Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988 Svíar kaupa verk eftir • • Giinnar Orn MODERNA Muséet í Stokk- hólmi hefur keypt málverkið „Skáldið" eftir Gunnar Örn. Málverkið var meðal verka Gunnars Arnar á Feneyjatvíær- ingnum í ár, en þar var Gunnar fulltrúi íslands. Gunnar Kvaran, listfræðingur sagði verk Gunnars Amar hafa vakið mikla athygli og hrifningu á tvíæringnum og kaup Modema Muséet væm staðfesting á gildi þeirra í alþjóðlegu samhengi. Gunnar Öm hefði alla tíð búið á íslandi og væm þessi kaup áþreif- anlegur árangur fyrir íslenskar myndlistarsýningar erlendis. Er- lendir safnamenn kæmu ekki til íslands og þvi væri nauðsyn fyrir íslenska myndlistarmenn að kom- ast inn á hið alþjóðlega svið. Það er galleríið Achim Moeller Fine Art Ltd., umboðsaðili Gunn- ars Amar erlendis sem hefur milli- göngu um söluna. Gunnar Öm sagðist, í samtali Gunnar Örn við Morgunblaðið, vera mjög ánægður og telja þetta heiður. Achim Moeller hefði verið umboðs- aðili sinn í fimm ár og hefði hann haldið eina einkasýningu í gall- eríinu og tekið þátt í samsýning- um. í febrúar 1989 verður önnur einkasýning Gunnars Amar í gall- eríi Achim Moeller og laugardag- inn 29. október opnar einkasýning hans í Galleríi Nýhöfn. Modema Muséet hefur áður keypt verk eftir Erró, Sigurð Guð- mundsson og Kristján Guðmunds- son. Flestir stj ómmálaflokkar með stóra ftrndi í nóvember FLESTIR þeir stjórnmálaflokk- ar, sem eiga ftilltrúa á Alþingi, halda ýmist flokksþing eða flokksstjórnarfundi í nóvember. Kvennalistinn heldur árlegan landsfund sinn helgina 4-6. nóvem- ber í Lýsuhóli á Snæfellsnesi, og jafnvel á fleiri stöðum þar í ná- grenninu ef þátttaka er næg. Fund- urinn er opinn öllum konum. Sjálfstæðisflokkurinn heldur flokksráðs- og formannafund í Súlnasal Hótels Sögu, helgina 12.-13. nóvember, en þessi fundur er að jafnaði haldinn annað hvert ár á móti landsfundi. Rétt til fund- arsetu eiga flokksráðsmenn, sem kjömir era í sjálfstæðisfélögunum, auk formanna sjálfstæðisfélaga, fulltrúaráða og flokkssamtaka, alls rétt innan við 300 manns. Bæði Alþýðuflokkurinn og Fram- sóknarflokkurinn halda flokksþing sín 18-20. nóvember. Alþýðuflokk- urinn verður á Hótel íslandi í Reykjavík en Framsóknarflokkur- inn á Hótel Sögu. Um 250 fulltrúar VEÐUR VEÐURHORFUR í DAG, 27. OKTÓBER YFIRLIT { GÆR: Yfir Grænlandi er 1038ja mb hæð, en hægfara 983 mb lægð um 1000 km suður af landinu. Önnur álíka djúp lægð skammt suðsuðvestur af Færeyjum hreyfist norðaustur. Veður fer smám saman kólnandi. SPÁ: Norð- og norðaustanátt um allt land, víðast 5—6 stig. Él um norðanlands en þurrt og víða léttskýjað syðra. Kalt í veöri. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt og víðast bjartviðri. Frost 0 til 6 stig. HORFUR Á LAUGARDAG: Suðvestanátt um mest allt land og hiti víðast ofan við frostmarkið. Skýjað að mestu vestanlands, en létt- skýjað um landið austanvert. x Norðan, 4 vindstig: *' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / 7/// Rigning 7 7 7 * / * / * / * Slydda / * / .* * * * * * * Snjókoma * * * •J 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius V Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —|- Skafrénningur Þrumuveður W rí ssá s % m w \ V' VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri +1 hálfskýjað Reykjavík 2 léttskýjað Bergen 3 rígning Helslnki 4 skýjað Kaupmannah. 6. skýjað Narssarssuaq 4-2 heiðsklrt Nuuk 1 léttskýjeð Osló 5 alskýjað Stokkhólmur 4 hálfskýjað Þórshöfn 9 rigning Algarve 24 léttskýjað Amsterdam 13 mistur Barcelona 18 þokumóða Chicago +1 alskýjað Feneyjar 16 skýjað Frankfurt 12 skýjað Glasgow 14 skýjað Hamborg 6 skýjað Las Palmas 24 skýjað London 17 skýjað Loa Angeles 16 mistur Luxemborg 13 hálfskýjað Madnd 21 léttskýjað Malaga 20 mistur Mallorca 23 léttskýjað Montreal 6 alskýjað New York 7 mistur París 13 skúr Róm 22 þokumóða San Diego 17 alskýjað Winnipeg +6 skýjað eiga sæti á flokksþingi Alþýðu- flokksins sem flestir eru kosnir í alþýðuflokksfélögum út um l&nd. Á þinginu verður m.a. kosinn formað- ur og varaformaður flokksins og einnig er kosið í flokksstjóm og framkvæmdastjóm. Þingið verður opið almenningi. Seturétt á flokksþing Framsókn- arflokksins eiga um 700 manns. Þar verður kosið í trúnaðarstöður flokksins og miðstjóm. Flokksþing Framsóknarflokksins er haldið ann- að hvert ár. Aðalfundur miðstjórnar Alþýðu- bandalagsins verður haldinn helg- ina 26.