Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 27.10.1988, Blaðsíða 54
'54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988 WfÍMW „pú ekki abrcx. dóttur þú mfssir son■ " Hættuleg- ur skattur Til Velvakanda. í blöðum undanfarið hefur ríkis- stjómin boðað hækkun innflutn- ingsgjalda á bílum. Látið hefur ver- ið að því liggja að þessi skattur verði enn meir stighækkandi en nú er og er hér átt við þau áform að skattleggja stóra og þunga fólksbfla og jeppa alveg sérstaklega. Þessi stefna er sögð hafa það sér til ágæt- is að bensíneyðsla verði minni og sjálfsagt sé að skattleggja hina ríku sérstaklega, þar sem þeir kaupi gjaman bfla af þeirri gerð sem lýst er hér að ofan. En er þessi stefnumörkun í skattamálum eins ágæt og kannski virðist í fljótu bragði? í því sam- bandi getum við litið til frænda okkar í Danmörku. Þar í landi eru bflaskattar mjög háir og stighækk- andi eftir stærð og þunga bílsins. Á götum Kaupmannahafnar sér aðkomumaður fljótt að meginhluti bflaflotans er smábflar og oft gaml- ir smábflar. Leigubflstjórar aka hins vegar gjaman á Mercedes Benz- bflum. Þeir borga minni skatta og mega svo selja bflana almenningi eftir ákveðinn §ölda kflómetra í leiguakstri. í dönskum fjölmiðlum er talsverð umræða um að bflar á vegum þar séu of litlir og gamlir og þess vegna verði meira um stór slys og dauðsföll í umférðinni en þyrfti að vera ef menn ækju um í sæmilega traustum bflum. Það er ljóst að ein besta líftrygging öku- manns er að aka um í stómm sterk- byggðum bíl. Á það sérstaklega við um umferð á íslenskum vegum þar sem hún er bæði hröð og vægðar- laus og oft í engu samræmi við gæði vegakerfísins. Núverandi ríkisstjóm kennir sig gjaman við alþýðu manna. Ef sú skattastefna sem hér er lýst verður lögfest á launamaður á íslandi þess engan kost að kaupa sér þessa teg- und líftryggingar. Ráðherramir munu hins vegar sjá til þess að þeir komist í laxveiðitúrana á stóru jeppunum sínum næsta sumar. Ingimundur Gislason Oheilindi og sýndarmennska Til Velvakanda. Ég hlustaði á þáttinn í Ríkissjón- varpinu sunnudagskvöldið 23. októ- ber þar sem Bogi og Ingimar, starfsmenn sjónvarpsins, vom að tala við kommúnistann Ólaf Ragnar Grímsson. Fannst mér hann koma einkennilega fyrir. Hann var svo viðskotaillur við spyijendur þegar þeir vom að tala við hann. Hann þóttist vera að taka hanskann upp fyrir Stefán Valgeirsson, ég held að það hafí verið sýndarmennska. Ég spyr, er þessi maður hæfur til að koma fram í sjónvarpi ef hann ætlar að verða svona illur þegar talað er við hann? Félagsstarf aldraðra: •• Oldruðum mismunað Til Velvakanda. Fjölbreytt vetrarstarf er nú aug- lýst hjá félags- og þjónustumið- stöðvum Reykjavíkurborgar, sem era nú orðnar níu talsins og em opnar fyrir alla Reykvíkinga 67 ára og eldri. Það munar miklu fyrir fólk sem hætt er að vinna að fá hárgreiðslu, fótsnyrtingu, mat og m.fl. fyrir hálfvirði. En vill félagsmálastofnun borg- arinnar svara því, hvers vegna aldr- aðir Reykvíkingar sitja ekki við sama borð hvað þessa þjónustu snertir. Þeir sem hafa haft nægilega mikil fjárráð til þess að kaupa sér íbúðir í húsum þeim sem þjónustu- miðstöðvar borgarinnar em stað- settar í, þurfa ekki að hlíta sömu reglum og aðrir ellilífeyrisþegar. Þeir sem em 60 ára og eldri fá þessa þjónustu