Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 47
47 bömum og bamabömum sýndi hann jafnan sérstaka ljúfmennsku. Að leiðarlokum skal góður vinur kvaddur með virðingu og þökk fyr- ir gifturíkt starf, sem þó verður aldrei fullþakkað. Við fjölskyldan öll vottum Mar- gréti og fjölskyldu hennar samúð okkar og biðjum þeim Guðs blessun- ar. Blessuð sé minning Þórðar Guð- mundssonar. Ebba Hvannberg Einn af þeim ljúfustu mönnum, sem ég hefí kynnst, er nú horfinn af sjónarsviðinu. Þórður Guð- mundsson var einn af máttarstólp- um Sundfélagsins Ægis. í þeim góða félagsskap hefi ég eignast marga af mínum allra bestu vinum, sem vom þá og em ennþá „sundvin- ir“ Helga mannsins míns. En það vom ekki mín fyrstu kynni af þessum góða vinalega manni með ljúfa brosið. Við vomm nágrannar um langa hríð í vesturbæ Reykjavíkur. Þau hjón, hann og elskuleg eiginkona hans, Margrét Sigurðardóttir, bjuggu við Sólvalla- götuna, en ég og mín fjölskylda við Ljósvallagötuna. Mér er það í bams- minní, hversu fólkið var gott, sem gekk um götur vesturbæjar. Það gaf sér oft tíma til þess að tala við okkur. Þórbergur Þórðarson skáld, var í heilmiklu uppáhaldi hjá okk- ur, en hann bjó við Hringbrautina. Þegar Þórður gekk til vinnu sinnar, tókum við eftir því, hversu geð- þekkur maður hann var. Harin lét ekki eins og við krakkamir væmm ekki til. Hann brosti til okkar sínu ljúfa brosi. Eg minnist þess einnig, að fastur punktur í tilvem okkar þá vom allar helstu verslanir í mið- bæ Reykjavíkur. Þar skipaði stóran sess skóverslun Hvannbergs- bræðra, sem ég hélt reyndar i mörg ár, að Þórður ætti, á því var ekki nokkur vafi í mínum huga, svo órjúfanlegur hluti var hann af þeirri verslun, í marga áratugi. Fyrir jólin var það viðtekin venja hjá okkur, að fara og skoða jólaskreytingamar í glugganum hjá Hvannbergsbræðr- um. Þórður Guðmundsson stjómaði versluninni eins og honum var ein- um lagið. Hann var eins og klettur, svo hægur og rólegur. Ég er viss um, að hans var sárt saknað, þegar hann lét af störfum, sem verslunar- stjóri þar, fyrir ekki svo ýkja mörg- um ámm. Síðar kynntumst við Þórður bet- ur. Ég var þá orðin eiginkona eins af „strákunum" hans í Sundfélag- inu Ægi. Þórður var fararstjóri fyr- ir ferð þeirra félaganna á Norður- landameistaramót í sundi. Eigin- konur fóm gjaman með. Þetta var mín fyrsta utanlandsferð. Hún verð- Ur mér alltaf ógleymanleg. Þama vom í för allir fremstu sundmenn landsins, karlar og konur, frábær fararstjóri og náttúrlega frábær sundþjálfari, Jónas Halldórsson, og eiginkonur þeirra. f þessari ferð kynntist ég vel þeim hjónum hvor- umtveggja og hafa þau kynni hald- ist fram á þennan dag. Þegar heim kom úr þessari fyrstu utanlandsferð minni héldu þau Margrét og Þórður okkur veglegt samkvæmi, sem seint gleymist. Þarna vom höfðingjar á ferð. Elsku Margréti og fjölskyldunni allri vottum við Helgi okkar dýpstu samúð. Edda Sigrún MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988 Enn höfum við misst einn af okkar traustustu Gideonfélögum, þ.e. Þórð Guðmundsson, fyrrv. verslunarstjóra, sem Drottinn hefur nú kallað á sinn fund, eftir dygga þjónustu að útbreiðslu Guðs ríkis hér á jörð. Þórður fæddist í Reykjavík 19. maí 1908, sonur hjónanna Guð- mundar Sæmundssonar bónda á írafelli í Kjós Jónssonar af Fremra- Háls-ætt, og Kristínar Þórðardóttur Þorvarðarsonar b. í Kalastaðakoti á Hvalfjarðarströnd. Eftir