Morgunblaðið - 07.10.1988, Side 33
'5Tt7#v TQT/T
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988
Oí?
33
Sveinsína Narfa-
dóttir - Minning
hennar, því að verið var að gera
því húsi eitthvað til góða, og á
meðan var haldið til að einhverju
leyti í litlu gömlu húsi sem enn
stendur í Firðinum, þ.e. húsinu
Kirkjuvegi 6, sem að einstöku sinn-
um enn í dag er nefnt Daðakot, og
þar var hún fædd.
En á Bala átti hún lengst af
heima og. var löngum kennd við
þann stað. Frá Bala er ekki langt
í Góðtemplarahúsið. Og ég hef
minnst á það áður að kjami stúk-
anna tveggja í Hafnarfirði, a.m.k.
st. Morgunstjaman, vom að tiltölu-
lega stórum hlut innfæddir Hafn-
fírðingar. Sveinsína var búin að
vera í þeirri stúku á áttunda áratug
því hún gerðist þar félagi árið 1916
og var síðan virk þar alla tíð. Geri
aðrir betur! Já, við sem eftir emm
þar þökkum henni vingjamlega
brosið og hlýja handtakið og allt
það mikla og óeigingjama starf sem
hún innti af hendi í þessum félags-
skap, í sambandi við gestamóttökur
og hvað eina.
Ég kynntist henni líka á öðmm
vettvangi, því að ég vann í fímm ár
í Bókasafninu í Hafnarfírði. Þar
annaðist hún ræstingar í nítján ár
og fór varfæmum höndum um blóm
og bollapör. Blóm sem vom í henn-
ar umsjá þrifust svo vel að athygli
vakti, og engu var líkara en að þar
lægi eitthvað sálrænt samband á
milli. Einnig var Sveinsína mjög
lagin hannyrðakona.
Hún giftist árið 1939 Stefáni G.
Helgasyni, norðlenskum manni og
eignuðust þau son einan bama,
Gunnar Helga, framreiðslumann,
sem kvæntur er Ólínu Ágústsdóttur
og em þeirra böm tvö, Þóra Jenný
og Stefán Sveinn. Já, nú hafa öll
Balasystkinin kvatt þetta tilvem-
stig. Stefán var heilsulítill a.m.k.
mörg seinni árin og annaðist kona
hans hann af mikilli nærfæmi. Við
vottum þeim sem næstir standa
samúð okkar. Já, blessuð sé minn-
ing „Sveinu á Bala“.
Magnús Jónsson
Fædd ð.júlí 1900
Dáin 30. september 1988
Föðursystir mín, Sveinsína
Narfadóttir, andaðist á Sólvangi í
Hafnarfírði, þann 30. september,
88 ára að aldri. Hún kvaddi seinust
þeirra systkinanna á Bala, en þann-
ig höfum við alltaf talað um húsið
Austurgötu 43 í Hafnarfírði.
Afí minn, Narfí Jóhannesson
stýrimaður, byggði húsið á Bala,
og þar fæddust tvö yngstu systkin-
in, en Sveina var fædd í svonefndu
Daðakoti, þar sem nú er Kirkjuveg-
ur 6. Alls urðu bömin átta, en eitt
lést í bamæsku.
Daginn sem Sveina var kistu-
lögð, komum við saman nokkrir
nánir ættingjar á heimili Gunnars
sonar hennar, og þar heyrðum við
segulbandsupptöku frá 1970, en
þar sagði Sveina frá bamæsku sinni
og lýsti því meðal annars er afí
byggði húsið, en þá lá amma,
Sigríður Þórðardóttir í taugaveiki.
Ekki vora húsakynnin stór, tvö her-
bergi og eldhús, og þætti slíkt ekki
mikið nú til dags. Seinna var byggt
við og vora þá tvær íbúðir f húsinu,
og sameiginlegt eldhús. Alltaf virt-
ist þó nóg húsrúm, því auk fjöl-
skyldunnar dvöldu þar skyldir og
vandalausir um lengri og skemmri
tíma og gestagangur var mikill.
