Morgunblaðið - 07.10.1988, Page 42

Morgunblaðið - 07.10.1988, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1988 42 „Harm Langari'iL ob uerbcx.dýrulæknir." Ást er... o í-i( ... að bæði séu, vel klædd. TM Reg. U.S. Pat Ott.—all rights reserved © 1988 Los Angeles Times Syndicate Með morgunkaffinu Um að gera að sjá allt sem þeir senda út, áður en þeir hækka afnotagjaldið ... Látum trén skýla okkur TU Velvakanda. Fyrir skömmu las ég athyglis- verða frétt í Morgunblaðinu þar sem fjallað var um áhrif skógræktar í þéttbýli. Þessi fréttagrein bar fyrir- sögnina „Yfirbyggingar kotna ekki í stað náttúrunnar. Þar var vitnað til Þorvaldar S. Þorvaldssonar for- stöðumanns borgarskipulags Reykjavíkur og erlendis sem hann flutti á ráðstefnu um umhverfismál sem Félag íslenskra arkitekta stóð fyrir. Þorvaldur benti á að mikil- vægt væri að gróðursetja tré sem víðast í þéttbýli til að draga úr- roki. Um þetta sagði hann: Það sem við erum aðalega að slást vð í borg eins og Reykjavík er vindurinn og til þess að slást við vindinn, tel ég að plöntunin sé meginmálið. Við þurfum að planta svo miklu í kring- um borgina að gróðurinn fari að skýla borginni fýrir vindinum. í fyrsta skipti erum við famir að vinna með slíkt gróðurplan á Hólmsheiðinni, sem er austur af Rauðavatni. Þar í tengslum við að- alskipulagið, hefvur verið gerð plöntuáætlun, þar sem plantað er í svæði sem á ekki aðbyggjast fyrr en á næstu öld, eða eftir þetta 20—30 ár. Þá vonumst við til að þama verði kominn skógur svo að sú kynslóð, sem þá þarf að byggja, geti byggt hús sín í ijóðrum og skjólbeltum. Það hlýtur óneitanlega að teljast til ókosta við búsetu í Reykjavík, a.m.k. víðast hvar, að vindgeljand- inn getur verið þreytandi. Mikill ávinningur væri fyrir borgarbúa ef tækist að stemma stigu við þessu þó ekki væri nema að einhveiju leyti. Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið því tréin era lengi að vaxa. Það er því þýðingarmikið að borgar- yfirvöld gefi þessu máli gaum og stuðli að því að tijám verði plantað sem víðast á landi borgarinnar. Þá kemur upp hjá mér sú hugmynd sem fyrir löngu var reifuð, að ógrónu landi í nágrenni borgarinnar verði skipt niður í sumarbústaðal- önd sem borgarbúar gætu fengið til t.d. 50 eða 100 ára leigufrítt gegn því að rækta skóg á landinu. Þannig fengist allt land ræktað og skógi prýtt í nágrenni borgarinnar án þess að neitt þyrfti að greiða fyrir. Það erv on mín að þessi mál verði skoðuð fyrr en seinna því það er ekki ráð nema í tíma sé tekið þegar skógrækt er annars vegar. Jóhann Víkverji skrifar Hinn vökuli sjónvarpsgagnrýn- andi Morgunblaðsins Ólafur M. Jóhannesson gerði beinar út- sendingar frá Ólympíuleikunum að umtalsefni í dálki sínum 28. sept- ember sl. Víkvetji fjallaði um skrif hans í sínum pistli 30. september. Ólafur svaraði strax fyrir sig í blað- inu daginn eftir og ráðlagði Víkveija að lesa betur það sem stæði í Morgunblaðinu. Ekki ætlar Víkveiji í ritdeilur við Ólaf M. Jóhannesson. Hann vill aðeins benda Ólafi á það í vinsemd að lesa betur það sem stendur í Morgunblaðinu! Víkveiji hélt því aldrei fram að Ólafur væri á móti beinum útsendingum frá Ólympíu- leikunum heldur sagði að hann hefði fundið að þeim. Á þessu er mikill munur. Ólafur fann að því að of mikið væri sýnt. Hann taldi nóg að sýna frá markverðustu íþróttaat- burðum og keppni íslendinga. Hann gagnrýndi það sem hann kallaði stefnulausar sjónvarpsútsendingar frá Sól og sagði að harðskeyttir hagsmunahópar réðu ef til vill of miklu um dagskrá ríkissjónvarps- ins, svo sem