að Þórður útskrifaðist úr Samvinnuskólanum í Reykjavík 1926, hóf hann verslunarstörf hjá Skóverslun Hvannbergsbræðra og var þar síðar um áratugaskeið verslunarstjóri, virtur bæði af eig- endum og starfsfólki verslunarinnar fyrir prúðmennsku og éinstaka trú- mennsku í starfí. Hann hætti þar störfum fyrir um það bil þrem ámm sökum heilsubrests. A sínum yngri ámm stundaði Þórður sundíþróttina, einkum var hann mjög fær bringusundsmaður átti um margra ára skeið íslenskt met í 200 metra sundi. Hann var einn af stofnendum Sundfélagsins Ægis 1927 og formaður þess frá 1941—öO. Hann sat í stjóm íþrótta- dómstóls ÍSÍ frá 1940 og í stjóm íþróttasambands íslands 1952—64. Hann var 1936 þátttakandi í Ólympíuleikunum í Berlín, sem keppandi í sundknattleik. Hann fór sem fararstjóri sundliðs Islands á Norðurlandameistaramót í Helsing- fors 1957. Hann hlaut gullmerki ÍSÍ og var heiðursfélagi Sundsambands íslands og sundfélagsins Ægis. Þessi upptalning sýnir meðal ann- ars, hversu íþróttahreyfíngin mat hann mikils, enda einkenndist fram- koma hans af hógværð og ljúf- lyndi. Ekki er úr vegi að ætla að hann hafi tileinkað sér þessi orð úr Filippí-bréfinu, 4, 4—5: „Verið ávalt glaðir vegna samfélagsins við Drottin: eg segi aftur verið glaðir. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum o.s.frv.“ Enda átti Þórður lifandi trú á Frelsarann Jesúm Krist. Sem ungur maður starfaði Þórð- ur í KFUM sem sveitarstjóri, sem var og er fólgið í því að safna sam- an bömum og æskufólki undir heil- ög áhrif Guðs Orðs, þ.e. að leitast við að vinna æskuna fyrir Jesúm Krist. Margir af drengjunum hans minnast hans nú og blessa minn- ingu hans. Arið 1947 í mars gerðist Þórður Gídeonfélagi. í starfí Gídeonfélags- ins fann hann vettvang til að vinna að því sama sem hann hafði unnið að í KFUM, en nú á víðari grund- velli. Þegar Gídeonfélagið var stofn- að 1945, var það fyrsta Gídeonfé- lagið utan Ameríku. Nú eru starf- andi Gídeonfélög ( 137 þjóðlöndum í mörgum deildum í hveiju landi, meðal annars í 8 deildum hér á landi. Hlutverk Gídeonfélagsins er hið sama og hlutverk kristinnar kirkju frá upphafi, að leitast við að ávinna menn fyrir Jesúm Krist, meðal annars með því að dreifa Heilagri ritningu sem víðast. Meðal annars hafa Gídeonfélagar komið fyrir Biblíum og Nýjatestamentum á hótelum og á sínum tíma í far- þegaskipum, flugvélum og fangels- um, einnig við hvert sjúkrarúm í sjúkrahúsum landsins, gefíð hjúkr- unarfólki Nýjatestamenti við skóla- útskrift. En stærsta verkefnið allt frá árinu 1954 hefur verið að gefa öllum skólabömum, sem náð hafa 10 ára aldri, Nýjatestamentið. Á hveiju hausti um áratugaskeið fór Þórður ásamt öðrum félagsbræðr- um í bamaskólana til að afhenda testamentin og hvatti þá bömin til að notfæra sér þann ómetanlega fjársjóð sem þar er að fínna. Þórður gegndi ýmsum öðrum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Hann var um skeið formaður Félagsdeild- ar I, ennfremur ritari, svo og gjald- keri. Öll þessi störf vann hann af mikilli samviskusemi og trú- mennsku, eins og vænta mátti. Við stöndum því í mikilli þakkarskuld við hann. Mér er kunnugt um það að hann naut sín vel í þessum sam- tökum okkar, sem stundum eru nefnd „framlengda hönd hinnar kristnu kirkju", þar sem Gídeonfé- lagið nær með Fagnaðarerindið langt út fyrir kirkjuveggina, þangað sem það hittir fyrir fólk, sem ella aldrei kæmist