Alltaf var hægt að hýsa næturgesti
og ef allt um þraut vora eldri bræð-
umir, Jóhannes og Jakob, látnir
sofa á lofti í litlum skúr, sem stóð
á lóðinni.
Þægindin sem við getum ekki
án verið núna og teljum sjálfsögð,
þekktust ekki um aldamótin.
Lífsbaráttan var hörð, eins og hún
er reyndar enn, þó á annan veg sé.
Bömin fóra að vinna nánast um
leið og þau gátu vettlingi valdið.
Pabbi fór í sína fyrstu sjóferð ellefu
ára gamall. Afí var sístarfandi,
bæði á sjó og landi og amma vann
í fiski.
En lífið var þó ekki eintómt strit.
Amma var létt í lund og mjög fé-
lagslynd. Hún starfaði mikið í stúku
og spilaði oft á harmoniku á böllum
og elskaði dansinn fram á efri ár.
Það var líka dansað í litla húsinu
á Bala.
Sveina tók í arf létta lund ömmu,
eins og fleiri af systkinunum. Hún
naut ekki skólagöngu umfram
bamaskólanám, en ekki efa ég að
hún hefði átt létt með að læra.
Ekki vissi ég fyrr en nú nýlega að
hún var vel ritfær, þegar ég las
bráðskemmtilega frásögn hennar
af því þegar hún 18 ára gömul fór
í kaupavinnu austur að Efra-Lang-
holti í Hranamannahreppi, ásamt
annarri hafnfírskri stúlku.
Eiginmaður Sveinu var Stefán
Hélgason, ættaður úr Húnavatns-
sýslu. Þau eignuðust einn son,
Gunnar Helga, sem er búsettur í
Reykjavík. Hann er kvæntur Ólínu
Ágústsdóttur og eiga þau tvö böm,
Þóra Jenný og Stefán Svein.
Afí dó 1943, en eftir lát ömmu,
1948, keyptu þau Sveina og Stefán
húsið á Bala og bjuggu þar síðan.
Stefán var vænn maður og mikið
prúðmenni en heilsuveill. Hann lést
29. júlí 1968. Síðan bjó Sveina ein
á Bala en alltaf hafði hún þó leigj-
anda í hluta af húsinu. Hún fluttist
á Sólvang 1986 og var þar uns
yfír lauk. >-
Gunnar Helgi var óskabam og
augasteinn þeirra hjóna og endur-
galt þeim ást og umhyggju þríkum
mæli. Samband þeirra mæðgínanna
var hlýtt og innilegt, og mörg spor-
in hefur hann átt að Bala, hlúð að
gamla húsinu og fegrað það. Það
er ekki sársaukalaust að hugsa til
þess að einhver annar gangi þar
um en Sveina og að nú fari maður
ekki fleiri ferðir í Fjörðinn til að
heimsækja hana og Betu systir
hennar.
Og nú er komið haust. Fjöllin
falda hvítu og landið skiptir litum.
Löngum og starfsömum degi er lok-
ið og hvíldin góð að kvöldi. Lögmál
lífsins verður ekki breytt. Við systk-
inin, böm Jakobs Narfasonar og
fjölskyldur okkar sendum frænda
okkar, Gunnari Helga, konu hans,
bömum og öðram vandamönnum
innilegar samúðarkveðjur. Guð
blessi þeim öllum minningamar um
Sveinu og systkinin öll frá Bala.
Arndís G. Jakobsdóttir
Þeir eru ekki margir lengur ofar
moldu sem hafa mjólkað kvíaæm-
ar. Það gerði Sveinsína a.m.k. í
einni kaupavinnudvöl austur í Flóa
og var það eitt af fjölmörgu sem
hún bar við og átti hún ekki langt
að sækja athafnasemi og vinnu-
gleði, eins orðlagður iðjumaður og
faðir hennar var. Frá móður sinni
hafði hún létta lund og löngun til
umgengni við aðra, félagsstarfa og
þessháttar. Hún var innfæddur
Hafnfírðingur, ekki þó fædd á Baia,
Austurgötu 43, eins og systkini
/ tilefni sýningar Gríniojunnar á S.O.R.D.
býdurÁRNARHOLL sérstakan matsedil á fósrudags
og laugardagskvöldum - fyrir og eftir svtúngu.