niðurgreidda, ef þeir eiga íbúðir í sama húsi og þjón- ustumiðstöðin er rekin. Þetta þykir mörgum furðulegt og er það nauðsynlegt að borgar- yfírvöld upplýsi á hvaða forsendum þessi mismunun er byggð. Ellilífeyrisþegi Ég var steinhissa og sár þegar ég heyrði að nú vildi Ólafur Ragnar fara að skerða laun ellilífeyrisþega og öryrkja ef þeir fá úr lífeyrissjóði líka. Ég spyr og tek vægt til orða, er ekki verið að skerða lífeyrissjóði sem fólk er búið að borga í ámm saman með sínu vinnuálagi og striti. Mér finnst þessi tillaga koma úr hörðustu átt. Ólafur Ragnar hefur láð fráfarandi ríkisstjóm að setja matarskatt á og skerða laun. Ann- ars hef ég alltaf séð í gegn um þessa menn. Þeir em ekki fyrr komnir til valda en þeir gleyma öll- um sínum ásökunum í garð fyrri ríkisstjómar. Svo vil ég koma hval- veiðum á sem þjóðaríþrótt eins og Spánveijar gera þegar þeir em að murka lífið úr nautunum. S.J. HÖGNI HREKKVÍSI t Víkverji skrifar Víkveiji sá sem hér skrifar átti þess kost fyrir skömmu að aka hitaveituveginn nýja frá Reykjavík til Nesjavalla. Vegurinn hefur ekki verið opnaður fyrir almenna um- ferð, en það verður gert, þegar framkvæmdum við hitaveituna lýk- ur. Verður þá sett á veginn bundið slitlag. Víkveiji hafði ekki farið þarna um fyrr og kom satt að segja á óvart, hversu skemmtileg leiðin er og þá sérstaklega landslagið, þegar ekið er í gegn um Dyrafjöll. Á því leikur enginn vafi, að þetta verður ijölfarin leið, þegar hún verður al- menn. X X X Vonandi eiga ökumenn eftir að gæta að sér á Nesjavallaleið- inni nýju sem öðmm leiðum. Þvf setur Víkveiji þetta fram, að í Víkurfréttum sagði nýlega frá manni, sem sofnaði undir stýri á leið til Grindavíkur. Ökumaður þessi vaknaði heldur betur upp við vond- an draum, þegar bíllinn fór yfír fyrstu umferðareyjuna í Grindavík og braut niður umferðarskilti. Þessi ökumaður slapp sem betur fer við meiðsli. En það em ekki allir svo heppnir. í samtali við blaðið Dagskrá á Selfossi segir Tómas Jónsson að- stoðaryfírlögregluþjónn: „Fólk trúir því ekki að það lendi í slysum, en trúir því frekar að það vinni í happa- drætti, þó mun fleiri lendi í slysum." XXX að er hreint ótrúlegt hvað skemmdarfysnin virðist rík í okkur. Stöðugt berast fréttir af skemmdarverkum, sem menn vinna á eigum einstaklinga og almenn- ings. Fréttaritari Morgunblaðsins á Blönduósi sendi frétt um skemmd- arverk á símaklefa þar. Og í blaðinu Eystra-homi segir nýlega með fyr- irsögninni: „Enn um skemmdar- verk“, frá því, að þar hafi verið unnin skemmdarverk á símaklefa flórar undanfamar helgar. Og því til viðbótar hafi tvær síðustu helgar verið brotinn upp lás á leiktæki á skólalóð Hafnarskóla og síðan þjösnast á leiktækinu. Það er svo ekki síður sorglegt en'meðferðin á símaklefunum og leiktækinu, að frásögn Eystra-hom er þannig samin, að Víkveiji dags- ins getur ekki annað en flokkað hana undir skemmdarverk á íslenzkri tungu. Frásögnin byijar svona: Það er hreint ótrúlegt, enn er verið að eyðileggja hluti í kring- um- sig... Og endirinn: Einhveijir sjá sér ófært að láta leíktæki bam- anna í friði, með þessum afleiðing- um, í staðinn fyrir að klifra eða róta í sandkassanum þarf að bijóta upp eina lásinn á svæðinu og þjösn- ast á „trambólíninu". 7aöna öiv
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.