undir áhrif Guðs Orðs. Árið 1936, 20. júní, kvæntist Þórður sinni ágætu eiginkonu, Margréti Sigurðardóttur, skóla- stjóra og stofnanda Hvítárbakka- skóla í Borgarfírði og síðari konu hans, Ásdísar Margrétar Þorgríms- dóttur. í rúm fimmtíu ár lifðu þau í farsælu hjónabandi og studdu hvort annað í blíðu og stríðu, eink- um kom hennar stuðningur við Þórð best í ljós, eftir að hann missti heilsuna. Börn Þórðar og Margrétar eru: Kristín, fædd 14. september 1937, íþróttakennari, gift Guðmundi Guð- mundssyni, rannsóknarlögreglu- manni, en þau eiga ijórar dætur; Sigurður, fæddur 21. mars 1939, verkfræðingur, kvæntur Sigrúnu Andrésdóttur, tónlistarkennara, en þau eiga þijú böm, og eitt barna- barn; Hildigunnur, fædd 13. maí 1945, bankaritari, gift Finnboga Höskuldssyni, tæknifræðingi, en þau eiga tvær dætur, langafabörnin erru tvö. Systkini Þórðar eru: Valgerður, fædd 7. september 1906, ekkja eft- ir Kristin Valdimarsson, pípulagn- ingamann í Reykjavík; Guðfinna, fædd 20. júlí 1910, gift Áma Stef- ánssyni, bifvélavirkja í Reykjavík, en þau em bæði látin; Theodór, fæddur 8. ágúst 1912, sem er lát- inn, vélvirki í Reykjavík, en eftirlif- andi kona hans er Laufey Þorgeirs- dóttir; Sigríður fædd 27. október 1915, var gift Max Jeppesen, hús- gagnasmið í Reykjavík, sem er lát- inn. Við Gídeonfélagar söknum þess að hafa ekki Þórð lengur með á félagsfundum okkar, en þar var sæti hans sjaldan autt. Við blessum minningu hans og biðjum eftirlif- andi eiginkonu hans, börnum, bamabömum, bamabarnabömum og öðrum aðstendum allrar Guðs blessunar um alla framtíð. Þorkell G. Sigurbjörnsson Kveðja frá Sundfélaginu Ægi Fallinn er frá einn af stofnendum Sundfélagsins Ægis, Þórður Guð- mundsson. Hann var einn þeirra er hvað ötulast starfaði að stofnun og uppbyggingu félagsins. Þórður var í stjóm félagsins samfellt í 23 ár, einnig keppti hann í sundi og sund- knattleik í fjölda ára og var meðal þátttakenda á Ólympíuleikunum 1936. Ég kynntist Þórði að vísu ekki persónulega, þar sem hann var hættur afskiptum af félaginu er ég byijaði í því, en engu að síður vissi ég ávallt hver hann var þessi bjart- leiti, prúði maður, er ég sá honum bregða fyrir. Bróðir Þórðar var Theódór Guðmundsson, en hann er látinn fyrir nokkrum árum. Þeir bræður em þeir tveir menn sem lengur en nokkrir aðrir hafa setið í stjóm Ægis og hafí þeir þökk okkar fyrir. Ég vil fyrir hönd Sund- félagsins Ægis færa eftirlifandi eig- inkonu Þórðar, Margréti Sigurðar- dóttur, og bömum þeirra samúðar- kveðjur. F.h. Sundfélagsins Ægis, Hreggviður Þorsteinsson formaður. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal- stræti 6, Reykjavík og á skrif- stofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. byrjendanámkeið Fjölbreytt, gagnlegt og skemmtiiegt byrjendanámskeið í notkun einkatölva Dagskrá: • Grundvallaratriði við notkun PC-tölva • Stýrikerfið MS-DOS • Ritvinnslukerfið WordPerfect • Töflureiknirinn Multiplan • Umræður og fyrirspurnir Tími: 13., 8. og 10. nóvember kl. 20-23. Innritun í símum 687590 og 686790 Borgartúni 28. ÞORLAKSSON & NORÐMANN H.F. RÉTTARHÁLSI 2 SÍMI 8 38 33 HREINIÆTI ER OKKAR FAG #Iaiírsturtuklefi með öllum fylgihlutum á frábæru verði Amitsubishi COLT BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG IhIheklahf VERÐFRÁKR. J Laugavegi 170-172 Simi 695500 524.000,* I i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.