REGXBOGAKÆFA CLORU kr. 32S.-
IRegnbogakœfa með hunangssosu)
W.ALDGRAVE SÚPA kr.275
iSúpa kvöldsins)
XÆR ÖLDl SGIS GÓMSÆTT HREKKJUSVÍN í POKA kr. 99.
Ilnnbakadur grisavöðvi með osti, sveppum og kryddjurtasósu)
RISTI Ð SMÁLÚÐA HJÁ RICK OG R.\SSÝ kr. 795,-
iRisrnð smálúðuflök með pösw, hrísgrjónum og kneklingasósu}
KOMDi 0G F.ÁDU PÉR RI GLUKOLLUÁ BARSUM
opinn á kröldin frá kl. 18:00, þriðjud, lil laugard.
pantanasími 18833 Hrerfisgötu 8-10
Ingibjörg Sigurðar
dóttir — Minning
Fæddll.júlí 1913
Dáin 2. október 1988
Hin langa þraut er liðin
nú loksins hlaustu fríðinn
og allt er orðið rótt
Nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(Vald. Briem)
Þessar ljóðlínur koma mér í hug
er ég í fáum orðum vil minnast
Ingibjargar, móðursystur minnar.
Við systkinin voram heimagangar
hjá Ingu og Guðjóni í leik og starfí
með frændsystkinunum. Inga, eins
og hún var kölluð af gestum og
gangandi, var lífsglöð og kát í eðli
sínu. Brosið var kátt og smástríðið
þrátt fyrir allt sem á móti blés og
heilsuleysi. Þá áttu þau Guðjón
saman gott heimili sem þau höfðu
búið bömunum, og þangað vora
allir velkomnir hvort sem var á
nótt eða degi. Öllum var þeim lið-
sinnt eins og hægt var. Góðan guð
bið ég að styrkja eiginmann, böm,
bamaböm og aðra ættingja.
Far þú í friði
fríður guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Guðrún Hólm
ÍÞRÓTTASTARF
Ráðstefna haldin á vegum íþróttabanda-
lags Reykjavíkur í Kristalssal Hótels Loft-
leiða, laugardaginn 8. október kl. 9-17.
Á ráðstefnunni verður m.a. fjallað um:
• Núverandi stöðu íþróttamála
• Markaðsmál
• íþróttir og íjölmiðla
• Framtíðina
• Sálfræðilegu hliðina
• Rekstrar- og stjórnunarþáttinn
• Einstaklinginn og liðsheildina
Dagskrá:
9:00 Opnun - Júlíus Hafstein, formaður ÍBR
9:10 „Velgengni - Liðinu minu gengur illa" - Jóhann I. Gunnarsson
9:45 „Einstaklingsíþróttir og hópíþróttir" - Einar Vilhjálmsson
10:20 Kaffihlé
10:35 „Slökun gegn streitu" - Sæmundur Hafsteinsson
11:10 „Uppbygging TBR" - Sigfús ÆgirÁmason
11:40Umræður
12:15 Hádegisverður
13:15 „Markaðsmál íþróttahreyfingarinnar" - Magnús Pálsson
13:45 „Rekstur fyrirtækja og iþróttafélaga" - Porgils Óttar Mathiesen
14:20 „íþróttirog Pmiðlar" - Ingólfur Hannesson
14:55 Kaffihlé
15:10 „Hvað er til bóta í rekstri íþróttahreyfingarinnar?" - Ellen Ingvadóttir
15:45 „íþróttir og framtíðin - Baldvin Jónsson
16:20 Umraeður
18:00 Móttaka
Þátttaka tilkynnist til ÍBR í síma 91-35850
Innifalið í ráðstefnugjaldi kr. 2000,- er
hádegisverður og kaffiveitingar.