Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
13
LÍTILS VIRÐIN G
VIÐ ÞINGRÆÐIÐ
eftir GeirH. Haarde
Fyrir skömmu birtist í dagblöð-
unum auglýsing frá nýstofnuðum
Atvinnutryggingarsjóði útflutn-
ingsgreina, sem gegna á lykilhlut-
verki í efnahagsstefnu nýrrar ríkis-
stjómar. í auglýsingunni er þeim
fyrirtækjum sem óska eftir lánum
úr sjóðnum bent á að snúa sér til
hans og fá sendar nauðsynlegar
upplýsingar um þessi lán. Eftir
stjómarformanni hefur verið haft
að lánveitingar úr sjóðnum geti
hafíst um miðjan nóvember.
Sjóður þessi byggir tilveru sína
á nokkmm greinum í bráðabirgða-
lögum ríkisstjómar Steingríms Her-
mannssonar frá 28. september sl.
Hann fær einn milljarð króna í
vöggugjöf frá ríkisstjóminni, en til
að afla þess fjár er m.a. ætlunin
að leggja 400 milljóna króna tekju-
skattsauka á almenning á ámnum
1989 og 1990. Að auki á sjóðurinn
að taka milljarð króna að láni er-
lendis til starfsemi sinnar og hafa
milligöngu um að skuldbreyta 5
milljörðum af lausaskuldum út-
flutningsfyrirtækj a.
Auglýsingin frá sjóðnum birtist
í blöðunum nokkmm dögum áður
en fmmvarp til laga til staðfesting-
ar bráðabirgðalögunum kom til
umræðu í efri deild Alþingis. Þar á
fmmvarpið eftir að vera til með-
ferðar við þijár umræður og hjá
nefnd áður en það hlýtur af-
greiðslu. Ætla má að meirihluti sé
fyrir þessu framvarpi í efri deild.
Hins vegar er alkunn sú óvissa
sem ríkir um það, hvort ríkisstjóm-
in hefur meirihluta í neðri deild
fyrir þessum bráðabirgðalögum. Á
það mun væntanlega reyna eftir
nokkrar vikur að lokinni meðferð
málsins í efri deild. Hitt er ljóst að
miðað við úrslit í nefndakjöri í neðri
deild hefur ríkisstjómin ekki meiri-
hluta í deildinni og fmmvörp henn-
ar geta því fallið þar á jöfnum at-
kvæðum. Þetta atriði skiptir gmnd-
vallarmáli.
En þrátt fyrir þá óvissu sem ríkir
um afdrif málsins hefur verið rokið
af stað með að koma hinum nýja
sjóði á laggimar. Ef svo fer fram
sem horfír, má ætla að byijað verði
að lána úr sjóðnum áður en í ljós
kemur hvort lagaákvæði um hann
njóta meirihlutastuðnings á Alþingi.
Geir H. Haarde
Þessi vinnubrögð em fáheyrð og
hrein storkun við þingræðið í
landinu. Auðvitað er siðlaust að
setja bráðabirgðalög, sem ekki er
fullvíst að njóti meirihlutafylgis á
Alþingi, en þá tekur steininn úr,
þegar byijað er að gera fjármála-
ráðstafanir er skipt geta milljörðum
á gmndvelli slíkra laga.
Hvað ætla stjómarherramir að
gera ef ákvæðin um sjóðinn í bráða-
birgðalögunum verða felld? Hvers
konar framkoma er það gagnvart
þeim aðilum sem hyggjast leita fyr-
irgreiðslu hjá sjóðnum að bjóða upp
á slíka óvissu? Hafa ráðherramir
hugleitt hver staða lántakenda yrði
við slíkar aðstæður?
Hér er um aðferðir að ræða sem
mjög vafasamt er að standist stjóm-
arfarslega, hvað svo sem líður til-
gangi sjóðsins. En þær geta einnig
haft alvarlegar fjárhagslegar afleið-
ingar fyrir þá aðila sem ieita fyrir-
LAGANEMAR veita ókeypis lög-
fræðiaðstoð fyrir almenning yfír
vetrarmánuðina, eins og gert hef-
ur verið undanfarin ár. Aðstoðin
fer þannig fram að eitt kvöld í
viku veita laganemar, á siðari
hluta námsins, lögfræðilega ráð-
gjöf í gegnum sima.