íþrótta- og óperu- áhugamenn. Af þessum orðum var ekki annað ráðið en hann teldi út- sendingarnar dekur við íþrótta- áhugafólk. En nóg um það. í tilefni af þessum orðaskiptum við Ólaf vill Víkveiji árétta það sem hann sagði á dögunum. I fyrsta sinn síðan íslenzka sjónvarpið tók til starfa fyrir meira en 20 áram, sátu íslendingar við sama borð og aðrar þjóðir hins vestræna heims og gátu fylgst með mestu íþrótta- hátíð veraldar í beinni útsendingu. Forráðamenn sjónvarpsins sýndu þann stórhug að tryggja sýningar á öllu því helsta sem fram fór á leikunum, bæði frá undanúrslitum og úrslitum. Það var svo áhorfand- ans að velja og hafna. Víkveiji hefur orðið þess var í samtölum við fjölda fólks, að mjög mikið var fylgst með þessum beinu útsendingum. Jafnvel fólk, sem alla jafna fylgist ekki með íþróttum, horfði á útsendingamar. Fyrir íþróttaáhugafólk vora útsend- ingamar samfelld þriggja vikna veizla! íþróttafréttamenn sjón- varpsins stóðu sig mjög vel og létu sig ekki muna um að bijóta lögin um hvíldartíma í beinni útsendingu nótt eftir nótt! Þá var vel til fundið hjá sjónvarpsmönnum að fá sér- fróða menn sér til aðstoðar. Er á engan hallað þótt því sé haldið fram að Jónas Tryggvason fimleikafræð- ingur hafi verið fremstur sérfræð- inganna. Áhorfendur öðluðust nýj- an skilning á fimleikaíþróttinni þeg- ar Jónas lýsti því sem fyrir augu bar. Víkveiji vonar að Ólympíuleikun- um í Barcelona, sem haldnir verða 1992, verði gerð jafn glæsileg skil í sjónvarpinu. XXX Stöð 2 hefur í sumar sýnt mynd- ir frá golfmótum atvinnumanna viðtniklar vinsældir. Umsjónarmað- ur páttanna er Björgólfur Lúðvíks- son. Fyrir nokkram vikum hættu þættimir, golfáhugamönnum til mikilla vonbrigða. Víkveiji veit að hann mælir fyrir munn margra er hann hvetur Stöð 2 til að sýna fleiri golfþætti. xxx Farþegar Flugleiða á leið heim frá Glasgow fyrir skömmu lentu i nokkram hrakningum á ferð sinni því tíu og hálfs tíma seinkun varð á fluginu. Að fenginni reynslu þótti einum farþega ástæða til að athuga hvort vélin yrði á áætlun áður en hann fór út á flugvöll. Honum var sagt að svo yrði. Þegar þangað kom um kl. 16, en vélin átti að fara kl. 17.30, var tilkynnt um tveggja tíma seinkun og far- þegum afhentar ávísanir á kaffi eða aðra drykki að upphæð 120 kr. Kl. 18 var flugvallarstarfsmaður spurð- ur um brottfarartíma og sagði hann að nánari upplýsingar yrðu gefnar kl. 21. Um kl. 19.30 var tilkynnt að farþegar fengju kvöldmat kl. 21 og er þeir vora að ljúka við að borða var þeim sagt að flogið yrði kl. 3 um nóttina. Þegar þeir ætluðu að fá sér hressingu út á ávísanimar kom í ljós að þær giltu ekki eftir miðnætti þótt ekki væri kallað út í vél fyrr en kl. 3.30. Þar urðu far- þegar sjálfir að finna sér sæti innan um sofandi fólk sem var að koma frá Kaupmannahöfn og virtust flug- freyjur hafa lítinn áhuga á að að- stoða fólk. Brottfarartíminn stóðst ekki því vélin fór ekki í loftið fyrr en kl. rúmlega 4 en þá birtust flug- freyjur og sögðu: „Má ekki bjóða ykkur eitthvað að drekka — það kostar ekkert!" XXX Einn af þessum farþegum flaug í vor á vegum Tjæreborg með Tower Air frá Stokkhólmi til New York. Þegar farþegar komu á völl- inn var þeim strax tilkynnt um 7 klukkutíma seinkun og þeim af- hentir kaffí- og matarmiðar. Nokkr- um vikum seinna fengu þeir sent afsökunarbréf frá Tjæreborg og ávísun upp á 495 sænskar krónur vegna tímataps sem þeir höfðu orð- ið fyrir. Flugleiðir mætfil taka sér þessa erlendu kollega sína tilfyrir- myndar! j i'J.lv v

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.