helgi Þór Jónsson eigandi
Hótels Arkar í eigin eign á upp-
boðinu. Þorgeir Ingi Njálsson full-
trúi sýslumanns Ámessýslu sá um
uppboðið. Hann sagði að Hótel Örk
hf. væri nýr lögaðili óháður Helga
Þór Jónssyni sjálfum þó svo hann
væri einn af eigendum. Hann sagði
að það væru engin lagaákvæði sem
kæmu í veg fyrir að Hótel Örk hf.
byði í hótelið.
Það mun vera nokkuð algengt
við uppgjör, eða gjaldþrot hlutafé-
laga, að fyrri eigendur stofni nýtt
hlutafélag og taki rekstur þess fyrr-
nefnda á leigu algjörlega óbundnir
af skuldbindingum fyrra hlutafé-
lagsins sem þeir áttu aðild að. Að
áliti flestra lögfræðinga og embætt-
ismanna opnar þessi möguleiki
mönnum óeðlilega leið til þess að
eyða fjármunum annarra að
minnsta kosti á meðan ekki er kraf-
ist hærra lágmarkshlutafjár en 20
þúsund króna.
Hjá hlutafélagi nær fjárhagsleg
ábyrgð eingöngu til hlutafjárins en
þegar um sameignarfélag eða
einkarekstu er að ræða ganga eig-
endur í persónulega ábyrgð fyrir
skuldbindingum.
—Sig. Jóns.