Markmið þessarar þjónustu er að
almenningur eigi þess kost að geta
á skjótan og ódýran hátt fengið upp-
„Þessi vinnubrögð eru
fáheyrð og hrein stork-
un við þingræðið í
landinu. Auðvitað er
siðlaust að setja bráða-
birgðalög, sem ekki er
fullvíst að njóti meiri-
hlutafylgis á Alþingi,
en þá tekur steininn úr,
þegar byijað er að gera
fjármálaráðstafanir er
skipt geta milljörðum á
grundvelli slíkra laga.“
greiðslu sjóðsins, ef í ljós kemur,
að hann reynist ekki megnugur að
standa við skuldbindingar sínar,
vegna þess að ákvæði um hann
njóta ekki stuðnings meirihluta
þingsins.
Það hlýtur að vera lágmarks-
krafa, að sjóður þessi gangist ekki
undir neinar skuldbindingar né gefí
nein lánsijárfyrirheit fyrr en í ljós
er komið, hvort fyrir þessari starf-
semi er meirihlutafylgi á Alþingi
eða ekki. Ríkisstjómin gat látið á
þetta reyna nú við upphaf þings
með því að leggja málið fyrst fyrir
neðri deild. Hún kaus að fresta
úrslitum með því að fara með mál-
ið fyrst fyrir efri deild. í samræmi
við þá ákvörðun ætti að skjóta allri
starfsemi sjóðsins á frest þar til
vilji Alþingis liggur fyrir.
Höfundur er einn afalþingis-
mönnum Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík.
lýsingar um réttarstöðu sína ef eitt-
hvað kemur upp á, s.s. andlát, skiln-
aður, flársvik o.s.frv. Fólk fær einnig
upplýsingar um hvert það getur snú-
ið sér til að fá úrlausn mála sinna,
en laganemar hafa ekki leyfí til
málflutnings og geta því ekki fylgt
málum eftir í dómskerfinu.
Lögfræðiaðstoðin er opin á
fimmtudögum kl. 19.30 til 22.00 og
símanúmerið er 11012. Aðstoðin er
einungis veitt í formi símaráðgjafar.
Lögfi’æðiaðsthð Orators
Veldu HITACHI
Iog þú hefur
tæknina
í hendi þér
Utborgun aöeins
10.000 kr.
og eftirstöðvar á
12 mánuðum!
KRINGLl
Holl
f rá AEG
Kæliskápur
Santo 2600 DT
• H144x54x58 cm
• Eyðslugrannur
• 204 lítra kælir
• 48 lítra kælir
• Sjálfvirk afþýðing
á kæli
Verð kr.
34.782,-
stgr.
B R Æ Ð U R N
R
DJ ORMSSON HF
OTRULEGT satt
SKÓLAFÓLK - FYRIRTÆKI - STOFNANIR -
EINSTAKLINGAR - HEIMILI
É/ÖL
12 gerðir og verðflokkar af AMSTRAD
PC-tölvum á tilboði sem ekki er hægt að hafna.
"dÆMI 1: AMSTRAD PC 1512/20MB harður diskur 14“ sv.hv.’\
skjár. Fjöldi fylgihluta og forrita t.d. MÚS, GEM,
RITV.ÁÆTLG., LEIKIR O.FL. O.FL.
Stór ísl. handbók og 30% afsl. á 12 tíma PC-nám-
skeiði hjá Tölvufræðslunni.
^OKTÓBERTILBOÐ 104.900,- 79.800,’
' ...................— ■>
DÆMI 2: AMSTRAD PC 1640/20 MB harður diskur 14“ sv.hv.
hágæða skjár.
Innbyggt EGA, HERCULES OG CGA kort, fjöldi fylgi-
hluta og forrita.
Stór (sl. handbók og 30% afsláttur á 12 tima nám-
skeiði hjá Tölvufræðslunni.
' OKTÓBERTILBOO 121.800,' 99.800,’
-----——-..-— .......... ...........- .... ^
ÓDÝRASTA AMSTRAD PC: 1 drif 14" skjár aðeins 49.800,-
DÆMI 3: AMSTRAD PPC 512 ferðatðlva/1 drif, 10“ skjár, AT-^
lyklaborð, 5,4 kg.
0KTÓBERTILB0Ð: 59.900,’ 49.900,’
Kynntu þér AMSTRAD - Það er ekki að ástæðu-
lausu að AMSTRAD PC-tölvur eru mest seldu tölvur
í Evrópu í ár.
Ástæðurnar eru meðal annars: Fullkomlega IBM
samhæföar + ríkulega útbúnar af fylgihlutum og for-
ritum + ótrúlega lágt verð= Lang bestu tölvukaupin.
GREIÐSLUKJÓR VIÐ ALLRA HÆFI/
RAÐGREIÐSLUR,
Allt verö miöað við gengi 30. september og staögreiöslu.
ÍTÖUfULHND - HLEMMI
LAUGAVEGI 116 V/HLEMM S.621122