-27. nóvember að Hverfis- götu 105 í Reykjavík, en sá fundur er að jafnaði haldinn annað hvert ár, á móti landsfundi. Rétt til setu á fundinum á miðstjórn, aðalmenn og varamenn, stjórnir alþýðubanda- lagsfélaga, þingflokkur og fram- kvæmdastjórn, alls um 200 manns. Hæstiréttur: Fangelsi í 18 mán- uði fyrir nauðgun HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt 32 ára mann í 18 mánaða fangelsi fyrir nauðgun. Maðurinn var ákærður fyrir tvær nauðganir, en Hæstiréttur taldi ekki sannað að hann hefði gerst sekur um aðra þeirra. í áliti læknis, sem skoðaði aðra konuna, kom fram að hún bæri merki um „nýafstaðnar samfarir og það ekki með eðlilegum aðdrag- anda“. Þótti þessi niðurstaða, sem læknaráð gerði ekki athugasemdir við, styrkja framburð hennar og var héraðsdómur staðfestur að því er þann hluta ákæra varðaði. Hinn hluti ákæra varðaði kæra konu, sem hélt því fram að maður- inn hefði nauðgað sér á heimili hans. í dómi Hæstaréttar kom fram að konan hefði farið inn í svefn- herbergi mannsins með honum að eigin ósk. Engin merki hafi verið um átök á vettvangi og ekki sjáan- legir áverkar á konunni. Síðan seg- ir í dóminum: „Varhugavert þykir að telja alveg fullnægjandi sannan- ir fram komnar fyrir því, að ákærði hafí þröngvað kæranda til holdlegs samræðis.." Niðurstaðan varð sú, að maður- inn var dæmdur í 18 mánaða fang- elsi og skal 14 daga gæsluvarð- haldsvist hans koma til frádráttar refsingu. Þá vora konunni, sem fyrr er nefnd, dæmdar 200 þúsund króna bætur, auk vaxta frá 12. Hundahald: 2,15% hafa kosið 633 Reykvikingar kusu um fyrir- komulag hundahalds í borginni í gær. Þá hafa um 1470 manns kosið, af þeim 68.525 sem eru á kjörskrá. Það samsvarar um 2,15% þátttöku. Kosningin stendur til sunnudags og er kosið í anddyri Laugardals- hallar. Kjörstaður er opinn fimmtu- dag og föstudag frá klukkan 16-19 og laugardag og sunnudag frá klukkan 14-20. apríl 1986. Manninum var einnig gert að greiða helming sakarkostn- aðar. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómaramir Magnús Thoroddsen, Benedikt Blöndal, Bjami K. Bjarna- son og Guðmundur Jónsson og Haraldur Henrysson, settur hæsta- réttardómari. Stephan Stephen- sen látinn STEPHAN Stephensen í Verð- andi lést í Reykjavík síðastliðinn sunnudag, 88 ára að aldri. Stephan fæddist 15. febrúar 1900 á Lágafelli í Mosfellssveit. Foreldrar hans vora séra Ólafur Stephensen úr Viðey og Steinunn Bjömsdóttir frá Karlskála. Hann flutti fjögurra ára gamall með for- eldram sínum til Grandarfjarðar en bjó í Reykjavík frá árinu 1919. Stephan stofnaði veiðarfæra- verslunina Verðandi hf. ásamt Jóni Þorvarðarsyni árið 1927 en starfaði áður meðal annars við skrifstofu- og útflutningsstörf fyrir ýmsa út- gerðarmenn. Verðandi var á sínum tíma eitt umsvifamesta fyrirtækið í innflutningi og sölu á veiðarfæram og öðram útgerðarvörum. Verðandi hætti smásöluverslun en hélt áfram innflutningi og heildverslun og starfaði Stephan við fyrirtækið til dánardags. Stephan var þekktur hestamað- ur. Hann tók virkan þátt í félags- starfi í Reykjavík, var m.a. einn af stofnendum Karlakórs Reykjavíkur. Eftirlifandi eiginkona hans er Ingibjörg Stephensen. Sonur þeirra er Ólafur Stephensen. Útför Stephans Stephensen fer fram frá Dómkirkjunni i dag, fímmtudag, klukkan 10.30. Loðnuveiði hefiir gengið mjög vel við miðlínuna Loðnuveiðarnar við miðlínuna norður af Húnaflóa ganga vel og fylla skipin sig nánast jafiióð- um og þau koma út. Loðnan myndar góðar torfur að sögn skipstjóa á miðunum og veður heftir verið gott. Um miðjan dag í gær voru aðeins tvö skip eftir á miðunum, en fjölgaði aftur er kvölda tók. Auk þeirra skipa, sem áður er getið, fór Sighvatur Bjamason VE til Vestmannaeyja á þriðjudag með 710 tonn, Gullberg VE til Þórs- hafnar með 600 og Súlan 790 til Krossaness. Aflinn á þriðjudag varð alls 5.230 tonn. Síðdegis á miðvikudag höfðu fimm skip tilkynnt um 3.040 tonna afla. Albert GK fór með 750 til Raufarhafnar, Þórður Jónasson EA 700 til Krossaness og Hilmir II SU 520 til Siglufjarðar. Guðmundur Ólafur ÓF hafði fengið 600 tonn og Keflvíkingur KE 470, en í hvor- ugu tilfellinu hafði löndunarstaður verið ákveðinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.